Dagblaðið - 26.01.1979, Blaðsíða 13
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979.
(i
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
17
I
Garðar Oddgeirsson, formaður t BK.
Danska félagið B-1909
keypti skozka leikmenn
—Tveir Skotar f rá Morton til Óðinsvéa
Það verður æ algengara síðan flest dönsku
deildaliðanna gerðust atvinnumannalið að þau
næli sér I crlenda knattspymumenn. Nú I vikunni
gerði B1909 frá Óðinsvéum, sem leikur i 2. deild i
Danmörku, samning við tvo skozka knattspyrnu-
menn frá Morton. Þeir hefja æfingar með B1909
eftir tíu daga og munu leika með liðinu, þegar leik-
tímabilið hefst I vor.
Nöfn skozku leikmannanna eru Alan John-
stone og Alan Hudson — leikmenn, sem ekki hafa
komizt í lið Morton í skozku úrvalsdeildinni. Þeir
voru hjá Óðinsvéa-liðinu til reynslu fyrst eftir ára-
mótin og þó erfitt væri að geta sér til um hæfni
þeirra vegna frostbarinna valla i Danmörku, gerði
danska liðið samning við þá um leiki leiktimabilið
1979.
„Ayðvitað greiðum við skozka félaginu peninga
fyrir leikmennina,” sagði þjálfari B1909, Mogens
Haastrup en hve mikil sú upphæð er vildi hann
ekki skýra frá. Þeir munu byrja að æfa með liðinu
í síðasta lagi 5. febrúar næstkomandi.
Milligöngumaður í samningum þessum var
Jack Johnson. danski þjálfarinn. sem þjálfaði lið
Akureyringa fyrir nokkrum árum. Hann hefur tals-
vert komið við sögu, þegar íslenzkir knattspyrnu-
menn hafa gerzt atvinnumenn erlendis — var
meðal annars umboðsmaður Jóhannesar Eðvalds-
sonar, þegar Jóhannes gerðist leikmaður hjá Hol-
hæk og síðar Celtic. Hann hefur einnig haft af-
skipti af fleiri íslenzkum leikmönnum og hefur
góð sambönd hér á landi.
Forráðamenn B1909 eru ánægðir með að hafa
náð i þessa skozku leikmenn. Telja öruggt að þeir
muni styrkja lið sitt verulega — ungir, áhuga-
samir leikmenn. B1909 hefur gegnum árin verið
eitt bezta lið Danmerkur, þó að það sé nú i 2.
deild.
Skíðaferðir Flugleiða
Úr Hliðarfjalli.
í síðustu viku hófu Flugleiðir skiðaferðir til
Akureyrar, Húsavikur og Isafjarðar. Hér er um
að ræða fjögurra daga ferðir, sem siðan má fram-
lengja. Sú skiðaáætlun félagsins, sem nú er hafin,
mun standa til 2. april.
Á Akureyri geta skiðamenn valið um þrjá gisti-
staði — það er skíðahótelið í Hlíðarfjalli. Hótel
KEA og Hótel Varðborg. Fjögrura daga dvöl og
flugfar — sé dvalið í Hlíðarfjalli, — kostar
32.600 krónur með herbergi en 22.100 kr. sé
dvalið í svefnpokaplássi. Innifalið í þessu verði er
morgunmatur. Á Hótel KEA kostar dvöl ásamt
flugfari 25.300 sé dvalið í eins manns herbergi en
22.300 í tveggja manna herbergi. Sama verð á
Hótel Varðborg.
Á Húsavík er gist á Hótel Húsavík og hægt að
velja um tvenns konar fyrirkomulag. Annars
vegar flug og gisting án fæðis, sem kostar fyrir
fjóra daga 28.800 i eins manns herbergi, en 22.300
i tveggja manna herbergi. Þá er einnig hægt að fá
gistingu og fullt fæði á 47.600 krónur og 40.100 i
tveggja manna herbergi.
Á Isafirði er einn gististaður — Hótel Mána-
kaffi. Flugfar og gisting þar kostar samtals 20.000
kr. Eins og áður segir er mögulegt að framlengja
dvöl á öllum þessum stöðum kjósi skíðafólkið að
vera lengur.
