Dagblaðið - 30.03.1979, Blaðsíða 16

Dagblaðið - 30.03.1979, Blaðsíða 16
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1979. 16 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Melavöllurinn hreint ágætur - Fyrsti leikur Reykjavíkur mótsins á sunnudag Reykjavíkurmótið i knattspymu hefst á sunnu- daginn kl. 14.00 með leik Víkings og Fylkis. Lcikið vcrður á Melavellinum og er völlurinn sagður i fínu ástandi — hreint ágætur. Á mánudag kl. 20.00 leika Ármann og KR i mótinu og síðan koma leikirnir einn af öðrum. KR og Fylkir léku æfingaleik á Melavellinum á miðvikudag. KR vann 1—0 og voru leikmenn lið- anna sammála um það eftir lcikinn að völlurinn hefði verið i prýðilegu ástandi. Ekið hefur verið tals- verðu salti á völlinn, sem gert hefur mikið gagn gegn frostinu. Brian Kidd enn á ferðinni — Seldur til Everton í gær Síðasti söludagurinn á leikmönnum á þessu leik- tímabili er í dag. Nokkuð var um sölur i gær og það merkilegasta, að Everton keypti Brian Kidd, fyrrum enskan landsliðsmann, frá Man. City fyrir 150 þúsund sterlingspund. Kidd hóf feril sinn með Man.Utd. — varð þar Evrópumeistarí 1968 á 19. afmælisdegi sinum — fór síðan til Arsenal og Man.City. Mesti markaskorarí þessara liða. Þá skiptu QPR og Everton á jöfnu á miðherjum sínum. Everton fékk Peter Eastoe en lét i staðinn Mick Walwh, sem liðið keypti frá Blackpool fyrir 350 þúsund pund í fyrrasumar. Þá hefur Sunderland náð i góðan mann — bak- vörðinn Steve Whitworth frá Leicester City og var söluverðið 150 þúsund sterlingspund. Whitworth er 27 ára og hefur leikið 10 ár með Leicester — og nokkra leiki i enska landsliðinu. Fram-Valur íbikarnum Einn leikur i átta liða úrslitum bikarkeppni Hand- knattleikssambands íslands verður i kvöld i Laugar- dalshöll. Þá leika Fram og Valur — og að þeim leik loknum fer að skýrast hvaða lið hafa tryggt sér rétt í undanúrslit keppninnar. ÍR og Vikingur hafa þegar náð þeim áfanga. Strax að leik Fram og Vals loknum verður stór- leikur i 2. deild. KR og Þór, Akureyri, leika. Þá verður annar ekki síður þýðingarmikill leikur í 2. deild i Vestmannaeyjum kl. 19.00. Þar leika Þór- Vestmannaeyjum, og Ármann. Þessi lið hafa mögu- leika á sæti i 1. deild næsta keppnistímabil nema Þór Akureyri. Þá verður einn leikur i 1. deild kvenna i kvöld á Akureyrí. Þar leika Þór og Breiðablik. Þá verður mjög þýðingarmikill leikur — úrslita- leikurinn i fallbaráttunni — i 1. deild á laugardag í Laugardalshöll. Fylkir og HK leika kl. 15.30. Á sunnudag leika Víkingur og FH í 1. deild i Laugar- dalshöll kl. 19.00 og strax á eftir Víkingur-FH í 1. deild kvcnna. Þrjú lið eiga möguleika i blakinu — UMFL ÍS og Þróttur Síðustu leikirnir i 1. deild i blaki fara fram um helgina og þá verður úr því skorið hver verður íslandsmeistari. Laugdælir eiga alla möguleika á að verða meistarar. Þeir hafa tapað aðeins sex stigum á meðan Þróttur og Laug- dælir hafa tapað átta stigum. En hins vegar geta bæði Stúdcntar og Þróttur orðið meistarar eftir leiki helgarinnar þar sem hrinuhlutfall ræður, verði lið jöfn að stigum. Þannig eygja þessi þrjú lið mögu- leika á titlinum um helgina. íslands- meistarar Stúdenta halda austur á Laugarvatn og leika við Laugdæli. Sigur Laugdæla færir þeim meistara- tign, en sigri Stúdentar 3—0 eru þeir