Dagblaðið - 24.10.1978, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 24.10.1978, Blaðsíða 20
20 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978. Andfát Jóhanna Jóhannsdóttir, sem fædd var 27. september 1891, lézt 15. október sl. Jóhanna fæddist i Nýjabæ i Krýsuvík en bjó lengstan aldur i Hafnarfirði. Jó hanna eignaðist 7 börn. Bjarni Guðbjörnsson, sem var fæddur 24. apríl 1888, lézt 15. október sl. Hann fæddist að Hrauni í Keldudal i Dýra firði. Bjarni ólst upp á Arnarnúpi hjá Guðbjörgu Bjamadóttur. Hann varð síðar vinnumaður á sama bæ, en kom til Reykjavíkur fyrir liðlega tuttugu árum. Siðustu árin dvaldi Bjarni á Hrafnistu. Andri Heiðberg flugmaður, Laufásvegi 2A, lézt að heimili sinu aðfaranótt 21. október. Stefán Jóhannsson lézt í Los Angeles 22. október. Gísli Kristjánsson sundhallarforstjóri. Eyrargötu 6 Ísafirði, andaðist á Sjúkra húsi ísafjarðar 22. október. Adolf Karlsson framkvæmdastjóri, Eski hlíð 26, andaðist í Landspitalanum 21. október. Margrét Gunnarsdóttir lézt 19. október. Oddgeir Þ. Oddgeirsson bókari er lát inn. Bahá' iar í Kópavogi. Almennur fundur verður haldinn i félagsheimili Kópavogs 2. hæð í tilefni dags Sameinuðu þjóðanna. Fundurinn hefst í kvöld kl. 8.30. Gestur fundarins verður Magnús Torfi ólafsson fv. ráðherra. Hann heldur erindi er nefnist alþjóða stofnanir og alþjóðleg samtök. Síðan mun Halldór Þorgeirsson flytja stutt yfirlit um starsemi Bahá’ ia sem fulltrúi við S.Þ:. Á eftir verður kvikmyndasýning um Sameinuðu þjóðirnar. Fuglaverndarfélag íslands Fyrsti fundur félagsins á þessu starfsári verður i Norræna húsinu þriðjudaginn 31. október 1978 kl. 8.30. Dagskrá: Formaöur félagsins flytur ávarp. Sýndar verða úrvals náttúrulifsmyndir frá brezka fuglavernd- arfélaginu. öllum heimill aðgangur og félagsmenn taki meösérgesti. Sölumannadeild VR. Kvöldverðarfundur Miövikudaginn 25. okt. nk. kl. 19.00 verður haldinn deildarfundur i Kristalsal Hótel Loftlciða. Snorri Jónsson forseti ASÍ flytur framsöguræðu um afstöðu ASÍ til kjaramálanna eftir setningu bráða birgðalaga rikisstjórnarinnar. Magnús L. Sveinsson flytur framsöguræöu um bar áttu verzlunarfólks fyrir nýrri flokkskipan. Aðalfundur Meitilsins hf. verður haldinn í Þorlákshöfn mánudaginn 30. október og hcfst hann kl. 2 siödegis. Venjuleg aðalfundarstörf. Mátf undaf élagið Óðinn Aðalfundur félagsins veröur haldinn i Valhöll, Háa leitisbraut 1, fimmtudaginn 26. október 1978 kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning stjórnar og endurskoöenda. Lagabreytingar ef fram koma. 2. Geir Hallgrimsson, formaður Sjálfstæöisflokksins, flytur ræðu. Þrjú önnur mál. Nýlega voru gefin saman i hjónaband í Háteigskirkju af séra Tómasi Sveinssyni ungfrú Jörgína Jónsdóttir og Jóhannes Gunnarsson. Heimili þeirra er að Miðvangi41. Stúdíó Guðmundar Einholti 2. Geftn hafa verið saman 1 hjónaband af séra Ólaft Skúlasyni i Bústaðakirkju Svanborg Birna Guðjónsdóttir og Halldór Jakobsson. Heimili þeirra er að Hvassaleiti 14, Rvík. Nýja Mynda- stofan, Laugavegi 