Dagblaðið - 13.01.1979, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 13.01.1979, Blaðsíða 24
Tryggingastofnun ríkisins: Eggert G. fékk forstjórastöðuna —Ólaf ur Jóhannesson greip inn í og „sneri” atkvæði f ramsóknarf ulHrúans á síðustu stundu „Af mörgum ágætismönnum þá valdi ég Eggert G. Þorsteinsson sagði Magnús H. Magússon heil- brigðis- og tryggingaráðherra i viðtali við DB í gærkvöldi. Hann hafði þá gert upp hug sinn og afráðið að veita Eggert hina eftirsóttu forstjórastöðu í Tryggingastofnun ríkisins. „Ég tel Eggert hafa hæfileika til að gegna þessari stöðu, en ég undirstrika að Davíð Á Gunnarsson er mjög hæfur maður á sínum stað,” sagði Magnús, „og um marga prýðismenn var að velja.” Ráðherra tók ákvörðun sína eftir að fyrir lágu úrslit í tryggingaráði. Af fimm nefndarmönnum var Davíð lengstum talinn hafa stuðning meiri- hlutans þar til Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra greip inn í. Ólafur kom því til leiðar, að sögn kunnugra, að fulltrúi Framsóknar, Þóra Þorleifs- dóttir, greiddi Eggerti atkvæði sitt í stað Davíðs, sem hún var talin styðja áður. Fyrir Ólafi mun vaka að afla sér vináttu Eggerts, sem hefur nokkur áhrif í flokksstjórn Alþýðuflokksins. Eftir þetta inngrip forsætisráðherra fékk Davíð tvö atkvæði i ráðinu, Eggert tvö og Magnús Kjartansson eitt. Auk þess höfðu tveir, sem ekki nefndu Davíð, sem fyrsta kost, nefnt hann til vara sem næstbesta kost, og einn nefnt Pétur H. Blöndal til vara. Davið mun hafa fengið atkvæði sjálf- stæðismannanna Guðmundar H. Garðarssonar og Gunnars Möller. Eggert mun hafa fengið atkvæði al- þýðuflokksmannsins Braga Sigurjóns- sonar og Þóru, Magnús Kjartansson mun hafa fengið atkvæði alþýðu- bandalagsmannsins Stefáns Jóns- sonar. Þá er talið að Stefán og Dóra hafi nefnt Davíð til vara. Þrir af fimm nefndarmönnum nýttu þannig möguleika á að nefna mann til vara sem næstbezta kost. „Ef ráðherra hefði metið úrslitin samkvæmt reikningsformúlu hefði Magnús Kjart- ansson verið út úr myndinni með aðeins eitt atkvæði og miklar líkur á, að stuðningsmaður Magnúsar hefði nefnt Davið til vara. Samkvæmt þessu hafði Davíð vinninginn í ráðinu,” sagði Guðmundur H. Garðarsson einn nefndarmanna, í viðtali við DB. At- kvæðagreiðslan var leynileg, en Guð- mundur sagði að hann gæti að svo stöddu skýrt frá sinni afstöðu. „Það er rétt, að ég studdi Davíð,” sagði hann. „Um marga hæfa umsækjendur var að ræða. Stofnunin er orðin þess eðlis að umfangi að húri gerir mjög miklar kröfur til forstjóra hvað varðar þekkingu og sérstaka menntun á sviði heilbrigðis- og tryggingamála. Eins og umsóknir lágu fyrir og á grundvelli könnunar á umsækjendum tók ég þá ákvörðun að mæla með Davíð Á. Gunnarssyni aðstoðarframkvæmda- stjóra og til vara Pétri H. Blöndal tryggingafræðingi.” í stað þess að standa i höm undan veðrinu hafa klárarnir tekið á sprett á veginum niður til Þorlákshafnar. Það er þó allavega til þess aðhitasér. DB-mynd Ragnar Th. Sparnaðaráætlun ríkisspítalanna: Ráðizt á kjör hinna lægst launuðu með leyniplaggi — segir Aðalheiður Bjarnf reðsdóttir, formaður Sóknar „Hér ef um að ræða breytingar á vinnutilhögun, sem á að gera eftir ein- hverri sparnaðaráætlun. Þessi áætlun getur að okkar mati ekki falið i sér neinn sparnað nema það þýði kaup- skerðingu hjá okkar fólki,” sagði Aðal- heiður Bjarnfreðsdóttir, formaður Starfsstúlknafélagsins Sóknar er DB spurði um auglýsingu frá Sókn sem birtist í DB. 1 auglýsingunni segir, að Skúli Halldórsson, fyrrum starfs- mannastjóri rikisspitalanna, hafi ekk- ert talað við Sókn um þær breytingar „sem verið er að læða inn í éinstaka deildir ríkisspítalanna, enda