Dagblaðið - 02.12.1978, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1978.
Útvarp
Sjónvarp
t—-----------------------------\
SJÓNVARPSM YNDIN - sjónvarp íkvöld kl. 22.25:
Veitingastofa Alice
—skemmtileg og raunsæ kvikmynd
Ur myndinni Veitingastofa Alice.
í kvöld kl. 22,25 sýnir sjónvarpið
okkur bíómyndina Veitingastofa Alice
(Alice’s Restaurant), sem hlaut mjög
góðar viðtökur er hún var sýnd hér í
Tónabíói fyrir nokkrum árum.
Myndin er bandarísk frá árinu 1969
og leikstjóri er Arthur Penn. Með aðal-
hlutverk í myndinni fara þau Arlo
Guthrie, Pat Qttinn 0g James Broderick.
Arlo Guthrie er vel þekktur þjóðlaga-
söngvari og fjallar myndin um hann og
félaga hans og daglegt líf þeirra. Á
myndin að gerast á því tímabili sem
hippaæðið var sem mest í Bandaríkjun-
um.
Arlo Guthrie samdi sjálfur alla söngv-
ana í myndinni en þeir eru til á sam-
nefndri LP plötu. I söngvunum lýsir
Arlo þvi sem gerist í kvikmyndinni.
Arlo og félagar hans búa saman í
gamalli kirkju og gengur á ýmsu hjá
þeim. Myndin lýsir lifsmáta þeirra, hug-
myndum og vandamálum.
Ein af hópnum, Alice, setur á stofn
veitingastofu, þar sem þeir eru tíðir
gestir. Alice er lifandi ennþá í verunni og
rekur ennþá veitingastofuna sem er
orðin bæði vel sótt og fræg. Veitinga-
stofa Alice er í Los Angeles.
Kvikmyndahandbók okkar gefur
myndinni fjórar stjörnur og er það
hæsta einkunn sem gefin er. Myndin er
vel þess virði að sitja heima og horfa á
hana.
Þýðandi er Ellert Sigurbjörnsson og er
myndin tveggja tíma löngogí lit. - ELA
KVÖLDUÓÐ — útvarp kl. 21.20:
Hljómplötuútgefendur
og jólaplötuf lóðið
Kvöldljóð — tónlistarþáttur í umsjá
Ásgeirs Tómassonar og Helga Péturs-
sonar — verður á dagskrá útvarpsins i
kvöldkl. 21.20.
t þættinum í kvöld verður fjallað um
ELIN
ALBERTS
DÖniR.
hinar nýútkomnu jólaplötur og spilaðar
verða nokkrar þeirra. Ennfremur verður
■rætt við þrjá hljómplötuútgefendur um
jólamarkað hljómplatnanna.
Verður i því sambandi rætt við
Svavar Gests hjá SG hljómplötum,
Björn Valdimarsson hjá Fálkanum og
Jónatan Garðarsson hjá Steinari.
Spjallað verður um kostnaðarhlið
plötunnar og hvernig lög sem setja skal á
plötu eru valin, auk margs annars sem
fylgir þvi að gefa út hljómplötu. Þáttur-
inn er þriggja stundarfjórðunga langur.
Þess má geta að eftir hálfan mánuð
verður sérstakur jólaþáttur hjá þeim
félögum Ásgeir og Helgaog ætla þeir að
fá til sin i heimsókn jólasveina, til að
gera þáttinn sem jólalegastan.
- ELA
Umsjónarmenn
Ásgeir og Helgi.
Kvöldljóðs, þeir
t------------------------------^
TVÆR FRAMHALDSMYNDIR — sjónvarp kl. 16.30 og 18.30:
Það er von á barni,
og vonandi þá bróður
Við eigum von á barni nefnist mynd
fyrir böm og unglinga sem sjónvarpiö
sýnir í dag kl. 18.30. Myndin er finnsk
og i þremur þáttum. Fjallar hún um
Mariti litlu sem er sjö ára. Mamma
hennar á von á barni og Marit vonar að
það verði litill bróðir.
