Dagblaðið - 08.12.1978, Page 6
6
DEMANTUR
Demantur í skartgrip er
draumur konunnar.
Úr og skartgripir
Jón og Úskar
Laugavegi 70,
sími 24910.
r
NYJAR
V'i
f-W
BÆKUR
ÍTTenningar/tofnun
Bondoríkjonno
fle/h<X)i 16, Reykjouik
Alternatives to Growth — I;
a Sea di for Sustainable Features Ed. by Dennis L. Meadows Cambr..
Mass., Ballinger, 1977,401 s.
Safn ritgerða helztu vistfræðinga, hagfræðinga, heimspekinga sem og
stjórnvitringa um vöxt og viðgang þjóðfélagsins.
\
Katzenstein, PeterJ. Ed.:
Between Power and Plenty;
Foreign Economic Policies of Advanccd Industrial States. Madison,
Univ. of Wisconsin, 1978. 344 s.
Bók þessi fjallar um það, hversu mikil áhrif innanríkismál þjóða geta
haft á stefnumörkun innan hins alþjóðlega hagkerfis.
Rosenberg, Harofd: Saul Steinberg.
N.Y., Knopf, 1978,256 s.
Rosenberg rekur æviferil Saul Steinbergs; ræðir stil hans og tækni.
Bókin er prýdd fjölda teiknin^a listamannsins.
Haskins, James with Kathleen Benson: Scott
Joplin;
N.Y., Doubleday, 1978. 248 s.
Ævisaga Scott Joplins höfundar „Ragtime” tónlistarinnar.
Everson, William K.:
American Silent Film.
N.Y., Oxford Univ. Pr„ 1978. 387 s.
Saga þöglu kvikmyndanna allt frá 1877.
Sontag Susan: lllness as Metaphor;
N.Y., Farrar, 1978. 88 s.
Höfundur ræðir um það, hvaða augum þjóðfélagið lítur á sjúkdóma
og dauða. Tekin eru fjöldi dæma um t.d. krabbamein og berkla allt frá
miðöldum til vorra daga.
Oates, Joyce Carol:
Women whose Lives are food, Men whose Lives
are Money;
Poems. Illus. by Elizabeth Hansell, Baton Rouge, Lousiana State
Univ. Press. 1978. 80 s.
Ljóð Oates fjalla um mannlifið og margbreytileika þess.
Hartíng, Emilie C:
A Literary Tour Guide to the Un 'rted States:
Northeast. N.Y.. Morrow, 1978. 218 s.
Kynnt eru heimili og söfn merkra bandarískra rit-
höfunda.
Kynnleru heimili ogsöfn merkra bandarískra rithöfunda.
Nixon, Richard Miihous:
The Memoirs of Richard Nixon.
N.Y., Grosset, 1978. 1120 s.
Sjálfsævisaga Nixon fyrrum Bandarikjaforseta.
Prize Stories: 1978;
the O. Henry Awards. Ed. and with an Introd. by William Abraham.
N.Y., Doubleday, I978. 308 s.
Smásögur, sem fengið hafa O'Henry verðlaunin. Höfundar eru m.a.
Joyce Carol Oates. Mark Schorer, Alice Adams og Woody Allen, sem
fékk fyrstu verðlaun.
Gjöríð svo vel að hafa samband við bóka-
verðina, ef þér viljið fá eina eða fleiríþess-
ara bóka lánaða.
Opið alla virka daga frá kl. 13.00—19.00.
AMERÍSKA BÓKASAFN/Ð
DAGBLAÐIÐ.,FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978.
HEIMILISLÆKNIR SVARAR
Hvernig má laga út-
standandi eyru?
Eyrnalangur spyr:
Frá því að ég var lítill drengur, ég er
núna 25 ára gamall, hafa útstandandi
eyru verið mér til mikils baga. Hvaðer
hægt að gera við slík útstandandi
eyru? Mér finnst einhvern veginn
ómögulegt að tala um það við minn
eigin heimilislækni. Ég held helzt að
honum finnist það hálfgert „pjatt” að
láta gera eitthvað við því.
Er hægt að láta laga slíkt? Hvað
kostar það? Tekur kannske sjúkrasam-
lagið einhvern þátt í slikum að-
gerðum?
Svar:
Slíkt er fremur auðvelt að lagfæra
með þvi að fjarlægja hluta af eyrna-
brjóskinu. Erfitt er að meta hvað er
„pjatt” í þessum efnum, útlitið er þar
ekkl einrátt, mun mikilvægari eru við-
brögð einstaklingsins við slikum
lýtum.
Finnist þér þetta þér til verulegs
ama áttu tvimælalaust rétt á slikri að-
gerð og er kostnaður greiddur af
sjúkrasamlagi. Ræddu málið betur við
heimilislækninn, hann verður tilleið-
anlegur að vísa þér til sérfræðings í
skapnaðarlækningum.
Claudicatio Intermittens:
Orsökin er sjúk-
dómur í æðunum
K.K.spyr:
Hvernig lýsir sjúkdómurinn
Claudicatio Intermittens sér, einkum á
byrjunarstigi? Mér skilst að það sé
blóðsjúkdómur.
