Dagblaðið - 08.03.1979, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 08.03.1979, Blaðsíða 24
DRENGIR BRUTU VEGG BIRGÐAGEYMSLU ÁTVR —voru að bera út vínbirgðir í næsta húsi við lögreglustöðina er vegfarandi gerði viðvart Lögreglumaður lýsir með vasaljósi inn um 12 cm þykkan vegginn, sem strákarnir brutu gat á og báru sfðan vlnið út um. Tveir 14 og 15 ára piltar brutust, i orðsins fyllstu merkingu, inn í birgðageymslu ÁTVR á Ártúnshöfða í gærkvöldi. Höfðu þeir áður brotizt í tvo vinnuskúra og stolið þar verk- færum, sleggju, hamri, vasaljósi o.fl. og með verkfærin að vopni lögðu þeir að vesturvegg birgða- geymslunnar. Á vegginn rifu þeir gat fyrst á as- bestklæðninguna en lögðu síðan til atlögu við 12 cm þykkan járnbentan steinvegg hússins. Á hann brutu þeir gat svo inn varð komizt. Hófu þeir síðan að bera út áfengi, aðallega tindavodka og kokkteil. Vegafandi gerði lögreglunni aðvart en lögreglustöð er í næsta húsi við birgðageymslu ÁTVR. Þar hafði eng- inn heyrt sleggjuhögg og var það skýrt með því að samtímis og inn- brotið var framið var veghefill að ryðja svæðið. Einn lögreglumaður var á vakt i Árbæ, hinir tveir í eftir- litsferð. Kallað var á liðsauka jafnframt því sem farið var til atlögu við drengina. Annar þeirra lagði þegar á flótta en náðist á Vesturlandsvegi. Hinn gerði sig líklegan að leggja til atlögu við lögregluna með flösku, en til átaka kom ekki. Samkvæmt lögregluskýrslum höfðu strákarnir borið út 12 flöskur tindavodka og 21 af kokkteil. Flösk- ur fundust í snjóskafli við húsið og eiga kannski eftir að finnast fleiri. Lengi var haldið að þriðji strákur- inn værí inni í húsinu og mikið leitað, en enginn fannst. Málið er í rannsókn hjáRLR. -ASt. m ■ -........... ► Með sleggjur og harnra að vopni brutu piltarnir tveir gat á vegginn. Lögreglu- maður fyrir utan i hríðarkófinu i gær- kvöld með hluta af ránsfengnum. DB-myndir Sv. Þorm. „ Allir kratar gegn þingrofi” „Það er mitt mat að allir kratar muni greiða atkvæði gegn þing- rofstillögu sjálfstæðismanna,” sagði Finnur Torfi Stefánsson alþingismaður (A) í morgun. ,,Ég held að í rauninni vilji enginn stjórnmálaflokkanna þingrof.” Tillaga sjálfstæðismanna yrði þá kolfelld við atkvæðagreiðslu á þinginu í dag. Umræður um hana stóðu fram á nótt en atkvæða- greiðslu var frestað. -HH. Haldafastvið kærurnar Rannsókn nauðgunarmálsins frá í fyrrinótt er fram haldið. .Stúlkurnar tvær sem kærðu sama imanninn fyrir nauðgun halda fast við kærur sínar. Maðurinn ber við minnisleysi sakir ölvunar. Hann situr inni án úrskurðar um varðhald, því hann var á skilorði fyrir afplánun annars dóms. -ASt. I I FLOKALUNDUR BOÐINN UPP í gær var haldið uppboð á sumarhót- elinu Flókalundi, sem staðsett er utar- lega á Barðaströnd, norðanvert við Breiðafjörð og er í eigu Gests h.f., sem Barðstrendingafélagið er aðalhluthafi i. Hæst bauð Ferðamálasjóður í eign- ina, 25 milljónir króna, en uppboðið var haldið að hans kröfu. Krafðist sjóðurinn útlagningar sem ófullnægður veðhafi, sem þýðir að sjóðurinn á hærri kröfur i staðinn en 25 milljónir. Einn aðili á Vestfjörðum bauð einnig, en mun lægra. Fulltrúar Gests h.f. fóru fram á ann- að og síðasta uppboð, sem haldið verður innan tíðar, eða eftir svo sem hálfan mánuð, að sögn Jóhannesar Árnasonar, sýslumanns á Patreksfirði, í fyrrakvöld. Hótelið er m.a. byggt upp fyrir lán úr Ferðamálasjóði, er fengust á árun- um '72 og ’73 og eru þau lán bundin vísitölu og erlendu gengi, svo vísast eru þau nú mun hærri en þau voru í upp- hafi, þrátt fyrir afborganir. Sumarhótelið í Flókalundi er vel í sveit sett og i augum margra Vestfirð- inga er staðurinn nokkurskonar Þing- vellir, eins og íbúar SV-lands líta á þá. Alþýðusamband Vestfjarða er einnig að byggja upp orlofsheimili í næsta ná- grenni og eru þau m.a. hugsuð út með tilliti til þeirrar þjónustu, sem fáanleg er í Flókalundi 3 mánuði ársins. 