Dagblaðið - 30.06.1978, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1978.
DB á ne vtendamarkaði
ÞAÐ KOSTAR LIKA PENINGA
AÐ BÚA TIL SJÁLFUR
Til er sá möguleiki að búa sjálfur til
sína kartöflustöppu úr venjulegum
soðnum kartöflum og þá snýr dæmið
nokkuð öðru visi við. En í uppskrift-
unum okkar er ekki reiknað með
þeirri vinnu sem fer i að búa til kart-
öflustöppuna og heldur ekki þvi raf-
magni sem fer til þessaðelda hana.
Sjá uppskrift með verði annars
staðarhérásiðunni. A.Bj.
[óAáfl
yblað
jaasgpgsg
< \ci CVGT Á ÓSWjjí—
í _ _
AF HVERJU GÁFU ÞEIR ÉKKÍ
TÓMATANA FREKAR EN AÐ
HENDA ÞEIM Á HAUGANA?
Neytendasamtökin láta frá sér heyra
Eftirfarandi fréttatilkynning barst i
gær frá Neytendasamtökunum. Þaðer
nánast óskiljanlegt að islenzkt fyrir-
tæki skuli leyfa sér að henda góðri
matvöru. Hefði ekki verið réttara að
auglýsa hreinlega að hver sem hafa
vildi gæti fengið tómatana ókeypis
með þvi að koma og sækja þá?
Það stendur ekki á okkur hér á
islandi að hneykslast yftr eyðileggingu
á matvælum erlendis þegar offram-
leiðsla er, t.d. bæði á kaffi og hveiti.
Við erum hreinlega ekki betri sjálfir.
Þetta er svo sem ekkert nýtt fyrir-
brigði hér á landi. Þetta er, að þvi er
manni skilst, árviss atburður, að of-
framleiösla á tómötum sé á ákveðnum
árstíma hér á landi. Kannske er þarna
skipulagsleysi um að kenna, en manni
sýnist að óþarfi sé að henda góðri vöru
sem enn er seld á hærra verði i
verzlunum en margur treystir sér til að
ráða við.
-A.Bj.
Reykjavik 29. júní 1978.
„Vegna forsíðufréttar í Dagblaðinu
í dag um eyðileggingu á tómötum vill
stjórn Neytendasamtakanna leyfa sér
að birta hér bréf, sem sent var
Sölufélagi garðyrkjumanna, 21. júli
1977.
Neytendasamtökin hafa tekið eftir
fréttum i fjölmiðlum um eyðileggingu
á gúrkum og tómötum. Sé tekið tillit
til þess, að íslenzkur matur er heldur
snauður af vítaminum og að verð á
gúrkum og tómötum i verzlunum er
svo hátt, að margar fjölskyldur geta
ekki keypt nægilegt magn af þessum
vörum, er eyðileggingin ekki forsvar-
anleg. Þar að auki er nauðsynlegt að
hafa í huga, að niðursoðið gúrkusalat
og asiur á háu verði er flutt inn
erlendis frá. Vilja NS þvi vinsamlega
benda yður á eftirfarandi möguleika
varðandi fullnýtingu þessara vara.
1. Selja aftur í verzlunum gúrkur og
tómata 2. flokks á lágu verði eins og
fyrr.
2. Frysta niðurskornar gúrkur og selja
á vetri.
3. Selja á heildsöluverði og með af-
slætti kassa af gúrkum og tómötum
beint til neytenda og auglýsa slíka sölu
vel.
4. Leiðbeina neytendum varðandi
frystingu og niðursuðu grænmetis. Til
hliðsjónar mætti hafa þær leiðbeining-
ar, sem SG gaf út fyrir nokkrum árum
um notkun og meðferð grænmetis,
enda var sú hugmynd mjög til fyrir-
myndar.
Viljum við vinsamlegast biðja yður
um skriflegt svar sem allra fyrst.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Neytendasamtakanna
Reynir Armannsson, formaður”.
SÆTAÁKLÆÐI
fyrirliggjandi á Skoda
Amigo bíla, margar gerðir.
Efni: flauel, perlon, velúr og
pluss.
Valshamar,
Lækjargötu 20, Hafnarfirði.
Sími 51511.
ÚTBOÐ
Stjórn verkamannabústaða á Eskifirði óskar eftir til-
boðum í smíði og uppsetningu innréttinga og hurða í
„stallahús” á Eskifirði (8 íbúðir).
Útboðsgögn eru afhent á verkfræðistofunni Hönnun
hf. Höfðabakka 9, Reykjavík, gegn 5.000 kr. skilatrygg-
ingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þann 25. júlí
1978, kl. 14.00.
hönnun hf
Ráðgjafarverkfræðingar FRV • Höfðabakka 9 • Reykjavik.
