Dagblaðið - 24.10.1978, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24.0KTÓBER 1978.
Hallað réttu máli
— Athugasemd f rá Almennum tryggingum
Vegna skrifa Kristjáns Tómassonar,
Ránargötu 5a, í blað yðar þann 18.
okt. sl. óskum við eftir að þér birtið
eftirfarandi athugasemd, þar sem
Kristján óafvitað eða af annarlegum
hvötum hallar réttu máli.
Kristján varð fyrir bifreið 7. sept,
1976. örorkumat vegna slyssins var
gert 18. marz 1978 af tryggingalækni
og var hann metinn varanlega 10%
öryrki. Þá þegar höfðum við greitt
honum upp 1 væntanlega bótafjárhæð
kr. 920 þúsund (fyrir utan kostnað).
Fóru þessar greiðslur fram á árinu
1977. Kristján skrifar að félagið hafi
boðið sér bætur miðað við verðlag i
september 1976. Hið rétta er, að við
ráðlögðum honum er örorkumat lá
fyrir að leita aðstoðar lögmanns við
lokauppgjör, sem og hann gerði. Við
fengum síðan, eða í ágústmánuði sl.,
bótakröfu frá lögmanni hans, sem
m.a. var rökstudd með útreikningi
tryggingafræðings á fjárhagstjóni
Kristjáns.
Þann 20. september sl. svöruðum
við bótakröfu þessari þar sem við sam-
þykkjum útreikning tryggingafræð-
ingsins, en hann notar eftirfarandi að-
ferð við útreikninginn. Miðað við fulla
dagvinnu, samkvæmt þeim taxta
Dagsbrúnar sem nú nefnist 2. taxti,
auk kaupbreytinga frá slysdegi til 4.
júlí 1978 (en þá reiknar trygginga-
fræðingurinn tjónið út) að meðtöldum
svonefndum verðbótaauka, er tekið
tillit til umsaminnar grunnkaupshæk-
unar 1. september 1978. Rétt er að
taka fram 1 þessu sambandi að Krist-
ján var 34 ára gamall á slysdegi,
verkamaður, ókvæntur og barnlaus.
Samkvæmt þessum útreikningi var
tjón hans talið kr. 2.358.810.-. Frá-
drátt. vegna skattfrelsis töldum við
vera 25%. Tjón Kristjáns var þá metið
kr. 1.769.108.-. Krafa kom frá lög-
manni hans um 200 þúsund fyrir
miska og samþykktum við þá miska-
kröfu eða tjón alls kr. 1.969.108.-en
ekki kr. 1.300.000.- eins og fram
kemur í hinum furðulegu skrifum
Kristjáns.
Ekki er óvenjulegt í tjónum sem
þessu að fara eftir skattframtalstekjum
tjónþolans siðustu 3 árin fyrir slysið
og þær umreiknaðar til verðlags á upp-
gjörsdegi. Hefði þessi leið verið farin,
sem telja verður eðlilegustu leiðina til
að finna út fjárhagstjón ákveðins ein-
staklings, verður tekjutap Kristjáns
kr. 1.253.638.- fyrir utan skattfrádrátt
í stað kr. 1.769.108,- sem honum voru
boðnar.
Einnig stendur í bréfi Kristjáns:
„Það vakir fyrir forkólfum trygginga-
félaga að draga bótagreiðslu eins lengi
og jseir geta” o.s.frv. Það er auðséð að
maðurinn hefur aldrei kynnt sér starf-
semi tryggingafélaga. Það er hagur
félaganna að slysauppgjör fari fram
sem fyrst, þar sem útreikningur á tjóni
miðast við verðlag á uppgjörsdegi en
ekki verðlag á slysdegi.
Hvaða hvatir liggja á bak við
óhróðursskrif sem þessi er okkur óljóst,
en hr. ritstjóri, við vonum að þér sjáið
yður fært áður en þér birtið óhróður
um fyrirtæki og eða einstakling, að
gefa jseim tækifæri til að svara, ef við-
komandi þykir ástæða til í sama tölu-
blaði og söluvara yðar á að birtast i.
F. h. Almennra trygginga hf.
Þorgeir Lúövíksson,
deildarstjóri bifreiöadeildar.
KOMUM LOGUM YFIR ÞJOFA
— með aðstoð almennings við lögreglu
Faöir skrifan
Fyrir nokkrum dögum var Raleigh
Grifter unglingahjóli, svo til nýju,
stolið við gagnfræðaskólann i
Garðabæ. Hjólið var læst með hring-
lás. Þetta hjól er blátt gírahjól.
Þeir sem hafa grun um að svona
hjól hafi verið selt eða sé til sölu,
ættu að láta lögregluna i Hafnarfirði
vita strax.
