Dagblaðið - 25.10.1978, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1978
Fágaðasti Ijóðasöngvari okkar tíma:
Með engil-
tón...
— og í snertingu við heilagan anda
Einhvern veginn hef ég alltaf hugsaö
mér Frakka heldur háværa, ögn hýra af
rauðvíni og baöandi út öllum öngum,
bablandi af miklum tilfinningahita.
Gerard Souzay, ljóðasöngvarinn
heimsfrægi, viröist ein tilfinningakvika,
en hann er svo óskaplega fágaður og
óaðfinnanlega mildur að það er næstum
eins og hann sé ekki af þessum heimi
heldur hafi hann náð einhverju fíngerð-
ara tilverustigi. Ég hefði ekki orðið hissa
þótt hann allt í einu hefði breytzt í engil-
tón eða gylltan skýhnoðra og liðið í
burtu. Og þegar ég var búin að tala við
hann stundarkorn var ég orðin svo um-
vafm þessu ofsalega tilfinninganæmi,
sem geislar frá honum, að það olli bein-
um sársauka að hverfa aftur á vit hins
daglega lifs. Það var ekki aðeins hrá-
slagalegur útsynningurinn, sem kvaldi
mig, heldur hin hversdagslegustu hljóð
eins og drunur I bílum, malandi i frúm
að verzla, karlmannsrödd úr lélegu út-
varpstæki. Allur þessi gamalkunni há-
vaði varð alltíeinu viðbjóðslega rudda-
legur og uppáþrengjandi.
Ætlaði að verða
liðsforingi!
Souzay segist vera fæddur og uppal-
inn í eldgömlum smábæ, Chinon við
Loire-fljótið. Kastalinn, sem gnæfir yfir
bænum og er nú allur i rústum, var
aðsetur Frakkakonunga þegar á dögum
Sturlunga, og hér hitti Jóhanna af örk
einhvern þeirra áður en hún var brennd,
en það er önnur saga.
Gerard er yngstur fjögurra systkina:
„ég var slys” segir hann og brosir sínu
blíða brosi. Sem strákur var hann alla
daga í boltaleik og tennis. Það litla sem
hann spilaði á píanó gerði hann einvörð-
ungu til að gleðja móður sína. Hann ætl-
aði, svo fjarstætt sem það virðist þegar
maður hittir þennan mann í dag, að
verða liðsforingi og feta þar með í fót-
spor föður síns.
Seinna féll hann frá þvi og á mennta-
skólaárunum ákvað hann að leggja fyrir
sig heimspeki. En um það leyti kom í ljós
að hann gat sungið og 19 ára tók hann
þá ákvörðun að helga lif sitt tónlistinni.
Allir í fjölskyldunni reyndu að telja
hann af þessu nema móðir hans. „Hún
treysti mér,” segir Souzay, nú löngu
viðurkenndur snillingur í þessari list sem
byggir svo mjög á tilfinninganæmi túlk-
andans.
Leyndardómur
lífs og dauða og listar
Ég hafði einhvers staðar heyrt að
Souzay lokaði sig inni I dimmu herbergi
áður en hann færi að syngja, eflaust til
að bægja öllum utanaðkomandi áhrifum
frá og kafa niður í leyndardjúp sálar-
innar.
— Fyrir mér, segir hann, er tónlistin
leyndardómur öllu öðru fremur, jafn-
dularfull og lífið og dauðinn.
Og ég læt fremur stjórnast af tilfinn-
ingum en rökhyggju ... tónlist er eitt-
hvað sem ég finn mjög sterkt... þegar
ég túlka þá er það ekki útreiknað
hvernig ég geri heldur fær minn innri
maður, eðlishvatirnar, að ráða ... ég
hef mjög sterka eðlisávísun og fer mikið
eftir henni... það er kannski vitlaust hjá
mér.
— Nú er í tízkd að tónlistarflutn-
ingur á að vera þrauthugsaður — en til
að syngja Schubert þarf maður ekki að
vera tíu sinnum gáfaðri en hann var,
heldur þarf maður að reyna að vera heill
og sannur, já, heill og sannur verður
maður að vera: í ástum sé það mögulegt,
I list hvað sem það kostar.
