Dagblaðið - 06.06.1978, Síða 13

Dagblaðið - 06.06.1978, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978. 13 Johnston heim þetta gera allir á Englandi — sagði Willie Johnston, útherjinn skozki, sem var rekinn heim þar sem hann tók örvandi lyf fyrir leikinn gegn Perú „Ég hélt að það væri allt í lagi að taka pillurnar. Leikmenn heima á Englandi taka svona piliur. Ég nota þær einungis þegar ég er langt niðri. Áður en ég fór frá Englandi spurði ég lækni WBA hvort ég gæti fengið pillur og hann lét mig hafa nokkrar,” sagði Willie Johnstone, — leikmaöurinn sem Aly McLeod, fram- kvæmdastjóri Skota, hafði bundið svo miklar vonir við — en var sendur heim með skömm. Johnston, sem leikur með WBA í I. deild á Englandi, var sendur heim af for- ráðamönnum skozka landsliðsins eftir að uppvíst varð, að hann hafði notað örvandi lyf. „Pillurnar, sem ég notaði heita ractiva,” sagði Johnstone. „Leikmenn voru varaðir við að taka piilur. Johnston leikur ekki framar fyrir Skotland — hann hefur verið sendur heim og mál hans verður jafnvel tekið ■ allt í exíkó þrjárbreytingar Iverja Bonhof, Flohe, Hans Muller, Rummen- igge, Fischer, Deiter Muller. fyrir síðar. Skozka knattspyrnusam- bandið hefur aldrei tengzt sliku fyrr,” sagði Ernie Walker, ritari skozka knatt- spyrnusambandsins. Eftir leikinn gegn Perú voru tveir leik- menn skozka liðsins sendir i „dóp- prufu”. Þeir Willie Johnston og Kenny Dalglish. Það reyndist allt í lagi með Dalglish en hins vegar reyndist Johnston hafa tekið örvandi lyf. i fyrstu var haldið að einungis hefði verið um mistök að ræða, þar sem Johnston hafði verið með kvef — og fengið lyf við því. En síðar kom i Ijós að hann hafði notað örvandi lyf — ractiva. Skozka sambandið brá hart við — sendi Johnston heim. Hinn 31 árs gamli Skoti var því sendur heim með skömm. Hann á að baki litríkan feril — með Rangers, WBA og skozka landsliðinu. Tíu sinnum h'efur Willie Johnston verið rekinn af leikvelli. Hann hefur leikið 22 landsleiki fyrir Skota, þar af 11 eftir að Ally McLeod tók við stjórnvelinum. Minningar Johnston um Argentínu geta því tæplega verið góðar. Þegar Skotland lék í Argentinu fyrir ári síðan var hann rekinn af velli í lands- leiknum gegn Argentínu i umdeildu at- viki. Pernia argentiski bakvörðurinn sló Johnston bylmingshögg í nýrnastað og Johnston féll í völlirin. Þegar hann stóð á fætur sá hann einungis rautt spjald. Hann hafði verið rekinn af leikvelli. At- vikið var frægt um allan heim — sem dæmi um aumingjaskap heimadómara. Argentínsku blöðin fordæmdu dómar- ann mjög, sögðu að Johnston hefði ekk- ert brotið af sér. Hann hefði verið fórnarlamb. Nú, ári síðar, er Willie Johnston aftur í sviðsljósinu. Nú er Kerkhof brákaður Robbie Rensenbrink skoraði tíll þrjú mörk Hollands gegn íran í HM en stjarna leiksins var engu að síður Rene van der Kerkhof, hinn snjalli útherji meistara PSV Eindhoven. Óvíst er þá hvort Rene leikur gegn Perú. Hann meiddist á hendi, örUtil sprunga mynd- aðist i handarbeini og olli honum miklum sársauka. Rene lagði upp tvö marka Hollandsgegn Perú. Rene van der Kerkhof er vissulega vafasamur en Ernst Happel, landsliðs- þjálfari Hollendinga, vonast til að hann leiki. Leikur Hollands og Perú er báðum ákaflega mikilvægur. Hollendingar munu hafa níu leik- menn frá úrslitaleiknum við V-Þýzka- land fyrir fjóruni árunt er þeir töpuðu 1—2, hugsanlega 10. Það fer eftir þvi hvort Rene van der Kerkhof leikur. Johan Needkens mun stjórna öllu spili liðsins á miðjunni ásamt Arie Haan er nú leikur með Anderlecht og Wim Jansen frá Feyenoord. Sennilegt lið Hollendinga gegn Perú er: