Dagblaðið - 06.06.1978, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978.
13
Johnston heim
þetta
gera allir á Englandi
— sagði Willie Johnston, útherjinn skozki, sem var rekinn heim þar sem
hann tók örvandi lyf fyrir leikinn gegn Perú
„Ég hélt að það væri allt í lagi að taka
pillurnar. Leikmenn heima á Englandi
taka svona piliur. Ég nota þær einungis
þegar ég er langt niðri. Áður en ég fór
frá Englandi spurði ég lækni WBA hvort
ég gæti fengið pillur og hann lét mig hafa
nokkrar,” sagði Willie Johnstone, —
leikmaöurinn sem Aly McLeod, fram-
kvæmdastjóri Skota, hafði bundið svo
miklar vonir við — en var sendur heim
með skömm.
Johnston, sem leikur með WBA í I.
deild á Englandi, var sendur heim af for-
ráðamönnum skozka landsliðsins eftir
að uppvíst varð, að hann hafði notað
örvandi lyf. „Pillurnar, sem ég notaði
heita ractiva,” sagði Johnstone.
„Leikmenn voru varaðir við að taka
piilur. Johnston leikur ekki framar fyrir
Skotland — hann hefur verið sendur
heim og mál hans verður jafnvel tekið
■ allt í
exíkó
þrjárbreytingar
Iverja
Bonhof, Flohe, Hans Muller, Rummen-
igge, Fischer, Deiter Muller.
fyrir síðar. Skozka knattspyrnusam-
bandið hefur aldrei tengzt sliku fyrr,”
sagði Ernie Walker, ritari skozka knatt-
spyrnusambandsins.
Eftir leikinn gegn Perú voru tveir leik-
menn skozka liðsins sendir i „dóp-
prufu”. Þeir Willie Johnston og Kenny
Dalglish. Það reyndist allt í lagi með
Dalglish en hins vegar reyndist Johnston
hafa tekið örvandi lyf. i fyrstu var
haldið að einungis hefði verið um mistök
að ræða, þar sem Johnston hafði verið
með kvef — og fengið lyf við því. En
síðar kom i Ijós að hann hafði notað
örvandi lyf — ractiva.
Skozka sambandið brá hart við —
sendi Johnston heim. Hinn 31 árs gamli
Skoti var því sendur heim með skömm.
Hann á að baki litríkan feril — með
Rangers, WBA og skozka landsliðinu.
Tíu sinnum h'efur Willie Johnston verið
rekinn af leikvelli. Hann hefur leikið 22
landsleiki fyrir Skota, þar af 11 eftir að
Ally McLeod tók við stjórnvelinum.
Minningar Johnston um Argentínu geta
því tæplega verið góðar.
Þegar Skotland lék í Argentinu fyrir
ári síðan var hann rekinn af velli í lands-
leiknum gegn Argentínu i umdeildu at-
viki. Pernia argentiski bakvörðurinn sló
Johnston bylmingshögg í nýrnastað og
Johnston féll í völlirin. Þegar hann stóð
á fætur sá hann einungis rautt spjald.
Hann hafði verið rekinn af leikvelli. At-
vikið var frægt um allan heim — sem
dæmi um aumingjaskap heimadómara.
Argentínsku blöðin fordæmdu dómar-
ann mjög, sögðu að Johnston hefði ekk-
ert brotið af sér. Hann hefði verið
fórnarlamb. Nú, ári síðar, er Willie
Johnston aftur í sviðsljósinu. Nú er
Kerkhof brákaður
Robbie Rensenbrink skoraði tíll þrjú
mörk Hollands gegn íran í HM en
stjarna leiksins var engu að síður Rene
van der Kerkhof, hinn snjalli útherji
meistara PSV Eindhoven. Óvíst er þá
hvort Rene leikur gegn Perú. Hann
meiddist á hendi, örUtil sprunga mynd-
aðist i handarbeini og olli honum miklum
sársauka. Rene lagði upp tvö marka
Hollandsgegn Perú.
Rene van der Kerkhof er vissulega
vafasamur en Ernst Happel, landsliðs-
þjálfari Hollendinga, vonast til að hann
leiki. Leikur Hollands og Perú er báðum
ákaflega mikilvægur.
Hollendingar munu hafa níu leik-
menn frá úrslitaleiknum við V-Þýzka-
land fyrir fjóruni árunt er þeir töpuðu
1—2, hugsanlega 10. Það fer eftir þvi
hvort Rene van der Kerkhof leikur.
Johan Needkens mun stjórna öllu spili
liðsins á miðjunni ásamt Arie Haan er
nú leikur með Anderlecht og Wim
Jansen frá Feyenoord. Sennilegt lið
Hollendinga gegn Perú er: Jongblöd,
Suurbier, Rijsberger, Ruud Krol, Willy
van der Kerkhof — tvíburabróðir Rene.
Wim Jansen, Arie Haan, Johan
Neeskens, Rene van der Kerkhof eða
Jan Poorvliet.
