Dagblaðið - 26.01.1979, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 26.01.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979 HEIMILiSLÆKNIR SVARAR Er ungum bömum hollt að horfa á sjónvarpið? Móöirspyn Mig langar að spyrja heimilislækn- inn að því hvort hann telji óhollt fyrir ung börn að horfa á sjónvarp. Svo langar mig til að spyrja hvort ég græði eitthvað á að ganga i asma- og of- næmisfélagið (en ég hef hvort tveggja) og hvernig kemst ég þá í það ef ég vildi. Svar: Samtök asma- og ofnæmissjúklinga hafa skrifstofu hér í borginni, síma númerið er í símaskránni og þar færðu allar upplýsingar um starfsemina. Samkvæmt þeim upplýsingum verður þú sjálf að ákveða hvort þú „græðir eitthvað” á að ganga í félagið, slíkt getur enginn metið fyrir þig. Börn fara sjaldnast að hafa áhuga á því sem á skjánum sést fyrr en þau eru 4—5 ára gömul. Varla held ég þau hljóti neinn skaða af að horfa á sæmi- legt barnaefni, svo fremi þeim sé ekki parkerað framan við skjáinn, sem þá verður að lélegri barnfóstru. Hugar- heimur barna á þessum aldri er ekki rökrænn, heldur töfraheimur furðu- vera, kraftaverka og annarra undur- samlegheita. Því held ég að brýna nauðsyn beri til að hinir fullorðnu sitji með börnum sínum við skjáinn og séu ólatir við að reyna að svara spurning- um þeirra um allt það er fyrir augu ber. Að öðrum kosti geta meinlaus- ustu fyrirbæri valdið þessum aldurs- flokki kvíða og hugarangri sem þau Sinquan og marplan: Lyf sem upp- hefja þung- lyndisástand — en aukaverkanir geta komið í Ijós A.B. skrifar: Mig langar að fá upplýsingar um tvö lyf, þ.e. MARPLAN OG SIN- QUAN. Við hverju eru þau helzt gefin og hverjar geta verið aukaverkanir við inntöku þeirra. Svar: Þetta eru tvö mjög ólík efni sem bæði eru notuð til að upphefja þung- lyndisástand (geðlægð, „depressión”), sumir kalla það reyndar sjúkdóm. Sinquan er náskylt t.d. tryptizol og tofranil. Það tekur venjulega 2—3 vikur að virka, þ.e. aflétta þunglynd- inu, en aukaverkanir koma fram strax við fyrstu töflu. Hættulegar aukaverk- anir eru fáar og sjást helzt hjá hjarta- veilu fólki, hjartsláttartruflanir ýmiss konar, blóðþrýstingslækkun, e.t.v. auknar líkur á kransæðastíflu. Ber því að nota sinquan og skyld lyf með ítrustu varkárni sé vitað um hjarta- sjúkdóm. Meinlausari, en þó oft hvim- leiðar aukaverkanir eru að mestu bundnar áhrifum á ósjálfráða tauga- kerfið, munnþurrkur, truflun á þvag- látum og sjónskerpu. Þessi einkenni eru mest í byrjun, en hverfa oft eða minnka mikið sé lyfið tekið lengi. Sama er að segja um syfju, sem oft er veruleg og veldur því að þessi lyf eru oft geftn einungis að kvöldlagi, eða jafnvel notuð sem svefnlyf. Marplan og skyld lyf hafa fáa kosti umfram sinquan & Co, en mun fleiri hættulegar aukaverkanir. Því er notkun þeirra siminnkandi. Mjög varasamt getur verið að taka marplan og sinquan saman. Loks skal minnt á, að lyf þessi eru mjög eitruð, séu teknir stórir skammtar, t.d. ef börn komast í glösin. Hafa af slíku hlotizt allt of mörg hindranleg dauðs- föll barna á undanförnum árum. Langsum skorur í nöglum vottur um taugaveiklun? A.B. skrifar: í nokkur undanfarin ár hafa tvær neglur, á báðum þumalfingrum klofn- að um leið og þær hafa vaxið fram yfir fingurgóminn. Bæði þær neglur og á öðrum fingrum eru með langsum skorum. Af hverju stafar þetta? Mér var einu sinni sagt að langsum skorur i nöglum bæru vott um tauga- veiklun. Ereitthvað til í því? Svan Þetta getur stafað af ýmsum ólíkum orsökum, meiðslum, sveppasýkingú t.d. eða af arfgengum þáttum. „Taugaveiklun” veldur ekki svo vitað sé truflunum á naglvexti eða naglgerð. Valdi neglurnar þér verulegum óþæg- indum er sjálfsagt að ræða málið við heimilislækninn, e.t.v. finnst læknan- leg orsök. eru betur sett án. Annars held ég að hver og einn geti svarað spurningu sem þessari a.m.k. jafnvel ogég, algild- ar reglur finnast varla hér fremur en annars staðar i mannlegum samskipt- um. SUNNDHATIÐ HOTEL SAGA - SULNASALUR Sunnudagskvöld 28. jan. Húsid opnað kl. 19.00, hressing við barinn, ókeypis happdrættismiðar afhentir BORÐHALD HEFST Gestir ganga að langborði á dansgólfi og velja sér Ijúffenga þorrarétti af stærsta þorrablótsveizluborði sem sézt hefur. VERÐ AÐEINS KR. 3.500 FYRIR ÓMÆLDAN VEIZLUMAT. SKEMMTIATRIÐI Danssýning. Hinn víðfrægi discodansari Ricky Vill- ard skemmtir og sýnir discodans eins og hann gerist § beztur í heiminum i dag. FERÐAKYNNING - LITKVIKMYNDIR Glænýjar litkvikmyndir frá eftirsóttum áfangastöðum Sunnu, á Kanaríeyjum, Mallorca, Costa del Sol og Grikklandi, og einnig af skemmtiferðaskipinu FUNCHAL, sem Sunna leigir næsta sumar. Sagt frá mörgum spennandi ferðamöguleikum sem bjóðast á þessu ári. GLÆSILEGT FERÐABINGÓ Vinningar 3 sólarlandaferðir með Sunnu eftir frjálsu vali. TÍZKUSÝNING Fegurðardrottningar íslands 1978—77 ásamt stúlk- um frá Karon sýna það nýjasta í kvenfatatízkunni. FEGURÐARSAMKEPPNI ÍSLANDS Gestir kvöldsins kjósa fyrsta fulltrúann í lokakeppn- ina um titilinn Fegurðardrottning Reykjavíkur 1979. IDANSTIL KL.1.00 Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar ásamQfsöngkon- | unni Þuríði Sigurðardóttur ieikur og syngur fyrir | dansi. ÓKEYPIS HAPPDRÆTTI Þeir matargestir sem mæta fyrir kl. 20.00 fá ókeypis happdrættismiða, en vinningur er Kanaríeyjaferð 2. feb. Missið ekki af glæsilegasta þorrablóti ársins á gjafverði, ókeypis Kanaríeyjaferð í dýr- tfðinni fyrir þann heppna. Pantið borð tímanlega hjá yfirþjóni í síma 20221 frá kl. 16.00 daglega. xV \ lo.uu daglega. / 7/ k. sgmiv;J

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.