Dagblaðið - 08.12.1978, Síða 1

Dagblaðið - 08.12.1978, Síða 1
4. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978 — 275. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022. Sjúklingarnir eiga að fá fimmfalt meira rými þar en á spítalanum — 8 þúsund fermetra hús á að rýma aðeins 60 sjúklinga og fær hver 120 fermetra Læknaráð Landspítalans unirekkibruðli við nýbyggingu geðdeildarinn- ar, sem byggð erfyrir nýbyggingafé k spítalans: Læknaráð Landspitalans og yfir- stjórn Kleppsspítalans eru ekki á eitt sátt með nýtingu hinnar nýbyggðu geðdeildar á Landspitalalóðinni og stendur þar nú ein deild tilbúin en ó- notuð enn. Önnur deild er að verða fullbúin. Læknar Landspítalans hafa siðuren svo á móti að geðdeild sé rekin í tengslum við spítalann. En þar sem nýbyggingarfé Landspítalans hefur verið notað til byggingarinnar með þeim afleiðingum að aðkallandi endur- bætur innan spitalans hafa ekki náð fram að ganga, telur ráðið sig eiga að hafa ráðstöfunarrétt yfir nýtingu húss- ins. Þar við bætist að í upphafi var gert ráð fyrir ákveðinni samnýtingu. Þannig eiga t.d. rannsóknastofur og þess háttar í Landspítalanum að nýt- ast geðdeildinni, en til stóð að Land- spitalinn nýtti einnig hluta nýbygging- arinnar. Eftir þvi sem blaðið kemst næst, stendur spítalanum það enn til boða, en nú á þann hátt að læknar telja það gagnslaust. Þá bendir læknaráð á að aldrei hafi verið gerð grein fyrir flokkun geðsjúklinga á deildinni. Nú hin síðari ár hafi t.d. verið gert stórátak varðandi drykkjusjúka, sem hingað til hafa verið plássfrekur hópur á Kleppi. Einnig vefengja lækna fullyröingu yfirlæknis Kleppsspitalans þess efnis að 30 til 50 prósent allra íslendinga þurfi einhvern tímann á ævinni að leita geðlæknis. Telja þeir það stórlega ýkta tölu. Loks er þeim svo ekki kunnugt um að nokkurs staðar í heiminum sé geðsjúkum ætlað jafn mikið sjúkra- rými, eða 120 fermetra á mann. Til samanburðar má geta að meðalrými undir sjúklinga á Landspítalanum er 25 fermetrar og eru þá skurðstofur meðtaldar og annað það sem ekki er áformað að spítalinn og deildin noti saman. -G.S. Séð inn i ritaraherbergi, sem stendur ónotað. Ritvél er komin á borðið, hvað þá annað. DB-mynd Sv. Þorm. r r Stelpurnar i Alþýðubankanum með magana stóru. Þeir minnka þó væntanlega á út- mánuðum. Hér má sjá Soffiu Antonsdóttur, Jónu Vernharðsdóttur, Ragnheiði Egg- ertsdóttur, Ástu Marteinsdóttur og Ragnheiði Þórólfsdóttur. Ein þeirra stallsystra átti barn i september og önnur vildi ekki vera með á myndinni. DP-mynd Ragnar Th. FRJOSEMISGYÐJUR ALÞYÐU- BANKANS „Ætli það sé ekki fæðið hér í bankan- um og kaffið sem er svona örvandi,” sagði Ragnheiður Þórólfsdóttir starfs- maður Alþýðubankans. Og sannarlega er-eitthvað örvandi í kringum stelpurnar í Alþýðubankanum, því sex þeirra eiga nú von á barni, flestar I janúar og febrú- ar. Og ein stallsystir þeirra varð léttari í september sl. Frjósemin í Alþýðubankanum hafði ekki verið meiri en gengur og gerist fyrr en þessi bylgja skall yfir. Sumar stúlkn- anna töldu að vinsamlegur andi á síð- ustu árshátíð bankans ætti töluverðan þátt i þvi hvernig komið væri og aðrar kenna um ákveðnum stólum bankans sem byggju yfir þessum gjörningum. Alls eru konurnar 18 sem vinna í Alþýðubankanum og samkvæmt út- reikningum sterkara kynsins í bankan- um eru þessar sjö konur 37% allra þeirra kvenna er vinna í bankanum. Þeir hafa og verið með alls kyns útreikninga og fundið út, að ef hlutfallslega jafn- margar konur í starfsliði Landsbankans væru ófrískar, þá væru þær á milli 160 og 170. Alls munu um 500 konur vinna í Landsbankanum. Aðeins ein hinna þunguðu kvenna í Alþýðubankanum hyggst hætta störfum vegna barnsfæðingarinnar. Hinar koma aftur eftir þriggja mánaða leyfi. En ljóst er að þjálfa verður annað starfsfólk bankans til þess að gripa inn í störf stúlknanna á meðan þær bregða sér frá og fjölga Íslendingum. - JH Tryggingastofnunin: TOPPKRATI — EÐA — sjá baksíðu FélagiJesús: „Góð bók og skemmtileg” — segir Þórarinn Eldjárn „Mér finnst þetta góð bók og skemmtileg,” sagði Þórarinn Edljárn I viðtali við DB í morgun, er fréttamaður átti tal við hann í Stokkhólmi i morgun. Hann kvað val á bókinni til þýðingar hafa þróazt með sér og forlaginu Máli og menningu. Ég vil benda á, að á íslandi kom út bók 1930 sem túlkar mjög Iík pólitísk viðhorf og þessi bók Wernström gerir. Það var bókin: Ævisaga Jesús frá Nazaret eftir Gunnar Benediktsson, meira að segja ótrúlega lik á köflum," sagði Þóarinn. Þórarinn kvaðst ekki hafa fylgzt með umræðum um bókina og ekki ætla sér að taka þátt í deilum um hana. „Ég hefi ekkert sérstakt um hana að segja annað en að ég snaraði henni á íslenzku," sagði Þórarinn. „Höfundur hennar er mjög mikils metinn á Norðurlöndum og reyndar viðar,” bætti Þórarinn við. „Er það verjandi, að íslenzkir ráða- menn taki þessa bók fram yfir aðrar barnabækúr til þess aðselja hana niður- greidda af almannafé? Ég hefi þann kunnugleika af höfundi hennar, að ég hlýt að fordæma það sjónarmið,” sagði Friðrik Sophusson alþingismaður í við- tali við DB. Hann var einn þeirra þingmanna. sem tóku til máls á Alþingi í gær,.þegar Ragnhildur Helgadóttir alþm. vakti umræður utan dagskrár um bókina „Félaga Jesús” eftir sænska höfundinn Sven Wernström. Norræni þýðingar- sjóðurinn studdi útgáfuna með greiðslu fyrir þýðingu hennar. „Sven Wernström hefur lýst því yfir. að hann telji alveg vonlaust að innræta fullorðnu fólki boðskap kommúnismans. Það sé því nauðsynlegt til árangurs að byrja á börnum allt frá þriggja ára aldri,”sagði Friðrik. „Þetta kom fram i miklum um ræðum, í útvarpsráði, sem urðu um söguna Max bragðaref sem lesin var i morgunstund barnanna fyrir nokkrum árum,” sagði Friðrik, „en sagan varð fyrir mikilli gagnrýni þá.” -BS- 20 Dr. Hook plötur í Lukkupotti Dagblads- ins og Fálkans — sjá POPP á bls. 40

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.