18. Geftn hafa veríð saman í hjónaband af séra Sigurði Hauki Guðjónssyni í Lang- holtskirkju Karítas Jensdóttir og Egill Harðarson. Heimili þeirra er að Háa- leitisbraut 121, Rvík. Nýja Mynda- stofan, Laugavegi 18. Gefin hafa verið saman í hjónaband af séra Einari J. Gislasyni í Filadelfiukirkj- unni i Reykjavík Unnur Ólafsdóttir og Sigurmundur E. Einarsson. Heimili þeirra er að Njálsgötu 77, Rvík. Nýja Myndastofan, Laugavegi 18. Nýlega voru gefin saman i hjónaband af séra Sigurði Hauki Guðjónssyni í Bústaðakirkju Unnur Baldursdóttir og Jón Ingi Jónsson. Heimili þeirra er að Öldutúni 16, Hafnarfiröi. Ljósmynda- stofa Kristjáns, Hafnarfirði. Nýlega voru gefin saman 1 hjónaband í Fríkirkjunni af séra Þorsteini Björnssyni ungfrú Sigríður Magnea Njálsdóttir og Björgvin Þór Valdimarsson. Heimili þeirra er að Meðalholti 13. StudioGuðmundar Einholti 2. Nýlega voru gefin saman i hjónaband af séra Sigurði Hauki Guðjónssyni í Lang- holtssókn Droplaug G. Stefánsdóttir og Kristinn L. Matthiasson. Heimili þeirra er að Æsufelli 6, Rvik. Stúdíó Guð- mundar, Einholti 2. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af séra Ólafi Skúlasyni í Árbæjarkirkju Þórkatla Mjöll Halldórsdóttir og Pétur Lúðvík Friðgeirsson. Heimili þeirra er að Sólvallagötu 70, Rvík. Stúdíó Guðmundar, Einholti 2. Árnesingar — Selfyssingar Steingrimur Hermannsson, dómsmála- og land- búnaðarráðherra, verður frummælandi á almennum fundi um stjórnmálaviðhorfið, sem haldinn verður að Eyrarvegi 15, Selfossi, þriðjudaginn 24. október kl. 21.00. Fundurinn er öllum opinn. Alþýðuflokksmenn Hafnarfirði Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Hafnarfjarðar verður haldinn í Alþýðuhúsinu Hafnarfirði miðvikudaginn 25. október kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfunda störf. 2. Kosning fulltrúa á flokksþing Alþýðu flokksins. 3. önnur mál. Alþýðubandalagið Kópavogi Aöalfundur Alþýðubandalagsins í Kópavogi verður haldinn í Þinghól, miövikudaginn 25. okt. nk. kl. 20.30. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins. Samb. ungra framsóknarmanna Hádegisfundur. Næsti hádegisfundur Samb. ungra framsóknarmanna verður þriðjudaginn 24. okt. á Hótel Heklu. Davíð Scheving Thorsteinsson mætir á fundinn og ræðir um hvernig efla má íslenskan iðnað. Félag óháðra borgara, Hafnarfirði Aðalfundur Félags óháðra borgara verður haldinn að Austurgötu 10, næstkomandi fimmtudagskvöld 26. októhber og hefst kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Sjálfstæðiskvenfélag Árnessýslu Aðalfundur félagsins verður haldinn 25. október kl. 21 i Sjálfstæðishúsinu, Tryggvagötu 8, Selfossi. Venjuleg aðalfundarstörf. Félag sjálfstæðismanna í Laugarneshverfi Aðalfundur félagsins, verður haldinn miðvikudaginn 25. okt. i Valhöll, Háaleitisbraut 1. Fundurinn hefst kl. 20:30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Ræða: Birgir ísleifur Gunnarsson, borgarfulltrúi. Sjálfstæðisfélögin í Breiðholtshverfum Miðvikudaginn 25.10. verður framhald spilakeppn- innar i