Listamaðurinn virðist eigingjarn, en
hann á ekki annars úrkosti, hann þarf að
byggja svo mikið á sjálfum sér ... draga
um sig hring...
Ég er fremur einmana .. nei, það er
ekki rétta oröið, ég á fjölda vina, en í list-
inni stend ég einn. Listamaðurinn fær
góð ráð, hrós, jafnvel aðdáun, en enginn
í heiminum getur sagt honum hvernig
hann getur gefið ljóðunum hreinni tón
— það verður hann að finna út sjálfur.
Ég er rykkorn
Hann segist ekki trúa á guð en samt
hef ég sjaldan séð mann sem jafnóum-
deilanlega var I snertingu við heilagan
anda.
— Sé hann til þá óttast ég hann ekki
— en við vitum svo litið um alheim-
inn... við komum einhvers staðar frá
og förum eitthvað, en hvert?
Og hvernig á ég að geta trúað á
hreinsunareld og eilifa glötun — jafnvel
þótt einbver hafi verið syndaselur í 75
ár, þá réttlætir það ekki að halda honum
í píslum helvítið öldum og árþúsundum
saman....
— Menn hugsa sér guð eins og þeir
eru sjálfir, hefnigjarnan og skilnings-
lausan. Sem barni var mér sagt að guð
vildi að viö mennirnir fyrirgæfum mis-
gjörðir, elskuðum óvini okkar. Hlýtur
hann þá ekki að vera þannig sjálfur, nei,
ekki hann og heldur ekki hún, þetta al-
góða heimsafl...
En ég virði trúarbrögð annarra, búdd-
ista, múhameðstrúarmanna, kaþólskra
og ykkar lúterstrú hér á íslandi — eins
og ég virði ólíkustu stjórnmálaskoðanir,
en ég get ekki aðhyllzt neina þeirra
sjálfur, það eina sem ég trúi á er að lifa
rétt og sýna öðrum kærleika ... sjálfur
er ég aðeins rykkorn ... af moldu ertu
kominn og til moldar skaltu aftur
hverfa....
- IHH
ARNALDS SINNIR
MENNINGU YTRA
— nýr maður íhans stað á þingi
Menntamálaráðherra, Ragnar Arn- UNESCO, Menningar- og visinda-
alds, og Birgir Thorlacius ráðuneytis- stofnunar Sameinuðu þjóðanna.
stjóri sækja nú evrópsku menningar-
málaráðstefnuna sem haldin er í Hannes Baldvinsson, framkvæmda-
Aþenu. stjóri á Siglufirði, tók i gær sæti
Á heimleið kemur ráðherra við i Ragnars á Alþingi.
París og ávarpar þar ráðstefnu • BS
Frá námskeiði sem Gerard Souzay hefur haldið undanfarna daga á vegum Tónlistarskólans, það þriðja I röðinni af slikum
DB-myndir Bjarnlcifur
.Fyrír mér er tónlistin leyndardómur „IMenn hugsa sér guð eins og þeir eru
„tg var siys, ég átti ekki að koma i
heiminn.”
sjálfir, með mannlega gaUa.
LÆRK) AÐ PRJÓNA Á
SINGER
PRJÓNAVÉLAR
Singer prjónavél 2100.
Prjónar fínt og gróft garn, með jafnri og
fallegri áferð (einnig lopa).
Margvísleg munsturprjón og litaprjón.
Hringprjón og klukkuprjón. Prjónar
sokka, heila í hæl og tá. Hefur tvö nála-
borð úr málmi með 360 nálum alls. Hefur
einnig tvöfaldan bandleiðir.
Singer prjónavél 2200.
Hefur alla þá eiginleika sem 2100
prjónavélin hefur, að auki sjálfvirkt
munsturprjón sem stýrist af munstur-
banka (memo martik), sem tengdur er
vélinni. Og jafnframt fylgir vélinni gata-
sleði og hægt er að setja rafmótor við
báðar vélarnar. 6 tíma kennsla fylgir vél-
unum.
Sýnikennsla verður í Ármúla 3
fimmtudaginn 26. október frá kl. 2—5 e.h.
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900
AUGLÝSINGASTOFA SAMBANDSINS