meistarar. Viðureign Stúdenta og Laugdæla að Laugarvatni er á morgun kl. 2. Á sunnudag leika Þróttarar síðan við UMSE norður á Akureyri kl. 12.30 og Þróttarar fara i þann leik vitandi hvort þeir eygja möguleika á sigri í 1. deild eða ekki — það fer eftir úrslitum viðureignar ÍS og Laugdæla. Til glöggvunar látum við fylgja stöðuna í 1. deild. Laugdælir 15 12 3 37—19 24 ÍS 15 11 4 38—19 22 Þróttur 15 11 4 37—19 22 UMSE 15 3 12 18—39 6 Mímir 16 1 15 13—47 2 íslandsmeistarar KR 1979. Fremri röð Þröstur Guðmundsson, Árni Guðmundsson, Eirfkur Jóhannesson, Jón Sigurðsson, Gunnar Jóakimsson. Efri röð frá vinstri. Gunnar Gunnarsson, þjálfari, Helgi Ágústsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, Einar Bollason, fyrirliði, Ásgeir Halígrimsson, Garðar Jóhannesson, John Hudson, Birgir Guðbjartsson, Sveinn Jónsson, formaður KR, Kristinn Stefánsson, liðsstjóri. DB-mynd Bjarnleifur. KR-INGAR ERU BEZTIR — Sigruðu Val 77-75 í úrslitaleik íslandsmótsins í körfuknattleik „Þetta var frábær endir á stórkost- legum vetri og það versta er að annað liðið þurfti að tapa i kvöld,” sagði ánægður formaður Körfuknattleiks- sambands íslands í viðtali við DB að loknum leik KR og Vals i gærkvöldi. Formaðurinn mátti sannarlega vera ánægður. í troðfullri Laugardalshöll- inni — í húsinu voru um það bil 2500 manns, — dundu hvatningarhróp áhorfenda á meðan á leiknum stóð. Þetta var heldur ekki neinn venjulegur leikur, og orð að sönnu að hér hafi verið frábær endir á stórkostlegum vetri. Lokamínúturnar voru æsispennandi og þar réði heppnin miklu þó kannski megi líka segja að ótímabær skot Vals- manna þá hafi ráðið úrslitum. Lokatölurnar 77 gegn 75 fyrir KR voru annar stórsigur liðsins á síðustu fimm dögum og sannarlega ánægju- legur endir á leik Einars Bollasonar fyrirliða KR, sem nú hættir í keppni i úrvalsdeildinni. í byrjun leiksins virtust báðir aðilar ætla að fara að öllu með gát og af öllu var ljóst að taugar leikmanna voru þandar til hins ýtrasta. KR-ingar náðu fljótlega forustu, sem þeir héldu óslitið fram í miðjan siðari hálfleik. Aftur á móti leizt stuðningsmönnum þeirra ekki á blikuna hvað villur varðaði. Strax á annarri mínútu var búið að dæma fjórar villur á liðið. Við lok fyrri hálfleiks voru þeir Jón Sigurðsson og Birgir Guðbjörnsson komnir með fjór- ar villur og Einar Bollason þrjár. Dómarar leiksins þeir Erlendur Eysteinsson og Kristján Albertsson gegndu hlutverki sínu með mestu prýði. Leikurinn var síður en svo auðdæmdur og allt andrúmsloftið í Höllinni raf- magnað. Leikurinn fór hins vegar Gunnlaugur Kristfinnsson. knattspyrnumaöurínn kunni, meö lyftingasett þaö, sem hann hefur hannaö. aldrei úr böndunum og þeim félögum tókst oftast að forðast of mikil afskipti af gangi leiksins. Garðar Jóhannesson opnaði stiga- reikninginn fyrir KR-inga strax i fyrstu sókn þeirra. Síðan kom sókn Vals- manna sem kostaði fjóra KR-inga villur og Valur náði tveim stigum. Einar Bollason náði yfirhöndinni fyrir KR og henni héldu þeir eins og áður sagði fram að miðjum síðari hálfleik. Þeir áttu sérlega góðan leikkafla á ní- undu til tólftu mínútu jafnframt því • sem Valsvörnin opnaðist nokkuð. Vals- mönnum tókst þvi nokkuð að rétta hlut sinn fyrir lok hálfleiksins og staðan var þá 34 gegn 26 KR í vil. Síðari