Dagblaðið - 24.10.1978, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 24.10.1978, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978. 13 >ttir Iþróttir íþróttir íþróttir íþróttir | iATIOH&t Hi-Top næsta sumar. Allison vildi Buckley Malcolm Allison, hinn litríki knatt- spyrnuþjálfarí, sem nú er stjóri Plymouth Argyle, hefur boöiö Walsall í 3. deild 175 þús. sterlingspund í mið- herjann Alan Buckley. Stjórn Walsall samþykkti strax en leikmaðurinn sagði nei. Hann vill ekki fara til annars liðs i 3ju deild. Hugur hans stefnir i 1. deildina og nokkrir stjórar í 1. deild hafa fylgzt með honurn. Einkum þó Tommy Docherty hjá Derby. Alan Buckley hefur nokkrum sinnum i,é7J í islenzka sjónvarpinu í leikjum Walsall. Einn mesti markaskorari í enskri knattspyrnu nú — litill en knár. Skoraði 29 mörk á siðasta leiktímabili — en 34 mörk leiktímahílið 1975—1976 og var þá annar markhæsti leikmaður á Englandi. Vetrardags- mót unglinga Um helgina var haldið unglingamót í badminton í húsi félagsins. Mót þetta nefndist „Vetrardagsmót unglinga 1978”, í tilefni vetrarkomu, og tóku þátt I því um 60 unglingar frá TBR, KR, ÍA og Val. Úrslit í einstökum greinum urðu sem hér segir: Hnokkar — tátur, tvenndarleikur: Har- aldur Sigurðsson og Þórdis Erlingsdóttir TBR sigruðu Árna Þór Hallgrímsson og Katy Jónsdóttur í A 15/7 og 15/6 Hnokkar — tvíliðaleikur: Árni Þór Hall- grimsson og Ingólfur Helgason ÍA sigruðu Harald Sigurðsson og Þórð SveinssonTBR 18/16 og 18/14. Tátur — tvíliðaleikur: Katy Jónsdóttir og íris Smáradóttir lA sigruðu Þórdísi Klöru Bridde og Rannveigu Björns- dótturTBR 9/15,15/6 og 15/1. Sveinar — meyjar — tvenndarleikur: Þorsteinn Páll Hængsson og Drífa Daníelsdóttir TBR sigruðu Pétur Hjálm- týsson og ingu Kjartansdóttur TBR 15/I0og 18/16. Sveinar — tvfliðaleikur: Ari Edwald og Tryggvi Ólafsson TBR sigruðu Þorstein Pál Hængsson og Gunnar Björnsson TBR 15/1 log 15/10. Meyjar—tvíliðaleikur: Inga Kjartans- dóttir og Þórdís Erlingsdóttir TBR sigr- uðu Elísabetu Þóröardóttur og Elínu Helenu Bjarnadóttur TBR 15/7 og 18/14. Telpur — tvíliðaleikur: Kristín Magnúsdóttir og Bryndís Hilmarsdóttir sigruðu Sif Friðleifsdóttur og Örnu Steinsen KR 15/4 og 18/15. Drengir — tviliðaleikur: Þorgeir Jó- hannsson TBR og Gunnar Jónatansson Val sigruðu Skarphéðin Garðarsson og GunnarTómasson TBR 18/16 og 15/6. Piltar — stúlkur — tvenndarleikur: Guðmundur Adolfsson og Kristín Magnúsdóttir TBR sigruðu Reyni Guð- mundsson og Sif Friðleifsdóttur KR 15/4 og 18/15. Englendingur íborðtennis Borðtennisdeild Vikings gengst fyrir borðtennismóti i tilefni af 70 ára afmæli félagsins og verður mótið haldið i Laugardalshöll miðvikudaginn 25. októ- ber og hefst mótið klukkan 20. Sérstakur gestur mótsins er Alan Hydes frá Englandi, margfaldur Englands- og Samveldismeistari i grein- inni og meðal annars má nefna að hann var I úrvalsliði Evrópulanda sem fór i hina frægu friðarför til Kína árið 1968. Að öðru leyti er leiktaflan birt hér i heild, en dráttur fór fram í gær. 1. Alan Hydes Englandi. 2. Gylfi Pálson UMFK 3. Kristján Jónasson Vík 4. Brynjólfur Þórisson Gerplu 5. Hjálmtýr Hafsteinsson KR 6. Jón Sigurðsson UMFK 7. Bjarni Kristjánsson UMFK 8. Gunnar Finnbjörnsson Örninn 9. Stefán Konráðsson Vík. 10. Guðmundur Halldórsson KA 11. Björgvin Jóhannsson Gerplu 12. Hilmar Konráðsson Vlk. 13. Þorfinnur Guðmundsson Vík. 14. Vignir Kristmundsson Örninn 15. Hjálmar Aðalsteinsson KR 16. Tómas Guðjónsson KR Nadia- Comaneci, hún var drottning ólympluleikanna. Heldur hún kórónu sinni i Strassbourg. Hún mun keppa í fyrsta sinn á Heimsmeistarakeppni — áður orðið Evrópumeistari og ólympíumeistari. Sovétmenn byrjuðu illa á HM í f imleikum í Strassbourg — og Japan hefur forustu íliðakeppni karla. Mótið hófst ígær, lýkur á sunnudag Sovétmenn fóru illa af stað i heims- meistarakeppninni I fimleikum sem hófst I Strassbourg i Frakklandi í gær. Liða- keppni hófst í gær, einstaklingskeppnin hefst síðar, og á sunnudag lýkur mótinu. Sovétmönnum varð illa á I messunni I gær, ólympiumeistaranum Nikolai Andrianov og Evrópumeistaranum Vladimir Marklov mistókst báðum í æf- ingu á hesti, og urðu að byrja upp á nýtt. Þetta varð til þess að Japan náði góðri forustu í liðakeppninni. Það var í skyldu- æfingunum, sem þeim sovézku varð svo illa á í messunni en þeim lauk I gær. Japan hefur nú 2.95 stiga forustu í liða- keppninni karla. í baráttu þeirra beztu er það gott forskot og ólíklegt að Sovét- mönnum takist að vinna upp þann mun en þeir eru þrátt fyrir öll mistök I öðru sæti. Liðakeppni karla er fyrsti liðurinn, sem til lykta verður leiddur — við taka frjálsar æfingar. Augu heimsins munu þessa viku beinast mjög til Strassbourg, og til fim- leikadrottningarinnar rúmensku, Nadiu Comaneci. Þó er allt á huldu hvort „augu” heimsins geti litið til Strass- bourgar. Franskir tæknimenn eru nú í verkfalli, 2500 að tölu og óvist hvort af sjónvarpi geti orðið. Þegar hafa verið gerðir miklir samningar um sjónvarps- réttindi, fyrir um 600 þúsund dollara og I þeim ógnar nú verkfall franskra tækni- manna. Málið kom í gær til kasta frönsku ríkisstjórnarinnar. íþróttir NATIONAL Hi-Top er a við venjulegar Fæst á ölkim tCsso) stöðvum

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.