Hún lætur sig dreyma um þegar litli
bróðir hennar fer að hjálpa henni þegar
aðrir áreita hana. En svo kemur að þvi
að mamma leggst inn á fæðingardeildina
og þá er bara að bíða og sjá hvort barnið
verði nú strákur eða stelpa.
Þess má geta að klukkan fjögur sýnir
sjónvarpið annan þátt um bamsfæðing-
ar. Nefnist hann Fjölgun i fjölskyldunni.
Þátturinn i dag lýsir einkum fæðingar-
undirbúningi og sjálfri fæðingunni.
Þýðandi og þulur er Arnar Hauksson
læknir og er sú mynd tuttugu mínútna
löng.
Við eigum von á barni er einnig
tuttugu mínútna löng, en þýðandi er
Trausti Júlíusson. . ELA
Laugardagur
2. desember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 LcikBmi.
7.20 Bæn.
7.25 Ljósaskipti: Tónlistarþáttur i umsjá
Guðmundar Jónssonar pianóleikara.
8.00 Fréttir. Forustugr. dagbl. (útdr.) Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmls lög að eigin
vali.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.20 Leikfimi.
9.30 Óskakjg sjúklinga: Kristin Sveinbjörns-
dóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir).
11.00 Ungir bókavinir: Hildur Hermóðsdóttir
stjómar barnatima.
' 12.00 Dagskráin. Tónlcikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.30 í vikulokin. Blandað efni i samantekt
ólafs Geirssonar, Eddu Andrésdóttur. Árrla
Johnsen og Jóns Björgvinssonar.
15.30 Á grænu Ijósi. óli H. Þóröarson framkv.
stj. umferðarráðs spjallar við hlustendur.
15.40 Islenzkt mál. Gunnlaugur Ingólfsson
cand. mag. talar.
16.00 Fréttir.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Vinsælustu popplógin. Vignir Sveinsson
kynnir.
17.00 Stundarkorn með Gunnari M. Magnúss
rithöfundi. Jón úr Vör tekur höfundinn tali
ogsér um dagskrána. Gisli Halldórsson leikari
les „Gestinn i fiskiverinu”, smásögu eftir
Gunnar, og einnig les höfundurinn óprentað
Ijóð.
17.45 Söngvar I léttum dúr. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Huliðsheimur. Baldur Pálmason les kafla
úr bók eftir Áma óla rithöfund.
20.00 Hljómplöturabb. Þorsteinn Hannesson
kynnir sönglög og söngvara.
20.45 Manniif í þéttbýli. Erna Ragnarsdóttir
tekursaman þáttinn.
21.20 Kvöldljóð. Tónlistarþáttur í umsjá Ásgeirs
Tómassonar og Helga Péturssonar.
22.05 Kvöldsagan: Saga Snæbjarnar I HergiLs-
ey rituð af, honum sjálfum. Ágúst Vigfússon
les(16).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Danslög. (23.50 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
3. desember
8.00 Fréttir. ••
8.05 Morgunandakt. Séra Siguröur Pálsson
vigslubiskup flytur ritningarorð og bæn.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.).
8.35 Létt morgunlög. Hljómsveit Mantovanis
leikur.
9.00 Hvaö v^rð fynr valinu? „Vetrarmorg-
unn”. kafli úr „Sjálfstæðu fólki" eftir
Halldór Laxness. Sigriður Guðmundsdóttir
kennari les.
9.20 Morguntónleikar. a. „La Lyra”, svita fyrir
strengjasveit eftir Georg Philipp Telemann.
Slóvakíska kammersveitin leikur; Bohdan
Warchal stj. b. „Gjör dyrnar breiðar",
aðventukantata eftir Sebastian KnQpfer.
Rotraud Pax, Elfriede Vorbrig, Ortrun
Wenkel, Johannes .Höfnin og Jakob Stampfli
syngja ásamt drengjakórnum í Eppendorf og
Noröur-þýzka söngflokknum. Archiv-hljóm-
sveitin í Hamborg leikur. Stjórnandi; Gott-
fried Wolters.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Ljósaskipti. Tónlistarþáttur i umsjá
Guðmundar Jónssonar píanóleikara (endurt.
frá morgninum áður).
