Dagblaðið - 08.03.1979, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1979.
23
BÆJARINS
BEZTU
Stutt kynning á þvf athyglis-
verðasta sem kvikmyndahús
borgarinnar bjóða upp á
litvarp
Sjónvarp
— og útrýmingu nasista á Gyðingum
D
VfÐSJÁ - útvarp í kvöld kl. 22,55:
Fjallao um sjónvarps-
þáttinn HOLOCAUST
í Víösjá í kvöld mun Friðrik Páll
Jónsson fjalla um sjónvarpsþættina
Holocaust sem sýndir hafa verið í
Bandaríkjunum, Frakklandi og Þýzka-
landi að undanförnu og vakið geysilega
athygli.
Holocaust þýðir brennifórn og átt er
við hina skipulögðu útrýmingu sem
nasistar framkvæmdu á Gyðingum.
„Ég mun tala um þessa útrýmingu,”
sagði Friðrik Páll, „og ekki síður um
„rasismann”, þ.e. kenningar nasista
um hinn hreina kynþátt.
Búið er að gera margar myndir um
þessa atburði áður en engin þeirra hefúr
vakið slíka athygli sem þessi. Þátturinn
hefur alls staðar vakið mikla athygli en
þó hvergi eins og í Þýzkalandi. Síminn
hefur ekki þagnað í þeim sjónvarps-
stöðvum sem hafa tekið þáttinn til sýn-
ingar því mjög margir hafa viljað koma
á framfæri sinni eigin reynslu af þessu
tímabili. Þá hefur lögreglan orðið að
gæta þessara sjónvarpsstöðva vegna
þess að mótmælendur hafa gert
sprengjuárás á eina þeirra stöðva sem
sýndu þáttinn.
Friðrik Páll mun einkum fjalla um
hinar sögulegu forsendur fyrir þessari
útrýmingu. -GAJ-
...
Úr Aguirre — reiöi Guðs. Klaus Kinsky fyrir miöju.
Aguirre — reiði guðs.
Leikstjóri Wemer Herzog. Gerð (Þýzkalandi 1972.
Sýningarstaður: Tjamarfaió laugardag kl. 2.
Aguirre er talin ein af merkustu myndum Herzog. Hún var tekin
í Perú við mjög erfiðar aðstæður, m.a. þurfti Herzog að beina
byssu að Klaus Kinsky, sem fer með eitt aðalhlutverkið, til þess að
hann léti að stjórn. Myndin fjallar um leiðangur spánskra ævintýra-
manna á flekum niður eftir Amazonfljóti í leit að hinni týndu
gullborg EI Dorado. Einn leiðangursmanna gerir uppreisn og lýsir
undirmann sinn keisara yfir Perú. Leiðir hann menn sína siðan í
glötun.
Myndin er undurfögur á að horfa og hljóðbandið er mjög vel
notað, t.d. þagna fuglarnir alltaf þegar indíánar eru nálægir. Mynd
þessi átti mikinn þátt í því að bera orðstír Herzogs út um allan heim
og var m.a. sýnd samfleytt í 18 mánuði í París. Þá þykir rétt að
geta þess að í myndinni er tvisvar vitnað í íslendingasögurnar.
Rakkarnir
Leikstjóri: Sam Peckinpah. Gerð í Englandi 1971.
Sýningarstaður: Hafnarbió.
Aðdáendur Sam Peckinpah hafa ekki þurft að kvarta því undan-
farið hafa verið sýndar þrjár myndir eftir hann í kvikmyndahúsum
borgarinnar. Valdir vígamenn voru í Tónabió, Regnboginn er enn
að gatslíta Convoy og þessa dagana er Hafnarbíó að endursýna
Rakkana. Myndin fjallar um stærðfræðing og konu hans sem
dveljast í grennd við enskt sveitaþorp. Nokkrir þorparar girnast
konuna og lokka eiginmanninn á veiðar í því skyni að nauðga henni
á meðan. Út frá þessum atburði verður eitt allsherjar blóðbaðsem
er af mörgum talið eitt það viðbjóðslegasta í kvikmyndasögunni.
