Dagblaðið - 30.06.1978, Page 24
Forstjórí efnagerðarinnar Vals um tómataofframleiðsluna:
Ódýrara aö kaupa
hráefni frá Kína
vinn f remur úr off ramleiðslunni af metnaði en hagkvæmní
Þrátt fyrir aðég fái 100 til 300 tonn
af umframframleiðslu tómata árlega
til vinnslu og þaðeðlilega á fnun lægra
verði en heildsöluverði, er eftir sem
áður ódýrara að flytja hráefni til tóm-
atsósugerðar inn alla leið frá Kina.
sagði Friðþjófur Þorsteinsson. for
stjóri Efnagerðarinnar Vals i viðtali
við DBí gær.
Sagðist hann fremur gera þetta af
metnaði fyrir að vinna úr íslenzku hrá-
efni en af hagkvæmnisástæðum. Fyrir
utan hærra hráefnisverð hér þyrfti að
verulegu leyti að vinna úr islenzka
hráefninu i næturvinnu og auk þess
skamman tima ársins, eða á meðan
framleiðslan er i hámarki.
Verksmiðjan getur framleitt úr allt
að fimm tonnum tómata á dag og hóf
Friðþjófur þessa framleiðslu hér þar
sem hann vildi ekki trúa að það væri
ekki hægt á sínum tima. Bjóst Frið-
þjófur við að það sem hent var i fyrra-
dag hafi verið umfram það sem hann
réð við að taka. Efnagerðin er um
þessar mundir að flytja starfsemi sína í
nýja verksmiðju í Hafnarfirði og þar
áformar Friðþjófur að þróa þessa
vinnslu til muna. Vonaðist hann jafn-
framt til að með tilkomu þeirrar verk-
smiðju þyrfti ekki framar að koma til
þess að heilum tómötum væri kastað á
haugana.
-G.S.
Almenningur grípinn réttlátri reiði vegna tómatamálsins
Mikil og almenn reiði greip um sig
meðal fólks i gær þegar það las DB
fréttina um að tómötum hefði verið
hent i stórum stil á haugana. Simi
Neytendasamtakanna var rauðglóandi
og í samtali við blaðið sagði Reynir1
Ármannsson, formaður samtaKanna,
að fólk hefði ekki látið sér nægja að
hringja heldur hefðu fjölmargir lagt
leið sína á skrifstofuna til þess að lýsa
vanþóknun sinni á aðgerðum Sölufé-
lagsins.
Reynir sagði að Neytendasamtökin
vildu biðja fólk að vera á verði gagn-
vart svona aðgerðum og láta vita ef
það verður vart við að matvælum sé
hent. Það er ósköp lítið sem hægt er að
gera i málinu annað en að mótmæla
kröftuglega.
Neytendasamtökin sendu Sölufélagi
garðyrkjumanna bréf í gær og létu
jafnframt alla fjölmiðla fá afrit. Það
má lesa á Neytendasíðu DB, sjá bls. 4.
A.Bj.
Flugleiðireigaaftur
von í Sri Lanka-f lug:
Viðræður
við stjórn-
völd þar
í vikunni
Flugleiðir eru enn í litlum hópi likleg-
ustu flugfélaga til að taka að sér flug
fyrir íbúa Sri Lanka i Afriku, áður
Ceylon, en heimamönnum hefur ekki
tekizt að vera sjálfum sér nógir i þeim
efnum siðan rekstrargrundvöllur Air
Ceylon brást.
Sigurður Helgason, einn forstjóra
Flugleiða, átti viðræður við stjórnvöld
þar I landi nú i vikunni, en er ekki kom-
inn heim úr ferðinni. Að sögn blaðafull-
trúa Flugleiða hefur ekkert frétzt af við-
ræðunum enn. Um tíma var talið að
Flugleiðir kæmu ekki lengur til greina
en einhver hreyfing í gagnstæða átt virð-
ist vera nú.
—G.S.
Hafnarfjörður.
Eldurínýju
mannlausu húsi
Um kvöldmatarleytið i gær kom upp
eldur i mannlausu húsi að Vesturvangi
28 i Hafnarfirði. Fr þetta nýtt einlyft
steinhús sem ætlunin var að fly tja inn i i
dag. Eldsvoðinn hefur heldur betur sett
strik i þá áætlun.
Frumrannsókn bendir til að eldurinn
hafi verið mestur i anddyri hússins en
húsið allt er skemmt af hita og reyk.
Ókannað er hve illa einangrun er farin.
Flest bendir tii aðeldurinn hafi kvikn-
að út frá rafmagni.
ASt.
Á SKÓDANUM BURTUR LEIKHUSINU
Far vel Frans. Leikfélag Akureyrar
stendur nú eftir leikaralaust og leik-
hússtjórinn er farinn líka. Hér kveðja
þau Brynja Benediktsdóttir leikhús-
stjóri og Erlingur Gislason leikari leik-
húsið og hverfa á brott í blæjuskódan-
um góða, stöðutákni Erlings.
Leikararnir fara hver I sína áttina.