hálfleikur hófst með darraðar- dansinum. Fram til þessa höfðu bæði liðin leikið maður gegn manni í vörn- inni en á sjöttu mínútu síðari hálfleiks tóku Valsmenn upp svæðisvörn, sem nokkuð truflaði KR-inga til að byrja með. Þegar rúmar níu minútur voru liðnar voru Valsmenn komnir með 53 stig á móti 55 stigum KR-inga. Einni mínútu síðar fékk gamla Valskempan Þórir Magnússon knöttinn undir körfu KR- inga og leikurinn var orðinn jafn 55 gegn 55 og níu og hálf mínúta til leiks- loka. Eftir þetta varð stigamunur liðanna aldrei meiri en fjögur stig og sannast sagna þá virtist æstum áhorfendum staðan hreint alltaf vera jöfn og spenn- an í hámarki. Á leiktöflunni sáust nú tölur eins og 59—59, 65—65, 67—70 fyrir Val, 70— 71 fyrir Val og 71 gegn 71. KR aftur búið að jafna. Er rúmlega tvær mínútur voru til leiksloka fékk Jón Sigurðsson sina fimmtu villu og rétt á eftir kemur Tim Dwyer Valsmönnum í 73 stig gegn 71. John Hudson jafnar 73—73 og aðeins 1.40 mínútur til leiksloks. Einar Bollason fékk vítaskot og skoraði úr báðum á milli þess sem hann dansaði stríðsdans í vítahringnum. 75 stig gegn 73 fyrir KR og aðeins 58 sekúndur til leiksloka, þegar John Hudson fær sína fjórðu villu. Tim Dwyer fær vitaskot — staðan verður aftur jöfn 75 gegn 75 og 42 sekúndur til leiksloka. Var leikurinn að stefna í jafntefli og framlengingu! Engan veginn skemmti- leg tilhugsun fyrir KR-inga sem voru nú flestir komnir nærri fimm villum. En er 34 sekúndur voru til leiksloka gerði Hudson lokakörfuna, staðan var orðin 77 gegn 75 fyrir KR. Einari Bollasyni tókst með harðfylgi að ná knettinum aftur og dæmt var uppkast. KR nær knettinum og tókst að halda honum til leikslóka þrátt fyrir örvænt- ingarfullar tilraunir Valsmanna til að ná honum. Lokatölurnar 77 gegn 75. KR orðið íslandsmeistari enn einu sinni. Glæsi- legasti lokakafli nokkurs íslenzks körfuboltamóts var á enda. -ÓG. Nýtt íslenzkt lyftingasett „Þetta er ákaflega þægilegt lyftinga- sett og ódýrt, sem hægt er að hafa í heimahúsum ef þvi er aö skipta. Það er hægt að ná góðri þjálfun með þvi fyrir iþrótta- og trimmfólk og hvern þann, sem vill halda likama sinum við,” sagði Gunnlaugur Kristfinnsson, þegar DB ræddi nýlega við hann um lyftingasett, sem Gunnlaugur hefur hannað. Fram- leiðsla er fyrir nokkru hafin og vinnur Gunnlaugur að henni ásamt Halldórí Alexanderssyni, járnsmið og suðu- manni. lyftingasettið er lyftingabekkur með stillanlegu baki, tækjahaldari, lyftinga- stöng með átta lóðum, samtals 65 kg, og handlyftaraöxlum. Einingarverð samtals 260 þúsund krónur — og að sögn Gunnlaugs er það um helmingi ódýrara en á sambærilegum tækjum innfluttum. Tollar á slíkum tækjum eru mjög háir eða um 90% — þannig að segja má nú að almenningi gefist tækifæri til að eignast tæki, sem nær útilokað var áður. Þá er einnig hægt að fá lóð keypt í lausasölu eftir vild. Þá bjóða þeir félagar, Gunnlaugur og Halldór, upp á hringæfingatæki með mismunandi fjölda stöðva, sem er hentugt fyrir félög eða félagasamtök — og einnig mun ódýrari er gerðist með innflutt erlend tæki, allt að þrefalt ódýrari. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1979. 