Dagblaðið - 08.03.1979, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 08.03.1979, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1979. „Við stefnum hiklaust að rekstri sumarhótelsins að Flókalundi næsa sumar, hvort sem hótelið verður leigt Þaðvantar auglýsingakassa á Eskifirði Bæjarstjórn Eskifjarðar boðaði til almenns fundar um fjárhagsáætlun bæjarins i ár og var fundurinn í Valhöll 4. marz. Á fundinn mættu um 30 manns og gerðu margir fyrirspurnir um fjárhags- áætlunina. Allir fengu greið svör hjá Ásgeiri bæjarstjóra og bæjarfulltrúum, sem allir voru mættir. Er þetta í fyrsta sinn sem boðað er til almenns fundar um fjárhagsáætlun Eskifjarðar. Er það framtak lýðræðislegt og vonandi verður fram- hald á. En hinni ungu bæjarstjórn má benda á að nauðsynlegt er að koma upp auglýsingakössum í miðbænum. Það er óþolandi að aðeins sé auglýst innan um álnavöruna í „Pöntó” og á litlum miðá í búðardyrum. Fólk tekur ekki eftir slíku eins og oft hefur komið i ljós. Margir eru leiðir yfir að hafa ekki af fundinum vitað og þar hefði verið fjölmenni eins og í kirkjunni rétt áður, því aldrei þessu vant átti fólk fri frá loðnu og útskipun. -Regína/ASt. eða selt,” sagði Heimir Hannesson, formaður Ferðamálasjóðs, í viðtali við DB eftir að uppboð fór fram á eigninni í fyrradag og allt sýnist stefna í að sjóðurinn eignist hótelið. Sjóðurinn tók á sinum tima einnig veð í Bjarkarlundi vegna skuldar félagsins í heild, en Heimir sagði að sjóðsstjórnin hafi gefið það loforð, er dró að uppboði Flókalundar, að eigi skyldi gengið að Bjarkarlundi í sömu andránni. Eftir að síðasta uppboð á Flóka-, lundi hefur farið fram, 20. þ.m. verður væntanlega farið að ræða um þau mál. Með þessu tók sjóðurinn visst tillit til átthagafélagsins, sem byggði Bjarkarlund upp. Sagði Heimir að sjóðsstjórn hafi ekki verið ljúft að taka ákvörðun um uppboð, en lögum samkvæmt bæri sjóðnum að líta á þetta frá bankalegu sjónarmiði og hafi hann ekki séð sér færtað frekari tilslakanir. í fljótu bragði sýndist Heimi enginn kaupandi vera í sjónmáli. Er hann var spurður hvort sjóðurinn leigði ef til vill Gesti hf. hótelið, taldi hann það ólíklegt og hefði fyrirtækið ekki nefnt neitt slíkt. Hins vegar sagði hann sjóðinn vera fúsan til samstarfs við einhverja heimamenn, er áhuga hefðu. -GS. Ekki nema sáralítið brot af þeim fíkniefnum sem eru i umferð nást af yfirvöldum — eins og þessi taska, sem í voru þrjú kíló af kókaini, tvö af heróini, eitt af hráu ópíum og nokkur hundruð grömm af hassi. Andvirðið á götumörkuðum er geigvænlegt — allt að þvi „stjarnfræðilegar” tölur. Formaður Ferðamálasjóðs um örlög Flókalundar: STEFNUM HIKLAUST AÐ REKSTRIÁFRAM — æskilegt að leigja heimamönnum Er samband milli Mexíkóferðar 2ja íslendinganna og kókaínsins? Yfirheyrslurnar yfir íslendingun- um sjö sem í varðhaldi sitja í Kaup- mannahöfn beinast fyrst og fremst að því að fá vitneskju um hvaðan þau fíkniefni eru fengin sem fundust í fórum þeirra og á hótelinu er þeir bjuggu á. Yfirheyrslur fara fram á hverjum degi og ötullega og hratt virðist gengið fram í málinu af lögreglunnar hálfu. Eftir þvi sem DB hefur frétt mun Sigríður Brynja Pétursdóttir, eigin- kona Sigurðar Þórs, hafa sagt við yfirheyrslurnar að tengdaforeldrar hennar (foreldrar Sigurðar) séu vön að dvelja vetrarmánuðina í Mexíkó. Þeim Sigurði og Sigríði var svo boðið þangað og komu úr Mexíkóferðinni síðast í janúar. Rannsókn beinist að því að kanna hvort samband sé á milli Mexíkófarar þeirra og fíkniefnanna sem fundust. DB minnir á að enginn íslending- anna hefur enn játað nokkuð af á- sökunum um sölu og dreifingu fíkniefna. En að þeim er þjarmað með yfirheyrslum og lögreglan vill fá skýringar á ýmsu. -ASt./H. Pétursson, Khöfn. (Jr skeiðum af þessu tagi taka menn gjarnan kókain i nefið. Það er algengasta aðferðin við neyzlu efnisins, en einnig er hægt að sprauta því í neytandann. Kókaínverð mismunandi íDanmörku í sambandi við þær