Dagblaðið - 24.10.1978, Side 1
4. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978 — 236. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÍJLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11- AÐALSÍMl 27022.
Vilja safna handa
Gunnarí Þór
Allmargir lesenduf blaðsins hafa
haft samband vegna fréttar blaðsins á
laugardaginn um lítinn dreng, sem
ekki fær nauðsynleg heyrnartæki þar
sem þau eru hátolluð og ekkert ráðu-
neyti telur sig eiga að greiða götu
hans.
Þar á meðal hringdi háöldruð kona,
sem sagðist gjarnan vilja verða fyrst til
að leggja eitthvað af mörkum til að
hefja söfnun fyrir tækjum Gunnars
Þórs. Sjálf sagði hún þá sögu að erfitt
hafi reynzt að finna pláss fyrir sig í
kerfinu, án þess að vilja rekja það
frekar, en ótækt væri að láta þess
háttar bitna á saklausu barni.
Líklega verður þó ekki þörf fyrir al-
menna söfnun þar sem tryggingaráð-
herra, Magnús H. Magnússon, sagði i
viðtali við DB í gær að hann hygðist
þegar í stað kanna þetta mál til hlítar
og gera allt sem hann gæti til að bæta
úr því.
- G.S.
Starfsmaöur Hjálpartækjabanka RKI og Sjálfsbjargar um aðflutningsgjöld afhjálpartækjum:
„EILÍFUR SLAGUR VIÐ
TOLLAYFIRVÖLD”
td. er tollur afhækjum og skylt er að leggja söluskatt á leigugjald afþeim
DB-mynd R.Th.Sig.
„Við eigum í eilífum slag við tollinn
og nýjasta dæmið er sal-
ernisupphækkun, sem tollúrinn
flokkar undir hreinlætistæki og tollar
80 prósent, en við litum á sem hjálpar-
tæki enda notar þess háttar búnað
aðeins mikið fatlað fólk eða fólk með
stirðnaðar mjaðmir,” sagði Guðrún
Nielsen, starfsmaður Hjálpartækja-
banka Rauða krossins og Sjálfs-
bjargar.
„Hér er ekkert selt eða leigt nema
hjálpartæki fyrir fatlaða eða slasaða,
en samt eru 35% tollar algengir og
þegar við leigjum út söluskattskylda
hluti er okkur skylt að leggja söluskatt
ofan á leigugjaldið,” sagði hún
ennfremur. Sem dæmi má nefna að
söluskattur er lagður ofan á leigu á
hækjum.
Hjólastólar og sérstök þríhjól fyrir
fötluð smábörn eru tollfrjáls og
söluskattslaus. Það er nánast það eina.
Auk þess greiðir Tryggingastofnun
ríkisins andvirði stólanna fyrir hina
fötluðu.
Ótal önnur hjálpartæki eru ekki
siður nauðsynleg fötluðu fólki, þótt
það geti ef til vill komizt leiðar sinnar
án hjólastóla. Þau eru tolluð.
Að sögn Guðrúnar er algengt að
stofnunin sæki um leiðréttingu þess-
ara mála til fjármálaráðuneytisins og
sagði hún að oft hefði fengizt góð úr-
lausn. Hins vegar séu mörg tækjanna
að breytast og þróast og komi það þá
öft fyrir að þau fari örlitið út fyrir ein-
hvern sérstakan túlkunarramma tolla-
laganna með þeim afleiðingum að toll-
ar hækki.
-GS.
miklu fleiri en hann einan.
„Öll þessi tæki eru meira og minna
tolluð,” segir Guðrún Nielsen, en ljðst
er að þau koma heilbrigðu fólki ekki
að neinum notum.
DB-mynd Bj.Bj.
"Þetta þrihjól fyrir fötluð börn er toll-
frjálst og undanþegið söluskatti, en
göngugrindur fyrir börn og fullorðna
eru tollaðar.
DB-mynd Bj.Bj.
Idi Amin:
HEFUR DREPIÐ
300.000
MANNS
— erlendarfréttir
ábls.6-7
Skógareld-
ar ógna
Los
Angeles
— erlendarfréttir
ábls.6-7
VALDA-
L0STI
— forystugrein
umhugarfar
embættismanna
— sjá bls. 10
Svonafallegur
kvenmaður
getur
ekki
sungið
— sjá BAKSÍDU
Lífshættu-
legarloðnu-
veiðaríjóla-
mánuðinum
— sjá baksíðu