Tveir enskir þjálfarar
hjá meistaraflokki ÍBK
—á næsta leiktímabili—Rætt við Garðar Oddgeirsson, nýkjörinn formann íþróttabandalags Kef lavíkur
„Ég tók við nokkuð blómlegu búi,”
sagði Garðar Oddgeirsson, nýkjörinn
formaður tBK, þegar við ræddum við
hann um starfsemi bandalagsins, „það
sýnir árangurinn á seinasta ári sem var I
flestum greinum yfirleitt góður þótt af-
rek knattspyrnumanna beri þar hæst.
ÍBK sigraði í tveimur flokkum á Islands-
mótinu, i 2. og 3. flokki, og var ýmist I
úrslitum, eða undanúrslitum i hinum
flokkunum. Auk þess I 3. sæti i 1. deild-
inni. Ég vona að okkur takist að halda
merki tBK á lofti á þessu ári og ég er
bjartsýnn á að það takist. Frammistaða
þeirra flokka og einstaklinga, sem keppa
i fjölmörgum greinum, hefur verið mjög
góð i vctur, svo sem í handknattleik,
sundi, körfuknattleik, judo, borðtennis
og fleiri greinum. Áhugi almennings á
iþróttum sem heilsurækt fer lika vaxandi
og það er styrkur fyrir okkur.”
Garðar Oddgeirsson hefur á undan-
förnum árum mjög komið við sögu í fé-
lagsmálum í Keflavík. Hann hefur setið í
stjórn lBK frá 1970. Fyrst sem gjaldkeri
og siðan sem meðstjórnandi. Áður sat
hann í knattspyrnuráði fyrir félag sitt
KFK á árunum 1966-69, en í KFK
hefur hann gegnt mörgum trúnaðar-
störfum. Garðar er þvi flestum hnútur
kunnugur innan íþróttahreyfingarinnar
í Keflavík og hann upplýsti okkur um að
aðildarfélög lBK væru þrjú, UMFK
með 937 félaga, KFK 843 og íþróttafé-
lag Keflavikur með 120 félaga. Það er
ungt aðárum.
„Auðvitað er í mörg horn að lita hjá
fjölmennum samtökum en það léttir róð-
urinn hjá mér að hafa valinn mann í
hverju rúmi, bæði í stjórninni og hinum
ýmsu nefndum og ráðum, sem fórna
miklum tíma í störf sín fyrir samtökin,”
sagði Garðar, „og ekki má heldur
gleyma þeim einstaklingum og fyrir-
tækjum sem leggja árlega drjúgan skild-
ing til íþróttafélaganna i bænum og
bandalagsins.”
Áhugi fyrir innanhúsíþróttum er
mikill i Keflavik, en aðstaða til iðkana
gjörsamlega í molum. „Stærsta og veiga-
mesta málið er auðvitað íþróttahúsið
sem verið er að reisa og er orðið rúmlega
fokhelt. Iþróttaunnendur bíða með
óþreyju eftir að smiði þess Ijúki, vonandi
fyrir haustið, eins og áætlað er. Með til-
komu hússins gerbreytist öll aðstaða,
bæði fyrir keppnisíþróttir svo og al-
Ronald Smith, þjálfari tBK og Reynis.
DB-mynd emm.
til þessa hafa keflvískir íþróttamenn yfir-
leitt keppt i nafni ÍBK en stundum kom-
ast að færri en vilja, eins og t.d. í knatt-
leikjum. Því spyrjum við Garðar hvort
beri ekki bráðum aðþví að félögin fari að
keppa hvert fyrir sig, t.d. i landsmótum
yngri flokkanna? „Eins og sakir standa
er það varla tímabært af ýmsum
ástæðum. Við yrðum sem dæmi að
byrja með meistaraflokk knattspymunn-
ar í III. deild og raunar í fleiri flokkum.
Hinsvegar má gera ráð fyrir sömu þróun
mála hér og á Akureyri og í Hafnarfirði.
Það hefur vissa kosti í för með sér eins
og þann að félögin sjálf styrkjast við
slika skiptingu.”
Af margvislegum verkefnum á kom-
NEITUÐU 600 MILUÓNA KR.
íþróttahúsið nýja 1 Keflavik.
menningsíþróttirnar, sem við viljum
gjarnan leggja áherzlu á til að fylgja eftir
þeim góða árangri sem við náðum í sum-
ar í keppninni við vinabæina á Norður-
löndum, þegar um helmingur íbúa’
Keflavíkurtók þátt í keppninni. Það er
trú mín að innan fárra ára verðum við
komnir með ÍBK-lið í flestumg reinum
innanhússknattleikja í eldlínuna."
