Dagblaðið - 02.12.1978, Síða 10

Dagblaðið - 02.12.1978, Síða 10
10 Iríálst áháð Útgefandh Dagbláðið hf. t # f _ Framkvœmdastjóri: Svainn R.EyjóHsson. RHstjóH: Jónas Krb^Snsson. FróttastjóH: Jón Birgir Pétursson. RitstjómarfuRtrúi: Haukur Halgason. SkrifstofustjóH rttstjóman Jó- • hannas ReykdaL íþróttir: Hallur Slmonarson. Aöstoóarfréttáétjórar. Atii Stsinarsson og ómar Valdi- ^marsson. Manningarm&l: AÖabtainn Ingótfsson. Handrit Asgrimur Páisson. Blaöamann: Anna Bjamason, Asgair Tómasson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stofánsdóttir, EHn Afcarts- dóttir, Gissur Sigurösson, Gunnlaugur A. Jónsson, Hailur HaNsson, Halgi Pétursson, Jónas Haraldsson, Óiafur Geirsson, ólafur Jónsson. Hönnun: Guöjón H. Pálsson. Ljósmyndir Ari Kristínsson, Ami Páll Jóhannsson, Bjamlaifur Bjamietfsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurðsson, Svainn Pormóðsson. Skrifstofustjóri: ólafur Eyjóifsson. Gjaldkeri: Þráinn ÞorieHsson. Sökistjóri: Ingvar Svainsson. Dreriing- arstjóri: Már E.M. HaHdórsson. Ritstjóm Síöumúla 12. Afgraiösla, áskriftadaild, auglýsingarog ^krtfstofur Þvarholtí 11. Aöalsimi blaösins ar 27022 (10 Nnuri. Askrift 2400 kr. á mánuði impnlands. i lausasölu 120 kr. eintokiö. Setning og umbrot Dagblaöið hf. Siðumúla 12. Mynda- og plötugarö: HHmir hf. Slöumúla 12. Prenturv Arvakur hf. Skeifunni 10.______________%______________________ Endaleysurnar má laga Enginn skyldi trúa, þrátt fyrir ofur- áherzlu síðustu vikna á áhrif vísitölu- hækkana launa á verðlagið, að verkafólk með um 150 þúsund krónur á mánuði fyrir dagvinnu beri sök á verðbólgunni. Augljóst er, að þetta kaup er alltof lágt miðað við dýrtíðina. Þegar litið er á kauphækkun megin- þorra launþega, eigi hún ekki stoð í aukinni framleiðslu, skapar núgildandi kerfi hins vegar víxlhækkanir kaup- gjalds og-verðlags, sem ýta undir verðbólguna, þótt meginorsakir hennar sé allt annars staðar að finna. Stjórnvöld geta því aðeins beðið launþega um fórnir, ef hið sama gengur yfir alla þjóðfélagsþegna sem þáttur í róttækri atlögu gegn verðbólgu. Þá ber markvisst að varðveita kaupmátt hinna lægstu launa, en láta þá með meiri tekjur bera byrðarnar. í því sambandi væri æskilegt, að breytt yrði núgildandi vísitölukerfi, sem felur í sér margs konar endaleysur. Þegar verðbætur á laun valda kauphækkun vegna hækkaðs verðs á neyzluvörum, án þess að aukin fram- leiðsla þjóðarinnar standi undir hækkuninni, má búast við, að hækkunin renni út í verðlagið. Hagur fyrirtækja almennt hefur ekkert batnað, og hann versnar við kaup- hækkunina. Því hafa stjórnvöld venjulegast hleypt í gegn hækkun á verðlagi, þegar fyrirtækin leggja fram kostnaðarreikninga, sem sýna verri útkomu þeirra. Verð hækkar, og síðan verðbætur, kaup hækkar að nýju, verðlag að nýju og svo framvegis. í drögum að áliti vísitölunefndar, sem fyrir liggja, segir um vísitölukerfið: „í fyrsta lagi má ætla, að sé launa- hækkun í heild stefnt fram úr hagvexti til lengdar, auki vísitölukeifið á þann verðbólguvanda, sem því hlýtur jafnan að fylgja.” Nú hafa skapazt aðstæður til að lag- færa meingalla vísitölukerfisins sem hluta af víðtækum aðgerðum í baráttu við verðbólgu, en því aðeins getur slíkt orðið, að stjórnvöld standi við fyrirheitin um slíkar umfangsmiklar aðgerðir. Nefndarmenn voru sammála um, að finna þyrfti nýjan vísitölugrundvöll, enda er núverandi grundvöllur löngu orðinn forngripur. Hann byggist á búreikningum 100 fjölskyldna í Reykjavík árin 1964 og 1965. Síðan hafa neyzluvenjur tvímælalaust breytzt gífurlega. Nýr- grundvöllur mundi gera kleift að standa að lausn vandans af meira viti en nú er, en hann dygði þó skammt í viðureign við verðbólguna. 