Jongblöd, Suurbier, Rijsberger, Ruud Krol, Willy van der Kerkhof — tvíburabróðir Rene. Wim Jansen, Arie Haan, Johan Neeskens, Rene van der Kerkhof eða Jan Poorvliet. Gífurleg gleði ríkti í Perú eftir HM- sigurinn gegn Skotum — og liðinu barst heillaóskaskeyti frá forseta landsins. Ramon Quiroga, markvörður liðsins er nú þjóðhetja í Perú — eins og hinn skot- fasti Teofilo Cubillas. Iiann fórnarlamb eigin heimsku — ef til vill fórnarlamb siðar á Englandi. Ef rétt reynist að leikmenn á Englandi taki örv- andi lyf fyrir leiki hlýtur slikt að vera al- varlegt mál. Þetta atvik hlýtur að kalla á rannsókn á hvort slíkt viðgangist. Búizt er við aö Ally McLeod geri miklar breytingar á skozka liðinu. Að inn komi Willie Donachie, frá Manchester City. Fyrir Johnston komi John Robertson frá Nottingham Forest. Þá er eins búizt við að þeir Archie Gemmill og Greame Souness leiki. Lík- legt skozkl lið er: Alan Rough. Stuart Kennedy. Tom Forsyth. Kenny Burns. Willic Donachie. Archie Gemmill. Greante Souness. Asa Hartford. Kenny Dalglish. Jcx’ Jordan. Jolin Robertson. „Við verðurn að vinna Iran og vinna stórt. Vona siðan að Perú sigri Hol- land." sagði Ally McLeod. írönsku leik- mennirnir fá 300 þúsund krónur hver sigri þeir Skota. Liklegt lið er: — Hedjazi. Nazari. Kazerani. Abdollah. Eskandarian, Parvin. Sadeghi, Danai- fard, Ghasempoor. Jahani. Rowshan. Vandræði Brassanna Þau klæddust nýju búningunum í verzlun Ingólfs Óskarssonar á laugardag. Frá vinstri Guðjón Marteinsson, KR, Guðni Bergsson, Val, Þorvaldur Steinsson, Fram. DB-mynd Hörður Vilhjálmsson. Vafasamt er að hinn snjalli miðvallar- spilari Brasiliumanna Revelino verði með i leiknum gegn Spáni i kvöld. Revelino hefur átt við meiðsli í ökkla að stríöa. Þetta er Brössunum mikið áfall þvi Revelino er einmitt maðurinn, sem á að halda öllu spili liðsins gangandi — maðurinn, sem Brassarnir hafa hvað mest bundið vonir við. Hin slaka frammistaða Brassanna gegn Svium hefur beinlinis vakið reiði i Coutinho Brasiliu. Coutinho, þjálfari liðsins hefur verið gagnrýndur óspart. Pressan sagði leik Brassanna hægfara. slakan. Coutinho hafði sína skoðun á málinu. „Orsakirnar fyrir hinum slaka leik okkar gegn Svíum voru taugarnar. Leik- menn mínir voru mjögslæmirá taugum og ekki bætti, að þeir eru álitnir sigur- stranglegastir i HM. En við höfum komið í veg fyrir þetta — mórallinn er góður nú,” sagðsi Coutinho. Revelino tók ekki þátt í æfingu fyrir leikinn — haldraði meðfarm æfingasvæðinu. Það eina sem hinn 32 ára gamli Revelino. HM-stjarna 1970 þegar Brassarnir unnu i Mexikó, sagði — „Ég vonast til að leika. Ég hef verið í stöðugri meðferð lækna,” sagðsi Revelino. Liklegt lið Brassanna er: LK Leao, Toninho, — eða Neilinho, Oscar, Amaral, Edinho, Batista, Cerezo. Revelino, — eða Dirceau, Gil — eða Toninho, ReinaldoZico. Búizt er við miklum breytingum á spánska liðinu eftir ósigurinn gegn Austurríki. Líklegt liðer: Miguel Angel, Marcelino, Olmo, Migueli. San Jose, Pirri, Asensi, Cardeonosa, Juanito, Santillana, Dani. Vinnuvélar með stuttum fyrirvara. Getum útvegad eftirtalin tæki meö mjög stuttum fyrirvara: • Gröfur Ákerman H-9 hjóla, ekinn 3500 tímar ’74 Ákerman H-9 hjóla, ekinn 3200 timar ’75 Ákerman H-9 belta, ekinn 75 timar ’77 ÁkermanH-9 bclta, ekinn 330tímar’77 Ákerman H-12, belta, ekinn 4000 timar, ’74 • Hjólaskóflur Michigan 175 ser IIIA hjólaskófla, mjög góð, ’73 I. H. Hough 90 hjólaskófla, mjög góð ’70 • Bflkranar Bantam typa 788 (vökva), 27 tonn, ’75 P&HtypaTH 300,27,5 tonn, |’73 Lokomo typa A 350 NS, 30.0 tonn, ’72 I.okomo typa A 330 NS, 22,5 tonn, ’73 Bantam typa T 588,163 tonn, ’73 