félagsheimili sjálfstæðismanna að Seljabraut 54, húsi Kjöts & Fisks. Góð verðlaun. Húsið opnað kl. 20. Sjálfstæðisfólk, fjölmennið og takið með ykkur gesti. Kaffisamsæti Rangæingafélagsins Starfsemi Rangæingafélagsins i Reykjavík hefst að venju með samkomu fyrir eldra fólkið í Bústaöakirkju sunnudaginn 29. október næstkomandi og byrjar hún með messu kl. 14. Séra Ólafur Skúlason predikar. Að messu lokinni verður eldra fólkinu boðið til kaffisamsætis í safnaðarheimilinu, en yngra fólk af rangæskum ættum er jafnframt hvatt til að koma og kaupa sér kaffi til styrktar starfsemi félagsins. Kvennadeildin dér um kaffiveitingarnar undir forustu Sigriðar Ingimundardóttur. Bridgedeild félagsins hóf vetrarstarfið með tvímenningskeppni og verður næsta umferð spiluö i Domus Medica miðvikudagskvóldið 25. októbcr. Eftir áramót fer fram sveitakeppni. Föstudaginn 24. nóvember verður spilakvöld og dans- skemmtun i Hreyfilshúsinu við Grensásveg. Verkakvennafélagið Framsókn Basar félagsins verður laugardaginn 11. nóv. Konur eru vinsamlega beðnar að koma rnunum á skrif- stofuna. Basamefnd. Basar Kvenfélags Háteigssóknar veður að HallveÍBarslöðum laugardaginn 4. nóvembcr kj, 2. Gjöfum á basarinn veitt móttaka á miðvikudögum kl. 2—5 að Flókagöiu 59 og f.h. þann 4. nóvember að Hallveigarstöðum. Ferðafélag íslands Miðvíkudagur 25. okt. kl. 20.30. Myndakvöld í Lindarba* (niðri). Guðmundur Jóelsson og fleiri sýna myndir frá gönguleiðinni Landmannalaugar— Þórsmörk. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis. Kaffi selt í hléinu. ATH.: Allmikið af óskilafatnaði úr sæluhúsunum er á skrifstofunni og væri æskilegt að viðkomandi eig- endur vitjuðu hans sem fyrst. Iþróttir „Old boys" leikfimi er i Breiðagerðisskóla á mánud. kl. 19.00 og fimmtud. kl. 19.15. Innritun i timunum. Fimleikar í Fellaskóla Fimleikar fyrir drengi 10—12 ára á miðvikud. kl. 19.10 og laugard. kl. 18.10 í iþróttahúsi Fellaskóla. lnnritun í timunum. Kvennaleikfimi Æfingar eru í Breiðagerðisskóla á mánud. kl. 19.50 og fimmtud. kl. 20.05. Innritun i timunum. Ársþing Badmintonsambands íslands verður haldið sunnudaginn 5. nóv. nk. Þingið verður haldið í Snorrabæ (Austurbæjarbió uppi) og hefst kl. 10 f.h. Á þinginu fer fram kjör stjómar sambandsins fyrir næsta ár auk annarra aðalfundarstarfa. Þess er vænzt að fulltrúar mæti stundvislega. Frjálsíþróttasamband íslands Arsþing Frjálsíþróttasambands tslands verður haldið I Reykjavik 25.—26. nóvember 1978. Málefni sem sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þinginu skuiu tilkynnt FRÍ minnst tveim vikum fyrir þing. 33. ársþing KSÍ f verður i Kristalssal Hótel Loftleiða dagana 2. og 3. (Jes. nk. Skíðadeild Ármanns Munið Bláfjöllin um helgina. Mætingar alltaf skráðar. Komizt öll á blað fyrir reisuhátiðina. Knattspyrnufélagið Víkingur, skíðadeild Þrekæfingar verða þriðjudag og fimmtudaga kl. 20.15 undir stúkunni við Laugardalsvöll, Baldurshaga. Takið meðútigalla. Sýning Sigurðar Eyþórssonar Um þessar mundir stendur yfir sýning Sigurðar Eyþórssonar