1 því tilliti eru merkari hug- myndir, sem fulltrúar launþegasamtaka hafa tekið allvel og gætu afstýrt nokkru af voða skrúfugangsins. Verðhækkanir á innfluttum vörum eiga samkvæmt núgildandi kerfi að hækka verðbætur á laun. Sé hækkun á verði vara, sem við flytjum út, ekki samfara hækkun á vörum, sem við flytjum inn, hefur hagur þjóðarbúsins versriað. Kauphækkanir af þessum völdum hafa því jafnan brunnið á verðbólgubálinu, og það hefur gert hlut þjóðarbúsins enn verri en ella hefði orðið. Rök má einnig færa að því, að ekki beri að reka stjórn- völd til að hækka frekar beina tekjuskatta en söluskatta, eins og nú er með því að hækkun óbeinna en ekki beinna skatta kemur inn í vísitöluna. Ennfremur ætti það ekki að leiða til kauphækkunar, þótt hið opinbera reisi skóla eða sjúkrahús og afli fjár til þess með hækkun söluskatta. Slíkt skapar ekki grundvöll fyrir kjarabætur í formi launa. Fulltrúar launþega munu sennilega gangast inn á leiðréttingu á slíkum þáttum, sjái þeir fram á, að stjórn- völdum sé alvara með öllu talinu um atlögu gegn verðbólgu. DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978. Er síðasta stund gömlu stórblað- anna að nálgast? —óvíst að The Times í London komi af tur út og horf ur á að dagblöðin með milljóna útbreiðslu nái öllum markaðinum Timabil hinna stóru og sjálfstæöu dagblaða í heimsborgunum þrem, New York. London og París er ekki langt. Uað hefur i raun aöeins staðið í rúm citt hundrað ár. Verið getur að þessu timabili sé að Ijúka. Á fimmtudaginn stóðvaði The Times í London útgáf- una og svo mun einnig verða með íiysturblað þess, The Sunday Times. Enginn veit hvenær eða hvort þessi trlöð munu nokkurn tima hefja út- komu aftur. Árið i ár hefur verið erfitt fyrir hin láu dagblöð sem enn reyna að stunda ■sjálfstæða fréttaöflun á alþjóðlegum vettvangi. Flest önnur blöð láta sér nægja þjónustu stóru fréttastofanna AP. UPl, Reuter og AFP og greinar frá fyrirtækjum sem sérhæfa sig á þeim vettvangi. The New York Times ur nýlega byrjað aftur að koma út eftir iittatíu og átta daga verkfall, sem Ikostaði blaðið og þau blöð önnur sem í því lentu 150 milljónir dollara í auglýs- ingum og lausasölu. Hin svokölluðu stórblöð í London ;ins og The Guardian og The Times hafa tapað milljónum punda á hverju ári siðasta áratuginn. Eitt þeirra, The Daily Telegraph, hefur ekki komið út svo vikum skiptir vegna stöðugra deilna við verkalýðsfélög. í Frakklandi er ástandið litið betra. Dagblöð sem reka sjálfstæða fréttaöfl- un á alþjóðavettvangi eru óðum að hverfa en i staðinn koma blöð hins hægrisinnaða fyrrverandi þingmanns, M. Robert Hersant. Af blöðum í París sem enn halda uppi þessu merki er aðeins um að ræða Le Monde. Margir Frakkar, sem eru ekki sáttir við hina vinstri sinnuðu stefnu þess, láta sig samt hafa það að kaupa blaðið eingöngu vegna þess að annars staðar telja þeir sig ekki fá fréttirnar frá nægi- lega