Dagblaðið - 02.12.1978, Side 5

Dagblaðið - 02.12.1978, Side 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978. ............. T ollgey mslur allar f ullar en geymslur kaupmanna tómar 5 \ V — Innlend verzlun að sligast undan byrði verðbólgu og samdráttar peningamála Það er ekki ofsögum sagt af erfið- leikum innflytjenda og kaupmanna um þessar mundir. „Það harðnar stöðugt á dalnum og fer versnandi þvi enginn ræður við 50% verðbólgu,” sagði Jón Magnússon form. Fél. stór- kaupmanna. Vörugeymslur kaupmanna og heild- sala eru tómar og leystar eru út vörur eftir hendinni, en allt hefur það kostn- aðarauka I för með sér miðað við eðli- lega verzlun og eðlilegt ástand í pen- ingamálum. „Já, álagið hér hjá okkur hefur mjög aukizt og hér er allt fullt af að- fluttum vörum,” sagði Helgi K. Hjálmsson forstjóri Tollvörugeymsl- unnar. „Og þó rennsli vara sé mikið i gegnum geymsluna hefur álagið auk- izt. Meiri óskir eru um að fá hér að- stöðu en nokkru sinni. Við höfum engan rekið frá en reynt að verða öll- um að liði.” Allar vörur i Tollvörugeymslunni eru, eins og i pakkhúsum skipafélag- anna, ógreiddar I banka og hjá tolli. 1 Tollvörugeymslunni geta innflytj- endur vara tekið út lítinn skammt vörusendingar I senn, greitt hann og fengið út i verzlunina. Raunverulegir eigendur varanna eru erlendir selj- endur þar til greitt er I banka og tolli. Sagði Helgi að innflytjendur spöruðu sér milljónatugi með þessu enda kæmust sífellt fleiri upp á það að not- færa sér Tollvörugeymsluna. Gengis- fellingar og peningasig spiluðu einnig inn í, þvi þegar greitt er fyrir smá- skammt gildir gengi dagsins í verðút- reikningi og varan sem I Tollvöru- geymslunni situr eftir hækkar i verði með gengissigi næsta dags. Lánsfjár- skortur hvetur menn og til notkunar Tollvörugeymslunnar og léttir mikið á bönkum,” sagði Helgi. „Samdrátturinn á peningamarkaðn- um er annar höfuðóvinur verzlunar- innar,” sagði Jón Magnússon form. Samtaka stórkaupmanna. „Ætli sam- drátturinn nemi ekki einum banka á ári. Verðbólgan skekkir svo alla verzl- unarhætti og reikningsviðskipti.” Jón kvað notkun tollvörugeymslu skapa margvíslegan aukakostnað. Það er verið að fylla út og fara með smá- slatta af toll- og bankaskjölum, senda bíla eftir smávöruslöttum og koma í viðskipti. 100 þúsund króna útleysing vara með slíkum hætti gæti kostað alla heildsöluálagninguna. „Ef varan fengist beint frá skipi og heildsalar hefðu tollkrítina, sem þeir eru alltaf að biðja um, gæti það fyrir- komulag sparað verzluninni milljarð árlega að dómi nefndar og rekstrarsér- fræðings, er nefndin, sem nú er búin að skila af sér störfum, hefði fengið til útreikninga.” Jón sagði og að flest innflutnings- viðskipti færu nú fram á 90 daga víxlum. Þvi væru víxlarnir oftast eða alltaf greiddir á miklu hærra gengi en gilt hefði er viðskiptin fóru fram. í ótal tilfellum æti gengismunurinn upp alla álagningu heildverzlunarinnar. Sárast kvað Jón að sjá geymslur innflytjenda og kaupmanna tómar en I Tolivönigeymslunni hlaðast vörur upp — smislðttum. en þaðan rennur einnig mikið ht I önnur vöruhús væru full og afgreiðsla úr þeim færi fram með aukinni fyrir- höfn og miklum kostnaðarauka. -ASL KÖKUR í GRÓÐURHUSINU Sýnir 50 pastel- og kolateikningar Nú er sá árstími þegar kökusölur og basarar eiga hvað mestum vinsældum að fagna. Um hverja helgi eru haldnir margir slíkir, allt til styrktar góðum mál- efnum. Fólk gerir lika góð kökukaup á kökusölunum enda staðreynd að á flest- um hverfa kökurnar eins og dögg fyrir sólu. Kl. 21 dag hefst kökusala í Blómavali i Sigtúni. Það er Foreldra- og styrktar- félag Tjaldanesheimilisins I Mosfells- sveit sem stendur fyrir kökusölunni. Eru velunnarar Tjaldanesheimilisins hvattir til þess að koma, fá sér gott með kaffinu og styrkja um leið gott málefni. I dag kl. 2 opnar Guðmundur Björg- vinsson sýningu í Norræna húsinu á 50 pastel- og kolamyndum. Flestar mynd- anna eru frá þessu ári. Þetta er önnur einkasýning Guðmundar en sú fyrsta var fyrir 3 árum í sýningarsal Arkitekta- félagsins. Þessi sýning' Guðmundar er sölusýn- ing. Hún er opin frá kl. 2—10 2—13. desember. Guðmundur hóf nám i mannfræði og sálfræði I Bandaríkjunum fyrir tveimur árum og heldur því nú áfram hér. Hann hefur numið listfræði með sinu aðal- námi, sótt námskeið ytra og nám hér hjá Birni Th. Björnssyni. - ASt. wff'- -

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.