Sumir í framhaldsnám erlendis og Er-
lingur og Brynja á skódanum suður í
Þjóðleikhús, þar sem þau taka til við
fyrri iðju. Þótt ekki horfi björgulega
hjá L.A. í bili verður þó að vona að úr
rætist. Félagið hélt í velheppnaða leik-
för til Reykjavtkur i vor og vonandi
verða þær fleiri.
—JH/DB-mynd Fax.
Flutt margbrotin og skorin til Reykjavíkur
Alvarlegt umferðarslys í Suðursveit
Alvarlegt umferðarslys varð undan
bænum Sléttaleiti i Suðursveit í gærdag.
Bifreið úr Reykjavik sem í voru tvær
konur og karlmaður fór út af vegi og
slasaðist allt fólkið mikið og var flugvél
fengin til að flytja það til Reykjavikur.
Tókst vél frá Vængjum að lenda
skammt frá slysstaðnum og þótti mikið
lán því erfitt hefði verið að flytja fólkið
70kmleið til Hafnar.
Við útafaksturinn lenti litli billinn á
stóru bjargi og varð af mikið högg. Kast-
aðist billinn af steininum og sneri i öfuga
átt við akstursstefnu er hann stöðvaðist.
önnur kvennanna ók bílnum og var
hún mikið sködduð á höfði. Maðurinn
sem fram i sat var einnig mikið skorinn
og fékk mikið högg á fætur. Tókst
honum þó að ná báðum konunum út úr
bilflakinu um framrúöugat. Konan sem
aftur í sat brouiaði á báðum fótum og
hlaut fleiri sár.
í Borgarspítalanum fengust þær upp-
lýsingar í morgun að fólkið væri ekki í
lífshættu þrátt fyrir mikil meiðsli.
ASt.
VERÐUR ALÞYÐUBLAÐINU
BREYTT UM HELGINA?
„Það eru einkum tveir möguleikar
sem ræddir hafa verið til lausnar á
vandamálum Alþýðublaðsins. Annað
hvort að breyta þvi i vikublað eða
mjög litið (jagblað sem einbeitti sér að
pólitiskum skrifum,” sagði Benedikt
Gröndal, formaður Alþýðuflokksins, i
samtali við DB í morgun.
Engin ákvörðun hefur enn verið
tekin um framtið blaðsins, en það
getur orðið á hverri stundu. Jafnvel er
hugsanlegt að blaðið komi út í breyttri
mynd nú eftir helgina sagði hann enn
fremur.
DB er kunnugt um að fréttastjóri
Alþýðublaðsins og nokkrir blaðamenn
hafa látið af störfum. Árni Gunnars-
son ritstjóri er erlendis en í fjarveru
hans hafa Vilmundur Gylfason og
Haukur Helgason skólastjóri haft rit-
stjórn blaðsins á hendi í samvinnu við
BenediktGröndal.
frjálst, óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1978,
Ekkert
varð af
hjólreiðum
bræðranna
Cimarro sirkusbræðurnir komust ekki
i hjólreiðatúr sinn frá Iðnskólanum upp
í Hallgrímskirkjuturn í gærkvöldi. Enda
þótt veður hafi verið bræðrunum hag-
stætt í gær var ekki hægt að hjóla þar
sem leyfi yfirvalda fengust seint. Tölu-
verðan tima tekur að koma vírnum fyrir
auk annars undirbúnings, þannig að tím-
inn var ofnaumur.
Hugsanlegt er þó að bræðurnir reyni
aftur i næstu viku, ef veður leyfir og
öryggiseftirlit ríkisins heimilar. En þeir
sem misstu af glæfraferð þeirra bræðra
upp í turn Hallgrímskirkju geta séð þá
leika listir sinar upp undir rjáfri Laugar-
dalshallar með öðrum listamönnum
Sirkus Gerry Cottle.
—JH.
Ungum dreng
bjargað úr
Revkja-
víkurhöfn
Portúgalskur stýrimaður af þýzkum
togara sem i gær Já við Ægisgarð sýndi
snarræði er fjögurra til fimm ára gamall
drengur féll í höfnina. Sáu skipsmenn
þýzka togarans óhappið og stýrimaður-
inn, sem er snaggaralegur maður um
þrítugt, stakk sér eftir drengnum og var
honum fljótlega kippt upp úr höfninni.
Drengurinn var að vonum skelkaður
eftir óhappið, vildi helzt ekki við nokk-
urn mann tala og stakk svo af og hljóp
heim. Sjómennirnir tilkynntu lögregl-
unni um atburðinn en hún veit engin
frekari deili á drengnum.
—ASL
Gjaldeyri,
silfurborð-
búnaðiog
sjónvarpi
stolið
í gærkvöldi milli klukkan 8.30 og 9.00
var brotizt inn í mannlausa kjallaraíbúð
að Túngötu 41. Þar létu óboðnir gestir
heldur betur greipar sópa. Stolið ';ar
þarna gjaldeyri, silfurborðbúnaði og
sjónvarpi auk annars.
Rannsóknarlögreglumenn unnu lengi
nætur að rannsókn málsins. 1 morgun lá
ekki fyrir nákvæmari lýsing á gangi
mála eða upphæð hins stolna gjaldeyris.
—ASt