Dagblaðið - 30.03.1979, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 30.03.1979, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1979. Kampala höfuðborg Uganda sé tóm þvæla. Hvaða ástæðu gætu þeir haft til slíkra yfirlýsinga á móti sannleik- anum? Alveg síðan hermenn Uganda réðust inn í Tansaníu við lok siðasta árs og lögðu undir sig landsvæði við Viktoríuvatnið hefur Nyerere forseti undirbúið gagnaðgerðir. Honum tókst aftur á móti ekki að fá þann stuðning meðal annarra Afríkuleið- toga á fundi einingarsamtaka álf- unnar, sem haldinn var í nóvember síðastliðnum. Nyerere vildi að sam- þykkt yrbi yfirlýsing þar sem innrás herliðs Idi Amins yröi fordæmd. Það gekkekki fram. Nyerere getur engan veginn verið viss um að aðrir Afríkuleiðtogar fall- ist á rétt hans til að gera innrás í Uganda. Einkum gætu þeir brugðist illa við ef innrásin leiddi til þess að Idi Amin hrökklaðist frá völdum. Nyerere hefur því einbeitt sér að því að þjálfa hópa landflótta Ugandamanna, sem safnazt hafa fyrir í Tansaníu siðan Idi Amin komst til valda í Uganda fyrir átta árum. Telur hann góðar líkur á að fremur verði hægt að réttlæta það að Amin hrökklaðist frá völdum fyrir tilverknað sinna eigin landa. Ekki hefur þó gengið þrautalaust að koma upp útlagahemum. Flótta- mönnunum mun svo fariö að sam- staða er vægast sagt Htil meðal þeirra og vilja þeir að sögn helzt hver fara í sina áttina og um foringja geta þeir víst sízt af öllu komiö sér saman um. Meira að segja MUton Obote fyrmm K Július Nyerere forseti Tansaníu er ekld ánægður með hve lítinn stuðn- ing hann hefur fengið frá öðrum Afrikuleiðtogum við að hirta Idi Amin. 1» Væntanlega mun Idi Amin brátt halda á brott frá Uganda og þá að líKindum til Libýu þar sem konur hans og böm dveljast í skjóli Gaddafi leiðtoga Líbýu. forseti Uganda, sem verið hefur gestur Nyerere forseta Tansaniu síðan Idi Amin steypti honum úr stóli getur lítið að gert. Þó Amin sé hataður af mörgum útlögunum þá er málum þannig háttað að Obote er ekki síður óvinsæU meðal margra i sérfræðingum ber saman Nýveriö tókst þó Uganda flótta- mönnum í Tansaníu að vinna nokkurn stjórnmálasigur eða ná merku samkomulagi. Gerðist þetta á fundi í norðurhluta Tansaníu en þar var komizt að sáttum um skipan ellefu manna ráðs, sem fara skal með völd i Uganda í tvö ár að valdaferli Idi Amins loknum. Á síðan að halda frjálsar kosningar til aö ákveöa hver fara eigi með völdin eftir það. Mjög mikilvægt er fyrir Nyerere Tansaníuforseta að þannig líti út að þaðhafiverið Ugandamenn en ekki Tansaniuhermenn, sem fyrstir fari inn i höfuðborg Uganda, Kampala. Það er sú skýring, sem margir hafa þótzt geta séð í algjörri neitun þeirra um að herlið þeirra og skriðdrekar séu komnir alla leið að Kampala og hafi veginn þaðan til flugvallarins í Entebbe á valdi sínu. Ef þeir eru komnir þangað í raun þá eru skrið- drekabyssurnar sem Tansaníuher ræður yfir svo öflugar að hægt er að hefja öfluga sprengjuhríð inn yfir Kampalaborg. Að sögn eru þetta sovézkarbyssur, 122 mm. Þetta viija Tansaníumenn aftur á móti ekki gera. Slikt væri samkvæmt þeirra áætlunum hlutverk hers útlaganna frá Uganda. Kunnugir segja þó að sá her geti þó ekki verið skipaður nema nokkrum hundruðum manna. Herstyrkur Tansaníu í Uganda mun aftur á móti vera um það bil fjögur þúsund manns. Flestum hernaðar- og