Allen typa 1564 (vökvalappir) ’68 • Kranar m/drifi á öllum hjólum Grove RT 60 S 855 18 tonn, ’76 Bantam S 628 3400,16 tonn, ’74 Bantam S 588 3500 16 tonn ’74 • Vörubílar Volvo FB 86 búkki, ’73 Volvo F8 89 búkki, ’78 Scania llObúkki, ’73 Volvo N 725 búkki, ’74 ■ • Benz 608, mjög góður (kúlutoppur) '72 • Mikið úrval af gaffallyfturum Vélatorgið, Borgartún 24 símar 28590 og 28575 Suurbiervarð bara ekki mál Wim Suurbier, hinn snjalli varnarmaður Hollands lenti I miklum erfiðleikum eftir leik írana og Hollendinga. Hann var sendur í „dóp-prufu” og átti því að pissa í lítið glas. En honum varð ómögulega mál. Hann fékk að drekka, nóg að drekka — kaffi, te, sódavatn og gosdrykki en Suurbier varð bara ómögulega mál. Timinn leið — einn klukkutími, annar, þriðji. Suurbier drakk og drakk — og komið var með bjór handa honum. Hann drakk og drakk — en ómögu- lega varð honum mál. Loks, já loksins, eftir fjóra klukkutíma og fimmtán minútur, nákvæmlega mælt varð Suurbier mál með út- þembda vömb og pissaði í málið. Þá urðu allir ánægðir — og brostu, líka Suurbier. „Við áttum í sömu crfiðleikum með hann í Þýzkalandi fyrir fjórum árum. Já, það er satt — þegar þeir eru að taka prufu hjá Suurbier vita þeir að löng, löng bið er fram- unan,” sagðsi Fritz Kessel, læknir Hollenzka liðsins. Edström verður ekki með Svíum „Aby” Ericson, hinn kunni landsliðs- þjálfari Svía mun ekki nota W.:!; Edström gegn Austurríki í kvöld, ef að likum lætur. Aby mun að öllum Jikindum nota sama lið og koma svo á óvart gegn Brasriiumönnum. Það þýðir að Aby notar þá Benny Woodt og Thomas Sjöbert I sókninni. Hann hefur sagt að Edström sé ekki sami leikmaður og 1974 þegar hann var stjarna sænska liðsins, sem stóð sig svo vel — hafnaði i 5. sæti. Líkleg lið: Svíþjóð — Hellström, Borg, | Roy Anderson, Nordquist, Erlandsson, Tapper, Lcnnart Larson, Linderoth, Bo Larsson, Sjöberg, Wendt. — Austurríki: Koncilia, Sara, Obermeyer, Pezzy, Breiten- berger, Prohaska, Krieger, — eða Weber, Kreuz, Kurt Jara, Schanchner, Krankl — en hann var markhæsti leikmaður í Evrópu á síðasta ári. Pólverjarmeð óbreytt lið Túnis og Pólland mætast I kvöld — og Túnis, sem kom svo mjög á óvart er með óbreytt lið. Að Túnis takist að cndurtaka leikinn — og sigra Pólverja í kjölfar sigurs- ins gegn Mexíkó er hins vegar ólíklegt. Ólíklegt er að hið leikrcynda lið Pólvcrja með þá Lato, Szarmach, Lubanski og De.vna I fararbroddi verði jafnveikt og Mexikó. Raunar er líklegt að Pólvcrjar vinni stórt ~ að Lato, Szarmach og Lubanski verði vörn Túnis ofviða. Fylkir sigraði Reyni 2-1 Fylkir sigraði Reyni, Sandgerði, 2-1 í Laugardal í gærkvöld í 2. deild íslands- mótsins. Reynir hafði yfir í leikhléi, 1-0. Július Jónsson skoraði úr vítaspyrnu. Leikurinn var mjög harður og grófur. Tvö mörk Fylkis á tveimur mínútum í síðari hálfleik tryggðu Reykjavíkurliðinu sigur — Hörður Antonsson jafnaði met- in og Baldur Rafnsson skoraði síðan sigurmark Fylkis á 75. mínútu. Reynir sótti mjög stift það sem eftir var en tókst ekki að jafna. Doyle seldur Mike Doyle, miðvörður Manchester City og enska landsliðsins fyrir aðeins rúmu einu ári, hefur verið seldur til Stoke City fyrir um 50þúsund pund. Doyle hefur verið 15 ár hjá City — unnið til allra stærstu verðlauna enskrar knatt- spyrnu auk þess að hann varö Evrópu- meistari bikarhafa með City. Doyle er ákaf- lega sterkur miðvörður eins og raunar glögg- lega kom í Ijós þegar hann lék með stjörnu- liði Bobby Charlton í Reykjavík fyrir skömmu. Hann missti stöðu sína hjá City á síðastliönum vetri til Tommv Booth.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.