Knattspyrnan hefur um langan aldur
skipað veglegastan sess í íþróttalífi Kefl-
víkinga og aðstaðan til iðkunar hefur
verið nokkuð góð, en staðið í stað um
nokkurt skeið. „Okkur hjá bandalaginu
finnst bæjarfélagiö hafa slakað á i sam-
bandi við íþróttaleikvanginn og bygg-
ingu hans er í rauninni ekki lokið. Ef ég
má eitthvað leggja til málanna varðandi
velli, þá þyrfti nauðsynlega að fjölga
þeim, þ.e. æfingavöllum i hinum ýmsu
hverfum. Og svo drepið sé á fleiri mann-
virki, þá vonum við að innan tíðar verði
fyrirhuguð útisundlaug reist i Eyja-
byggðinni. Hún er sérstaklega hags-
munamál almenningsíþróttanna en
sundið býður upp á mjög alhliða líkams-
hreyfingu,” sagði Garðar.
Keflavík er mjög ört vaxandi bær og
iðkendum íþrótta fjölgar stöðugt. Fram
Ekkert skeður \Víkingsmálinu
Ennþá hefur áfrýjunardómstóll al-
þjóðahandknattleikssambandsins ekki
tekið ákvörðun I Vlkingsmálinu en talið
er að málið skýrist nú um helgina. Beðið
er eftir áliti tveggja manna, formanns
IHF, Högberg, sem er staddur 1 New
York og formanns aganefndar, Curt
Wadmark, sem er á Kanaríeyjum. Einn
nefndarmanna, Krivcov, Sovétríkjunum,
hefur tekið ákveðna afstöðu með Vlking
i málinu — og sú ákvörðun hans hefur
verið gagnrýnd í aðalstöðvum IHF. Þar
er mikill tvistfgandi i málinu og að þvf er
virðist ótti við Wadmark. Dæma átti I
málinu sl. mánudag en ekkert hefur skeð
— og samkvæmt upphaflegum drætti
átti fyrri leikur ungverska liðsins og Vik-
ings að vera nú um helgina.
andi sumri er þátttaka lBK i lands-
mótunum i knattspyrnu það viðamesta
svo og Evrópuleikurinn sem iBK ávann
sér á sl. keppnistímabili. Til að búa sig
sem bezt undir baráttuna hafa verið
ráðnir þjálfarar fyrir alla flokka en það
eru þeir Haukur Hafsteinsson, Skúli
Skúlason, Ástráður Gunnarsson og
Helgi Kristjánsson, sem allir eru Kefl ’
víkingar. „Fyrir meistaraflokkinn hafa
hins vegar verið ráðnir tveir enskir þjálf-.
arar,” segir Garðar, „en ráðning þeirra
er dálítið sérstök. Þannig var mál með
vexti, að okkur bauðst einn virtasti
I þjálfari innan brezka sambandsins,
Tranten, en ekki nema hluta af undir-
búnings- og keppnistímabilinu. Okkur
leizt r fyrstunni ekki á slíka ráðningu, en
þegar hann sagðist hafa mjög góðan
þjálfara á sínum snærum, sem gæti
leiðbeint liðinu þangað til Tranten kæmi
og eins í millitiðinni, ásamt því að þjálfa
annað félag, þá fórum við að hugsa
málið og buðum 2. deildarliði Reynis í
Sandgerði samvinnu, sem það tók með
þökkum, Ég vona að það verði báðum i
hag. Þjálfari Reynis og iBK er því núna
31 árs Englendingur, Roland Smith, vel
menntaður og reyndur i sinu starfi.”
Við skulum að lokum vona að Garð-
ari og samstarfsmönnum hans, í stjórn
iBK, þeim Sigurði Valgeirssyni, Herði
Ragnarssyni, Helga Kristjánssyni,
Kjartani Sigtryggssyni, Nikulási Bryn-
jólfssyni og Ragnari Marinóssyni, takist
að ná settu marki i sumar.
emm.
PENINGATILBOÐICOVENTRY
Stjórnarmenn Birmingham City
standast allar freistingar i sambandi við
leikmanninn kunna, Trevor Francis. í
gær bauð Coventry 900 þúsund sterl-
ingspund — um sex hundruð milljónir is-
ienzkra álkróna — i Francis, enska
landsliðsmanninn, og bauðst til að greiða
upphæðina alla i beinhörðum peningum.
Eftir stjórnarfund hjá Birmingham í gær
var ákveðið að taka ekki tilboðinu.