fréttir, sem komið hafa fram í íslenzkum fjölmiðlum af einingarverði kókaíns er rétt að fram komi að verðið er ýmsu háð. Talið er að grammið af hreinu kókairi gangi i Danmörku á 1200 kr danskar. En ef kaupándi kýs fremur heild- sölu, þ.e. kaupi hann 30 grömm á einu bretti, þá er talið að eining- arverð grammsins sé 500 kr. danskar. Það fer því eftir því hvernig selt er, hver ágóði selj- andans verður. HP, Kaupmannahöfn. Líka veð í Bjarkarlundi fyrir 40 milljóna skuld Flókalundar: Upphaflegu skuldirnar sjöfaldaðar segir stjórnarformaður um gengistryggð lán Ferðamálasjóðs „Það lætur nærri að upphafleg skuld við Ferðamálasjóð hafi sjöfaldazt vegna gengistryggingar og nú nemur gjaldfallin skuld vegna Flókalundar liðlega 40 milljónum með vöxtum. Á þáeftir að framreikna eftir'- stöðvar til núgildis af þeim 9 milljónum sem sjóðurinn lánaði okkur á árunum ’68 til ’73,” sagði Vikar Davíðsson, stjórnarformaður Gests hf., sem rekur sumarhótelin Flókalund og Bjarkar- lund. Þá gat hann þess að sjóðurinn hefði líka tekið veð í Bjarkarlundi vegna lána til Flókalunds, þannig að óljóst sé hvort gengið verði að þeim stað lika. Sagði hann rekstur þessara staða aldrei hafa verið hugsaður sem gróðavegur, heldur byggður upp af áhugamennsku: „hverju naglafari í Bjarkarlundi fylgir svitadropi áhugamanns. Það má reka þetta með að róa á grásleppumið,” sagði Vikar um rekstrargrundvöllinn, og átti þar við að slíkur rekstur gæti ekki gengið öðruvísi en róið væri með löndum, hann stæði ekki undir afborgunum af lánum. Ekki kunni Vikar að svo stöddu að greina frá neinum ráðum til að koma í veg fyrir að Flókalundur yrði endan- lega seldur á uppboði, en allar hugs- anlegar leiðir verða kannaðar á næstunni. Aðaleigandi - Gests hf. er Barðstrendingafélagið. -GS. fslendingamir sjö hafa ennjfá ekkert játað — Franklin og Sigurður Þór biínir að hafa bflaleigubfl saman á leigu fallt að ári Hótelið Fimm svanir hefur verið heimkynni Guðrúnar Ragnarsdóttur, Franklíns Steiners, Margrétar Ágústs- dóttur, Sigurðar Þórs Sigurðssonar og konu hans Sigríðar Brynju Pétursdótt- ur í allan vetur. Þangað kom svo Róbert Glad er hann losnaði úr þýzku fangelsi. Þeir Franklín Steiner og Sigurður Þór Sigurðsson hafa í allt að einu ári haft á leigu bílaleigubí! sem þeir eru báðir skráðir fyrir. Hótelið Fimm svanir virðist hafa verið einhver miðstöð íslendinga. Meðan lögreglan var þar við húsrann- sókn.er handtakan fór fram, komu tveir íslendingar í heimsókn i hótelið. Lögreglan tók þá báða tali, en þeim var síðan sleppt. Lögreglan telur að þeir hafi báðir þá þegar haldið til Sviþjóð- ar. Er lögreglan nú að vinna að hver tengsl þeirra séu við málið. ASt./H. Pétursson, Khöfn. Lögreglan tortryggin vegna fyrri af brota Róberts Glad og Sigurðar Þórs Sigurðssonar ífíkniefnamálum Enginn íslendinganna sjö, sem handtekinn var í Kaupmannahöfn i sambandi við kókaínmálið á dögunum, hefur enn játað nokkurri sakargift. Málið er því enn á sama eða svipuðu stigi og þegar handtakan fór fram fyrir helgina. Ljóst er að Róbert Glad, Guðrún Ragnarsdóttir kona hans og Sigurður Þór Sigurðsson, virðast standa í versta hluta málsins, enda voru þau þrjú úr-' skurðuð í 27 daga varðhald. Hin þrjú, Franklin Steiner, Valtýr Þórðarson og Sigriður Brynja Pétursdóttir, kona Sigurðar Þórs, munu sennilega öll sleppa úr varðhaldi í dag, fimmtudag. Það eru einkum fyrri tengsl og af- brot á sviði fíkniefnamála sem skapa hina slæmu stöðu Róberts, Guðrúnar og Sigurðar Þórs í málinu. Róbert var í fyrrahaust dæmdur fyrir fikniefna- smygl í Þýzkalandi og hlaut ársfang- elsisdóm fyrir. Honum hefur verið sleppt fyrir góða hegðun. Sigurður Þór Sigurðsson var viðriðinn stórmál á fíkniefnasviði í Danmörku á sl. ári og er að auki núna nýlega kominn frá Mexikó. Það veldur mikilli tortryggni af hálfu lögreglunnar. ASt/H. Pétursson í Khöfn. Bjuggu íallan vetur á hótel Fimm svanir

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.