Gífurleg gleði ríkti í Perú eftir HM-
sigurinn gegn Skotum — og liðinu barst
heillaóskaskeyti frá forseta landsins.
Ramon Quiroga, markvörður liðsins er
nú þjóðhetja í Perú — eins og hinn skot-
fasti Teofilo Cubillas.
Iiann fórnarlamb eigin heimsku — ef til
vill fórnarlamb siðar á Englandi. Ef rétt
reynist að leikmenn á Englandi taki örv-
andi lyf fyrir leiki hlýtur slikt að vera al-
varlegt mál. Þetta atvik hlýtur að kalla á
rannsókn á hvort slíkt viðgangist.
Búizt er við aö Ally McLeod geri
miklar breytingar á skozka liðinu. Að
inn komi Willie Donachie, frá
Manchester City. Fyrir Johnston komi
John Robertson frá Nottingham Forest.
Þá er eins búizt við að þeir Archie
Gemmill og Greame Souness leiki. Lík-
legt skozkl lið er: Alan Rough. Stuart
Kennedy. Tom Forsyth. Kenny Burns.
Willic Donachie. Archie Gemmill.
Greante Souness. Asa Hartford. Kenny
Dalglish. Jcx’ Jordan. Jolin Robertson.
„Við verðurn að vinna Iran og vinna
stórt. Vona siðan að Perú sigri Hol-
land." sagði Ally McLeod. írönsku leik-
mennirnir fá 300 þúsund krónur hver
sigri þeir Skota. Liklegt lið er: —
Hedjazi. Nazari. Kazerani. Abdollah.
Eskandarian, Parvin. Sadeghi, Danai-
fard, Ghasempoor. Jahani. Rowshan.
Vandræði Brassanna
Þau klæddust nýju búningunum í verzlun Ingólfs Óskarssonar á laugardag. Frá
vinstri Guðjón Marteinsson, KR, Guðni Bergsson, Val, Þorvaldur Steinsson, Fram.
DB-mynd Hörður Vilhjálmsson.
Vafasamt er að hinn snjalli miðvallar-
spilari Brasiliumanna Revelino verði
með i leiknum gegn Spáni i kvöld.
Revelino hefur átt við meiðsli í ökkla að
stríöa. Þetta er Brössunum mikið áfall
þvi Revelino er einmitt maðurinn, sem á
að halda öllu spili liðsins gangandi —
maðurinn, sem Brassarnir hafa hvað
mest bundið vonir við.
Hin slaka frammistaða Brassanna
gegn Svium hefur beinlinis vakið reiði i
Coutinho
Brasiliu. Coutinho, þjálfari liðsins hefur
verið gagnrýndur óspart. Pressan sagði
leik Brassanna hægfara. slakan.
Coutinho hafði sína skoðun á málinu.
„Orsakirnar fyrir hinum slaka leik
okkar gegn Svíum voru taugarnar. Leik-
menn mínir voru mjögslæmirá taugum
og ekki bætti, að þeir eru álitnir sigur-
stranglegastir i HM. En við höfum
komið í veg fyrir þetta — mórallinn er
góður nú,” sagðsi Coutinho. Revelino
tók ekki þátt í æfingu fyrir leikinn —
haldraði meðfarm æfingasvæðinu. Það
eina sem hinn 32 ára gamli Revelino.
HM-stjarna 1970 þegar Brassarnir unnu
i Mexikó, sagði — „Ég vonast til að
leika. Ég hef verið í stöðugri meðferð
lækna,” sagðsi Revelino.
Liklegt lið Brassanna er: LK Leao,
Toninho, — eða Neilinho, Oscar,
Amaral, Edinho, Batista, Cerezo.
Revelino, — eða Dirceau, Gil — eða
Toninho, ReinaldoZico.
Búizt er við miklum breytingum á
spánska liðinu eftir ósigurinn gegn
Austurríki. Líklegt liðer: Miguel Angel,
Marcelino, Olmo, Migueli. San Jose,
Pirri, Asensi, Cardeonosa, Juanito,
Santillana, Dani.
Vinnuvélar
með stuttum fyrirvara.
Getum útvegad eftirtalin tæki meö mjög
stuttum fyrirvara:
• Gröfur
Ákerman H-9 hjóla, ekinn 3500 tímar ’74
Ákerman H-9 hjóla, ekinn 3200 timar ’75
Ákerman H-9 belta, ekinn 75 timar ’77
ÁkermanH-9 bclta, ekinn 330tímar’77
Ákerman H-12, belta, ekinn 4000 timar, ’74
• Hjólaskóflur
Michigan 175 ser IIIA hjólaskófla, mjög góð, ’73
I. H. Hough 90 hjólaskófla, mjög góð ’70
• Bflkranar
Bantam typa 788 (vökva), 27 tonn, ’75
P&HtypaTH 300,27,5 tonn, |’73
Lokomo typa A 350 NS, 30.0 tonn, ’72
I.okomo typa A 330 NS, 22,5 tonn, ’73
Bantam typa T 588,163 tonn, ’73
Allen typa 1564 (vökvalappir) ’68
• Kranar m/drifi á öllum hjólum
Grove RT 60 S 855 18 tonn, ’76
Bantam S 628 3400,16 tonn, ’74
Bantam S 588 3500 16 tonn ’74
• Vörubílar
Volvo FB 86 búkki, ’73
Volvo F8 89 búkki, ’78
Scania llObúkki, ’73
Volvo N 725 búkki, ’74 ■
• Benz 608, mjög góður (kúlutoppur) '72
• Mikið úrval af gaffallyfturum
Vélatorgið,
Borgartún 24 símar 28590 og 28575
Suurbiervarð
bara ekki mál
Wim Suurbier, hinn snjalli varnarmaður
Hollands lenti I miklum erfiðleikum eftir leik
írana og Hollendinga. Hann var sendur í
„dóp-prufu” og átti því að pissa í lítið glas.