stjórnmála- sérfræðingum ber saman um að dagar ldi Amins sem leiðtoga Uganda séu brátt taldir. Aðeins sé tímaspursmál hve lengi honum takist að hanga við völd. Þgar Kampala er fallin verður Amin að flýja. Talið er líklegast að hann hverfl þá til vinar síns Gaddafi þjóðarleiðtoga í Libýu. Konur hans og börn munu vera opinberir gestir hans um þessar mundir. NATO tryggir herstöðvaandstæðingum Mannréttindi til mótmæla að vera í lagi, hlekkur íslands, þó að smár sé, ekki síður en aðrir. Hlutleysisstefna hefur reynzt illa Andstæðingar þess, að ísland sé aðili að NATO, hafa ekki til þessa getað bent á neinar aðrar raunhæfari vamir fyrir landið. íslendingar sem og Danir og Norðmenn og ýmsar aðr- ar Vestur-Evrópuþjóðir hafa slæma reynslu af hlutleysisstefnu, sem virðist helzta lausnarorð herstöðva- andstæðinga. Slík stefna væri far- miði út í óvissuna frá þeim trygga friði, sem við búum nú við. Staðreyndin er sú, að þótt næstum öll ríki hafi eigin varnir, þykir þeim öruggara að treysta þær með varnar- samningum við vinveitt ríki, sem ekki þarf að tortryggja um löngun til landsyfirráða. Það segir sig því sjálft, að ríkjum, sem engar varnir hafa, er enn brýnni þörf að tengjast varnar- bandalögum. Á það hefur einnig verið bent, að auk hreinna öryggis- og varnarsjónarmiða, ráði land- fræðileg, stjórnmálaleg, söguleg, menningarleg, efnahagsleg og viðskiptaleg rök því, hvar ríki skipa sér í flokk hjá varnarbandalögum. öll framangreind rök mæla með aðild íslands að Norður-Atlants- hafsbandalaginu. í því eru elztu og helztu lýðræðisríki heims, en þeim rikjum fer því miður fækkandi í heiminum, sem búa við lýðræðis- fyrirkomulag. Lýðræðissinnar haldi vöku sinni Erfitt er að trúa því, að á íslandi fyrirfinnist fólk sem vilji annað stjóm- fyrirkomulag en lýðræði. Fyrir ná- kvæmlega 30 árum gerðist það þó, að æstur múgur, minnihlutahópur, réðst að löglega kjörnu Alþingi og gerði sig líklegan til að hindra störf þingsins. Þau spor hræða, og ættu að vera lýð- ræðissinnum sérstök hvatning nú til að standa vörð um aðild fslands að Norður-Atlantshafsbandalaginu. Vonandi kemur sá dagur einhvern tíma, að öll varnarbandalög verði óþörf og hér þurfi ekki að dveljast erlent varnarlið. En meðan her- stöðvaandstæðingar fá ekki að starfa í Sovétrikjunum og fylgiríkjum þeirra, sýnist einsýnt að íslendingar, sem og aðrar Norður-Atlantshafs- þjóðir, verði að vera vel á verði og slaka í engu á varnarmætti sínum. Við íslendingar vitum hvað við höfum, en ekki hvað við tekur, verði breytingar á núverandi fyrirkomu- lagi. Alfreð Þorsteinsson. „Andstæðingar þess að ísland sé aðili að NATO hafa ekki til þessa getað bent neinar aðrar raunhæfar varnir fyrir landið.” Nýjar kosningar stór- auka efnahagsvandann lagi að skrá gengið rétt, halda niðri kaupmætti um tíma og verölagi og draga úr fjárfestingum og sérstaklega úr umsvifum ríkisvaldsins. Samræmd er stefnan í atvinnu-, vaxta- og pen- ingamálum með það markmið í huga að verðbólgan hjaðni út. Hins vegar er svokölluð niður- greiðsluleið, sem byggist á því að verðlag á nokkrum nauðsynjavörum er greitt niður af rikissjóði, en tekn- anna er aflað með nýjum skatta- álögum eða öðrum millifærsluleiðum milli þegnanna. Á sama hátt er reynt með samræmdum aðgerðum á fjár- málasviðinu að draga úr verðbólg- unni eins og áður var lýst. Ef umrædd niöurgreiðsluleið