um tilraun til kjaraskerðingar að ræða.” „Við álitum að eigi að spara á einhvern annan hátt en að ráðast á kjör lægstlaunaða fólksins,” sagði Aðalheiður og bætti við, „Þessar til- lögur bárust okkur í hendur án þess að við ættum að vita um þær. Um þessar breytingar hefur ekkert verið rætt við félagið jafnvel þótt við höfum nýlokið við að skrifa undir samninga við þessa aðila. Þar var ekkert minnzt á að þetta stæði til. Breytingin felur það m.a. i sér að nú á að byrja vinnu kl. 8.00 á morgnana í stað kl. 7.30 áður og þær 25 mínútur sem við höfum fengið greiddar vegna óreglulegs matartíma verða greiddar i dagvinnu i stað þess að greiða þær í yfirvinnu. Þetta leyniplagg er undirritað af Skúla Hall- dórssyni fyrrverandi starfsmanna- stjóra, en hann lét af störfum um ára- mótin og í hans stað hefur verið ráð- inn Páll Ágústsson.” Aðalheiður sagði að þessar breytingar væru þegar komnar til framkvæmda á tveim deildum á Kleppi og meiningin væri að þær ættu að ganga yfir alla línuna. Er Aðalheiður var spurð, hvort félagið myndi grípa til einhverra aðgerða til að sporna gegn breyting- unum sagði hún að það yrði örugglega gert en enn væru þær aðgerðir „leyniplagg”. -GAJ- m-.......... ..............—► „Við munum gripa til aðgerða en enn sem komið er eru þær aðgerðir okkar leyniplagg,” segir Aðaiheiður. Leigjendasamtökin óskuðu rannsóknar á leigumiðlurum: Saksóknari rannsókn — þrátt fyrir framboðna aðstoð samtakanna og rökstuðning um misferli Embætti ríkissaksóknara telur beiðni Leigjendasamtakanna um rannsókn á starfsemi svonefndra leigumiðlara á Stór-Reykjavikursvæðinu ekki efnislega framsett á þann hátt að hún sé grund- völlur opinberrar rannsóknar, kemur fram í bréfi embættisins til samtakanna er þau móttóku í fyrradag. Hafnar embættið rannsókn. Forsagan er að í lok okt. sl. sendu samtökin embættinu bréf með ósk um rannsókn á starfsemi leigumiðlara vegna kvartana undan þjónustu þeirra, m.a. vegna þess að nær undántekningarlaust er tekið 10 þúsund króna skráningar- gjald af hverjum sem leitar til þeirra. Einnig vegna þess að það heyrir til und- antekninga að þeir endurgreiði fólki hluta gjalds eða allt gjaldið þótt engin þjónusta sé veitt. í þriðja lagi vegna gruns samtakanna um að tekjur miðlaranna komi takmark- að eða ekki fram til skatts. í bréfi sínu til saksóknara lýstu sam- tökin sig reiðubúin til að veita embætt- inu alla þá aðstoð við rannsókn málsins er í valdi samtakanna stæði. Einnig var óskað eftir við embættið að það kannaði hvort eftirlit væri með starfsemi leigu- miðlaranna og ef svo væri, hvaða aðilar það væru og hvort miðlaramir störfuðu lögum samkvæmt , t.d. skv. gildandi bókhaldslögum. Að sögn Finns Gunnlaugssonar, starfsmanns Leigjendasamtakanna, er algengt að leigumiðlanir spretti upp og séu svo skyndilega hættar starfsemi. Virðist það I því skyni að taka skráning- argjald af fólki um hrið og hætta svo þegar gengið er á eftir þjónustunni. Batt hann vonir við að þær tillögur sem félagsmálaráðuneytið lét nefnd vinna að um húsaleigulög, og nýlokið er, bætti hag leigjenda. -G.S. Kjarvalsstaðir: Þrír sóttu um stöðu list- ráðunauts Á fundi hjá stjórn Kjarvalsstaða í gær voru lagðar fram umsóknir um stöðu listráðunauts Kjarvalsstaða.. Þrjár um- sóknir bárust. Tveir listfræðingar sóttu um stöðuna, Ólafur Kvaran og Þóra Kristjánsdóttir, og einn teiknikennari, Árni L. Jónsson. Umsóknirnar verða nú sendar til um- sagnar Listamannaráðs sem fær viku- tíma til að fjalla um þær áður en ákvörð- un verður tekin um hver hreppir hnoss- ið. x^ÞadV y Kaupro 5 tölvur. c B AN K ASTRÆTI8 &IVII

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.