Coventry hafði áður boðið Birming-
ham álíka upphæð fyrir Francis og þá
áttu þrír ieikmenn að fylgja með i kaup-
unum auk peninga. Það voru þeir Terry
Yorath, velski landsliðsfyrirliðinn, Keith
Osgood, miðvörður og markvörðurinn
Sealey.
í gær var tilkynnt i Hamborg i Vest-
ur-Þýzkalandi að enski landsliðsmiðherj-
inn Kevin Keegan, fyrirliði enska lands-
liðsins, mundi ekki leika með bandariska
félaginu Washington Diplomats næsta
sumar eins og ákveðið hafði verið. Þessi
tilkynning kom aðeins þremur dögum
eftir að skýrt hafði verið frá þvi að
Keegan mundi leika með bandariska fé-
laginu í þrjá mánuði í sumar. Ástæða
fyrir þessari breytingu var ekki gefin upp
en talið öruggt að það sé vegna Evrópu-
keppninnar. Ef Keegan hefði leikið í
Bandaríkjunum hefði hann ekki getað
leikið með Hamborg i I. umferð Evrópu-
keppninnar þvi í reglugerð keppninnar
segir, að leikmaður verði að leika með
félagi sínu fyrir 15. ágúst til að vera hlut-
gengur i Evrópukeppni. Samkvæmt
samningi Keegans við Washington-liðið,
sem nú hefur verið rift, átti Keegan að
leika með því til 10. september.
I gær var gengið frá samningi Chelsea
og Derby County í sambandi við kaupin
á Steve Wicks. Derby greiddi 275 þús-
und sterlingspund fyrir leikmanninn og
hann mun leika sinn fyrsta leik með sínu
nýja félagi gegn Middlesbro á laugardag.
Chelsea mun nota peningana til kaupa á
nýjum leikmönnum.
Luther Blisset, sem fæddur er á
Jamaíka, var i gær valinn í enska lands-
liðið, leikmenn 21 árs og yngri. Dave
Sexton, framkvæmdastjóri Man. Utd.
sem velur enska liðið, tilkynnti þá val
sitt en England mun leika við Wales 6.
febrúar næstkomandi. Blisset valdi að
leika með enska landsliðinu — þjálfari
trski landsliðsmaðurinn hjá Arsenal,
Liam Brady, varð fyrir árás nú i vikunni,
þegar hann var á leið heim til sin i
Norður-Lundúnum.
Brady, sem nú er 22ja ára og lék sem
ungur strákur með irska drengjalandslið-
inu á Melavellinum i UEFA-keppninni,
var að ræða við unnustu sína i neðan-
jarðarlest á leið heim, þegar þrír menn
réðust að honum. Þeir höfðu heyrt
írskan málhreim hans og kölluðu hann
írskan ræfil áður en þeir réðust á hann.
Sögðust vera að hefna sin vegna
sprengjuárása IRA á Englandi.
Starfsfólk á Finsbury Park stöðinni
kom Brady til hjálpar — og um tima log-
aði stöðin í slagsmálum. Brady meiddist
lítillega — skrámur hér og þar,
sprungnar og blóðugar varir. Hann
hefur mætt á æfingar hjá Arsenal síðan
og mun leika með liðinu á laugardag.
Brady er nú af flestum talinp bezti leik-
maðurinn í ensku knattspyrnunni. Þetta
Wales, Mike Smith, hafði einnig óskað
eftir þvi að hann léki fyrir Wales. Bliss-
et sagði: „Það var aldrei vafi hjá mér. Ef
England vill mig mun ég leika fyrir það."
Luther Blisset er aðeins tvítugur og
hefur skorað 22 mörk í 26 leikjum fyrir
Watford á leiktímabilinu — og hann
skoraði tvö mörk gegn Manch. Utd. í
deildabikarnum fyrir Watford á Old
Trafford, sem sendu 1. deildar liðið út úr
keppninni. Einn af þessum bráðefnilegu
svörtu leikmönnum, sem nú setja svo
mikinn svip á ensku knattspymuna.
er ekki í fyrsta sinn, sem írskir leikmenn
á Englandi verða fyrir árásum. Það er al
gengt að IRA-menn hóti þeim ýmsu og
ráðist á þá — samanber, þegar skjóta
átti George Best hér á árum áður — en
fátítt að Englendingar standi fyrir slik-
um árásum.
