Dagblaðið - 08.03.1979, Page 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1979.
5
„Fylgistilfærsla sem menn
hafa á tilfinningunni’'
— segir Ólafur Ragnar Grímsson (AB)
„í stórum dráttum sýnir þessi þessu og haetti fíflalátum og komi með
könnun fylgistilfærslu sem menn hafa okkur í að stjórna landinu.”
haft á tilfinningunni að eigi sér stað,” -HH.
sagði Ólafur Ragnar Grímsson al-
þingismaður (AB) um niðurstöður
skoðanakönnunarinnar.
„Mér finnst hlutfall Sjálfstæðis-
flokksins hærra en ég hafði haldið, en
vel má vera að fylgi hafi færzt frá
Alþýðuflokknum og Framsóknar-
flokknum yfir til Sjálfstæðisflokksins.
Ýmislegt bendir til þess að hægra fylgi,
sem Framsóknarflokkurinn hélt síðast,
hafi horfið yfir til Sjálfstæðisflokksins.
Veruleg vonbrigði eru i kjósendahópi
Alþýðuflokksins.
Ég hef haft á tilfinningunni að
Alþýðubandalagið hafi i stórum drátt-
um haldið sínu,” sagði Ólafur Ragnar.
„Nú er nauðsynlegt að
alþýðuflokksmenn dragi lærdóm af
„Kosnir til að ná verð-
bólgunni niður”
— segir Sighvatur
Björgvinsson (A)
„Við verðum að vona, ef könnunin
er marktæk, að okkur takist aftur að
ná því fylgi sem við höfum misst,”
sagði Sighvatur Björgvinsson, for-
maður þingflokks Alþýðuflokksins.
„Við vorum kosnir til að ná'
verðbólgunni niður,” sagði hann og
viðurkenndi að árangur hefði enn ekki
náðst sem skyldi. „En ég held að fólk
viti, hvers vegna árangurinn hefur ekki
náðst. Viðlátumnúreynaáhvortsam-
staða næst á Alþingi um aðgerðir til að
ná verðbólgunni niður.”
-HH.
„Ekki tjáir að deila við
dómarann”
— segir Ólaf ur Jóhannesson forsætisráðherra
„Það kemur mér á óvart að Sjálf-
stæðisflokkurinn skuli hafa svona
mikið fylgi í þessari könnun,” sagði
Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra
um niðurstöðurnar.
Hann taídi, að Sjálfstæðis-
fiokkurinn hefði ekki staðið sig svo
glæsilega í stjórnarandstöðu að hann
ætti að fá slíkt fylgi.
„Ef einhverjir vinna svona á, hljóta
einhverjir aðrir að tapa,” sagði Ólafur.
„Ekki tjáir að deila við dómarann.”
Hann sagði að gott hljóð væri í fram-
sóknarmönnum en hann „heyrði þó
ekki allt”. Sagt væri að ríkisstjórnin
væri vinsæl, en vel mætti vera að hún
væri það ekki. Slíkt ætti þó ekki að
vera skýring á því að Framsóknar-
flokkurinn færi enn niður. -HH.
„Þungt áfall fyrir vinstri
stjórnina”
— segirGunnar
Thoroddsen (S)
,,í fyrra vefengdu margir skoðana-
könnun Dagblaðsins fyrir alþingis-
kosningamar. Mönnum fannst sér-
staklega ólíklegt að Alþýðufiokkurinn
mundi vinna svo gífurlega á og Fram-
sókn tapa jafnmiklu og þessi könnun
benti til,” sagði Gunnar Thoroddsen,
formaður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins.
,,En svo fór að kosningaúrslitin
urðu ekki fjarri þessum spám.
í ljósi þessarar reynslu verður að líta
á þessa nýju skoðanakönnun sem á-
byrga og alvarlega spá. Niðurstöður
hennar eru þungt áfallt fyrir vinstri
stjórnina. Þær sýna vantraust fólks á
þessu stjórnarsamstarfi. Hrun
Alþýðuflokksins vekur auðvitað sér-
staka athygli, en við því mátti búast.
Fylgi hans í fyrra stóð á leirfótum og
ekki hafa þingleikarar flokksins aukið
traust fólks á honum.
Skoðanakönnunin sýnir að fólk
fylgist með og áttar sig á því sem er að
gerast. Hún er okkur sjálfstæðis-
mönnum gleðiefni, uppörvun og
hvatning til starfa,” sagði Gunnar
Thoroddsen. -HH.
KPRENTUN
fRENTUN
S.32-l5bU
NONNIG BUBB
KYNIUIÐ YÐUR
VERÐ OG GÆÐI
ÞEGAR VIÐVEGUM
KOSTINA ÞÁ VERÐUR
^lISHIDA^^
KOPflUOGUR GÖBHIUífjRIJR
»11» fí GfJBU wm
REYKIÐJAN HF.
SMIOJLJVLOI 36 2* 7 63 40
* TRYGGIfl YflUR VOG MEfl NÆSTU
SENDINGU
* STAÐFESTIÐ PANTANIR OG
ELDRI PANTANIR s>vi#!ií|
FVRIR 15TIL ...S
20 MARS. 1W r
r DAGSETNjKHVERÐ TyJgP1
GUÐMUNDUR • S. 31- HA
SÍÐASTI SÖLUDGUB | 1 PÖKKUNARDAGUR |KR/KG. | ÞYNGD. j VERÐ. SVE/NN/ S. 37-Í2DD
^ KAUPFÉLAG HÉRAÐSBÚA ^
PLASTPOKAR IIImmÓ-aam IbF PLASTPOKAR
O 82655 rlfllSLOik ■■■ o 82655
PLASTPOKAVERKSMIÐJA ODDS SIGURÐSSONAR GRENSÁSVEGI 7 REYKJAVÍK
BYGGINGAPLAST * PLASTPRENTUN * MERKIMIÐAR OG VÉLAR
TRIXPLAST HEIMILSPOKAR 50STK. ARLILLU