Það hefur löngum rikt eins konar
„kalt strið” milli kaupmanna og
kartöflueinkasölunnar. Kaupmenn
vilja halda því fram að þeir fái ekki
annað en „ruslið” frá einkasölunni og
það i tilluktum pokum. Það er lika
laukrétt að stundum verður maður
undrandi þegar kartöflurnar eru
teknar úr pokanum því stærð þeirra
getur verið svo mismunandi; allt frá
pinulitlum kartöflum, sem eru
tilvaldar til þess að sykurbrúna og upp
í stórar hlussur sem hentugast er að
baka i ofni! En inni í einkasölunni
getur hver sem er gengið og keypt sér
valdar kartöflur, allar af sömu stærð
og í hvaða magni sem er!
DB-mynd Bjarnleifur.
Nautasmásteik á borðum \ dag
Verð rúmlega 600 kr. á mann
4—500 g beinlaust nautakjöt
3 matsk. olía
2 matsk. hveiti
I/2 tsk. salt og I/8 tsk. pipar
1 laukur
2gulrætur
kóngakrydd (meriaml
2 dl. kjötsoð (eða vatn og teningur)
Kjötið er skorið i litla bita og þeim
velt upp úr krydduðu hveitinu.
Hreinsið laukinn og skerið hann smátt
og gulræturnar í bita. Hitið olíuna á
pönnu og brúnið kjötið í olíunni á öll-
um hliðum. Þá er grænmetið látið
saman við kjötið og 2 dl af kjötsoði.
Soðið við vægan hita þangað til kjötið
er meyrt. eða i rúmlega klukkutima.
Með þessu er gott að hafa kartöflu-
stöppu.
Kartöflustappa:
l/2 kg kartöflur
l/2 — l dl mjólk
salt
I/8 tsk. pipar
l /4 tsk. paprika.
Kartöflurnar eru soðnar, flysjaðar
og marðar. Þær eru síðan hrærðar vel
með mjólkinni og kryddinu, langbezt
er að gera það í vél. Gætið þess að hita
þær aftur við vægan hita, því kartöflu-
stöppu hættir til að brenna við botn-
inn.
V erð: 2437 kr. eða 609 kr. á mann.
Mismunandi verð á
kartöf lustöppu í pökkum
Allt f rá ca 19 upp í 86 kr.
Kartöflu- stappa SS-Austur- veri Hag- kaup Vöru- mark. K.Þ. Húsavík Búrfell
Yeoman 20 sk. 699 33
Yeoman 8 sk. _ 300 38
Betty Crocker 24 sk. 460 19 _ _
Erin, ca 4sk. 205 51 199 50 199 50
Maggi, 30 sk. 1132 38 1429 48 1130 38
Maggi 4 sk. — 205 51 207 52
Knorr, 8 sk. 245 31
Mielihyva 6 sk. 363 61 319 53 1 _
Sadon korjun 6 sk. 333 56
Toro, 3 sk. 259 86 _ _
Mills, 6 sk. — 313 52 i '
F.D.B., 8 sk. — 287 35.87
Coop, 6 sk. — _ 245 40.83
Hungry Jack, 4 sk. — — — — 159 39.75 — —
Taffelmos, 4 sk. — — — — — — — — 255 64
Þegar við stöndum fyrir framan hil!
una i stórverzlun og ætlum að kaupa
okkur pakka af kartöflustöppu er okk-
ur þó nokkur vandi á höndum ef við
Þetta er langódýrasta kartöflustappan
sem völ er á (I það minnsta fyrri hluta
júnf), en einn skammtur kostar um 19
kr. — DB-mynd Bjarnleifur.
ætlum að gerasem hagstæðust inn-
kaup. Verðið á pökkunum hverjum
fyrir sig er ekki ósvipað en innihald
þeirra er ætlað fyrir mjög mismunandi
marga, eða allt frá fyrir þrjá og upp í
30. Til þess að finna út hvað kartöfl-
urnar kosta á hvern skammt verður
þvi helzt að hafa meðferðis tölvu en
það er vitanlega mjög óhentugt.
Því höfum við nú reiknað út
skammtaverð hinna ýmsu tegunda
sem við fundum í þremur stórmörkuð-
um i Reykjavik og tveimur verzlunum
á Flúsavík.
Á þessum samanburði sést að
verðið á skömmtunum er ákallega
mismunandi eða allt frá 19.16 kr. upp
i 86.33 kr.