Dagblaðið - 24.10.1978, Side 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24.0KTÓBER 1978.
9
8ISII
Hjólreiða-
kappar íkirkju
Fram-völlurinn gamli:
— Verkinu miðar vel áf ram
Borinn Jötunn er nú kominn nidur á 2900 metra dýpi sem er nýtt Islandsmet sett á gamla knattspyrnuvelli Fram við
Sjómannaskólann.
< m
„Þetta er orðin dýpsta hola á landinu
tæplega 2900 metra djúp,” sagði Jens
Tómasson jarðfræðingur hjá
Orkustofnun er Dagblaðið spurði hann
hvernig borunin á Fram-vellinum gamla
við Sjómannaskólann gengi. „Þessi
borun er gerð til að fá meira vatn I
Reykjavík. Það hafði komið fram við
mælingar á dýpstu holunni í Reykjavík,
sem var um 2200 m, að þrýstingur var
þar öðruvisi en í hinum holunum sem
benti til þess að þarna væri vatnskerfi
sem ekki væri farið að nýta. Borunin
hófst 12. maí sl. með gufubomum og var
borað með honum niður í rúma 1900 m.
28. ágúst tók svo borinn Jötunn við og
er hann nú kominn á um 2900 m dýpi.”
Jens sagði, að sennilega yrði borað niður
á 3400—3600 metra dýpi. Hversu djúpt
yrði borað réðist af hvort ástandið yrði
tæknilega erfitt, hvað mikið vatn
tapaðist inn í holuna. Það hefði áður
verið mikið vandamál en með nýrri
tækni horfði þetta til betri vegar. „En
eins og er þá er þetta mjög efnilegt,”
sagði Jens og bætti því við, að borað
væri 30—40 metra á dag að jafnaði.
Hann sagði, að við borunina niður í
DB-mynd Hörður.
1900 metra hefðu fengizt 40 lítrar og nú
hefðu fengizt 14 lítrar 1 viðbót. Hæsti
hiti sem mælzt hefur í þessari holu er
152 gráður. Það var á 2727 m dýpi og er
það hæsti hiti sem hefur mælzt á þessu
svæði. Aðspurður sagði Jens að áform
væru uppi um að bora fleiri slíkar djúpar
holur bæði á Elliðaársvæðinu og Mos-
fellsvaeðinu. Hvenær af þvi gæti orðið
færi allt eftir fjárhagsstöðu Hita-
veitunnar. Þess má að lokum geta að
næstdýpsta borhola á landinu er á
Akureyri og er hún 2820 metra djúp.
•GAJ
Er kirkjusókn æskulýðsins að rjúka
upp úr öOu valdi? Fjöldi raðþjólanna fýrir
l.des. kosningarHÍ:
Verðandi vann
Kosið var til 1. des. nefndar Háskóla
lslands 1978 á laugardaginn. Verðandi,
félag róttækra stúdenta, sigraði og hlaut
371 atkvæði, eða 57% atkvæða. Vaka,
félag lýðræðissinnaðra stúdenta, hlaut
276 atkvæði eða 43% atkvæða. Auðir
seðlar voru 25 og 1 ógildur. Kjörsókn
var aðeins um 25%.
Það verður því umræðuefni Verð-
andimanna, Háskóli i auðvaldsþjóð-
félagi, sem rætt verður 1. des. Vaka
bauð fram umræðuefnið „1984” —
Hvað verður ekki bannað.
- JH
utan Garðakirkju á Álftanesi á dögun-
um kynni að benda til þess. Skýringin á
fjölda hjólanna er þó ekki sú, heldur að
þarna fór fram verðlaunaafhending f ný-
afstöðnu reiðhjólaralli KFUM og K.
Keppendur voru alls 264, bæði piltar og
stúlkur, á aldrinum 12—15 ára. Vega-
lengdin var Álftaneshringurínn sem er
10,3 km og á leiðinni voru 15 reiðhjóla-
og torfæruþrautir. Keppni tók alls 5 klst.
en keppendur voru ræstir þrír i einu með
20 sek. millibili. Það var KFUM og K
sem stóð að keppninni i samvinnu við
Umferðarráö og lögregluna. í lokin var
safnazt saman I Garðakirkju og þar
fengu sigurvegararnir bikar til eignar.
Einn sigurvegaranna, Ingi Erlingsson,
sigraði I sams konar keppni áríð 1976.
-GAJ
■ an ■ wfKm
• Eldhröð papplrsfærsla (11 lín./sek.)
• Eldhröð prentun
• Leyfilegt er að draga
papplrinn upp með hendinni
• Bæði Ijósaborð og strimill
(mod 2251)
• Stórir og skýrir stafir
• Fullkomin kommusetning
GISLII JOHNSEN
Vesturgata 45 Reykjavík
sími 27477
DÝPSTA BORHOLAN
Á ÍSLANDI