góðum heimildum. Það sem sagt hefur verið má ekki skilja þannig að öll áreiðanleg dagblöð á Vesturlöndum séu að leggja upp laupana. í það minnsta tíu til fimmtán önnur blöð reka enn sína eigin frétta- þjónustu á alþjóðavettvangi. Mörgum fleiri tekst að halda uppi vandaðri fréttaþjónustu með þvi að velja og túlka fregnir frá stóru fréttastofunum af viti og skynsemi. Siðan leggja þessi blöð mesta krafta sina í að fylgjast með fréttum á heimaslóðum. En hvað er það sem er að ganga af þessum stóru alþjóðlegu dagblöðum dauðum? Segja má að þar sé um margar ástæður að ræða, einhvers konar blöndu af efnahagslegum. Erlent málefni Gwynne Dyer tæknilegum og mannlegum ástæðum. Ástæðurnar fyrir því að The Times og The Sunday Times hafa stöðvað út- gáfu er nærri sú sama sem stöðvaði The New York Times í haust. Þróunin i prenttækni er stöðugt meir og meir að þrýsta þessum stórblöðum í þá átt að dreifing þeirra og útbreiðsla verði um allt landið og efnisval þeirra yrði þá meira í áttina við dagskrá sjón- varpsstöðvanna. Þessi gömlu stórblöð með sitt sér- stæða efnisval hafa stöðugt tapað markaðinum til þeirra dagblaða sem einbeita sér meira að þeim atburðum sem verða í heimalandinu. Þeim lesendum sem vilja fylgjast með frétt- um frá öllum heiminum og túlkun þeirra á hverjum degi virðist fækka. Gömlu stórblöðin tapa kaupendum og hafa nú aðeins lítinn hluta markaðar- ins. Flest þeirra eru þannig sett að meirá en helmingur útbreiðslu þeirra er i þeim borgum sem þau eru gefin út. Þessu fylgir að auglýsingar dragast saman og þar af leiðandi tekjurnar. Þau hafa lika lagt upp laupana hvert á fætur öðru á undanförnum árum. Þróun þessara mála hefur verið svipuð i Vestur-Þýzkalandi. Þau fáu blöð sem einbeita sér að alþjóðlegum málefnum ogsjálfstæðri túlkun þeirra gera ekki einu sinni tilraun til að ná út- breiðslu um allt landið. Meira en helmingur seldra dagblaða i Vestur- Þýzkalandi er i höndum útgáfufyrir- tækis auðmannsins Axels Springers. Blöð hans einbeita sér að glæpamálum og léttu klámi. Síðustu vígi hinna gömlu stórblaða eru stór lönd eins og Bandarikin, Kanada, Ástralia og Sviþjóð. Þar hefur krafan um almenna útbreiðslu innanlands ekki orðið skilyrði fyrir lífsmöguleikum þeirra. Þar eru yfir- leitt tiltölulega litil blöð í hverri borg eða héraði sem fullnægja þörfinni fyrir fréttir frá nánasta umhverfi lesendanna. The New York Times er undantekning i þessu tilviki. Vegna stærðar New Yorkborgar hefur blaðinu reynzt unnt að gerast hvort tveggja í senn, blað sem heldur uppi sjálfstæðri alþjóðlegri fréttaþjónustu og blað með almennum fréttum úr borginni sjálfri. Enn standa málin svo að hin hefð- bundnu héraðs- og borgarblöð i Bandarikjunum eru til muna betri en Evrópublöðin i milljónaupplögunum. Má þar til dæmis nefna útbreiddustu brezku blöðin tvö, Daily Mirror og The Stin, sem flytja nánast engar al- mennar fréttir. Sá tími mun þó að lík- indum koma að tæknilega verði auðið að prenta og gefa út slík milljónadag- blöð I víðlendu landi sem Bandarikjun- um. Þá munu borgar- og héraðsblöðin hverfa og það verður mikill missir. 'm -V fE&tíæ ; ÍWi /jy/As /a jy/t li T Wf/;_ //• . ff/J 4 r • ■ V / : .... fí/ »// 'W . .... •' t,y ■’> < • , * - ''**•1/, ’u»s W. /// . >> iy

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.