Dagblaðið - 13.01.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1979.
5
Teikningamar liggja enn á borðinu
Vantar viðbótarf járveitingu — enginn veit hve háa. Á meðan er sundlaugin ónotuð í kassanum!
„Tillöguteikningar liggja fyrir að
því er varðar tillögur frá okkar hendi
í málinu, en ekki er búið að fá
samþykki ráðuneytisins. Það ræður
öllu að fá teikningarnar samþykktar,
því fyrr en það liggur fyrir getum við
ekki hafizt handa með framkvæmdir,”
sagði Georg Lúðviksson fram-
kvæmdastjóri spítalanna í samtali við
DB.
Tillöguteikningarnar sem hann
ræddi um eru að fyrirhugaðri sund-
laugarbyggingu fyrir Kópavogshæli.
— Ekki vildi Georg Lúðvíksson nefna
neina tölu í sambandi við byggingar-
framkvæmdirnar.Hann sagði að á fjár-
lögum yfirstandandi árs hefðu verið
veittar 150 milljónir til Styrktarsjóðs
vangefinna. Ætti eftir að ákveða
hvernig þessum fjármunum verður
skipt niður á verkefni.
„Það er von min, og um það ætla ég
að tala við ráðherra, að fé til sundlaug-
arbyggingarinnar verði aukið eða
það fáist viðbótarfjárveiting til
byggingarframkvæmdanna.
Það er erfitt að nefna nokkrar tölur í
þessu sambandi. Við gerum tillögu um
ákveðið hús fyrir þessa starfsemi, við
erum með í huga aö byggja varanlegra
hús heldur en rætt var um I fyrstu og
þá úr einingum frá Kleppsspítala.”
Tillaga að öðru húsi fyrir Kópa-
vogshæli liggur einnig „á borðinu” hjá
skrifstofu ríkisspitalanna, en það á að
verða fyrir alla iðjustarfsemi sjúkling-
anna. Sú tillaga á að leggjast fyrír
ráðherra samtímis sundlaugar-
byggingunni.
„Þegar um er að ræða að fá fjár-
veitingu vill það oft taka tima og fram-
kvæmdir eru ekki mögulegar fyrr en .
málin verða samþykkt,” sagði Georg
Lúðviksson.
Þykir rétt að benda enn einu sinni á
að fráfarandi félagsmálaráðherra,
Gunnar Thoroddsen, var búinn að
veita samþykki sitt til fjárveitingar til
sundlaugarhúss af einfaldri gérð áður
en hann lét af embætti. Varla fer
núverandi ráðherra að ómerkja orð
fyrirrennara síns.
Sundlaug Kópavogshælis enn í pakkhúsinu:
UMGJÖRÐIN SKIPTIR VISTMENN
LITLU MAU
Allir eru á sama máli um að
nauðsynlegt sé fyrir sem flesta aðila,
bæði fatlaða og heilbrigða, að hafa
aðgang að sundlaug. — Samt er það
staðreynd að sundlaugar vantar víða,
sér í lagi fyrir fatlaða. Má þar t.d.
nefna sundlaug við Grensásdeild Borg-
arspítala, sem nú er reyndar verið að
safna fyrir og sundlaug við Land-
spítalann. Grunnur hennar stóð opinn
I mörg ár, líklega ein tíu, en hefur nú
loks verið mokað ofan í hann á ný. Þá
má nefna Kópavogshæli sem er sund-
laugarlaust.
Hins vegar á Kópavogshælið
sundlaug. Hún er bara geymd I
pakkhúsinu hjá Gunnari Ásgeirssyni í
pappakössum og því til lítils gagns!
Sundlaugin var keypt fyrir
söfnunarfé sem almenningur og fyrir-
tæki gáfu í fyrravetur er diskótek-
arinn John Lewis fór hálfgerðum ham-
förum í söfnunarleiðangri sínum.
Safnaðist hátt á aðra milljón króna og
var sundlaugin keypt i vor. Ekki var
hægt að afhenda laugina, því ekki var
talið ráðlegt af stjórn ríkisspitalanna
að koma lauginni fyrir utan húss.
Ráðgert var að byggja hús yfir
laugina, en þá vantaði fjárveitingu
fyrir húsinu.
Söfnunamefndin fór á fund félags-
málaráöherra, sem þá var Gunnar
Thoroddsen, og fékk hjá honum
munnlegt vilyrði fyrir fjárveitingu til
einfaldrar húsagerðar, að vísu ekki
nema upp á 5—6 milljónir. Siðan
hefur sú upphæð rýrnað til muna, eða
um allt að þvi eina og hálfa milljón!