25 milljónir eru aðeins brot þess, sem nú mundi kosta að byggja upp slíkan stað. að söan kunnugra. -GS. —Sjá einnig á bls. 8. íhlaupaverkamenn á Neskaupstað telja Sfldarvinnsluna hf. hafa hlunnfarið sig um langt skeið: Útskipun loðnumjöls Mií i/||A — 2skipumvísaðfráogekkert BaU ^lUUwUU unniðfyrrensamningarnást íhlaupaverkamenn á Neskaupstað (Norðflrði) hafa nú stöðvað útflutn- ing loðnumjöls og snúið tveim skipum frá, því síðara i gærmorgun. Tvö skip hafa verið afgreidd með semingi og sérsamningum síldar- vinnslunnar við verkamennina síðan á laugardag, að uppúr sauð. Fóru þá verkamenn í lest (þarererf- iðasta vinnan) að bera laun sin saman við fastráðna starfsbræður sína á Reyðarfirði og Seyðisfirði. Niðurstaðan var að miðað við fjölda manna í gengi og aðrar aðstæður voru þeir verulega undirborgaðir miðað við hina. Krafa lestarmanna er 22% launa- hækkun og er hún studd af bryggju- mönnum, sem álita rétt að þeir hafi meiri laun, enda vinni þeir mun erfið- ari vinnu. Þau 2 skip, sem afgreidd hafa verið, sluppu fyrir horn þar sem Síldarvinnslan greiddi í öðru tilvikinu 17% álag til lestarmanna, en í hinu 12%. Að sögn verkamanns, er ávallt skírskotað til samninga frá 1974 en þeir finnast ekki i fórum Sildarvinnsl- unnar, þótt fyrirtækið vUji greiða eftir þeim. Þá eru verkamenn óhressir yfir að lesta hvaða skip sem er, með tilliti til öryggis um borð. Með skömmu milli- biU hefur það skeð að ónýtur vír hefur slitnað og annars vegar bóma brotnað með þeim afleiðingum að bretti hafa hrunið ofan í lest. í báðum tilvikunum hefur vUjað svo vel til að enginn varð undir. Staða málsins var sú, seint í gær- kvöldi, að kæmi skip í dag, yrði því vísað frá unz botn fæst í málið þar sem verkamenn telja Síldarvinnsluna hafa hlunnfarið sig i launum um langt skeið. -GS. frjálst, úháð dngblnð FIMMTUDAGUR 8. MARZ1979. Farþega- rýmiö fylltist afreyk — skömmu eftir flugtak FÍ-vélará Keflavíkurflugvelli Skömmu eftir flúgtak Flugleiðavélar á leið til Kaupmannahafnar frá Kefla- vikurflugveUi í gærmorgun, gaus skyndilega upp mikill reykur í vélinni. Mikil snjókoma var á vellinum þegar vélin fór af stað. Reyknum fylgdi megn óþefur og komst talsvert rót á farþega vegna þessa. „Sannast sagna var fólk dauðhrætt,” sagði einn blaðamanna DB, sem var i flugvélinni. „Konur ráku upp skræki og karlar glottu eins og þeir væru hetjur. Flugfreyjurnar gengu um brosandi og tilkynntu að ekkert væri að. Flugstjórinn tilkynnti síðan í gegn- um hátalarakerfið, að snjór hefði farið í loftinntökin í farþegarýmið og press- urnar brætt úr sér,” sagði DB-maður- inn. Þetta olli um klukkustundar töf í Glasgow, þar sem vélin millilenti á leið- inni til Kaupmannahafnar, en reykur- inn hvarf fljótlega úr farþegarýminu. _______________-ÓV/HP. Skákmótið íMiinchen: Friðrik og Guðmundur töpuðu báðir í gær Það gekk illa hjá islenzku skák- mönnunum á alþjóðlega skákmótinu í Múnchen í gær. Friðrik tapaði fyrir Þjóðverjanum Pfleger og Guðmundur tapaði fyrir Austurríkismanninum Robatsch. Nokkur sárabót var að efsti maður mótsins, fyrrum heimsmeistari Boris Spassky tapaði fyrir einum af hinum minni spámönnum mótsins, Þjóðverjanum Lieb. Spassky heldur þó enn forystunni i mótinu með 6 vinninga úr 9 skákum. Næstur kemur Anderson með 5 1/2 vinning, þá Húbner með 5 og þeir Friðrik og Pachman með 4 1/2 vinning. Guðmundur sem er með neðstu mönnum á þessu sterka skák- móti hefur hlotið 2 1/2 vinning. -GAJ- Nöf n piltanna sem fórust Piltarnir, sem fórust í snjóflóðinu í Esju í fyrradag, hétu Stefán Baldurs- son, Tómararhaga 22, og Sveinbjörn Beck, Brávallagötu 18. Báðir voru nemendur í Menntaskólanum í Reykjavík.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.