21 Iþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir D Björtustu draumarnir að rætast! —sagði Bogi Þorsteinsson „Á sínum tíma, þegar við flúðum með íslandsmótið í körfubolta úr Laugardalshöllinni út á Seltjarnarnes vegna peningaleysis, dreymdi mig ekki um að þetta ætti eftir að verða innan fárra ára,” sagði Bogi Þorsteinsson fyrrverandi formaður Körfuknattleiks- sambands íslands og hinn fyrsti í við- tali við DB að loknum leik Vals og KR í gærkvöldi. „Að vera hér í Höllinni i kvöld þar sem troðfullt hús af fólki horfði á stór- góðan körfubolta er dásamleg tilfinn- ing. Okkar björtustu draumar eru að rætast og við erum að sprengja utan af okkur öll hús,” sagði Bogi ennfremur. „Körfuboltanum á íslandi hefur líka farið mjög fram og hraðinn aukizt KHstinn Stefánsson: Endirinn var beztur „Eftir svona leiki er maður orð- laus,” sagði Kristinn Stefánsson, annar liösstjóri KR, að loknum leiknum. „Þetta var auðvitað gífurlega skemmtilegur og spennandi leikur og þá ekki sízt endirinn. Við KR-ingar getum ekki beðið um meira. Sigur i kvöld er stórkostlegur endir á stórkost- iegum körfuboltavetri. Við vitum að leikurinn gat faríð á hvorn veginn sem var, en við unnum. í heild fannst mér KR-liðið koma betur frá leiknum þó á lokamínútunum hafi allt staðið i járnum. Kristinn sagði að óráðið væri hvort John Hudson yrði áfram með KR næsta vetur. -ÓG. mikið. Sem dæmi má taka að Njarð- víkurliðið sem tapaði sjö leikjum er sámt með 101,6 stig að meðaltali í leik. Slíkt hefur aldrei gerzt áður. Það er þetta sem dregur að áhorfendur, betri og hraðari körfubolti. „Já, tímarnir eru breyttir frá því að við vorum með mótið í fyrsta skipti úti á Seltjarnarnesi. Þá vantaði 3500 krónur upp á að tekjur af leikjunum dygðu fyrir húsaleigunni en sveitar- stjórnin sýndi þá vinsemd að gefa okkur það eftir.” Bogi Þorsteinsson var heiðursgestur Körfuknattleikssambands íslands á leiknum í gærkvöldi. -ÓG. „Þetta var falleg karfa,” segir Bogi Þorsteinsson. DB-mynd Bjarnleifur. Einar Bollason: Toppbaráttunni lokið „Þetta er minn síðasti vetur 1 úrvalsdeildinni,” sagði Einar Bollason, KR. „En ég er svo sannarlega ekki hættur að leika körfubolta, ég mun aftur á móti ekld verða með i aðalbar- áttunni lengur enda finnst mér nú kominn timi til að hleypa yngrí mönn- unum að. Um leikinn í kvöld er það að segja að hann er auðvitað stórkostlegur endahnútur á góðan vetur hjá okkur KR-ingum. Eg vil nota tækifæríð og þakka Valsmönnum fyrir leikinn, þeir voru verðugir andstæðingar og úrslitin voru ekki ráðin fyrr en á síðustu sekúndum leiksins. ÓG. John Hudson: Unnum á góðri vörn „Svona úrslitaleikur hlýtur að vera góður fyrír körfuboltann á íslandi,” sagði John Hudson KR. „Við unnum þennan leik fyrst og fremst á góðri vörn þó oft værí mjótt á mununum. En mig langar sérstaklega að taka fram að dómararnir voru góðir í þessum leik. Ég hef gagnrýnt þá i vetur en veit þó að allir gera sitt bezta og í kvöld tókst þeim Erlendi og Kristbirni vel upp,” sagði Hudson. Hann var spurður hvort hann yrði áfram með KR-liðinu næsta vetur. „Fyrst er að vita hvort KR-ingarnir hafa áhuga á að hafa mig áfram en um það er allt ósamið. Hitt er alveg klárt að verði ég áfram á íslandi þá leik ég ekki með ööru liði en KR,” sagði John Hudson að lokum. ÓG. Ríkarður Hrafnkelsson: Taugar KR-inga betri „KR-ingar voru sterkari á taugum þegar á reyndi og einnig átti John Hudson