Á miðju sumri var haldið til fundar
við Georg Lúðvtksson framkvæmda-
stjóra ríkisspítalanna. Þá lá fyrir
teikning að sundlaugarbyggingu, í
tengslum við aðrar byggingar sem
fyrirhugað er að reisa við Kópavogs-
hæli. — Var nú beðið átekta og
vonazt til að framkvæmdir hæfust.
Ekki fór það þó á þann veg og nú i
janúar er staðan sú, að breytt hefur
verið um húsbyggingaráformin. Hús-
byggingin á að verða „af varanlegri
gerð” en i upphafi var ákveðið.
Teikningar liggja fyrir en hafa enn
ekki verið lagðar fyrir ráðherrann, sem
nú er Magnús Magnússon! Varla duga
6 milljónirnar frá þvi í sumar langt til
þess að reisa varanlega sundlaugar-
Gtssur Vilhjilmsson hji Gunnarí Ásgeirssyni hf. sýnir DB bvnr snndbugin gMi hggnr I piypikoann I
pakkhhsinu hji Gunnarí Ásgeirssyni. Þegar sundlaugin var keypt I vor fyrir adthnnarféA kostaði hún 1,2
miiljónir. Ef vid hefðum ekki rokið til þi og keypt laugina yrðum við að greiða fyrír hana um 2.2 miUJðnir
sem hún kostar i dag! DB-mynd: Bjarnleifnr.
byggingu fyrir Kópavogshæli!
Þannig tekur eltingaleikurinn við
kerfið lengri tima en venjulegt
dauðlegt fólk getur látið sér til hugar
koma. Auðvitað er það ekki af ein-
tómri mannvonzku að sundlaugin er
ekki komin í gagnið. Varla getur
heldur verið beinlinis fjárskorti um að
kenna. Fé til svona framkvæmda er
veitt úr Styrktarsjóði vangefinna, sem
í rennur svokallað tappagjald.
Sennilega er þarna um að kenna
skriffinnsku og þvi, að hér á landi má
aldrei ráðast í neinar framkvæmdir
nema þær séu svo vandaðar og dýrar
að kostnaðurinn fari fram úr öllu hófi.
Sýnist leikmönnum að hægt hefði
verið aö ráðast þegar á sl. vori, þegar
búið var að kaupa sundlaugina, í að
grafa grunn og koma henni fyrir.
Hefði ekki siðan mátt reisa einfalt ■
skýli yfir laugina fyrst hún mátti ekki
vera utandyra? Þá hefðu vistmenn
Kópavogshælis getað stytt sér stundir
í góða veðrinu á sl. sumri við að synda
eða svamla i lauginni. Sennilega
stendur þeim hjartanlega á sama
hvernig umgjörðin um sundlaugina
verður! Þeir vilja aðeins fá sundlaug
'meðvatni. •A.Bj.
★
★
★
Dagblaðsins og Vikunnar 1979
að Hótel Sögu, Súlnasal
fimmtudaginn 18. janúar kl. 19.00—01.00.
Miðosafan Hefst f anddjfH Snlnasalar » dag
fcl I4.00-I7.00 * BorOapantanlr hfa jiflrWoni
'iama tíma * Verð adgöngumlöa fcr.ll.ooo.-
-------------- MATSVEII
* Jf ★
Veitt verða verðlaun
til sigurvegaranna í
Vinsældavali
Dagblaðsins og Vikunnar 1978.
Undirleik annast Stjörnuhljómsveitin.
Að verðlaunaafhendingu
lokinni verður dansað til kl. 01.00.
Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar
leikur fyrir dansi.
MENU
í Súlnasal
Escalope de boeuf Au
Restaurant Brébant
kennt viö veitingahúsið Brébant í
Montmartre, sem var mikið sótt af
síðbúnum listamönnum, enda
þekkt fyrir sinn sérstaka næturmatseöil
Proftteroles Othelío
kennt við aöalpersónu úr leikriti
Shakespeares
BORDHALD HEFST
STVNDVÍSLEGA KLUKKAN 20.00
MATSVEINAR:
Sigurvin Gunnarsson, Francois Fons
YFIRÞJÓNN:
Hörður Haraldsson
VEITINGASTJÓRI:
Halldór Malmberg
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
DA NSHLJÓMS VEITAR:
Ragnar Bjarnason
★
LJÓSAMEISTARI:
Glsli Sveinn Loftsson
HLJÓDSTJÓRI:
Jónas R. Jónsson,
HÍjómplötuútgáfan hf.
SKREYTINGAR Á SAL:
Aad Groeneweg, Alaska í Breiðholti
VBRDLA UNAAFHENDINGU
OO KYNNINGAR ANNAST
Ásgeir Tómasson, Helgi Pétursson
og Ömar Valdimarsson