Dagblaðið - 30.03.1979, Síða 12

Dagblaðið - 30.03.1979, Síða 12
12 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1979. I Á æfingu með Víkingasveit lögreglunnar__________ „Sjáöu bara hvað hann Eiríkur fer þetta léttilega” —„ Já, það er svo stutt síðan hann kom niður úr trjánum” „Þetta er hræðilegt,” heyrðist einn af okkar stæðilegustr lögregluþjón- um stynja er hann fói In erii ferðina af annarri heldur þyngslalega upp í miðja kaðla á handafli einu saman í KR-húsinu í gær. Annar léttur á velli kom að köðlunum og fór léttilega á hand- aflinu einu saman upp undir rjáfur í fimleikasalnum. „Sjáðu bara hve hann Eiríkur fer þettaléttilega.” Rikharður, Eiríkur, Eiður og Fáli i ætingum á gólfi sem eru erfiðar þegar þær eru gerðar 20—40sinnum í röð msmí ,,Já, en það er svo stutt siðan hann kom niður úr trjánum,” sagði fyrir- liði mótorhjólasveitar lögreglunnar og glotti. Hann átti kaðlaæfingarnar eftir. Svona létt gekk þetta til á æfingu Vikingasveitar lögreglunnar, sem nú hefur þjálfað af þrautskipulögðu kappi i 5 vikur. Stjórnandi æfing- anna er Hilmar Björnsson íþrótta- kennari. Við Sveinn Þormóðsson litum — með leyfi allra æðstu yfirmanna lögreglunnar — inn á æfingu hjá Víkingasveitinni í KR-heimilinu í gær. Voru þá 16 risar á harða- hlaupum milli horna í húsinu, og þar sem inngöngudyrnar eru í horni salarins og þessi risasveit kom æðandi á móti okkur töldum við jafnvel að dagar okkar væru taldir. En þeir kunnu jafnvel að bremsa eins og að taka á sprett með spyrnu, svo allt fór vel. Þessir 16 eru helm- ingur Víkingasveitarinnar sem nú er i sérþjálfun, og verður tilbúin í hvað sem er hvað úr hverju. Framfarir á þreki manna og getu eru augljósar. Um þaðsagði Hilmar þjálfari: „Já árangurinn er mjög ánægiu- Hilmar Björnsson kennari fylgist með Eiði Eiðssyni og Ríkharði i jafnvægis- hoppum þeirra yfir röð af umferðarpollum. Þetta þykir ýmsum erfiðasta æf- ingin. „Sjáðu bara hvað hann Eirikur fer þetta léttilega!” Eirikur Beck, froskkafari lögreglunnar fór létt á tveim köðlum á handafli einu upp undir rjáfur. ■ Myndirnar tók Sveinn Þormóðsson.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.