Dagblaðið - 30.03.1979, Page 3
DAGBLADIÐ. FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1979.
3
Óperuunnandi skrifar:
Ég rakst um daginn á bréfkorn á
lesendasíðu Dagblaðsins. Það bar
yfirskriftina Barlómur óperusöngv-
ara. Mér fannst lítið til þess koma og
hugsaði ekki meira um það þá. Af
einhverjum ástæðum fannst mér þó
rétt að fram kasmi svar. Og er þá bezt
að ég svari úr því að aðrir gera það
ekki, enda þótt málið sé mér ekki
skylt.
Umrætt bréf er fremur óskipulega
framsett, stutt og frasakennt. En það
sem heizt má úr því lesa er í fyrsta
lagi að óperan I Pagliacci eftir Lion-
cavallo sé ekki svo erfið að orð sé á
þvi gerandi og í öðru lagi að úr því að
Þjóðleikhúsið flutti óperuna
möglunarlaust, af hverju gerir
íslenzka óperan það ekki líka?
í 1 Pagliacci eru tvö hlutverk sem
eru sérstaklega erfið raddlega og
tæknilega. Það eru hlutverk Canios
og Tonios. önnur hlutverk óper-
unnar eru einnig vandmeðfarin, eink-
um hlutverk Neddu, en þau eru létt-
ari fyrir söngvarana. Bréfritari gerir
einkum að umtalsefni hlutverk
Canios og veitist að þeim óperu-
söngvara sem með það hlutverk fer.
Jónas Guðmundsson, rithöfundur,
myndlistarmaður, stýrimaður o. fl.
Jónas
hress
að
vanda
Aðalsteinn Guðjónsson, Eskihlíð 14,
hríngdi:
Hann vildi koma á framfæri þakk-
læti til Jónasar Guðmundssonar rit-
höfundar fyrir frábært erindi sem
hann flutti í útvarpið sl. sunnudags-
kvöld. Taldi Aðalsteinn það taka
fram öðru efni sem útvarpið hefur
flutt á þessum tíma að undanförnu.
Raddir lesenda taka viö
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttarins „Heimil-
islæknir svarar" í síma
27022, W. 13-15 alla
virka daga.
Margir kallaðir
en fáir útvaldir
Það er að mati bréfritara barlómur
að segja að það hlutverk sé erfitt.
Caruso og Canio
Nátengt hlutverki Canios er og
verður alltaf nafn Enrico Carusos.
Það var hans langvinsælasta hlutverk
og runnu Caruso og Canio stundum
saman í eitt. Honum reyndist það þó
enginn leikur frekar en öðrum að
glíma við þetta hlutverk og ekki
skorti hann raddmagn eða tækni. Af
sendibréfum hans til konu sinnar má
sjá að hann kveið mjög sýningum á 1
Pagliacci. Skal engan undra það
þegar litið er á eftirfarandi lýsingu
konu hans á því hversu mikið hann
tók út fyrir að syngja Canio. Hún
segir: Ég gat aldrei dæmt um með hve
mikilli tilfinningu hann söng Vesti La
Giubba nema ég stæði til hliðar á
leiksviðinu. Ég vissi að hann gat
snökt í fimm mínútur í búningsher-
berginu eftir fyrsta þátt. Ég hef séð
hann falla niður á leiksviðinu af því
að yfir hann þyrmdi. Lotte Lehmann
stóð til hliðar á leiksviðinu er hann
söng Canio í Hamborg. Hún lýsir því
svo i endurminningum sínum: Tárin
runnu niður eftir andliti hans og svo
útkeyrður var hann að hann gat varla
staðið á fótunum.
Lotte Lehmann var ein af fremstu
óperusöngkonum þessarar aldar.
Stöðu sinnar vegna i tónlistarheimin-
um söng hún aðeins á móti fyrsta
flokks söngvurum. Einn þeirra var
islenzki hetjutenörinn Pétur Jónsson.
Pétur Jónsson
og Canio
Pétur var virtur og vinsæll óperu-
söngvari og söng mest í Þýzkalandi
en alltof margir íslendingar virðast
hafa gleymt þessum stórsöngvara.
Pétur lét sér ekki allt fyrir bi jósli
brenna, en í endurminningum sinum
telur hann þó ástæðu til að taka fram
að hlutverk Canios sé afar erfitt og
ber þaö saman við titilhlutverkið i
Wagneróperunni Lohengrin. Hann
segir: Hlutverk leikarans auk
söngvarans er miklu erfiðara i
Bajazzo (I Pagliacci á ítölsku) en
Lohengrin. Þegar Pétur kom heim til
íslands fór hann að kenna með mjög
góðum árangri. Einn nemenda hans
var Magnús Jónsson.
