Dagblaðið - 08.03.1979, Blaðsíða 13
12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1979.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAOUR 8. MARZ 1979.
13
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Mikil spcnnaer nú i 1. deild Islandsmólsins i biaki. Þrjú efstu liðin, Þróttur, Laugdælir ogStúdentareiga enn möguleika
á sigri. Myndin til hliðar var tekin, þegar UMFL sigraði ÍS 3—1. Haraldur Geir Hlöðversson, UMFL, á lofti, nr. 6, og
félagi hans Hreinn Þorkelsson fylgist með. Hinum megin við netlð eru Haukur Valtýsson, nr. 14, Sigfús Haraldsson,
Jean Pierre, nr. 7, og i baksýn Kjartan Páll Einarsson.
DB-mynd Hörður.
MALMÖ HEFUR MÖGULEIKA
—tapaði aðeins 2-1 — Austria vann Dynamo Dresden 3-1
Wisla Krakow, Pnllandi, sem stefnir
að þvi að verða fyrst austur-evrópskra
KANARIEYJAR
liða til að sigra i Evropubikarnum,
lenti í erfiðleikum á hcimavelli í gær
gegn Malmö FF frá Svíþjóð. Sigruðu
þó 2—1 en síðari leikurinn í Malmö
verður erfiður Pólverjunum.
Keppni i Evrópumótunum þremur
hófst með leik Kölnar og Glasgow
Rangers á þriðjudag — en ellefu leikir
voru svo í gær. Leikmenn Wisla — eins
og Köln — þurftu að taka á öllu sínu á
heimavelli gegn Malmö og það var
þaggað niður í áhorfendum á 13. mín.
þegar Svíarnir náðu óvænt forustunni.
Tommy Hansson skoraði. Adam
Nawalka, pólska landsliðsmanninum,
sem aðeins er 21 árs, tókst að jafna á 27
mín. — en það var ekki fyrr en fimm
mínútum fyrir leikslok að Wisla skor-
aði sigurmarkið. Kazimierz Kmiecik
skoraði.
Austurrísku meisturunum, Austria
Wien, gekk betur gegn Dynamo Dresd-
en í Evrópubikarnum í Vínarborg —
sigraði 3—1 og skoraði tvö siðustu
mörkin á þriggja mínútna kafla í leiks-
lok. Dynamo náði snemma forustu,
þegar Weber skoraði á 9. mínútu.-
Schachner tókst að jafna fyrir Austria
á 20. mín. og staðan var 1 — 1 þar til
þrjár mín. voru eftir. Þá skoraði Zach
annað mark Austria og á lokamínút-
unni skoraði Schachner þriðja markið.
feb. - 9.,-
16.,- 30. mars - 6.,- 20.,- 27. aprll -
18. maí-13. juní - 4.,- 25. júlí-15.
ágúst - 5.,- 26. sept.
Hótel og íbúðir I sórflokki.
Þjónustuskrifstofur meö íslensku
starfsfólki.
Skoðið nýja Kanarieyjabæklinginn,
sem þú færð á skrifstofum Sunnu.
vann stórsigur á Grasshoppers Ziírich 4-1 í Nottingham
í gær í Evrópubikarnum
Englandsmeistarar Nottingham For-
est eru svo gott sem komnir I undanúr-
slit Evrópubikarsins í knattspyrnu —
keppni meistaraliða. í gær sigraði For-
est svissneska liðið Grasshoppers
Ziirích 4—1 í Nottingham og engar
líkur eru á að Grasshoppers vinni þann
mun upp eftir hálfan mánuð í Ziirich.
Úrslitin voru þó ekki eins auðveld fyrir
Englandsmeistarana og tölurnar gefa
til kynna. Forest skoraði tvívegis á
þremur síðustu mínútum leiksins.
Grasshoppers, sem sló Real Madrid
út úr keppninni í umferðinni á undan,
byrjaði vel í Nottingham í gær. Claudio
Sulser tókst að sleppa úr gæzlu Larry
Lloyd á tiundu mínútu — komst í færi
og Peter Shilton átti ekki nokkra
möguleika að verja skot hans. Tíunda
mark hans í Evrópukepnninni á fiessu
leiktímabili. Dauðaþögn varð meðal
31.949 áhorfenda á vellinum — en það
stóð ekki lengi. Þeir stóðu vel að baki
sínum mönnum og á 20. mín. tókst
Garry Birtles að jafna eftir góðan
undirbúning Tony Woodcock. Wood-
cock lék í stað Trevor Francis, sem ekki
má leika með Forest í Evrópukeppn-
Góður sigur
Aston Villa
Aston Villa vann góðan sigur á
Bolton í 1. deild á Englandi. 3—0 í
Birmingham og komst við sigurinn upp
í áttunda sæti. Þá gerðu Norwich og
Wolverhampton jafntefli í Norwich i 1.
deild. Ekkert mark skorað.
