Dagblaðið - 24.10.1978, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJÚDAGUR 24. OKTÓBER 1978.
Bandaríkin:
JIMMY CARTER
LEGGUR TIL ÚR-
SLITABARÁTTU
GEGN VERÐBÓLGU
Jimmy Carter Bandaríkjaforseti
mun í kvöld leggja fram áætlanir
sínar til að draga úr verðbólgu i
Bandaríkjunum. Eru þetta sagðar
úrslitatilraunir forsetans til að
bæta stöðugleika í efnahagslífi
landsins. Ef það mistekst að þessu
sinni óttast margir hagfræðingar
að koma muni til samdráttar-
ástands innan fárra ára. Vill for-
setinn reyna að halda uppi kaup-
mætti bandarísks almennings og
tryggja stöðugleika dollarans, sem
hefur verið mjög ókyrr í verði á al-
þjóðamörkuðum á undanförnum
mánuðum.
Laus staða
Staða forstöðumanns Þróunarstofnunar
Reykjavíkurborgar er laus til umsóknar. Gert
er ráð fyrir ráðningartíma allt að 5 árum. Um
laun og önnur kjör verður höfð hliðsjón af
kjarasamningi við Starfsmannafélag Reykja-
víkurborgar.
Umsóknir skulu sendar undirrituðum eigi
síðaren 15. nóvember 1978.
23. október 1978.
Borgarstjórinn i Reykjavik.
Tilkynning
Með tilvísun til 10. gr. laga nr. 49 frá 16. maí 1974, sbr.
• lög nr. 49 frá 16. marz 1951, er hér með skorað á þá,
sem eiga ógreidd iðgjöld til Lífeyrissjóðs sjómanna, að
gera nú þegar skil á þeim til sjóðsins.
Hafi ekki verið gerð skil á öllum vangoldnum iðgjöldum
innan 30 daga frá birtingu þessarar tilkynningar, mun
verða óskað uppboðssölu á viðkomandi skipi (lögveði)
til fullnustu skuldarinnar.
Reykjavík, 18. október 1978,
f.h. Lífeyrissjóðs sjómanna
Tryggingastofnun ríkisins.
Uganda:
300.000 drepnir
sidan Idi Amin
kom til valda
Nærri þvi 300 þúsund íbúar
Uganda hafa verið myrtir á ýmsan
hátt á þeim sjö árum siðan Idi Amin
komst þar til valda. Auk þess hefur
mikill fjöldi hinna látnu verið píndur á
margan hátt. Kemur þetta fram í
skýrslu Amnesty International sem
birt var í London um siðustu helgi.
Fangar hafa verið barðrir til bana
með lögreglukylfum, verið hlaðnir raf-
magni, og ristir I sundur með bitvopn-
um. Konum er nauðgað og mörgum
misþyrmt kynferðislega á ýmsan hátt.
Þess eru dæmi að augun hafi verið
stungin úr fólki.
Vöruflutningabifreiðastjórar frá ná-
grannaríkinu Kenya hafa sagt frá því
er þeir lentu I höndunum á mönnum
Amins og voru píndir.
Fangelsanir I Uganda munu vera
mjög af handahófi og fátítt að hinir
handteknu fái nokkra meðferð dóm-
stóla, segir I skýrslu Amnesty Inter-
national.
Meðal hinna horfnu sem fullvíst er
talið að langflestir hafi verið myrtir
eru bæði venjulegir almennir borgarar
og stjórnmálamenn, embættismenn,
leiðtogar trúflokka, skáld og aðrir
menntamenn. 1 skýrslu Amnesty
International sem eru frjáls samtök
sem berjast fyrir að pólitiskir fangar
verði látnir lausir, er greint frá
mörgum dæmum um morð og mis-
þyrmingar á föngum í Uganda á
undanförnum árum.
Kalifornía:
Skógareldar
ógna Los Angeles
—tugir íbúðarhúsa brunnir f mestu skógareldum
síðan árið 1961
Skógareldar nærri Los Angeles í
Kaliforniu brutust út fyrir varnir
slökkviliðsmanna í morgun og hafa í
það minnsta 70 íbúðarhús orðið
eldinum að bráö. Voru húsin í
vesturhluta Los Angeles eða úthverfi
borgarinnar þar. Mörg fleiri hús munu
vera í yfirvofandi hættu. Hundruð
manna hafa flúið heimili sín, sem sum
hafa verið metin á allt að jafnvirði
eitt hundrað millj. ísl. króna
Eldurinn barst mjög hratt yfir þar
sem nokkur vindur var og stóð hann á
byggð svæði.
Vitað er um nokkur slys, sem urðu
er fólk flúði af heimilum sínum á
síðustu stundu. Lögðu margir sig i
mikla hættu, er þeir reyndu alveg til
síðustu stundar að bjarga eigum sínum
undan eldsvoðanum. Urðu sumir að
skilja bifreiðar sínar eftir þar sem
umferðateppur mynduðust þar sem
svo margir reyndu að komast á brott á
sömu stundu.
Vitað er að margir íbúar á þeim
sVæðum þar sem hætta er talin á að
skógareldranir nái til eru tilbúnir að
hverfa á brott með eins mikið af eigum
sínum og þeir geta.
Næturhimininn yfir Los Angeles
var glóandi rauður af logum skógar-
eldsins þó dimmdi öðru hvoru, þegar
kolsvartir reykbólstrar brutust upp.
Eru þetta taldir verstu skógareldar
síðari árið 1961 er fjögurhundruð og
fimmtiu íbúðarhús í Bel Air hverfinu
brunnu.
1 morgun voru skógareldarnir aðal-
lega nærri tveim íbúðarhverfum. í
Malibu hverfi töldu opinberir aðilar að
50 til 60 íbúðarhús hefðu brunnið og
skógareldurinn logaði á svæði sem
væri um það bil þrjátiu kílómetra
breitt. í Brentwood hverfi var ástandið
talið mun alvarlega þó færri íbúðarhús
hefðu brunnið. Var hætta talin á að
skógareldrarnir gætu þar náð til
hundruða íbúðarhúsa, ef eldarnir
héldu áfram I sömu stefnu.