Magnús
Jónsson
og Canio
Magnús varð síðar fastráðinn sem
aðaltenor í 10 ár við Konunglegu
óperuna í Kaupmannahöfn. Hann
þarf ekki að óttast samanburð við
kollega sina í dag frekar en áður.
1976 söng hann Don José 1 Carmen á
fjölum Þjóðleikhússins. Tímaritið
Ópera, eitt víðlesnasta og gagnrýn-
asta óperutímarait í heimi, skrifaði
Auðséð er að Magnús Jónsson stendur hcr i stórræðum og miklum átökum.
DB-mynd Bj. Bj.
um þessa óperuuppfærslu. Er það
eini erlendi dómur gagnrýnanda um
söng Magnúsar sem ég hef séð og að
ég hygg eini dómurinn sem birzt
hefur um íslenzka óperuuppfærslu i
erlendu tímariti. Carmen fær þar all-
sæmilega dóma en Magnús Jónsson
þykir þar beztur, og fær mikið hól og
að þvi er ekki hlaupið á þeim vett-
vangi. Ég er þess fullviss að Magnús
fengi ekki síðri dóma 1 þessu timariti
fyrir túlkun sína á hlutverki Canios.
Annars er dálitið merkilegt og jafn-
framt skemmtilegt að greinin í Opera
endar á þessum orðum: Að lokum
hefðu kannski gamlir vinir og aðdá-
endur Þorsteins Hannessonar,
Covent Garden tenorsins frá fyrri
hluta Fimmta áratugar þessarar aldar,
gaman af að vita að hann er ennþá
að sem tónlistarstjóri Ríkisútvarpsins
á íslandi.
Þorsteinn
Hannesson
og Canio
Þorsteinn söng Canio þegar Þjóð-
leikhúsið flutti 1 Pagliacci fyrir mörg-
um árum. Áðurnefndur bréfritari vill
meina að þá hafi ekki verið talað um
það í röðum óperusöngvara að hlut-
verk þeirra væru erftð. Það er brosleg
einföldun að gagnálykta þar af þegar
haft er í huga hvaða ópera á i hlut.
Þorsteinn starfaði þá við eitt af
fremstu óperuhúsum í heimi. Hann
var því vel á sig kominn þegar hann
kom hingað en söngvarar eins og
íþróttamenn þurfa að vera i stöðugri
þjálfun. Og þegar hann söng hlutverk
Canios söng hánn við opinbera stofn-
un þar sem allt skipulag er í föstum
skorðum. Aðstæður eru því mjög
óiíkar í þessum tveimur uppfærslum.
Ég efast reyndar ekki um að þrátt
fyrir það myndi Þorsteinn taka undir
það að Canio er með þyngstu tenor-
hlutverkum sem skrifuð hafa verið
fyrir dramatískan tenor.
Við erfiðar aðstæður' réðst stór-
huga fólk í flutning krefjandi óperu.
Það lagði sig fram af einhug og út-
koman varð glæsileg. Það fólk á allt
annað skilið en ókurteisi og vanþakk-
læti.
íslenzka óperan: ég óska þér til
hamingju með frumburðinn.
HITACHI
LHsjónvarpstækid
sem
faemennimir
mæla
meö
Vilberg&Þorsteinn
Laugavegi 80 símar10259-12622
Telurðu sanngjarnt
að ráðherrar fái lán
úr ríkissjóði til bila-
kaupa?
Baldur Kristjánsson: Mér finnst það
algjör óþarfi og sanngjarnt að þeir
kaupi bíla sína á sömu kjörum og al-
menningur. Ég held að Vilmundur hafi
hresst upp á fylgi flokks síns með
þessum látum niðri í Alþingi.
Axel Einarsson: Mér finnst betra að
þeir fái lán heldur en frltt eins og
hingað til. Annars er svarið nei.
Ósltar Guðjónsson: Eg hef nú ekkert
hugsað það en fljótt á litið finnst mór
ekki óeðlilegt að það sé í llku formi og
verið hefur. Þetta eru menn sem yfir-
leitt eru stuttan tíma í starfi og þurfa
mikið að nota bíl og þeir eru þjónar
fólksins.
Hilmar Árnason: Mig vantar lán og
hefði gjarnan viljað njóta þessara
kjara. Þegar einstaklingar geta ekki
fengið slíka fyrirgreiðslu þá finnst mér
engin ástæða til að ráðherrarnir fái
hana. Ég sé ekki að þeir eigi að hafa
nokkur forréttindi fram yfir Pétur og
Pál.
Einar Sigurðsson: Mér finnst það alveg
sjálfsagt. Þeir verða einhvem veginn að
lifa, þessigrey.
Guðjón Sigmundsson: Mér finnst þaö
alveg óraunhæft i alla staði.