Önnur úrslit í gær á Englandi urðu
þessi.
2. deild
Sunderland-Wrexham 1—0
3. deild
Chester-Lincoln 5—T
Chesterfield-Shrewsbury 2—1
Oxford-Southend 0—0
4. deild
Bradford-Aldershot 0—2
Hereford-Hartlepool 1—0
inni fyrr en í úrslitaleiknum — ef For-
est nær svo langt.
Eftir markið — Reuter segir að það
hafi verið skorað á 31. mín. BBC 20.
mínútu — sótti Forrest mjög en vörn
Grasshoppers var þétt fyrir. Staðan í
hálfleik 1 — 1 en á 47. mín. var dæmd
vítaspyrna á svissneska liðið. John ro-
bertson skoraði örugglega. Bylgjur
sókna Forest buldu á svissnesku vörn-
inni en í skyndisókn munaði þó sára-
litlu að Grasshoppers jafnaði. Peter
Shilton varði snilldarlega frá hinum
hættulega Sulser á 76. mínútu.
Minúturnar tifuðu áfram og hvorki
rak né gekk hjá Forest. Áhorfendur
voru farnir að tinast af vellinum í
Nottingham, þegar svarti bakvörður-
inn Viv Anderson náði knettinum. Lék
upp kantinn og gaf fyrir. Birtles náði
fyrirgjöfmni og renndi knettinum til
Archie Gemmill, skozka landsliðsfyrir-
liðans, og hann skoraði af öryggi. Þá
voru þrjár mínútur til leiksloka. Leik-
tímainn leið en nokkrar tafir höfðu
orðið vegna meiðsla. Nottingham For-
est fékk hornspyrnu og stóri Larry
Lloyd kom upp í vítateiginni. Þrumu-
skalli hans næstum reif netmöskvana í
marki Grasshoppers. 4—1 og mikil
ánægja á City Ground. Áhorfendur
höfðu ekki miklu að fagna framan af
en þess meira í lokin.
Eftir þessi úrslit ætti Nottingham
Forest að hafa alla möguleika á að
komast i undanúrslit Evrópukeppninn-
ar — og líklegt að önnur lið þar verði
Glasgow Rangers, Wisla Krakow og
Austria, Vínarborg. Forest stendur
bezt að vígi allra þessara liða. Rangers
tapaði með eins marks mun í Köln —
Wisla vann Malmö 2—1 heima og
Austria hefur tveggja marka forskot á
Dynamo Dresden. En það getur allt
skeð í knattspyrnu og því til litils að
vera meðspádóma fyrirfram.
í fyrstu umferð Evrópubikarsins
sigraði Nottingham Forest Evrópu-
meistarana Liverpool og hefur síðan
verið talið sigurstranglegasta liðið i
keppninni. Ungi miðherjinn Gary Birtl-
es átti mjög góðan leik í gær — skoraði
fyrsta mark Forest og það var 21. mark
hansáleiktímabilinu.
Gert Miiller
til USA
Einn frægasti knattspyrnumaður
Vestur-Þýzkalands — markakóngurinn
mikli, Gerd Múller, hefur gert samning
við bandaríska knattspyrnufélagið Fort
I.auderdale Strikers á Florida. Múller
byrjar að leika með liðinu í vor og
samningur hans gildir í tvö og hálft ár.
Ekki var getið hvað hann fær í sinn
hlut — en það eru áreiðanlega miklir
peningar. Gerd Múller er mesti marka-
skorari sem um getur í þýzkri knatt-
spyru. Hann hefur um langt árabil
leikið með Bayern Múnchen — og var
fastamaður í vestur-þýzka landsliðinu.
Hefur þó ekki leikið með því siðan
Vestur-Þjóðverjar urðu heimsmeistarar
1974.
Meðal kunnra leikmanna hjá Fort
Lauderdale má nefna Gordon Banks,
fyrrum landsliðsmarkvörð Englands.
Spænsku knattspyrnumennirnir, sem
fóru í verkfall um síðustu helgi, verða
sviptir 10% af fastakaupi sínu — eftir
þvi, sem tilkynnt var frá aðalstöðvum
spænsku félaganna í gær. Verkfallið
hafði það í för með sér að 39 leikjum i
1. og 2. deild var frestað. Þó þessi til-
kynning hafi komið í gær er þó ekki
talið víst að félögin muni láta jafnt yfir
alla leikmenn sína ganga. Talið að er-
lendu stjörnurnar eins og Kempes,
Krankl, Neeskens og Bonhof muni
njóta forréttinda hjá félögum sínum —
Barcelona og Valencia.