Amin hershöf ðingi
Leikstjóri: Barfaet Schröder. Gerð f Frakklandi 1973.
Sýningarstaður: Fjalakötturinn, k vikmyndaklúbbur.
Kvikmyndin Amin hershöfðingi er í senn fyndin og sorgleg.
Amin leikur á als oddi fyrir framan kvikmyndavélina og áhorf-
endur hlæja að uppátækjum hans en undirtónn myndarinnar er
ömurleikinn og viðbjóðurinn sem viðgengst í þessu einræðisriki.
{Háttalagi Idi Amins hefur löngum verið líkt við háttalag ofvaxins
ibarns og er það eftirtektarvert í myndinni hvernig hann tekur her-
'mennina eins og þeir væru tindátar en ekki mennskir. Það er ekki
síst merkilegt að sjá þessa mynd nú jiegar veldi hans er í mikilli
hættu. Barbet Schröder er m.a. jiekktur fyrir sína fyrstu mynd
More sem sýnd var í Gamla bíó, en Pink Floyd gerðu tónlistina við
myndina.
Innrás í eldflaugastöð 3
Leikstjóri: Robert Aldrichs. Gerð í USA1977.
Sýningarstaöur: TónabkJ.
Myndin er gerð eftir sögu Walter Wagner og fjallar um
strokufanga sem leggja undir sig mikilvægt hernaðarmannvirki.
Þeir krefjast m.a. að Bandaríkjastjórn birti leyniskýrslur um Víet-
namstríðið sem innihalda „raunverulegar” ástæður fyrir þátttöku i
þeim hildarleik. Aldrichs tekst að ná upp spennu, m.a. með ágætri
notkun á „tjaldskiptingu,”, þ.e. sýnir fleiri en eina mynd í einu á
tjaldinu. Þó að myndin geri ekki bitastæða greiningu á hernaðar-
'brölti Bandaríkjanna þá vekur hún upp spurningar um tilgang her-
stöðvará íslandi.
Lesendur eru hvattir til að senda kvik-
myndadálki DB línu, hafi þeir áhuga á ein-
hverri vitneskju um kvikmyndir og kvik-
myndaiðnaðinn. Heimilisfangið er: Kvik-
myndir, Dagblaðið, Síðumúla 12, Rvk.
LEIKRIT VIKjjNNAR - útvarp íkvöld kl. 21,20:
SNJ0M0KSTUR
í kvöld verður flutt í útvarpinu leik-
ritið Snjómokstur eftir Geir Kristjáns-
son. Því var áður útvarpað 1970. Leik-
stjóri er Helgi Skúlason en með hlut-
verkin fara Rúrik Haraldsson og Þor-
steinn ö. Stephensen. Flutningur leiks-
ins tekur um 45 mínútur.
Tveir aldraðir menn, Baldi og Líka-
frón, standa í snjómokstri uppi á heiði.
Þeir vita í rauninni ekki hvers vegna
þeir eru þar — þeim var bara sagt að
moka snjó og þar með að bill mundi
taka þá þegar dagsverkinu væri lokið.
Mennirnir tveir eru næsta ólíkir, annar
lítt skrafhreifinn en hinn hefur frá
mörgu að segja og er alveg ófeiminn
við að láta álit sitt í ljós.
Geir Kristjánsson er fæddur árið
1923 í Héðinsvík á Tjörnesi. Hann tók
stúdentspróf á Akureyri 1943 ogstund-
aði síðan nám í slavneskum málum og
bókmenntum við Uppsalaháskóla og
einnig las hann bókmenntasögu i Eng-
landi og Frakklandi. Geir var einn af
ritstjórum timaritsins Birtings. Smá-
Fimmtudagur
8. marz
12.25 Vcðurfregnir. Fréttir.Tilkynningar.
Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Þankar um umhverfi og mannlíf. Fyrsti
þáttur: Þjóölíf og híbýli fyrri alda. Umsjón Ás-
dís Skúladóttir þjóðfélagsfræðingur og Gylfi
Guðjónsson arkitekt.
