Dagblaðið - 30.06.1978, Qupperneq 1
4. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 30. JÚNl 1978 - 138. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.— AÐALSÍMI 27022.
Forsetinn velur manninn upp úr miðri næstu viku:
ALÞÝÐUBANDALAGD ÁHUGA-
SAMT UM MHMHUJTASTJÓRN
— en án hlutleysisyf irlýsingar
Forseti íslands mun sennilega ekki
fela neinum stjórnarmyndun fyrr en
um miðja næstu viku eða jafnvel síð-
ar. Hann mun aftur kalla formenn
flokkanna fyrir sig, liklega ekki fyrr en
á þriðjudag.
Þar kemur meðal annars til að
flokksstjórnir Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags, sem eiga að ráða
ferðinni, koma ekki saman fyrr en á
mánudag. Ábendingar til forseta um
hver reyna skuli að mynda stjórn,
munu fyrst koma að marki eftir þá
fundi.
Þingmeno Alþýðubandalagsins
hafa rætt í sínum hópi möguleika á að
mynda minnihlutastjóm með Alþýðu-
flokki, án þess að fyrir liggi ákveðin
hlutleysisyfirlýsing frá Framsókn eða
Sjálfstæðisflokki. Slík stjórn ætti, segja
þeir, að semja við launþegasamtökin
og „standa eða falla” með slíkum
verkum sínum.
Einkaviðræður stjórnmálamanna
úr hinum ýmsu flokkum eru nokkuð
komnar í gang. Lúðvík Jósepsson (AB)
fer þó austur í dag til að mæta á sigur-
hátíð G-listans í Austurlandskjör-
dæmi, Hann kemur aftur i bæinn á
morgun.
I.úðvík og Bepedikt Gröndal (A)
ræddust við í gær. Viðræðurnar voru
óformlegar og var rætt almennt um
málin en ekki ákveðið um stjómar-
myndun þessara flokka.
„Varla er hægt að segja að svo sé,”
sagðsi Benedikt Gröndal i morgun
þegar hann var spurður hvort
viðræður um stjórnarmyndun væru
komnar í gang. Um hugmyndir
Alþýðubandalagsmanna um minni-
hlutastjóm sagði hann að fyrst yrði þá
að koma sér niður á hvað það væri
sem slik stjórn gæti staðið eða fallið
með. Hann kvaðst ekki vilja útiloka
neinn möguleika. HH.
Hvað kostaraðfaraí
sólskinið fyrir norðan?
Hvað kóstar að borða og gista á dag. Ferðin byrjar i Hrútafirðinum og
ferðalagi um tsland. Dagblaðið byrjar síðan er farið austur úr. í dag förum
kynningu á verði á hótelum og við til Akureyrar.
matsölustöðum umhverfis landið í sjábls. 16
Frönsk blómarós, sem firéttamaður DB á Akureyri, Friðgeir Axfjörð, hitti
fyrir I gær I sólskininui Fnjóskadabtum.Hón ferðast á ódýran hátt, alein, um
landið.
I
„Samningar eru sið-
f
— segirVilmundurGylfason
í föstudagskjallara — sjá bls. 10-11
„Meira fyrir mánaðarlaunin”
Við eigum að venja okkur á að
reikna út einingarverð hinna ýmsu
hluta sem við þurfum að kaupa til
heimilisins. 1 dag gerum við saman-
burð á verðinu á kartöflustöppum
V
í pökkum, og reiknum út eininga-
verð. Sá ódýrasti er ekki alltaf
ódýrastur þegar allt kemur til alls.
tdagborðum viðnautasmásteik!
Sjá bls.4.
Kona var f ráskilin og hjónabandið
dæmt Ógilt — sjá erléndar f réttir bls. 6-?
Borgin hætt að borga á föstudögum:
„PENINGALEYSI
ER EKKERT NÝn”
— segirborgargjaldkeri
„Það er einfaldlega peningaleysi
sem veldur því að verktökum og öðr-
um kröfuhöfum borgarsjóðs er ekki
alltaf borgað á föstudögum, eins og
venjan hefur verið,” sagði Jón Rós-
mundsson borgargjaldkeri í samtali
við DB i morgun.
Blaðinu hafa borizt ábendingar um
að siðan nýi borgarstjórnarmeirihlut-
inn tók við hafi orðið áberandi mis-
brestur á að staðið væri við greiðslur
úr borgarsjóði á föstudögum.
Jón Rósmundsson sagði að engin
breyting hefði orðið á í þessum málum
með tilkomu nýs borgarstjórnarmeiri-
hluta. „Þetta hefur verið svona af og
til í mörg ár,” sagði hann. „í janúar og
byrjun febrúar var ástandið eins og
nú. Þegar greiðslubyrðin er mikil verð-
ur einhver að verða útundan, en alltaf
er reynt að gera einhverja úrlausn.
Útivinnan er helmingi meiri á sumrin
en á vetrum og það reynum við að
borga, en svo hitt eftir því sem pening-
ar koma inn. Þetta er alls staðar svona
i verðbólgunni, enda eru allar áætlanir
miðaðar við tölur sem mjög fljótlega
verða óraunhæfar.” —ÓV.