Dagblaðið - 30.03.1979, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 30.03.1979, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1979. 8 TIMEX HEIMSFRÆGU ÚRIN - 60 GERÐIR 1 ÁRS ÁBYRGÐ. PANTIÐ í SÍMA 50590 EÐA BRÉFLEGA Kr.tUM. Kf.Uli.. Kr.1l.7K. Kr.tUK Kr.lUK Kr.lUK Kr. 1i«M Kr.ttiK Kr.tUK «r.l. «r.L Nr.3. Nr.C Nr.S. Nr.L ».7. Mr.«_ Nr.l Kr.tt.7K. Kr. I.7K- Kr. 17JK- Nr.1l Nr.1t. Nr.11 Nr.11 N*** #MKi Nr.tC Nr.ti. PÓSTSENDUM |P If A| MAGNÚSGUÐLAUGSSON Uíl'V r\Lm STRANDGÖTU 19 - HAFNARFIRÐI Lausar stöður Fyrirhugað er að ráða í 3 — 5 kennarastöður við Menntaskólann á Egilsstöðum frá byrjun næsta skóla- árs og eru þær hér með auglýstar lausar til umsóknar. Helstu kennslugreinar sem um er að ræða eru íslenska, erlend mál, stærðfræði, eðlis- og efnafræði, saga og sam- félagsfræði, líffræði, uppeldis- og sálarfræði og íþróttir. Æskilegt er að umsækjandi geti kennt fleiri greinar en eina. Hugsanlegt er að hluta kennsluskyldu yrði full- nægt við framhaldsdeild Alþýðuskólans á Eiðum. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir með upplýsingum um námsferil og störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík fyrir 25. mai n.k. Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. 22. mars1979 Menntnmáluráðuneytið, NÝ SENDING KOMIN! VERÐ 460.000.- kr. Nokkrum vogum óráðstafað PLASTPOKAR 111_.i__ PLASTPOKAR O 82655 lPl2lðStOS lll QEEjffP o 82655 PLASTPOKAVERKSMIÐJA ODDS SIGURÐSSONAR GRENSÁSVEGI 7 REYKJAVÍK BYGGINGAPLAST • PLASTPRENTUN • MERKIMIOAR OG VÉLAR TRIXPLAST HEIMILSPOKAR 50STK. ÁrÚLLU Uganda: Idi Amin flúinn og Kampala að falla — hermenn á f lótta ásamt óbreyttum borgurum „Við getum tekið höfuðborgina Kampala og Entebbe-flugvöU þegar okkur þóknast,” sagði talsmaður ný- stofnaðrar frelsishreyfingar Uganda í gærkvöldi er hann ræddi við frétta- menn í Dar-es-Salam, höfuðborg Tansaníu. Sagði hann að herinn vildi aöeins gefa óbreyttum borgurum og útlendingum færi á að komast óhultir á brott. Fregnir frá Nairobi í Kenya herma að Idi Amin þjóðarleiðtogi sé flúinn frá Kampala en fréttir þaðan greina frá að mikilli skothríð sé haldið uppi á borgina frá stöðvum innrásar- manna. Eru það að sögn sveitir flóttamanna frá Uganda en ljóst er að þeir njóta öflugs stuðnings hers Tansaníu, sem jafnvel ber hita og þunga bardaganna. öngþveiti er nú í höfuðborginni Kampala, að þvi er fregnir herma. Þúsundir borgarbúa flykkjast nú eftir vegum landsins til að leita sér öruggs hælis. Idi Amin er sagður hafa haldið áleiðis til norðurhluta landsins ásamt herliði sem er honum hUöhoUt og einnig liðsveitum frá Líbýu, sem Gaddaffi, vinur hans þar og þjóðar- leiðtogi, sendi honum til aðstoðar. í Uganda útvarpinu var haft eftir Amin að hann væri þakklátur þeim hersveitum, sem enn berðust eins og menn en væru ekki algjörir hugleys- ingjar. Slíkir hermenn ættu að halda áfram að verja heimUi sín fyrir óvin- unum í anda hetjunnar. Fregnir hafa borizt af því að mikill fjöldi hermanna Ugandahers hafi fieygt frá sér vopnum sínum og af- klæðzt einkennisbúningum og slegizt i för með óbreyttum flóttamönnum. Dagar hans I valdastóli virðast vera taldir. Idi Amin hefur verið þekktur fyrir grimmd og miskunnarleysi. Hvort annar honum likur kemur f staðinn eða hvort gæfa Uganda mun rfsa með næstu valdhöfum veit enginn. Fijieyjar: Fellibylur grand- ar f immtíu manns Fimmtíu manns hafa farizt eöa er saknað á Fijieyjum í Kyrrahafi norður af Nýja-Sjálandi og vestur af Ástralíu. Samkvæmt heimildum opinberra aðila á eyjunum geröist þetta er fellibylur fór yfir eyjarnar á þriðjudaginn var. Mest mun mann- tjónið hafa orðið á eynni Ono. Þar fórust aðallega konur og börn sem leitað höfðu skjóls í kirkju, sem síðan lagðist saman undan ofurþunga stormsins. Þar fórst í það minnsta tuttugu og einn. Á eynni Kadavu fór- ust átta. Óttazt er að togari frá Suður- Kóreu með tuttugu manns innan- borðs hafi einnig farizt í óveðrinu. Neyðarkall frá honum heyrðist aðfaranótt þriðjudagsins en leitar- skip og flugvélar hafa ekki fundið skipið. Viti Levu, sem er stærsta eyjan i Fijieyjaklasanum og aðalferöa- mannastaðurinn, virðist hafa sloppið við mesta ofsa stormsins. Ekki verður að fullu vitað um manntjón og eigna fyrr en embættismenn hafa farið til allra byggðra eyja.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.