Dagblaðið - 25.10.1978, Side 7

Dagblaðið - 25.10.1978, Side 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1978 7 Danmörk: ATVINNUKNATT- SPYRNAN ALVEG A HAUSNUM — mikil fækkun knattspyrnumanna atvinnuf élaga eftir f jórðungsfækkun áhorfenda síðan ífyrra Hin nýja atvinnuknattspyrna í Danmörku er á hausnum. Um það bil fjörutíu knattspyrnufélög af fjörutíu og átta knattspyrnufélögum i deilda- keppninni þar í landi eiga í verulegum fjárhagslegum erfiðleikum. Ástaeðan fyrir þessu er sú að áhorfendur hafa ekki verið eins hrifnir af atvinnuknatt- spyrnunni eins og forgöngumenn hennar höfðu gert sér vonir um. Samkvæmt tölum um áhorfendur hafa fjórðungi færri áhorfendur komið til að sjá knattspyrnuleiki í ár, sem er fyrsta árið sem atvinnuknattspyma er rekin í Danmörku, heldur en í fyrra. Samkvæmt könnun, sem gerð hefur verið meðal danskra knatt- spyrnufélaga, þá mun aðeins vera grundvöllur fyrir atvinnuknattspyrnu í fyrstu deildinni. Þar þarf þó að líkindum að fækka liðum niður í tólf. Flest knattspyrnufélaganna munu fækka mjög þeim leikmönnum á næstunni, sem boðið verður upp á áframhaldandi atvinnusamninga. Reynslan hefur einnig sýnt að minna hefur borizt af fjármagni frá stuðningsfyrirtækjum, auglýsendum o.s.frv. Fjárhagur atvinnuknatt- spyrnufélaganna er því einnig af þeirri ástæðu slæmur. Formaður danskra knatt- spyrnumanna hefur sagt í viðtali, að árið í ár hafi verið slæmt ár til að hefja atvinnuknattspyrnu. Fólk hafi verið búið að fá nóg af knattspyrnu I sjónvarpinu, er heimsmeistaraknatt- spyrnunni í Argentínu lauk. Því hafi áhorfendum fækkað. Hann sagðist telja að næsta ár yrði betra að þessu leyti. Einnig sagðist formaðurinn telja að í framtíðinni mundu félögin gæta sín betur fjárhagslega og gera raunhæfari samninga við leikmenn en gert hefði verið í byrjun. : v ? v. ■ Sovétríkin: Eiginkonu Kortsnojs enn neitað um leyfi til brottf lutnings Á meðan Viktor Kortsnoj hinn land- flótta Sovétmaður var að berjast síðustu skákirnar gegn landa sínum Anatoly Karpov í Manila á Filippseyjum á dög- unum var eiginkonu Kortsnojs enn einu sinni neitað um leyfi til að flytjast á brott frá Sovétríkjunum með syni þeirra hjóna. Eiginkonan Isabella sagði að þessi úr- skurður hefði komið i byrjun september en hún hefði ekki viljað trufla mann sinn i heimsmeistarakeppninni með þess- um slæmu tíðindum. Viktor Kortsnoj skákmeistari til- kynnti árið 1976 að hann mundi ekki snúa aftur til Sovétríkjanna. Hafði hann þá átt i deilum við þarlend skákyfirvöld um nokkra hrið. Eiginkona hans sagðist vera hrædd um að sonur þeirra sem er nítján ára yrði fljótlega kallaður í her- inn. Herskylda er tvö ár í Sovétrikjunum og eftir það getur verið erfitt að fá leyfi til að flytjast úr landi. Isabella Kortsnoj er tæknifræðingur að mennt en hefur ekki starfað sem slík- ur síðastliðin tólf ár. Eiginkona Kortsnojs er hrædd um að sonur þeirra verði brátt kallaður til herþjónustu og eftir það er erfitt að fá leyfi til að flytja frá Sovétrlkjunum. Portúgal: Lagaprófessor næsti forsætis- rádherra? — Eanes forseti tilnef nir í dag Talsmaður Eanes, forseta Portúgal Soares, sem varð að fara frá völdum, sagði í gærkvöldi að búast mætti við er Miðdesmókrataflokkurinn hætti tilnefningu hans á, hver reyna