í Galleri SÚM. Sigurður lauk prófi úr Myndlista- og handíðaskólanum árið 1971 og stundaöi framhaldsnám erlendis, m.a. i Stokkhólmi og Austurriki. Sigurður sýnir málverk og teikningar, samtals 28 verk, frá síðustu 4—5 árum. Sýning hans er opin frá kl. 4— 10 virka daga og 2— 10 um helgar til 25. október. IMorræn gleriist Sýning í sýningarsölum i kjallara Norræna hússins 21. október— 12. nóvember 1978. Holmegárd i Danmörku, Iittala og Nuutajárvi i Finnlandi, Hadeland í Noregi og Kosta-Boda í Svíþjóð sýna úrval glermuna. Sýningin er opin daglega kl. 14— 19. Frá Listasafni íslands Að gefnu tilefni verður yfirlitssýning á verkum Snorra Arinbjamar í Listasafni íslands framlengd um eina viku og verður opin sem hér segir: Laugardag 21. og sunnudag 22. okt. frá kl. 13.30— 22.00 eftir það daglega frá kl. 13.30—16.00 til sunnudagsins 29. október. Athygli skal vakin á á hér gefst einstakt tækifæri til að kynnast verkum eins ágætasta listamanns þjóðarinnar. Skólum skal sérstaklega bent á að nemendum stendur til boða að skoða sýninguna i fylgd kennara utan áðumefnds sýningartíma, eftir nánara samkomulagi. Sýning að Kjarvalsstöðum sýning á grafíkverkum eftir Salvador Dali að Kjarvals- stöðum á vegum Myndkynningar og mun hún standa til 5. nóvember. Á sýningunni eru um 100 grafik- myndir, svo og góbelinteppi og tvær styttur eftir Dali. Eru margar grafikmyndirnar gerðar i kringum klassiskar bókmenntir, svo sem Tristan og ísold og Tidægru Boccaccios, að ógleymdum Guðdómlegum gleöileik Dantes. Eru öll verkin til sölu. Kirkjustarf Háteigskirkja Fermingarbörn komi til viðtals i kirkjuna miðvikudag 25. október kl. sex. Prestarnir. Glímuæfingar Víkverja Glimuæfingar Ungmennafélagsins Vikverja eru m byrjaðar. Þær fara fram á mánudögum og fimmtu dögum kl. 6.50 — 8.30 i leikfimisalnum við Laugai dalsvöll. Á æfingunum er lögð áherzla á fimi, mýkt oj snarræði. Allir sem náð hafa 12 ára aldri eri vblkomnir á æfingar félagsins. GENGISSKRÁNING Farðamanna- NR. 191 — 23. október 1978. gjakdeyrir Eining KL 12.000 Kaup Sala Kaup Sala ‘ 1 Bandarikjadollar 307,50 308,30 338,25 339,13 1 Steriingspund 617,70 619,30* 679,47 681,23* 1 Kanadadollar 259,10 259,80 285,01 285,78 100 Danskar 6124,00 6139,90* 6736,40 6753,89* 100 Norskar krónur 6312,20 6328,60* 6943,42 6061,46* 100 Sœnskar krónur 7234,45 7253,25* 7957,90 7978,58- 100 Finnsk mörk 7902,80 7923,40* 8693,08 8716,74* 100 Franskir frankar 7368,80 7388,00* 8105,68 8126,80* 100 Belg.frankar 1079,15 1081,95* 1187,07 1190,15* 100 Svissn. frankar 20448,90 20502,10* 22493,79 22552,31* 100 Gyllini 15636,90 15677,60* 17200,59 17245,36* 100 V.-Þýzk mörk 17068,65 17113,05* 18775,52 18824,36* 100 Lfrur 38,00 38,10* 41,80 41f91*. 100 Austurr. Sch. 2324,30 2330,30* 2556,73 2563,33* 100 Escudos 691,00 892,80* 760,10 762,08*; 100 Pesetar 446,10 447,30* . 490,71 492,03*; 100 Yen 169,82 170,26* 186,80 187,20* ' Br»yHng frá alðu.tu skráningu * Símsvari vegna gengisskróninga 22190.1

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.