Dagblaðið - 27.09.1978, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1978.
Þannig er nýjasta uppstillingin á Cirkusi. Nýjasti liðsmaðurinn, Davíð Karlsson, er
fyrir miðju, bak við trommusettið.
DB-mynd Ari.
Enn tekur Cirkus stakkaskiptum
Enn einu sinni hefur hljómsveitin
Cirkus tekið breytingum. Linda
Gísladóttir söngkona er hætt og
sömuleiðis trommuleikarinn, Ing-
ólfur Sigurðsson. Enginn kemur til
með að leysa Lindu af en Davíð
Karlsson — gamall Cirkusmaður —
er setztur við trommusettið.
„Við höfum ákveðið að leita ekki
að söngkonu í staðinn fyrir Lindu og
vera sex í hljómsveitinni eftirleiðis,”
sagði Sævar Sverrisson söngvari og
helzti talsmaður Cirkuss, er hann
ræddi við DB um síðustu manna-
breytingarnar í hljómsveitinni.
Hann kvað Ingólf hafa sagt upp með
mánaðar fyrirvara og vera nú
kominn í sólina á Kanaríeyjum með
konu og börnum.
„Linda vildi fá frí frá störfum til
að bregða sér til Bandaríkjanna.
Við vorum ekki tilbúnir að veita
henni það með stuttum fyrirvara.
Eftir nokkrar umræður fram og
aftur varð niðurstaðan sú að Linda
hætti,” sagði Sævar.
Cirkus hefur nú um nokkurt skeið
verið húshljómsveit í veitingahúsinu
Klúbbnum. Að sögn Sævars og
Arnar Hjálmarssonar gítarleikara
kunna Cirkusmenn mjög vel við sig
þar. Með þvi að vinna á sama stað
eru þeir lausir við þeytinginn fram
og aftur um landið og alla þá leit
eftir húsnæði fyrir dansleiki sem
hljómsveitir „í harkinu” verða að
búa við.
„Við ætlum að vinna áfram í
Klúbbnum í vetur, en jafnframt að
leita fyrir okkur um að leika á skóla-
böllum,” sagði Sævar Sverrisson.
Undirboð
„Við eigum við vissa örðugleika
að etja á skólamarkaðnum,” greip
örn Hjálmarsson fram í. „Ein af
þessum fáu hljómsveitum, sem
keppa um þann markað undirbýður
hinar í gríð og erg. Ég nefni engin
nöfn, en þeir taka sneiðina til sin
sem eiga.
Við þurfum að taka þrjú hundruð
þúsund krónur fyrir hvern dansleik
núna og ein hljómsveit fer allt upp í
350 þúsund fyrir kvöldið. Síðan telur
þriðja hljómsveitin sig geta leikið á
þessum böllum fyrir tvö hundruð
þúsund. Samkvæmt okkar vitneskju
á ekki að vera hægt fyrir sex manna
hljómsveit að leika fyrir svo lága
upphæð.”
Örn nefndi það dæmi máli sínu til
stuðnings að ósköp venjulegur gítar-
magnari kostaði nú út úr búð 414
þúsund krónur. Fyrir fáum vikum
kostaði sami hlutur 280 þúsund.
Verðlag hefur allt breytzt til sam-
ræmis við þetta á öðrum hljóðfær-
um. Til að mynda munu ný trommu-
sett nú almennt kosta yfir milljón
krónur. Útgerð einnar hljómsveitar
er greinilega ekki neinna smáaura
virði og hefur sjálfsagt aldrei verið.
- ÁT
Undirboð erkomið fram á skóladansleikjamarkaðinum
Anton Kroyer framkvæmdastjóri Hljómbæjar viö nýja Gemeni hljóðfærió. DB-mynd An.
HUÓMBÆR EYKUR ÚRVAUB
Ernú jöfnum höndum umboösverzlun oginnflytjandi
Hljóðfæraverzlanirnar keppast nú
við að kynna hvað þær hafa á
boðstólum þessa dagana. Ein þeirra,
Hljómbær, boðaði blaðamenn
nýlega á sinn fund í tilefni af því að
til stendur að flytja inn nýjar gerðir
af hljómborðum frá ensku fyrirtæki,
sem nefnist Antone. Sýnishorn af
einni gerðinni, Gemini, er komið til
landsins og er til sýnis í verzluninni á
horni Hverfisgötu og Snorrabrautar.