ætti að stuðningi við hann og stjórn hans því mynda starfhæfa stjórn í landinu, í ekki lengur með meirihluta á þingi dag. Samkvæmt portúgölskum dag- 'landsins. blöðum er lagaprófessor að nafni Carlos Nota Pinto prófessor, sem Carlos Nota Pinto talinn líklegastur til líklegastur er talinn til að vera falin að hljóta hnossið. stjórnarmyndun er 42 ára, var áður þingmaður fyrir Sósíaldemókrata- Ríkisstjóm Alfredo Nobre da Costa flokkinn, sem hefur fremur hægri hefur setið að völdum til bráðabirgða sinnaða stefnuskrá. Var Pinto leiðtogi siðan efnahagsmálatillögur hennar flokksins á þingi en þar er hann annar voru felldar á þingi landsins hinn 14. stærsti þingflokkur, aðeins Jafnaðar- september siðastliðinn. Tók sú stjórn mannaflokkur Mario Soares er við af rikisstjórn sósíalistans Marios fjölmennari. Bandaríkin: Hætt við gildru- girðingu við landa- mæri Mexíkó Bandarisk innflytjendayfirvöld tilkynntu I gær að þau hefðu hætt við að setja upp nítján kílómetra langa girðingu á stað einum meðfram landa- mærum Bandaríkjanna og Mexikó þar sem mjög margir Mexíkanar eru sagðir fara ólöglega inn í fyrrnefnda landið árlega. Mikil mótmæli risu gegn girðingunni er hönnuður hennar lét hafa eftir sér að þeim sem festist í henni, þó svo ekki væri meira en á einni tá gæti ekki losað sig af sjálfsdáðum aftur. Var hönnuðurinn hinn ánægðasti með verk sitt enda taldi hann sig hafa fengið það hlutverk að hindra einhvern hluta hinnar hálfu milljónar Mexíkana til að komast yfir í Bandaríkin sem sagðir eru fara ólöglega yfir landamærin árlega. Við mótmælin tóku innflytjendavöld við sér og sögðu að girðingunni væri að visu ætlað þetta hlutverk en þó ekki þannig að fólk gæti borið varanlegan skaða af tilraunum til sliks. Keith Richards slapp með skrekkinnfrá heróínákærunni Keith Richards gitarleikari Roll- ing Stones var í gær dæmdur til að halda hljómleika innan hálfs árs til ágóða fyrir blinda. Átti hann yfir höfði sér sjö ára fangelsisdóm fyrir heróínneyzlu i Kanada en sleppur gegn hljómleikahaldinu. Richards hefur sagt að hann telji sig hafa unnið bug á heróinfikn sinni. Dollarinn íbotn Bandaríski dollarinn hefur aldrei staðið jafn lágt gagnvart jap- önsku yeni og hann gerði í gær, siðanilok síðari heimsstyrjaldar. Virðast japanskir kaupsýslumenn yfirleitt láta sér fátt um finnast ráðagerðir Jimmy Carters Banda- ríkjaforseta um styrkingu efna- hagslífs ríkis síns og bætta stöðu dollarans. Læknirinn sýkn- aðurogFarber látinn laus Læknir nokkur í Bandaríkjun- um var i gær sýknaður af ákærum um að hafa ráðið nokkrum sjúklingum sinna bana með lyfjagjöfum. Jafnhliða var blaðamanni að nafni Myron Farber sleppt lausum úr varðhaldi. Þar sat hann vegna þess að hann vildi ekki afhenda dómi gögn sín, sem hann hafði undir höndum og leiddu líkur að sekt læknisins, sem er af argentínskum uppruna. Mál beggja aðilanna mun nú fara fyrir hæstarétt. Sjómenn stukku í sjóinn Tveir rúmenskir togarasjómenn vörpuðu sér fyrir borð á skipi sínu þar sem það lá fyrir akkerum út af strönd Bandaríkjanna í gær. Tókst þeim að synda til strandar. Opin- berir aðilar I Bandaríkjunum hafa tilkynnt að tvímenningunum hafi verið veitt hæli sem pólitískum flóttamönnum.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.