er farin, eru þær vörur sem reiknast i vísitölu framfærslukostnaðar, gjarnan mest greiddar niður. Reynt er að draga allar hækkanir á' opinberri þjónustu til þess að halda vísitölunni niðri og sumar vörutegundir ekki reiknaðar með í vísitölunni lengur. í sjálfu sér má því segja aö báðar leiðimar miði að þvi að draga úr víxlhækkunum verðlags og kaupgjalds og er þvi ekki um svo ólík markmið að ræða, enda þótt mismunandi leiðir séu farnar. Þingrof og nýjar kosningar Er þinglega sterk rikisstjórn sjálf- stæðismanna og framsóknar tók við stjórn þjóömála hér 1974 var farin hinn fyrri leið í efnahagsmálum og um áramótin 1976—1977 var afhálfu forystumanna þessarar stjórnar i fullri alvöru talað um að verðbólgan stefndi á 15% og jafnvægi væri komið á fjármálin og hagstæð gjald- eyrisstaða. En skömmu síðar snerist gæfuhjólið við, sem allir þekkja. Núverandi vinstri stjórn hefur farið niðurgreiðsluleiðina og hefur töluverður árangur náðst en ein meginforsendan er að náöst hefur samstaöa meö launþegasamtökunum að fallast á takmarkaðar hækkanir og þær vörur sem aðallega byggja upp vísitöluútreikninginn eru niður- greiddar. Nú virðist hafa komið al- varleg glufa í stjórnarsamstarfið, sem alla tið hefur verið mjög óróasamt og ekki traustvekjandi. Af hálfu sjálf- stæðismanna er eina úrræðið þingrof og nýjar kosningar, en væntanlega telur sá flokkur sig sigurstranglegan í dag. Ekki virðist það gæfulegt út frá þjóðhagslegu sjónarmiði og ef málið er aðeins athugaö virðist þessi ákvörðun mjög vanhugsuð, svo ekki sé sterkara til orða tekið. Efnahags- vandinn yrði enn geigvænlegri viður- eignar ef allt er látið reka á reiöanum og ekki yrði auðveldara fyrir Sjálf- stæðisflokkinn að komast i rikis- stjórn ef þeir sem við er samið koma vonsviknirút úr þeim kosningum. ^ ,,Sjálfstæðismenn eiga að veita fram- sóknarmönnum og alþýðuflokksmönn- um stuðning til þess að stjórna, til dæmis næstu tvö árin, gegn því að stjórnarskráin verði rækilega endurskoðuð.” Það er deginum ljósara að vinstri flokkarnir hanga fyrst og fremst saman til þess að útiloka sjálfstæðis- menn. Víðtækt samstarf milli þessara flokka hefur einnig myndast í sveitar- stjórnum viðs vegar um allt land. Það ætti þvi að vera höfúðtakmark sjálf- stæðismanna að kljúfa þessa sam- stöðu, en ekki að þjappa þéim stöðugt saman, eins og nú er gerl. Árið 1958 studdu sjálfstæðismenn minnihlutastjórn Alþýðuflokksins i eitt árgegn þvíað gerðar voru breyt- ingar á kosningum til Alþingis. Síðar hófst 12 ára samstarf þessara flokka, sem reyndist að mörgu leyti mjög far- sælt. Að mínu mati finnst mér svipað tækifæri nú. Þeir eiga að veita fram- sóknarmönnum og Alþýðuflokks- mönnum stuðning til þess að stjórna t.d. næstu tvö árin gegn því að stjórnarskráin verði rækilega endur- skoðuð. Stjórnarskrá okkar er nær óbreytt frá 1874 og þarf að taka fjöl- marga þætti hennar til endurskoðun- ar, sem er mikið verk, en brýn nauð- syn er að það dragist ekki lengur. Hér er ekki aðeins verið að ræða um breytingar á kosningum til Alþingis, sem eðlilega verður í myndinni. Stjómarskráin er og verður horn- steinn lýðræðisins í landinu og er mikil þörf á því að Alþingi og reynd- ar landsmenn allir taki höndum saman i þessu mikilvægasta máli þjóðarinnar. Sigurður Helgason lögfræðingur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.