Dagblaðið - 06.06.1978, Síða 24
Flokkakynning sjónvarpsins:
S tjómarflokkamir æ tla
ekki að skerða kjörin
— eftir kosningar sagði forsætisráðherra
fannst, að forsætisráðherra væri með Magnús Torfi Ólafsson alþingis-
þessum orðum að boða, að Sjálfstæðis- maður, að kjósendur i Reykjavík
og Framsóknarflokkur hygðust halda hefðu þegar ákveðið að fella einn þing-
Stjórnarflokkarnir ætla ekki að
skerða kjörin meira eftir kosningamar
að sögn Geirs Hallgrimssonar for-
sætisráðherra í flokkakynningu sjón-
varpsins i gærkvöldi. Forsætisráð-
herra lagði áherzlu á, að þeir, sem
meira hefðu en lægstu laun, yrðu að
færa fórnir, ef útrýma ætti verðbólg-
unni eins og Sjálfstæðisflokkurinn
stefndi að. Rikisstjómin hefði stefnt i
þessa átt, en hins vegar væri rangt,
sem sumir segðu, að stjórnarflokkarnir
ætluðu að halda áfram kjaraskerðingu
eftir kosningar.
Mörgum sjónvarpsáhorfendum
áfram stjórnarsamstarfinu eftir
kosningar. Ráðherra sagði að öðru
leyti, að valið væri milli stjómarfor-
ystu Sjálfstæðisflokksins annars vegar
og vinstri stjórnar hins vegar.
Hann þakkaði núverandi ríkisstjórn
góða framgöngu í varnarmálum og
landhelgismálum. Þá hefði atvinnu-
öryggi verið varðveitt.
Leynifrumvarp
í kynningu Samtakanna sagði
mann Sjálfstæðisflokks og einn þing-
mann Framsóknar. Valið væri um,
hvort hann og Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir, formaður Sóknar, næðu kjöri
eða Svava Jakobsdóttir og Ólafur
Ragnar Grímsson fyrir Alþýðubanda-
lagið ellegar Vilmundur Gylfason og
Jóhanna Sigurðardóttir fyrir Alþýðu-
flokkinn. Aðalheiður lagði í sjónvarps-
þíettinum áherzlu á, að verkakona
fengi sæti á Alþingi. Ekki væri nóg, að
þar sætu einhverjir, sem þættust vera
fulltrúar verkafólks.
Sigurður Helgason, efstur á lista
óháðra í Reykjaneskjördæmi, skýrði
frá leynifrumvarpi, sem allir flokk-
arnir hefðu samið um ríkisstuðning
við stjórnmálaflokkana. Óháðir lögðu
áherzlu á, að flokksræðinu yrði
hnekkt og hlutur Reyknesinga réttur,
en þeir hefðu nú aðeins fimmta hluta
atkvæðisréttar miðað við sum önnur
kjördæmi. Vilhjálmur Skúlason
prófessor sagði, að þingið hefði getað
leiðrétt þetta misrétti síðustu nótt
þingsins, ef á þvi hefði verið áhugi.
- HH
Laxakistaní
Elliðaánum
brotin
— Einum iaxi stolið,
annardreninn
Guðmundur Bang umsjónarmaður lax-
eldis í Elliðaánum með laxinn sem var
dauðurí brotnu kistunni.
DB-mynd Sveinn Þorm.
Þanniu brutu strákarnir kistuna upp.
Seinl i gærkvöldi veittu menn
nokkrum piltum athygli sem brotið
höfðu laxakistu þá sem er við raf-
stöðvarbygginguna við Elliðárnar og
allir laxar sem i árnar ganga fara um.
Gerðu þeir Guðmundi Bang eftirlits-
manni viðvart, en þá er hann kom á
staðinn voru piltarnir á bak og burt.
í ljós kom að þeir höfðu brotið kist-
una, stolið þar laxi og annar var dauður
í kistunni. Kistan er veiðigildra fram
undir þann tima að laxveiðar Hefjast.
Lax sem í hana gengur kemst hvorki til
baka né áfram upp og er þessi lax
notaður til undaneldis til að fá stofn sem
snemma gengur. Voru 10 laxar í kist-
unni í gær og þess vegna vitað um
stuldinn.
Auk þess sem strákarnir réðust að
kistunni brutu þeir rúðu i útihurð raf-
stöðvarinnar. Mál þetta er í rannsókn.
ASt.
FEGRA OG BÆTA BORGINA
Sannkallaður sumardagur var í var kastað og fólk lét sólina verma sig gera borgina fegurri og snyrtilegri og
höfuðborginni i gærdag. Og þá var til að fá svolítinn lit, og til að góma öll cr ekki vanþörf á.
eins og við manninn mælt. Fólk varð fjörefnin, sem sólargeislarnir bera með
léttara yfirbragðs en vant er. Fötum sér. Ungu dömurnar vinna að því að DB-mynd Ragnar Th. Sig.