stjörnuleik. Þetta tvennt réð úrslitum í leiknum í kvöld,” sagði Ríkarður Hrafnkelsson, Val, að lokn- um leiknum gegn KR í gærkvöldi. „Byrjunin hjá okkur var líka slæm og illa gekk að hitta úr langskotunum. Aftur á móti var það heppnin, sem réð því hvort liöið hafði yfirhöndina l lokin.” Ríkarður sagðist að lokum vilja þakka áhorfendum fyrir góðan stuðning og það væri ánægjulegt að sjá svo marga koma i Laugardalshöllina til að horfa á körfubolta. -ÓG. HALLUR SIMONARSON Jón Sigurðsson faðmar John Hudson — sigurgleðin er mikil. DB-mynd Bjarnleifur. Víking úthlutað svæði í Fossvogi —Teljum okkur mjög lánsama, því svæðið er eitt bezta íþróttasvæði íborginni,” sagði Jón Aðalsteinn Jónasson „Vikingur fékk samþykkta úthlutun á iþróttasvæði i Fossvogi i desembcr siðastliðnum. Áður hafði Vikingi verið lofað forgangi að þessu svæði en borg- arráð hefur nú samþykkt svæðið sem Víkingssvæði. Við teljum okkur mjög lánsama með þessa úthlutun. Þetta er eitt bezta íþróttasvæði borgarínnar, ákaflega skjólgott og liggur vel við samgöngum,” sagði Jón Áðalsteinn Jónasson, formaður Víkings nýlega á blaðamannafundi sem Víkingar héldu til að kynna starfsemi félagsins. Þar kom fram að mikil sókn er nú i félaginu og gífurleg uppbygging á sér nú stað. „Það var orðið mjög brýnt að fá bætta aðstöðu,” hélt Jón Aðalsteinn áfram. „Við höfum nú aðeins aðgang að tveimur völlum við Hæðargarð en ekki var möguleiki á frekari stækkun þar. Þess vegna erum við ánægðir með að félagið skuli nú hafa fengið aukið athafnarými. Nú þegar snjóa leysir mun svæðið mælt út og hönnun svæðisins getur hafizt og framkvæmdir verða síðan tímasettar. Verkefnin eru óþrjótandi. Það þarf að ræsa fram svæðið í Foss- vogi. Við höfum einnig í hyggju að reisa íþróttahús og þegar svæðið í Foss- vogi verður mælt upp verður jafnframt kannað hvort möguleiki sé á að byggja íþróttahúsið einnig þar. Fari svo að það reynist ekki mögulegt, að rými reynist ekki nóg, verður íþróttahús Víkings reist við Hæðar- garð. Því er ekki að leyna að vissir erfiðleikar fylgja því að starfa á tveimur stöðum eins og úthlutunin leiðir af sér en að sjálfsögðu munum við halda áfram starfseminni við Hæð- argarð. Á þessu vandamáli þarf að finna lausn. Það hafa staðið miklar fram- kvæmdir við Hæðargarð. Félagsheim- ilið hefur verið gert upp, suðurálman öll, og er nú öll aðstaða þar til fyrirmyndar. Það er búið að ganga frá búningsher- bergjum, anddyri hússins svo og hefur verið gengið frá fundarherbergi, þar sem hinir ýmsu flokkar félagsins geta haldið fundi. Síðastliðið sumar var annar völlur- inn við Hæðargarð tyrfður svo í sumar geta allar æfingar meistaraflokks farið fram við Hæðargarð. Við munum halda áfram að endurbæta fé- lagsheimilið. Næsti áfangi þar verður að lagfæra vesturálmuna, koma stóra fundarsalnum í lag,” sagði Jón Aðal- steinn ennfremur. Þá kom fram að iþróttafélag eins og Víkingur velti á síðasta ári tæpum 40 milljónum og sýnir það hve umfang íþróttafélaganna i Reykjavík er orðið mikið. Víkingar hafa einnig byggt skíðaskála og er nú verið að byggja skíðalyftur á svæði félagsins. Nú eru starfandi átta deildir innan Víkings. H.Halls. Hið nýja Vlkingssvæði i Fossvogi. t baksýn sést Breiðholtið. DB-mynd Hörður.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.