15.00 Miðdegistónleikan Fílharmoníusveitin í
Vinarborg leikur „Appelsínusvituna”, hljóm-
sveitarverk op. 33a, eftir Prokofjeff.
Constantin Sivlestri stj. / Hljómsveitin
Filharmonia leikur Sinfoníu nr. 5 i D-dúr eftir
Vaughan-Williams; Sir John Barbirolli stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Tónlelkar.
16.40 Lagið mítt: Helga Þ. Stephensen kynnir
óskalög barna.
17.20 Otvarpssaga barnanna: „Bernska í byrjun
aldar” eftir Erln Þórdisi Jónsdóttur. Auöur
Jónsdóttir lcikkona les (11).
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Daglegt málÁrni Böðvarsson flytur þátt-
inn.
19.40 íslenzkir einsöngvarar og kórar syngja.
20.00 Vlð erum öU heimspekingar. Annar þáttur
Ásgeirs Beinteinssonar um lifsskoðanir og
mótun þeirra. Rætt við Jónas Gislason dósent
20.30 Frá tónleikum Sinfóniuhljómsveitar ts-
lands í Háskólabiói. Stjórnandi: Jean-Pierre
JacniUaL Einleikari: HaUdór Haraldsson. a.
Prometheus”, forleikur eftir Ludwig van
Beethoven. b. Pianókonsert nr. 4 i G-dúr op.
58 eftir Ludwig van Beethoven. — Kynnir:
ÁskeU Másson.
21.20 Leikrit: „Snjómokstur” eftir Geir Kristj-
ánsson. Áður útv. 1970. Leikstjóri: Helgi
Skúlason. Persónur og leikendur:
Baldi.....................Rúrik Haraldsson
Likafrón............Þorsteinn ö. Stephensen
22.05 Samleíkur I útvarpssal: Hafliði HaUgrims-
son og ÞorkeU Sigurbjörnsson leika saman á
selló og pianó.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
Lestur Passiusálma (22).
22.55 Viðsjá: Friörik Páll Jónsson sér um þátt-
inn.
23.10 Áfangar. Umsjónarmenn: Ásmundur
Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
sagnasafn kom út eftir hann 1956 en
auk þess hefur hann þýtt töluvert, bæði
ljóð og laust mál, m.a. eftir Boris Past-
ernak. Majukovski og Tsjekhov. Þá
hefur hann samið nokkur leikrit og
hefur útvarpið áður flutt eftir hann
Daginn fyrirdómsdag 1951.
-GAJ-
______________________________/
Mll CICBA Nú er sterka ryksugan
^ nllLrlolX ennþá sterkari...
NILFISK
ÍW
SÚPER
/r
NÝ SOGSTILLING:
Auðvelt að
tampra kraftínn
NYR
SÚPER-MÓTOR:
Áður
óþekktur
sogkraftur.
NYR
PAPPÍRSPOKI
MEÐ
HRAÐFESTINGU,
ennþð stœrri og þjðlli.
NÝ
SLÖNGUFESTING:
Samboðin nýju ... ^ f
kraftaukandi
keiluslöngunni
________________
NÝRVAGN:
Sterkari,
stöðugri,
liprari,
auðiosaður
istígum.
sogorka í sérflokki
Ofantaldar og flairi nýjungar auka enn hlna sigildu verðleika Nilfisk:
efnisgæði, markvisst byggingariag og afbragðs fylgihkití. Hvert smð-
atriðl stuðlar að soggetu i sórflokki, fullkominni orkunýtíngu, dssma-
lausri andingu og fyllsta notagHdi.
Jð, svona er Nilfisk: Vönduð og tæknilaga ósvikin, gerð til að vinna
sitt verk fljótt og vel, ðr eftír ðr, mað Iðgmarks trufkmum og tilkostn-
aði; varanlag: til langdar ódýrust.
iyi| CICIA heimsins bezta ryksugai
1*1 Iwll Stór orð, sem reynslan réttlætir.
Afborgunarskilmálar.
Traust þjónusta.
FYRSTA FLOKKS FRÁ
jFOnix
Hátúni — Sími 24420