Ray Kennedy, enski landsliðsmaðurinn hjá Liverpool, með Evrópubikarinn. Síðustu tvö árín hefur Liverpool sigrað i
keppni meistaraliða — Graeme Souness til hægri og stjórí Liverpool, Bob Paisley, neðst á myndinni.
Badmintontímar
hjá Leikni
Badmintontímar hjá Leikni eru á lausu.
Fjölskyldutímar, kvcnnatímar og unglingatímar
fram til vors. Upplýsingar veitir Magnús Sigtryggs-
son, formaður handknattleiksdeildar Leiknis í síma
71335.
Manch. City fór illa að
ráði sínu á Maine Road
— Duisburg vann athyglisverðasta sigurinn í UEFA-keppninni.
Sigraði Honved í Budapest
Leikmenn Man. City fóru illa að ráði
sinu, þegar þeir léku við Borussia Mön-
chengladbach á Maine Road í UEFA-
bikarnum í gærkvöld. Þrátt fyrir nær
látlausa sókn Manchester-liðsins nær
allan leikinn náði það aðeins jafntefli
1—1. Mike Channon skoraði fyrir City
á 29. mín. og staðan var 1—0 í hálfleik.
Belgía vann
Holland 2-1
Belgía sigraði Holland 2—1 í 3. riðli
forkeppni knattspyrnunnar fyrir
ólympíulcikana í Moskvu. Leikurinn
var háður í Roosendaal í Hollandi og
þótti heldur slakur. Vinstri útherji
Belgíu Hoste, sem leikur með Tonger-
en, skoraði fyrsta mark leiksins á 13.
min. Holland jafnaði á 25. mín. þegar
Mark Hakkens skoraði að löngu færi. í
siðari hálfleiknum skorti Hollendinga
greinilega úthald eftir 11 vikna hlé í
Hollandi — og átta minútum fyrir
leikslok tryggði Hoste sigur Belgíu.
I síðari hálfleiknum tókst Lienen að
jafna fyrir Borussia, til mikilla von-
brigða fyrir 39.005 áhorfendur.
Leikmenn City geta sjálfum sér um
kennt að ná ekki góðum sigri — eink-
um þó Asa Hartford. Hann fékk tæki-
færin. Eitt sinn komst hann frír í gegn
— markið galopið en á einhvern furðu-
legan hátt tókst honum að spyrna
knettirium í stöng og þaðan hrökk
knötturinn út á völlinn aftur. Dagar
Manch. City eru sennilega taldir í þess-
ari keppni. Það verður erfitt að halda
Borussia í Mönchengladbach. í um-
ferðinni á undan sigraði Man. City
Standard Liege.
MSV Duisburg náði beztum árangri í
UEFA-keppninni í gær. Tókst að sigra
Honved 3—2 í Budapest. í síðustu um-
ferð sigraði Honved hið sterka hol-
lenzka lið Ajax, Amsterdam, en leik-
menn Duisburg gáfu ekki eftir í gær.
Staðan i hálfleik var 1 — I. Varga skor-
aði fyrir Honved en Worm fyrir Duis-
burg. Worm skoraði aftur en Wimper
jafnaði úr vítaspyrnu. Það virtist stefna
í jafntefii en fimm mínútum fyrir leiks-
lok tókst Seliger að tryggja sigur þýzka
liðsins með góðu marki. Áhorfendur 25
þúsund.
í sömu keppni léku Rauða stjarnan
og West Bromwich Albion í Belgrad í
Júgóslavíu. Rauða stjarnan sigraði
með marki Dusan Savic en það var ein-
mitt mark hans, sem sló Arsenal út úr
keppninni í umferðinni á undan. WBA
ætti þó að hafa alla möguleika að kom-
ast í undanúrslit.
Fjórði leikurinn í UEFA-keppninni
var í Berlín. Þar gerðu Hertha, Vestur-
Þýzkalandi, og Dukla Prag jafntefli
1 — 1. Dukla, sem fyrr í keppninni sló
Everton út, náði forustu með marki
Pelc á 44. mín. Nússing jafnaði á 51.
mín. og þar við sat. Áhorfendur 25
þúsund.