En honum varð ómögulega mál. Hann fékk
að drekka, nóg að drekka — kaffi, te,
sódavatn og gosdrykki en Suurbier varð
bara ómögulega mál. Timinn leið — einn
klukkutími, annar, þriðji. Suurbier drakk og
drakk — og komið var með bjór handa
honum. Hann drakk og drakk — en ómögu-
lega varð honum mál. Loks, já loksins, eftir
fjóra klukkutíma og fimmtán minútur,
nákvæmlega mælt varð Suurbier mál með út-
þembda vömb og pissaði í málið. Þá urðu
allir ánægðir — og brostu, líka Suurbier.
„Við áttum í sömu crfiðleikum með hann í
Þýzkalandi fyrir fjórum árum. Já, það er
satt — þegar þeir eru að taka prufu hjá
Suurbier vita þeir að löng, löng bið er fram-
unan,” sagðsi Fritz Kessel, læknir
Hollenzka liðsins.
Edström verður
ekki með Svíum
„Aby” Ericson, hinn kunni landsliðs-
þjálfari Svía mun ekki nota W.:!; Edström
gegn Austurríki í kvöld, ef að likum lætur.
Aby mun að öllum Jikindum nota sama lið og
koma svo á óvart gegn Brasriiumönnum.
Það þýðir að Aby notar þá Benny Woodt og
Thomas Sjöbert I sókninni. Hann hefur sagt
að Edström sé ekki sami leikmaður og 1974
þegar hann var stjarna sænska liðsins, sem
stóð sig svo vel — hafnaði i 5. sæti.
Líkleg lið: Svíþjóð — Hellström, Borg, |
Roy Anderson, Nordquist, Erlandsson,
Tapper, Lcnnart Larson, Linderoth, Bo
Larsson, Sjöberg, Wendt. — Austurríki:
Koncilia, Sara, Obermeyer, Pezzy, Breiten-
berger, Prohaska, Krieger, — eða Weber,
Kreuz, Kurt Jara, Schanchner, Krankl — en
hann var markhæsti leikmaður í Evrópu á
síðasta ári.
Pólverjarmeð
óbreytt lið
Túnis og Pólland mætast I kvöld — og
Túnis, sem kom svo mjög á óvart er með
óbreytt lið. Að Túnis takist að cndurtaka
leikinn — og sigra Pólverja í kjölfar sigurs-
ins gegn Mexíkó er hins vegar ólíklegt.
Ólíklegt er að hið leikrcynda lið Pólvcrja
með þá Lato, Szarmach, Lubanski og De.vna
I fararbroddi verði jafnveikt og Mexikó.
Raunar er líklegt að Pólvcrjar vinni stórt ~
að Lato, Szarmach og Lubanski verði vörn
Túnis ofviða.
Fylkir sigraði
Reyni 2-1
Fylkir sigraði Reyni, Sandgerði, 2-1 í
Laugardal í gærkvöld í 2. deild íslands-
mótsins. Reynir hafði yfir í leikhléi, 1-0.
Július Jónsson skoraði úr vítaspyrnu.
Leikurinn var mjög harður og grófur.
Tvö mörk Fylkis á tveimur mínútum í
síðari hálfleik tryggðu Reykjavíkurliðinu
sigur — Hörður Antonsson jafnaði met-
in og Baldur Rafnsson skoraði síðan
sigurmark Fylkis á 75. mínútu. Reynir
sótti mjög stift það sem eftir var en tókst
ekki að jafna.
Doyle seldur
Mike Doyle, miðvörður Manchester City
og enska landsliðsins fyrir aðeins rúmu einu
ári, hefur verið seldur til Stoke City fyrir um
50þúsund pund.
Doyle hefur verið 15 ár hjá City — unnið
til allra stærstu verðlauna enskrar knatt-
spyrnu auk þess að hann varö Evrópu-
meistari bikarhafa með City. Doyle er ákaf-
lega sterkur miðvörður eins og raunar glögg-
lega kom í Ijós þegar hann lék með stjörnu-
liði Bobby Charlton í Reykjavík fyrir
skömmu. Hann missti stöðu sína hjá City á
síðastliönum vetri til Tommv Booth.