Dagblaðið - 02.10.1978, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 02.10.1978, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ, MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 1978. 13 Hagvangur hf.: Mælir með negld- um hjólbörðum — skiptar skoðanir um gildi þeirra „Ýmislegt hefur verið rætt um hálku- akstur fyrr og síðar. Á sl. hausti var lögð áherzla á að ökumenn notuðu óneglda snjóhjólbarða. Slíkur útbúnaður er óhæfur og stórhættulegur við margar aðstæður hér á landi. sem skapazt geta snögglega og raunar cr liklegt að benda Grófmynstruð dekk eru af mörgum talin miklu öruggari en negldir hjól- barðar. En þá hefur komið upp annað vandamál i Reykjavik. Malbikið leysist upp í saltaustri borgarstarfsmanna. sezt i dekkin og gerir þau hál sem ís. Rækileg rannsókn — á innflutnings- verzluninni í framhaldi af rannsóknum verðlagsstjóra á innkaupsverði vöru til íslands hefur viðskipta- ráðuneytið fyrirskipað frekari rannsókn verðlagsstjóra og tillögu- gerð varðandi úrbætur á ýmsum þáttum innflutningsverzlunar- innar. Er hann beðinn að rannsaka hugsanlegar orsakir verðmunarins sem fram kom í könnun hans nú nýverið á innkaupsverði til ýmissa landa. Sérstaklega á hann að rann- saka þátt umboðslauna i þessum verðmun og gera úttekt á áhrifum hins háa innkaupsverðs á verðlag. lifskjör, verðbólguþróun og gjald- eyrisstöðu. Áliti og tillógum á að skila fyriráramót. Honum til aðstoðar verða Garðar Valdima'sson skattrann- sóknarstjóri. Siguröur Albertsson hjá tollstjóra, Sveinn Sveinsson hjá Gjaldeyriseftirlitinu og Gylfi Knudsen i viðskiptaráðuneytinu. Ráðuneytið leggur áherzlu á i bréfi til verðlagsstjóra að nánu sambandi verði áfram haldið við verðlagsyfirvöld annars staðar á Norðurlöndum, og það samstarf verði fastur þáttur í starfi verðlags- yfirvalda hérá landi. ASt. ÚRVflL/ HJÖTVÖRUR OG ÞJÓflU/Tfl A'áíffeitthvaó gott í matinn STIGAHLIÐ SIMI 35645 megi á nokkur stórslys, sem stafað hafa af þvi að bifreiðir hafa eigi verið nægi lega búnar til akstur við hálkuaðslæður. Vegna öryggis umferðarinnar verður annaðhvort að nota keðjur eða neglda snjóhjólbarða. Annar búnaður er í raun- inni óhæfur og stórhættulegur þegar um er að ræða vetrarakstur hér á landi.” Þannig segir í greinargerð um aukið umferðaröryggi og bætta umferðar- menningu sem blaðinu hefur borizt frá Hagtryggingu hf. í tilefni af þessari greinargerð og þar sem veturinn er nú á næsta leiti sneri DB sér til Ragnars Jóns- sonar. fulltrúa hjá Bifreiðaeftirliti rikis- ins og spurði hann hvað þeir bifreiða eftirlitsmenn ráðlegðu bifreiðaeigendum varðandi útbúnað hjólbarða i hálku. Ragnar vitnaði i reglugerð um gerð og búnað ökutækja, frá þvi i ágúst 1969, 17. grein. Þar segir: „Þegar snjór eða ising er á vegi skal hafa snjókeðjur á hjólum eða annan búnað t.d. hjólbarða með grófum mynstrum eða nöglum, sem veitt getur viðnám. Eigi leysir notkun þessa búnaðar ökumann undan því að sýna itrustu varúð í akstri." Ragnar sagði að i fyrra hefði gatna- málastjóri mælt gegn notkun nagla i hjólbörðum og væri þá vafalaust með í huga slit á malbikinu. Um naglana væru mjög skiptar skoðanir. „Við teljum þó að negldir hjólbarðar gefi meira öryggi heldur en grófmynstraðir. Það á sérstak- lega við um að koma bifreiðinni áfram í hálku.” Er við spurðum Ragnar hvort eitthvað bæri á þvi að bifreiðaeigendur hefðu sett svokallaða pýramidanagla i hjólbarða bifreiða sinna. sagði hann að ekki bæri mikið á þvi enda væri það bannað i reglugerð: „Óheimilt erað nota rörnagla. oddhvassa nagla eða áþekkar gerðir nagla." -GAJ. Nú byrjar senn slagurinn við vetrardekkin IB-lánin: Nokkrar nviunaar ?66.880 1.001.100 Þessar tölur sýna breytingar á ráöstöfunarfé eftir 6 og 12 mánaöa sparnað. IB lánin hafa vakið verðskuldaða athygli. Þau eru raunhæf leið til lána fyrir almenning. En til þess að þau haldi kostum sínum þarf að endur- skoða kerfið reglulega, m.a. með tilliti til verðlags- þróunar. Þetta hefur Iðnaðarbankinn einmitt gert. Því hefur verið ákveðið að gera eftirtaldar breytingar: 1. Stofnaður hefur verið nýr 18 mánaða flokkur. Hámarks innborgun er kr. 50.000. Ráðstöfunarfé (eigin sparnaður ásamt IB-láni) að loknu sparnaðartímabili, með slíkri innborgun, nemur þá 1.8 milljón króna auk vaxta. 2. Hámark mánaðarlegra innborgana hefur verið endur- skoðað. Gildir það um nýja reikninga og er sem hér segir: í 6 mánaöa flokki kr. 30.000 í 12 mánaða flokki kr. 40.000 f 18 mánaða flokki kr. 50.000 í 24 mánaða flokki kr. 60.000 I 36 mánaða flokki kr. 60.000 (48 mánaða flokki kr. 60.000 3. Þá hefur Iðnaðarbankinn ákveðið, að fengnum fjölda til- mæla, að gefa fólki kost á að lengja sparnaðartímabilið, enda lengist þá lánstíminn og upphæð IB-lánsins hækkar að sama skapi. Nánari upplýsingar veita IB ráðgjafar hver á sínum afgreiðslustað — þeir vita allt um IB lán. Banki þeirra sem hyggja að framtíðinni * Iðnaðarbankinn | Aðalbanki og útibú

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.