11.00 Messa í Laugarneskirkju. Prestur: Séra
Jón Dalbú Hróbjartsson. Organleikari: Gústaf
Jóhannesson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.35 Sex bænir Jónasar. Dagskrárþáttur gerð
ur af séra Kára Valssyni í Hrisey. Höfundur-
inn flytur inngangsorð, en fiytjendur efnis eru
Karl Guömundsson og Guörún Ámunda
dóttir.
14.10 Óperukynning: „Kátu konurnar frá
Windsor” eftir Otto Nicolai. Edith Mathis,
Helen Donath, Hanna Schwarz, Kurt Moll,
Peter Schreier, Bernd Wcikl o.fl. syngja meö
kór og hljómsveit Ríkisóperunnar í Berlin.
Stjórnandi: Bernhard Klee. Guðmundur Jóns-
son kynnir.
15.20 Hvítá í Borgarfirði; siðari þáttur. Um-
sjónarmaöur: Tómas Einarsson kennari. Hann
talar við Kristján Fjeldsted i Ferjukoti,
Magnús Eggertsson fyrrv. yfirlögregluþjón.
Lesefni eftir Jósef Björnsson, Kristleif Þor-
steinsson, Steingrím Thorsteinsson og úr
þjóðsögum Jóns Ámasonar. Lesari með
umsjónarmanni: Klemenz Jónsson.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.25 Á bókamarkaðinum. læstur úr nýjum
bókum. Umsjónarmaður: Andrés Björnsson.
Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
17.45 Létt tónlist. Skemmtihljómsveit austur
riska útvarpsins leikur; Karl Krautgartner stj.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Sören Kirkegaard og heimspekin.
Kristján Ámason menntaskólakennari flytur
fyrra erindi sitt.
20.00 Kammertónlist. Clifford Curzon og fil-
harmoniukvartettinn í Vinarborg leika. Píanó-
kvintett i A«lúrop. 81 eftir Antonín Dvorák.
20.35 „. . . og aðrar vísur” Friðrik Guðni
Þorleifsson les frumort Ijóð, og sungin verða
lög við nokkur þeirra.
21.00 Söguþáttur. Umsjónarmenn: Broddi
Broddason og Gísli Ágúst Gunnlaugsson t
þættinum verður m.a. rætt við Heimi
Þorleifsson um sögu Reykjavikurskóla.
21.25 Sinfóniuhljómsveit íslands leikur i út-
varpssal. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. a.
Sinfónía nr. 95 c-moll eftir Joseph Haydn. b.
Moment musicale op. 94 nr. 2 eftir Franz
Schubert. c. Vals og skerzó úr svítu nr. 3 eftir
Pjotr Tsjaikovský.
22.05 Kvöldsagan: Saga Snæbjarnar i HergiLs-
ey rituð af honum sjálfum. Ágúst Vigfússon
les (17).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.50 Við uppsprcttur sigildrar tónlistar.
Umsjónarmaður: Ketill Ingólfsson.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Mánudagur
4. desember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi: Valdimar örnólfsson leikfimi-
kennari og Magnús Pétursson pianóleikari
(alla virka daga vikunnar).
7.20 Bæn: Séra Jónas Gislason dósent flytur
(a.v.d.v.).
7.25 Morgunpósturinn. Umsjónarmenn: Páll
Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson. (8.00
Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. landsmálablaö
anna (útdr.). Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög að eigin
vali. 9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Þórir S.
Guöbergsson byrjar lestur á nýrri sögu sinni,
sem heitir „Lárus, Lilja, ég og þú".
9.20 Leikfimi. 9.30. Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Landbúnaðarmál: Jónas Jónsson ræðir við
Stefán Aðalsteinsson um ullar- og gærueigin-
leika islenzka fjárins.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir ýmis lög; frh.
11.00 Áður fyrr á árunum: Ágústa Bjömsdóttir
sér um þáttinn.