A llt bendir til að vísitölubætur verði greiddar á laun borgarstarfsmanna:
Strandar ekki á mér
— segir Kristján Benediktsson, borgarráðsmaður Framsóknarflokksms
„Ég gerði þetta mál ekki að umtals-
efni í kosningabaráttunni og þarf ekki að
standa við neitt. En ef aðrir flokkar telja
fært að greiða vísitölubætur á laun
borgarstarfsmanna þá strandar það ekki
á mér,” sagði Kristján Bencdiktsson,
■<-----.■■,■■■■■■ m
Kristján Benediktsson, borgarráðs-
maður. — Ljósmynd DB: Höröur.
borgarráðsmaður Framsóknar-
flokksins, i samtali við DB i gær.
En verður þeim borgarstarfsmönnum,
sem sviptir voru hluta af launum sínum
vegria þátttöku í mótmælaverkfallinu í
marz endurgreiddur frádrátturinn?
„Það mál hefur ekki verið rætt, fremur
en hitt, á fundum nýja meirihlutans. En
ég mun heldur ekki leggjast gegn þvi að
það verði gert ef hinir flokkarnir telja
það mögulegt,” sagði Kristján Bene-
diktssonennfremur.
Formlegar viðræður meirihlutaflokk-
anna í borgarstjórn hafa ekki farið fram
nú að undanförnu. Búizt er við að um-
ræður um málefnasamning hefjist þó
innan skamms. Engin ákvörðun hefur
enn verið tekin um það hver verður
næsti borgarstjóri Reykjavíkur.
• Gm
frjálst, úháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ1978
Laxveiðin
fór velaf
staðí
Borgarfirði
56 laxarálandúr
Norðurá, 17 á fyrsta
degiíÞverá. Veður
hefurspillt veiðum
Laxveiðimenn eru byrjaðir að berja
árnar með tækjum sínum og yfirleitt er
gott hljóð í mönnum og menn eru
ánægðir með byrjunina „miðað við
aðstæður”
Stangaveiðin hófst í Norðurá að venju
I. júní og fyrsta daginn þegar stjórnar-
menn Stangaveiðifélags Reykjavíkur
veiddu þar komu 26 laxar á land. Síðan
kólnaði og veður spilltist og á hádegi í
gær, mánudag voru 56 laxar komnir á
land að sögn. Ingibjargar Ingimundar-
dóttur í veiðihúsinu. Voru þeir frá 8 og
upp i 13 pund, fallegir fiskar. í Norðurá
er veitt á 10 stangir og þar voru allir
ánægðir.
Kristján Fjaldsted í Ferjukoti byrjar
netaveiði sina 20. maí. Hann var i gær,
búinn að fá 14 laxa i netin. Var veiðin
álíka fyrstu -vikuna nú og var í fyrra.
Siðan spilltist veður og vatn í ánum óx
og dró þá úr veiði.
Kristjáni leizt dável á veiðiútlitið í
sumar. Taldi hann að laxinn biði úti
fyrir og myndi ganga strax og hlýnaði.
Veiðin myndi fara eftir veðráttunni.
Blaðið hafði spurnir af því að fyrsta
daginn í Þverá — neðri hluta, hefðu
veiðzt 17 laxar og voru þéir flestir vænir
vel.
Laxveiði hefst svo innan skamms í
hverri ánni af annarri. 10. júní hefst
veiði í Elliðaánum, 21. i Stóru-Laxá, 23.
í Grímsá og þá verður veiði hafin í
flestum ám landsins.
ASt.
Óháðirkrefjast
lögbannsá
sjónvarpsþætti
Sigurður Helgason lögfræðingur, efsti
maður á framboðslista óháðra kjósenda í
Reykjaneskjördæmi, hefur lagt fram hjá
borgarfógeta kröfu um lögbann á fjórum
fyrirhuguðum þáttum sjónvarpsins fyrir
kosningarnar. Sigurður kveðst leggja
fram tryggingu, ef krafizt verði, fyrir
framkvæmd slíks banns.
. Þarna er um að ræða þættina „fram-
boðsfundur i sjónvarpssal”, „setið fyrir
svörum”, „hringborðsumræður” og
„lokayfirlit”. Sigurður sagði í viðtali við
DB í gær, að óháðir í Reykjaneskjör-
dæmi ættu að fá að láta sjá sig í sjón-
varpi í gærkvöld en síðan væri þeim
bannað að koma þar fram, meðan gömlu
flokkarnir legðu undir sig fjölmarga
þætti. Þetta væri brot gegn stjórnarskrá
og 3. grein útvarpslaganna, þarsem lögð
væri áherzla á lýðræði í útvarpsrekstri
og óhlutdrægni gagnvart stefnum og
flokkum.
- HH