Firmakeppni UMFK
Ungmennafélag Keflavíkur gengst fyrir firma-
keppni í innanhússknattspyrnu dagana 17. og 18.
marz næstkomandi. Þátttökutilkynningar þurfa að
berast fyrir þriðjudaginn 13. marz í síma 2062 —
milli kl. 13—15 á daginn. Þetta er í fyrsta sinn, sem
UMFK gengst fyrir firmakeppni sem þessari.
Islandsmet
íbaksundi
— Hugi Harðarson, Selfossi,
synti 200 metra baksund á
2:18.4 mfn. Bætti íslandsmet
sitt um tvær sekúndur
Sundmóti Ægis lauk í Sundhöllinni í gærkvöld.
Hugi Harðarson Selfossi setti nýtt íslandsmet i 200
m baksundi. Synti á 2:18.4 mín. Tvö unglingamet
voru sett. Þóranna Héðinsdóttir, Ægi, synti 400 m
fjórsund á 5:38.4 mín. og Eðvald Þ. Eðvaldsson,
ÍBK, 400 m skriðsund karla á 5:10.0 mín. Sonja
Hreiðarsdóttir, Ægi, sigraði i fjórsundinu á 5:32.1
mín. og Bjarni Björnsson. Ægi, í 400 m skrið-
sundinu á 4:16.5 mín. Hann var 2.5 sek. frá íslands-
meti sínu. Brynjólfur Björnsson, Ármanni, varð
annar á 4:22.5 min. og Hugi Harðarson, Selfossi,
þriðjiá 4:25.0 mín.
Helztu úrslit í kcppninni urðu þessi 200 m bringu-
sund kvenna. 1. Sonja Hreiðarsdóttir 2:50.0 mín. 2.
Margrét Sigurðardóttir, UBK, 2:59.2 mín. og 3. Elín
Unnarsdóttir, Ægi, 3:01.5 mín.
200 m bringusund karla 1. Ingólfur Gissurarson,
ÍA, 2:38.4 mín. 2. Sigmar Björnsson, ÍBK, 2:41.0
mín. 3. Ari Haraldsson, KR, 2:45.5 mín.
100 m skriðsund kvenna. Margrét Sigurðardóttir,
UBK, 1:05.2 mín. 2. Ólöf Sigurðardóttir, Selfoss,
1:06.7 mín. 3. Lilja Vilhjálmsdóttir, Ægi, 1:09.0
mín.
100 m flugsund karla. Ingi Þór Jónsson, ÍA,
1:03.9 min. 2. Bjarni Björnsson. Ægi, 1:04.3 min. 3.
Brynjólfur Björnsson, Á, 1:04.5 mín.
50 m bringusund meyja. 1. Guðrún Ágústsdóttir,
Ægi, 41.4 mín. 2. Jón B. Jónsdóttir, Æ. 45.6 mín.
50 m flugsund sveina. Ólafur Einarsson, Ægi, 36.3
sek. Guðmundur Gunnarsson, Ægi, 39.5 sek.
200 m baksund kvenna. 1. Sonja Hrciðarsdóttir
2:39.2 mín. 2. Þóranna Héðinsdóttir 2:41.7 mín. 3.
Anna Jónsdóttir, Ægi, 2:48.6 mín.
200 m baksund karla 1. Hugi Harðarson, Selfoss,
2:18.4 mín. íslandsmet. Fyrra metið átti hann
sjálfur, 2:20.3 mín. sett í fyrra. 2. Bjarni Björnsson
2:24.4 mín. 3. Ingi Þór Jónsson, ÍA, 2:26.2 mín.
Sveitir Ægis sigruðu í 4 x 100 m fjórsundi kvenna og
4 x 100 m skriðsundi karla.
Sþróttir
KR-sigur í 2. deild
KR treysti forustu sína í 2. deild i íslandsmótinu i
handknattleik karla, þegar liðið sigraði Stjörnuna
18—17 í Laugardalshöll í gærkvöld. Kristinn Inga-
son skoraði sigurmark KR á lokamínútu leiksíns. í
hálfleik hafði Stjarnan-náð þriggja marka forskoti
11—8 en missti það niður i síðari hálflcik.
Björn Pétursson var markhæstur KR-inga með
fimm mörk. Símon Unndórsson skoraði fjögur. Hjá
Stjörnunni voru Hörður Hilmarsson og Magnús
Teitsson markhæstir með fjögur mörk hvor.
KR hefur nú 18 stig í 2. deild eftir 13 leiki. Þór
Akureyri er í öðru sæti með 15 stig eftir 11 leiki og
Ármann hefur 14 stig eftir 12 leiki.
