Dagblaðið - 24.10.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978.
7
Bandaríkin:
Bamalæknar vilja
banna sjónvarps-
auglýsingar bama
—styðja sams konar kröf ur foreldrasamtaka og kennara og segja bömin
þjást af „gefðu mér” sjúkdómi
Erlendar
fréttir
REUTER
Egyptaland:
Sadat vill
breytingar
á friðarskil-
málunum
Sadat forseti Egyptalands er
sagður hafa krafizt ýmiss konar
breytinga á þeim drögum að friðar-
samningum milli ísraels og
Egyptalands, sem gengið var frá í
Washington i fyrradag. Er hann
sagður hafa falið varnarmálaráð-
herra sínum Kamal Hassan að
krefjast þessara breytinga á friðar-
fundinum. Ekki er ljóst hvenær
þeir muni halda áfram.
Bandarískir barnalæknar telja
nauðsynlegt að koma í veg fyrir að
auglýsingum í sjónvarpi sé beint tii
barna. Hugleiða þeir að hefjast handa
um að slikar auglýsingar verði bann-
aðar. Hafi þær mjög slæm áhrif á and-
lega heilsu og valdi meðal annars sjúk-
dómi sem kalla má „gefðu mér” sjúk-
dóm. Lýsi þessi sjúkdómur sér á þann
hátt að börnin hrópi stöðugt gefðu
mér ef þau sjá eitthvað sem þau langar
til að fá eða eignast.
Að meðaltali fylgist bandarískt barn
með um það bil tuttugu þúsund sjón-
varpsauglýsingum á ári samkvæmt
rannsóknum þarlendra uppeldisfræð-
inga. Segja þeir að auglýsingar sem
beint væri að börnum væru að því
leytinu óréttlátar og hugsanlega
hættulegar vegna þess að barnið
skortir dómgreind til að meta þær á
sama hátt og fullorðnir. „Gefðu mér”
sjúkdómurinn væri nú eitt helzta
vandamál foreldra.
Talsmaður barnalækna hefur til-
kynnt að samtök þeirra muni beita sér
fyrir banni á sjónvarpsauglýsingum
svo fremi sem eigendur sjónvarps-
stöðva láti sér ekki segjast og dragi úr
auglýsingum ætluðum börnum.
Samkvæmt rannsóknum opinberra
aðila i Bandaríkjunum verja börn þar í
landi þriðjungi af þeim tíma sem þau
eru vakandi fyrir framan sjónvarps-
skjáinn. Er þá átt við börn sem ekki
eru farin að sækja skóla. 1 einni könn-
uninni voru börnin spurð hvort þau
kysu heldur að hafa föður sinn hjá sér
eða sjónvarpið. 44% þeirra svöruðu
að þau vildu heldur sjónvarpið.
Með áðurgreindri kröfu sinni hafa
barnalæknar tekið undir með forsvars-
mönnum foreldrasamtaka og kennara
um að dregið verði úr auglýsingum
ætluðum til að ná eyrum og augum
barna í Bandaríkjunum.
Israelsmönnum og Egyptum virðist vera að takast að ganga frá friðarsamnmgum sin á milli. Samningafundir hafa farið fram f Washington undir göðri handleiðslu
Jimmy Carters Bandarfkjaforseta, sem mun hafa grípið inn á erfiðum stundum í samningunum.
Ítalía:
Páfinn
ætlar að
heimsækja
Pólland
næsta vor
Jóhannes Páll annar páfi hefur
sagt að hann hafi mikinn hug á að
heimsækja föðurland sitt, Pólland,
á næsta vori. Sérstaklega hefur
hann mikinn áhuga á að koma til
Kraká, borgarinnar þar sem hann
var erkibiskup. Segir páfi að mjög
erfitt verði fyrir sig að eiga ekki
afturkvæmt til Póllands til lang-
frama. En hann hlýði vilja guðs.
GANGA FRJALSIR
Sovétmennirnir tveir sem fundnir hafa verið sekir um njósnir fyrir Sovétrfkin f
Bandarikjunum unnu hjá Sameinuðu þjóðunum. Dómur hefur ekki verið kveðinn
upp yfir þeim félögum en á meðan svo er hefur verið fallizt á að þeir fái að fara um
frjálsir en á ábyrgð sovézka sendiherrans.
Frakkland:
Verkföll lama sigling-
ar, póst og sjónvarpið
Búizt var við að franskir póstmenn og
starfsmenn sjónvarpsstöðva hæfu verk-
föll i morgun og með þvi lama alla póst-
flutninga og sjónvarpssendingar um
óákveðinn tíma. Stór hluti hafnarverka-
manna hefur verið í verkfalli í nokkra
daga og með þvi truflað flutninga um
hafnir landsins. Þessar verkfallsaðgerðir
koma ekki á óvárt og í raun má segja að
fyrir þvi hafi skapazt viss hefð að
franskir launþegar þrýsti á með launa-
kröfur á hverju hausti.
Samgöngur við Miðjarðarhafseyna
Korsíku lögðust nær því niður í gær
vegna verkfalls sjómanna og vörubif-
reiðarstjóra á eynni. Siglingar á milli
Suður-Frakklands og Korsíku hafa nær
því algjörlega stöðvazt ogbifreiðarstjórar
vöruflutningabílanna hafa brugðizt
reiðir við og lokað öllum aðkomuleiðum
að höfnunum á landi i mótmælaskyni
við verkfall sjómannanna.
Miklar tafir hafa verið á afgreiðslu
um aðrar hafnir í Frakklandi. Cher-
bourg, mikil aðflutningsborg á milli Eng-
lands og Frakklands, var nær þvi lokuð í
gær.
Ein meginástæðan fyrir verkfalli
franskra sjómanna, auk venjubundinna
launakrafna, mun vera óánægja með að
ráðnir skuli vera margir Asíubúar á
frönsk skip. Búizt er við að aðgerðir
franskra póstmanna muni standa yfir i
fjóra daga. Ekki er Ijóst hvaö sjónvarps-
starfsmenn hyggjast fyrir.
GigYoung:
Eiginkona og systir fá arfinn
Helmingur eigna leikarans Gig
Young átti að ganga til eiginkonu
hans, sem hann skaut í höfuðið áður
en hann réði sér sjálfur bana í síðustu
viku. Kom þetta í Ijós, er erfðaskrá
hans var opnuð í gær en dagsetning
hennar var í júní síðastliðnum.
Hinn helmingur eigna leikarans átti
að renna til systur hans. Sú mun þó
væntanlega hljóta allar eigur Young
þar sem samkvæmt ákvæðum erfða-
skrárinnar átti sú sem lifði hina að
hljóta allan arf.
Fjórar fyrri eiginkonur Young
munu ekki fá einn eyri af eignum hans
en dóttir einnar þeirra skal samkvæmt
skránni hljóta tíu dollara. Ekki er ljóst
hversu miklu eignir leikarans nema.
Hann var 60 ára er hann lézt. Kom
lögreglan að honum I hótelíbúð ásamt
31 árs gamalli eiginkonu en þau höfðu
gengið i hjónaband þrem vikum áður.
Var þá Young með byssu i hendi og
bæði látin.
í erfðaskránni voru einnig ákvæði
um greiðslu 7500 dollara til Harriette
Douglas fyrrverandi leikkonu, sem sjá
mun um útför leikarans.