Dagblaðið - 10.02.1979, Page 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. FEBRUAR 1979.
DB á ne ytendamarkaði
Hvað kostar að lifa í Svíþjóð?
Nú eru lesendur farnir að senda inn
upplýsingaseðlana fyrir janúarmánuð.
Sífellt berast okkur seðlar frá fleiri
stöðum. Nú er kominn einn alla leið
frá Svíþjóð! — Hann getur að vísu
ekki farið í meðaltalsútreikninginn.
Þetta er desemberseðill frá fjögurra
manna fjölskyldu í Helsingborg.
Útgjöld þeirrar fjölskyldu reyndust
1030 sænskar kr., eða (samkv. gengi
gærdagsins) 77.250 kr. isl. sem gerir
19.315 kr. á mann!
Meðaltalskostnaður fjögurra
manna fjölskyldu á tslandi í desember-
mánuði reyndist vera 28.48-8 kr. sem
er talsvert miklu hærra en sænska
meöaltalið. Bendir þannig allt til aö
kostnaður I mat- og hreinlætisvörum
sé talsvert miklu hærri á íslandi en i
— Upplýsingaseðlar berast langt að
Svíþjóð, sem reyndar flestir vissu fyrir-
fram.
Hins vegar má vera að ýmis annar
kostnaður, svo sem eins og við leigu-
húsnæði, rafmagn og hita sé hagstæö-
ari hér á landi en í Svíþjóð. Þó getur
nú verið að þetta sé að snúast okkur í
óhag með ýmiss konar nýjum álögum
sem fundnar hafa verið upp nýlega og
nýjum verðhækkunum á húsaupphit-
un og rafmagni.
Ef einhvern tíma hefur verið ástæða
til þess að fylgjast með í hvað fjármun-
um heimilisins er varið, er það einmitt
nú.
Hvetjum við þvi sem flesta að halda
búreikningstölum sínum saman og
fylla út upplýsingaseðla og senda okk-
ur.
A.Bj.
POTTRETTUR
ÚR SVÍNAKJÖTI
Uppskrift dagsins I dag er frá vinn-
ingshafanum okkar í heimilisbókhald-
inu, Erlu Sigurgeirsdóttur, en hún er
mikill áhugamaður um góðan mat.
Segir hún þetta vera hinn mesta há-
tiðarétt sem henti vel sem veizlu-
matur. Uppskriftin er fyrir fjóra.
750 g svinakjöt (framp.)
250 g sveppir
50 g smjörl.
salt og paprikukrydd
1 dlvatn
1 /2 kg dös heilir tómatar i safa
3 dl rjómi
lítil dós af snittubaunum
e.t.v. hvcitijafningur
Kjötið er skorið í bita og brúnað i
smjörlíkinu. Sveppirnir hreinsaðir og
skornir í bita og látnir i pottinn og
látnir krauma smástund eða þar til
þeir eru orðnir mjúkir. Kryddið.
vatnið og safinn af tómötunum er
látið út i pottinn og soðið við vægan
hita í um þaðbil 45 mín.
Þá eru tómatarnir og rjóminn látinn
út í pottinn og hugsanlega kryddað
meir. Ef sósan er ekki nógu þykk
verður að hræra hveitijafning út í.
Loks eru snittubaunirnar látnar í
pottinn, en notið ekki soðið af þeim.
— Rétturinn er borinn fram með
soðnum hrísgrjónum. — Mjög gott er
að raspa ost yfir hrísgrjónin, það gefur
skemmtilegt bragð sem fer mjög vel
með réttinum.
Verð:
Hráefnið í þennan rétt kostar mjög
nálægt 3000 kr. eða um 750 kr. á
mann.
hUömfeær
HVERFISGÖTU 108
Nú er rétti tíminn að endurnýja hljómtækin og hljóðfærin. Setjirðu
þau i UMBOÐSSÖLU í HLJÓMBÆ er salan örugg.
Ávallt er mikil eftirspurn eftir öllum tegundum hljómtækja og
hljóðfæra. Littu iiin i Hljómbæ, það borgar sig.
Hljómbær ávallt i fararbroddi.
S. 24610
HÚTEL
AKUREYRI
hefur opnað eftir endurbæt-
ur.
Munið okkar lága verð.
Herbergi frá kr. 3.825 pr.
nótt, hópafsláttur. Verið
i? velkomin.
Hótel Akureyri
Simi 96-22525.
A.Bj.
Upplýsingaseöill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlegast sendið okkur þennan svarseðil. Á þann hátt verðið þér virkur þátttakandi i
upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu
af sömu stærð og yðar.
Kostnaóur í jan. mánuói 1978
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.
m vuox
Fjöldi heimilisfólks
Greinargóður leiðar
vísir með Toyota
prjónavélum
„Þessi bók er búin að kosta okkur
mörg grá hár, en við erum mjög
ánægðir yfir að hún skuli nú loks vera
komin út,” sagði Sigtryggur Helgason,
en hann ásamt Jóhanni Jóhannssyni
rekur Toyota varahlutaumboðið í
Ármúla. Þar eru m.a. seldar bæði
prjóna- og saumavélar.
Bókin sem Sigtryggur ræðir um er
kennslubók á Toyota-prjónavélar á
islenzku. Bókin er 65 bls., með mjög
greinilegum skýringarmyndum og
texta þannig að auðvelt ætti að vera
að fara eftir henni. Auk bókarinnar
fylgja tvö námskeið þegar prjónavél er
keypt.
„Prjónavélarnar eru framleiddar í
Japan. Prentaður leiðarvísir á ensku
fylgir öllum vélunum. En það gefur
augaleið að það er ekki nógu hentugt
fyrir íslenzka viðskiptavini og því var
ráðizt i að láta þýða leiðarvísinn,”
sagði Sigtryggur.
Fyrstu Toyota-prjónavélarnar
komu til landsins í ágúst 1977, en
síðan hafa verið seldar hátt í 200
vélar. Þær eru ekki til hjá umboðinu
eins og stendur en þær kosta um 230
þúsund kr. Með saumavélunum fylgir
einnig leiðarvísir á íslenzku.
Islenzkir neytendur geta svo
sannarlega glaðzt yfir þessari nýju
leiðbeiningarbók um prjónavélina.
A.Bj.
-t-jí-í,r