BEVEREN HÉLTIÖFNU
GEGNINTER í MÍLANÓ
— Ipswich sigraði Barcelona 2-1 í Evrópukeppni bikarhafa
Beveren, sem er í efsta sæti í 1. deild-
inni í Belgíu, náði mjög athyglisverðum
árangri í Evrópukeppni bikarhafa í
Miiano í gær. Tókst að ná jafntefii
gegn hinum frægu leikmönnum Inter
Milano — og það þrátt fyrir gífurleg
hróp 53 þúsund áhorfenda. Beveren lék
sterkan varnarleik og belgíski landsliðs-
markvörðurinn Jean-Maríe Pfaff var
frábær í marki Beveren, sem nú hefur
alla möguleika að komast i undanúrslit
keppninnar.
Útlitið er ekki eins gott hjá Ipswich
Town, ensku bikarmeisturunum, í
sömu keppni. Ipswich tókst aðeins að
sigra Barcelona 2—1 í Ipswich i gær og
það nægir varla til, þegar liðin leika að
nýju í Barcelona eftir tæpan hálfan
mánuð. Leikurinn var harður og grófur
— áhorfendur 28 þúsund. Á 51. mín.
tókst Eric Gates að skora fyrsta mark
leiksins eftir góðan undirbúning fyrir-
liða Ipswich, Mick Mills, sem Iék upp
kantinn og gaf fyrir. Aðeins þremur
mín. síðari jafnaði Esaban Vigo fyrir
Barcelona — en Austurríkismaðurinn
Hans Krankl átti alveg það mark. Á 61.
mín. tókst Ipswich að skora aftur —
Eric Gates — og fleiri urðu ekki
mörkin í leiknum. Það munaði miklu
hjá Ipswich, að Paul Mariner lék ekki
— er í leikbanni — og heldur ekki
Kevin Béattie.
í fyrra léku Ipswich og Barcelona í
UEFA-keppninni. Ipswich vann þá 3—
0 heima — en tapaði svo með sama
mun í Barcelona. Spánska liðið komst
svo áfram eftir vítaspyrnukeppni.
Svissneska liðið Servette Genf hefur
góða möguleika að komast í undan-
úrslit í Evrópukeppni bikarhafa. Það
náði jafntefli i gær í Dusseldorf,
Vestur-Þýzkalandi. Ekkert mark var
skorað og áhorfendur aðeins 9000.
Servette lék sterkan varnarleik — en þó
fékk Dússeldorf góð tækifæri til að
skora. Húbert Schmitz komst frír í
gegn í fyrri hálfleik en spyrnti yfir — og
sama leik lék varamaðurinn Rudi
Bommer í þeim síðari. Mestu mistökin
voru þóá 83 min. Dússeldorf fékk víta-
spyrnu en Gerd Zimmermann spyrnti
knettinum hátt yfir þverslána.
i fjórða leiknum í þessari keppni
tókst Magdeburg, Austur-Þýzkalandi,
að sigra Banik Ostrava, Tékkó-
slóvakíu, 2—1 í Magdeburg. Austur-
þýzki landsliðsmaðurinn Joakim
Streich skoraði bæði mörk Magdeburg
en Antalik mark Banik. Streich skoraði
fyrra mark sitt eftir fjórar mínútur og
hið síðara á 20. min. úr vitaspyrnu. 2—
0 og í örvæntingu skipti tékkneska liðið
um markvörð. Macek kom í stað
Schumaker, sem hafði virkað mjög
taugaóstyrkur. Þetta Vieppnaðist.
Banik fékk ekki á sig fleiri mörk — og
var reyndar óheppið að ná ekki jafn-
tefli eftir að Antalik hafði skorað
snemma í síðari hálfleik.
Dundee Utd.
í ef sta sæti
Dundee Utd. skauzt upp í efsta sæti í
úrvalsdeildinni á Skotlandi í gær, þegar
liðið vann stórsigur á neðsta liðinu
Motherwell. Sigraði 4—0 í Motherwcll.
Staða efstu liða er nú þannig.
DundeeUtd. 22 9 7 6 30—20 25
St. Mirren 22 10 5 7 27—21 25
Aberdeen 23 7 10 6 35—24 24
Rangers 21 8 8 5 27—21 24
en Celtic, sem aðeins er i áttunda sæti
af tíu liðum, hefur (apað fæstum
stigum. Hefur 21 stig eftir 19 leiki —
tapað 17 stigum, en Rangers hefur
tapað 18 stigum. St. Mirren og Dundee
Utd. 19 stigum.
undanúrslitin
Forest stef nir í