Svar:
Þetta er latneskt nafn sjúkdómsein-
kennis, ekki sjúkdóms. Orsökin er
sjúkdómur í æðum, ekki í innihaldi
þeirra. Þrengsli í slagæðum ganglima,
venjulega vegna æðakölkunar, fituút-
fellinga í æðaveggjum, hindra að nóg
súrefni berist vöðvunum, sérstaklega
við áreynslu. Claudicatio Intermittens
kallast verkur sá er menn með æða-
þrengsli í ganglimum fá við gang.
Hann byrjar venjulega í kálfum,
sjaldnar i lærum eða fótum.
Oftast er unt þreytuverk að ræða.
sem eykst með göngulengd og hverfur
fljótlega eftir að stanzað er. Verkur
sem ekki hverfur eftir tíu minútna
hvíld er sennilega ekki af þessum upp-
runa. Lauslega má meta ástand æð-
anna eftir því hversu langt þarf að
ganga til að verkur finnist, t.d. eru æð-
ar orðnar býsna þröngar ef tíu til tutt-
ugu mínútna gangur veldur sárum
verk. Ekki var spurt um meðferð, en
nefna má að reykingar gera hér meira
ógagn en við flesta aðra sjúkdóma,
reykbindindi því fyrsta boðorð. Hæfi-
leg áreynsla stuðlar að nýmyndun
æða, þvi er æskilegt að ganga allt að
því að verkur finnst, fimm til tíu sinn-
um á dag, með stuttum hvíldum á
milli.
NEFIÐ STIFLAÐ
G.H.B. skrifar:
„í mörg ár hef ég liðið af stifluðu
nefi. Það á ekkert skylt við kvef, sem
ég fæ svo sem ekki oftar en hver
annar. En ég hef stundum á til
finningunni að ég nái varla andanum í
LEIÐRETTING
1 næstsiðasta þætti féll niður orð í
einu svarinu, sem gerbrcvtti merking-
unni. Setningin átti að h óða svo: „Of
þungu fólki nægir oft að grennast
verulega til að of hár þrýstingur verði
eðlilegur á nýjan leik.” Að sjálfsögðu
er megrun ekki einhlít i þessu sam
bandi og er velvirðingar beðizt á þess-
um mistökum. Reyndar einnig þar
sem minnzt var á bólgur í blöðruháls-
kirtli, þær nefnast „prostatitis” ekki
„prostatis”.
gegnum nefnið, á bágt með að anda
gegnum munninn, vegna þess að þá
verð ég svo þurr í kokinu.
Hvað er hægt að gera við þessum
leiða kvilla.
Svan
Þetta hljómar líkt og um ofnæmis-
kvilla gæti verið að ræða. Einnig er
hugsanlegt að nefið þitt sé skakkt,
annaðhvort af völdum slyss eða frá
fæðingu, en þá truflast loftrennsli um
nasir. Alla vega er engin ástæða til að
láta þetta viðgangast lengur án nánari
athugunar, littu til heimilislæknisins
þíns, eða til háls-, nef- og eyrna-
læknis. Ekki er víst að auðveld lausn á
vandanum finnist, en skýringu ætti þó
að vera unntaðfinna.
Heyrnarskertu bömin, sem stundað geta almennt nám:
Heymartækin
verða jólagjöfin
Nú eru heyrnartækin, sem ætluð
eru heyrnarskertum börnum með góð-
an orðaforða sem ekki eiga heima i
Heyrnleysingjaskólanum, væntanleg
til landsins. Standa vonir til að börnin
fái tækin í tæka tíð til að geta hafið
nám sitt eftir áramót með aðstoð
hinna nýju tækja, að sögn Birgis Áss
Guðmundssonar, hjá heyrnardeild
Heilsuvemdarstöðvarinnar.
Svo sem DB hefur rakið undanfarið
hefur „kerfið” velkt lausn þessa máls í
á annað ár og var staðan í haust sú að
foreldrum barna sem not höfðu fyrir
slík tæki var gert að greiða á áttunda
hundrað þúsunda króna fyrir þau.
Tollayfirvöld höfðu þá bætzt í lið með
öðrum yfirvöldum og hátollað tækin.
Er Magnús H. Magnússon, trygg-
ingaráðherra, frétti af gangi þessa
máls hét hann þá þegar að bæta þar
um og vinna jafnframt að framtíðar-
skipan þessara mála til að slikt „slys”
eins og hann orðaði það, kæmi ekki
fyrir aftur. Við það stóð hann, en þau ekki væntanleg fyrr en um jóla-
vegna afgreiðslufrests á tækjunum eru leytið. G.S.
Vitneskjan um að Gunnar Þór ætti i ertiðleikum með að stunda aimennt nám
vegna skorts á réttum heyrnartækjum varð upphaf könnunar blaðsins á þessu
máli er leiddi til þess að tryggingaráðherra brá drengilega við og kom þessum
málum á hreint. DB-mynd: R.Th.