Ef einhver hefir komizt yfir svona
hjól nú nýlega og grunar að seljandinn
hafi ekki hreint mjöl í poka sinum, þá
STUTT BRÉF OG
FULLT NAFN
Enn skal það brýnt fyrir lesendum
að láta fullt nafn og heimilisfang
fylgja bréfum. Ef bréfritari óskar
eftir að nota dulnefni skal þess
getið. Vinsamlega hafiö bréf eins
stutt og mögulegt er. Dagblaðið
áskilur sér rétt til þess að stytta
lengri bréf.
JH
væri vel gert að láta lögregluna i
Hafnarfirði vita strax, svo litli
drengurinn sem á hjólið fái það aftur.
Það er tími til kominn að fólk átti
sig á því að þessi sífelldi þjófnaður og
sala á stolnum munum, gæti hent
hvern sem er þ.e. að stolið sé eignum
hans, sem svo aldrei finnast. Einn
vegur er til jtess að koma lögum yfir
þessa þjófa, en það er að hafa augun
opin og láta lögregluna vita strax ef
grunur leikur á að stolnir munir séu
boðnir til sölu eða að einhver hafi
komizt yfir hlut með grunsamlegum
hætti. Sé hinn sami saklaus, getur lög-
reglan fljótt komiztaðþví.
Almenningur getur með þessum
hætti aðstoðað lögregluna verulega og
þar með gert það þjóðfélag, sem við
búum í mannlegra og betra. Komum
lögum yfir þjófa og óknyttamenn,
bindumst samtökum um að þjófar
verði fyrirlitnir og verk þeirra
fordæmd.
AFÞIÐA - FRYSTA
Skúii Helgason hringdi:
í Dagblaðinu 17. október sl. mátti
sjá furðulega fyrirsögn. Þar stóð:
„Látið ryksuguna afþiða frystinn.” Ég
þykist skilja við hvað er átt, en engu
að síður er fyrirsögnin óskiljanleg.
Ég veit hvað það er að þiða
frystinn, en alþíða hlýtur þá að vera
hið gagnstæða, þ.e. að frysta.
Raddir
lesenda
JÓNAS
HARALDSSON
Hringið
í síma
27022
milli kl 13 og 15
Heimttis-
iæknir
svarar
Haddir lesenda taka við
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttarins „Heim-
ilislæknir svarar" í síma
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.
7i‘
FISHER
FISHER
D
ixaaio
•T53
i r
ARMULA 38 (Selmúla meginl 105 REYKJAVIK
SÍMAR: 31133 83177 PÓSTHOLF 1366
SFISHER
IðFISHER
Okkur er sönn ánægja að kynna
ykkur hagstætt verðá F/SHER
29FISHER
HÁTALARAR
XP325 25w 38.750.-
XP9575W 88.590.-
ST—420 30w 42.300.-
ST-430 50w 64.250.-
ST-440 75w 76.200.-
ST—450 100w 98.700.-
ST—460 130w 112.550.-
ST-640 90w 114.750.-
ST—660 125w 142.350.-
ISFISHER
ÚTVARPSMAGNARAR
MC-2000 2X10 cinus w 112.980,-
RS—1035 2X35 cinus w 181.250.-
RS- 1052 2X50 cinusw 204.900.-
RS-1058 2X90 cinusw 319.700.-
Gerið verðsamanburð
Attt tít hljómflutnings fyrir:
HEtMtUÐ — BÍLtNN OG DISKÓTEKID
//
e
Spurning
dagsins
Hvernig endar Gæfa
eða gjörvileiki?
Hannes Benediktsson húsasmiðameist-
ari: Ég veit ekki. Horft sjaldan á þáttinn.
Það hafa verið ýmsar getgátur um það
hvernig þátturinn endar. Ég vil að hann
endi vel, þannig að réttlætið sigri.
*arv
■ i m
Maren Jakobsdóttir, vinnur I Hagkaupi:
Ég held að Rudy verði drepinn. Wes
hefur það líklega af.
Geir Björnsson, vinnur við tsknideild
vegagerðar Borgarness: Það er nú það.
Ég náði ekki siðasta þætti. Það er ekki
hægt að neita þvi, að þetta er orðið anzi
spennandi. Vona allt hið bezta fyrir
Rudy.
Ásta Björgvinsdóttir, húsmóðir: Ég hef
heyrt að Rudy verði skotinn og fari á
spitala. Það kemur ekki fram í þættinum
hvort hann deyr, það var gert upp á
framhald að gera.
Margrét Guðmundsdóttir: Ég álit að
Wes deyi i næsta þætti.
Arnmundur Jónasson háskólanemi: Þeir
verða allir drepnir meira eða minna.