RÁÐIZT Á BRADY
DB-mynd Bjarnleifur
Enn töpuðu stúdentar
naumlega í körfunni
Hann Einar Ólafsson Framari lét sig ekki muna um að hitta i körfuna með DB-boltanum i gær og var þar með orðinn einum
dilkaskrokki frá Kjötmiðstöðinni rikari. Það var í hálfleik i leik ÍS og Vals i gærkvöldi en hinir siðarnefndu standa fyrir þess-
ari nýbreytni ásamt DB og Kjötmiðstöðinni. 1 hverjum heimaleik Vals gefst tólf áhorfendum kostur á að re.vna sig en Einar
var sá eini sem hitti i gær. Hann er svo sem enginn nýgræðingur i íþróttinni og búinn að æfa með Fram siðastliðin fimm ár.
Einar Ólafsson er 14 ára gamall og er i Æfingadeild Kennaraskólans. Hann sagðist ekkert of hress með árangur fjórða flokks
Fram í vetur.
— aðeins sex stiga munur gegn Val í gærkvöldi
Svo virtist i byrjun leiks Vals og stú-
denta i úrvalsdeildinni i körfuboltanum f
gærkvöldi að hinir fyrrnefndu mundu
gjörsamlega kafsigla þá og vinna með
yfirburðum. Staðan var orðin 32 stig
gegn 12 fyrir Val um miðjan fyrri hálf-
leik og langskyttur Vals nánast óstöðv-
andi. Þar voru þeir drýgstir Þórir
Magnússon og Rikarður Hrafnkelsson,
sem stóðu á sinn hvorum sóknarvængn-
um og skutu og á timabili geigaði ekki
eitt einasta skot.
Allur vindur virtist úr stúdentum,
sem nú léku án Dirk Dunbars, sem
farinn er til Bandaríkjanna og að líkind-.
um hættur körfuknattleik vegna meiðsla
í hné. Svæðisvörn stúdenta gekk mjög
illa og eins voru þeir mjög ragir í sókn-
inni.
Staðan i hálfleik var 43—30 Val í vil.
síðari hálfleikur var allur annar þá náðu
skyttur Valsara ekki eins góðum árangri
enda þeirra gætt mun betur. Nú var
skipt um í sóknarleik stúdentanna. Skot
utan af velli fóru að fara ofan í og var
Gísli Gíslason þar drýgstur auk þess sem
hann var primus motor í spili liðsins.
Valsliðinu hefur að vísu gengið
brösulega með ÍS i vetur en á óvart kom
hve þeir áttu í miklum erfiðleikum
með þá að þessu sinni. Að vísu er lið IS
eitt af þeim sem seint virðist gefast upp
og þeir ná miklu út úr spili, sem kannski
er ekki svo áferðarfallegt að horfa á.
Valsmenn tóku nokkurn fjörkipp rétt
fyrir miðjan síðari hálfleik og staðan
varð 55—36 fyrir þá en síðan sigu stú-
dentar stöðugt á og lokastigin 92—86
Staðan í úr-
valsdeildinni
Staðan i úrvalsdeildinni eftir leik Vals
og tS i gærkvöld er nú þannig:
KR 12 9 3 1104—951 18
Valur 13 9 4 1149—1148 18
ÚMFN 12 8 4 1198-1117 16
ÍR 13 6 7 1138—1131 12
ÍS 13 3 10 1114—1196 6
Þór 11 2 9 868—1026 4
fyrir Val.
Stigahæstur Valsmanna var Tim
Dwyer með 25, Þórir Magnússon 20,
Kristján Ágústsson 16, Rikarður Hrafn-
kelsson 15, Sigurður Hjörleifsson 6,
Lárus Hólm og Torfi Magnússon 4 hvor
og Hafsteinn Hafsteinsson 2.
Hjá stúdentum varð Bjarni Gunnar
stigahæstur með 33 stig, auk þess sem
hann átti að líkindum sinn bezta leik i
vetur. Ingi Stefánsson var með 21, Gísli
Gíslason 16, Jón Héðinsson 14 og
Steinn Sveinsson með 2.
-ÓG.
Þórir Magnússon I Val átti góðan dag í gær og hvað eftir annað smaug boltinn I
körfunetið. Þarna er hann að berjast við einn stúdentanna og félagar hans, þeir
Rikarður Hrafnkeisson og Tim Dwyer, eru við öllu búnir. Lcngst til vinstri er Steinn
Sveinsson.
DB-mynd Bjarnl.