11.35 Morguntónleikan James Last og hljóm-
sveit hans leika lögeftir Robert Stolz.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
im!
Laugardagur
2. desember
16.30 Fjölgun i fjölskyldunni. Annar þáttur lýsir
einkum fæðingarundirbúningi og sjálfri fæð-
ingunni. Þýðandi og þulur Arnar Hauksson
læknir.
16.50 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson.
18.30 Við eigum von á barni. Finnsk mynd i
þremur þáttum. Móðir Maritar litlu fer á fæð
ingardeild og Marit er viss um að hún muni
eignast bróöur. Þýðandi Trausti Júliusson.
(Nordvision — Finnska sjónvarpið).
18.50 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og vcður.
20.25 Auglýsingar ogdagskrá.
20.30 Gengið á vit Wodehouse. Lokaþáttur.
Siðareglur ættarínnar. Þýðandi Jón Thor Har
aldsson.
21.00 Myndgátan. Getraunaleikur með þátt-
töku starfsmanna dagblaðanna í Reykjavik.
Stjórnendur Ásta R. Jóhannesdóttir og Þor-
geir Ástvaldsson. Umsjónarmaður Egill Eð-
varðsson.
21.55 Frá javshátiðinni I Bcrlín 1978. Fela
Anikulapo Kuti frá Nígeríu og hljómsveit
i hans Africa 70 leika. (Evrovision — Þýska
sjónvarpið).
22.25 Veitingastofa Alice (Alice’s Restauranl).
Bandarísk bíómynd frá árinu 1969. Leikstjóri
Arthur Penn. Aðalhlutverk Arlo Guthrie, Pat
Quinn og James Broderick. Arlo Guthrie og
vinir hans eru hippar og lýsir myndin lifsmáta
þeirra. hugmyndum og vandamálum. Þýðandi
Ellert Sigurbjörnsson.
00.20 Dagskrárlok.
Sunnudagur
3. desember
16.00 Húsið á sléttunni. Bandariskur mynda
flokkur. Annar þáttur. S\eitastelpur. Þýðandi
óskar Ingimarsson.
17.00 Á óvissum tfmum. Fræðslumyndaflokkur i
þrettán þáttum, gerður í samvinnu breska
sjónvarpsins og hagfræðingsins Johns Kenn
eths Galbraiths. Annar þáttur. Siðir og sið-
ferði auðugra athafnamanna. Þýðandi Gylfi Þ.
Gíslason.
18.00 Stundin okkar. Kynnir Sigríður Ragna
Siguröardóttir. Stjórn upptöku Tage Ammen-
drup.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Kór Langholtskirkju. Kórinn syngur lög
eftir Jón Ásgeirsson og Þorkel Sigurbjömsson.
Stjórnandi Jón Stcfánsson. Stjórn upptöku
RúnarGunnarsson.
20.50 Drangarnir í Suður-Hafinu. Fyrir norðan
Auckland á Nýja-Sjálandi rísa háir kletta-
drangar úr sjó. Fyrir nokkru klitu fjallgöngu-
garpurinn Sir Edmund Hillary og félagar hans
hæsta drangann og var þessi mynd tekin í leið
angrinum. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald.
21.30 Ég, Kládlus. Fimmti þáttur. Efni fjórða
þáttar: Hcrir Rómverja biða mikinn ósigur i
Germaniu. Ágústus sendir Tíberíus með liös-
auka. Keisaranum þykir Tíberíusaðgerðarlitill
á bökkum Rinar. Hann ætlar að senda
Póstúmus til að hvetja hann til dáða, en Livia
telur hann á að senda heldur Germanikus,
bróður Kládiusar. Livia notfærir sérástarsam-
band Livillu og Póstúmusar til að koma
honum i ónáð hjá Ágústusi scm sendir hann i
útiegö. Liviu tekst að lokum aö finna Kládiusi
konu sem reynist tröll að vexti. Þýðandi Dóra
Hafstcinsdóttir.
22.20 Aö kvöldi dags. Séra Magnús Guðjónsson
biskupsritari flytur hugvekju.
22.30 Dagskrárlok.