„Gemini er minnsta gerðin af
þremur, sem við hyggjumst flytja
inn frá Antone fyrirtækinu í
framtíðinni,” sagði Anton Kroyer
framkvæmdastjóri Hljómbæjar er
hann kynnti gripinn. „Þetta er í
fyrsta lagi orgel, en er jafnframt með
innbyggðum skemmtara fyrir þá sem
styttra eru komnir á tónlistar-
brautinni.
í hljóðfærunum frá Antone eru
nýjar gerðir af intergraterásum, sem
gera það að verkum að tækið spilar
sjálft án þess að ýtt sé á hljómborðin.
Siðan er hægt að stilla það spil eftir
öllum kúnstarinnar reglum.”
Gemini tækið kostar um þessar
mundir um níu hundruð þúsund
krónur. Áður en langt um líður
koma tvær gerðir til viðbótar til
landsins. Þær nefnast Aquarius og
Zodiac. Það síðarnefnda er meðal
annars með innbyggðu heimilis-
píanói.
Hljómbær hefur nú verið starf-
ræktur á fjórða ár. Fyrst i stað var
fyrirtækið eingöngu umboðsverzlun,
en er nú jöfnum höndum innflutn-
ingsfyrirtæki. Meðal vörumerkja,
sem eru á boðstólum eru Guild og
Hondo gitarar, Rickenbacker bassa-
gítarar og nokkrar gerðir af mögnur-
um, svo sem Randall, Phoenix og
Main.
Anton Kroyer sagði að nú legði
fyrirtækið allt kapp á að selja hljóð-
færin frá Antone. Fyrir nokkru kom
maður sérstaklega að utan til að
kynna hljóðfærin og sýndi hann
kúnstir Gemini orgelsins í húsa-
kynnum Hljómbæjar.
NÝÞOKKABÓTAR-
PLATA L VINNSLU
Lárus Grímsson genginn í flokkinn
Upptökur á nýrri breiðskífu með
hljómsveitinni Þokkabót eru
komnar vel á veg. Nýja platan,
sem mun nefnast 1 veruleik, er sú
fjórða, sem Þokkabót sendir frá
sér. Sú síðasta, Fráfærur, kom út
árið 1976.
Halldór Gunnarsson semur alla
texta fi nýju Þokkabótarplötunni
utan einn. Hann hefur fi undanförn-
um firum getió sér gott oró sem
miðvikudagspopphornsstjóri ríkis-
útvarpsins.
DB-mynd Björgvin.
Aðeins tveir upprunalegir
Þokkapiltar eru nú eftir í hópnum.
Þeir eru Ingólfur Steinsson og
Halldór Gunnarsson. Til liðs við
þá er nú genginn Lárus Grímsson,
bezt þekktur fyrir starf sitt í hljóm-
sveitinni Eik. Tveir menn til við-
bótar hafa komið við sögu á nýju
plötunni, þeir Haraldur Þorsteins-
son bassaleikari Brimklóar og Ás-
geir Óskarsson Þursaflokkstromm-
ari.
Áformað er að á plötunni verði
fimmtán lög. Þau eru öll samin af
Halldóri og Ingólfi. Halldór á einn-
ig heiðurinn af öllum textum plöt-
unnar utan eins, sem er eftir nafna
hans Laxness. Sá er tekinn úr
Atómstöðinni.
Það er hljómplötudeild Fálkans
sem gefur plötuna i veruleik út. Að
sögn Bjöms Valdimarssonar út-
gáfustjóra fyrirtækisins er áætlað
að platan komi á markað í nóvem-
ber. Upphaflega voru áhöld um,
hvort reyna ætti aö koma plötunni
út fyrir jól, en Björn kvaðst bjart-
sýnn á að það tækist.
Þokkabót mun koma fram I
dagsljósið eftir langt hlé og
skemmta almenningi um það leyti
sem nýja platan kemur út. Björn
Valdimarsson sagði að talsvert
verk yrði að fella prógrömm
Þokkabótar og Þursaflokksins
saman, en Ásgeir Óskarsson mun
sjá um trommuslátt i báðum flokk-
unum.
-ÁT