Dagblaðið - 30.03.1979, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1979.
9
Erlendar
■
wa
lATA-menn
ósammála
Fulltrúm Alþjóðasambands flugfé-
laga, IATA, tókst ekki í gær að komast
að samkomulagi um hækkun flugfar-
gjalda til að mæta auknum eldsneytis-
kostnaði. Fundinn, sem haldinn er í
Genf i Sviss, sitja 65 manns. Þeir eru
flestallir sammála um að hærri fargjöld
séu bráðnauðsynleg til að mæta verð-
hækkunum á eldsneyti síðustu daga, en
greinir á um, hve mikil hún skuli vera.
TÍSKU
SYNING
T Herrahúsinu
Bankastrœti
laugard. kl.11-11.30
Vel vopnum búið herlið Egypta er
sagt stefna að lýbisku landamærun-
um vegna ólgu í öðrum Arabaríkjum
eftir að friðarsamningurinn við
ísraelsmenn var undirritaður. Hálf-
opinbert málgagn egypzku stjórnar-
innar Al-ahram, skýrði ekki frá
þessum herflutningum í morgun.
Heimildarmaður í egypzka varnar-
málaráðuneytinu sagði að þörf væri á
að efla varnirnar á landamærunum
sem liggja að Lýbíu, þar eð fjand-
menn væru að styrkja lið sitt þar.
Libýustjórn er einn harðasti and-
stæðingur friðarsamninga ísraels og
Egyptalands og ásamt Sýrlendingum
þeir sem krefjast harðastra gagnað-
gerða á fundi utanríkis-ogviðskipta-
ráðherra landanna i Bagdad Libýu-
menn hafa þó aldrei fengiz til að
taka þátt í beinum stríðsniökum gegn
ísraelsmönnum heldur liafa verið
mestir í munninum.
BANKASTRÆTI 7. SlMI 29122.
Yasser Arafat
hvetur til við-
skiptabanns
á Bandaríkin
Yasser Arafat leiðtogi PLO samtaka
Palestínuaraba krafðist þess að sett
yrði viðskiptabann á Bandaríkin í refs-
ingarskyni fyTÍr þátt þeirra í friðar-
samningum ísraels og Egyptalands.
Gerðist þetta i morgun á fundi utan-
ríkis- og efnahagsráðherra arabaríkja,
sem haldinn er í Bagdad. Ræða Arafats
var ein sú harðorðasta sem hann hefur
flutt gegn ísrael um langt skeið.
Ráðstefnan hefur það að höfuðverk-
efni að ræða leiðir til að refsa Egyptum
fyrir að gera einhliða friðarsamninga
við ísrael. Tilkynnt var i Kairo í
morgun að allar árásir eða tilraunir til
árása á Egypta eða hagsmuni þeirra
yrðu barðar niður með hörku.
Hvaða aðgerðir verða ákveðnar gegn
Egyptum á fundinum í Bagdad ræðst
að mestu af afstöðu Saudi-araba til
málsink. Þeir hafa um langt skeið veitt
Egyptum mikla efnahagsaðstoð, sem
þeir gætu fellt niður. Ekki er það þó
svo einfalt því með því sköpuðu þeir sér
andúð Bandaríkjamanna, sem hafa
gefið þeim fyrirheit um að verja olíu-
hagsmuni sína á Arabiuskaganum með
vopnavaldi ef þörf krefji og þar með
tryggja ráðamenn í Saudi-Arabíu gegn
örlögum keisarans í fran.
vor-sumar-og
hausttískan
lifandi komin!
KÓRÖNA BÚÐIRNAR
Ekkertfærnú
forðað Bhutto
Ekkert fær nú forðað Zulfikar Ali
Bhutto fyrrum forsætisráðherra
Pakistan frá gálganum nema náðun
eftirmanns hans, Zia-Ul-Haq. Hæsti-
réliur úrskurðaði í gær að krafa verj-
enga Bhuttos um að réttarhöldin yfir
ho|um hefðu verið ólögleg ætti ekki
vi<ý rök að styðjast. Því væri engin
ástæða til að efna til nýrra réttarhalda.
Nú mun draga úr tónum sekkjapipunnar skozku á næstu árum. Svo mun nú vera
komið að viðurinn sem þær eru gerðar af er á þrotum i heiminum. Heitir hann iben-
holt. Saga þessarra pipa er meira en tvö þúsund ára gömul og margir eru þeir her-
flokkar Skota sem skapað hafa sér ódauðlega frægð í orrustum þar sem þeir hafa
ruðzt fram i opinn dauðann undir glæstum sekkjapipuhljómum.
Bandaríkin:
Geislarykið lekur
enn út tveim dög-
um eftir bilunina
— Geislavirkni í Harrisburg f immtán sinnum meiri en eðlilegt er—kröf ur um að
þungaðar konur séu f luttar af svæðinu umhverfis hið bilaða kjarnorkuver
Geislavirkt efni er enn sagt leka frá
kjarnaofni við Harrisburg í Penn-
sylvaniu-fylki i Bandaríkjunum,
tveimur dögum eftir að leki komst að
öryggisbúnaði ofnsins. Geislavirkt
efni hefur fundizt í andrúmsloftinu
32 kílómetra frá kjarnorkuverinu.
Þetta mun vera alvarlegasta bilun
sem orðið hefur í kjarnaofni í
Bandaríkjunum.
Vísindamenn voru önnum kafnir
við að reyna að gera við bilunina og
sjá svo um að þykkur steinveggur
sem tryggja átti að geislavirkt efni
kæmist ekki á brott gegni hlutverki
sínu. Mikill hiti í kjarnorkuverinu,
sem stafa mun af biluninni, olli þeim
þó miklum erfiðleikum. Yfirvöld
halda fast við þá fullyrðingu að al-
menningi stafi engin hætta af geisla-
virkum efnum.
Geislavirkni er mjög greinUeg fyrir
utan kjarnorkuverið, sem er í sextán
kUómetra fjarlægð frá Harrisburg,
sem er sextíu þúsund manna borg.
Eins og áður sagði hafa merki auk-
innar geislavirkni fundizt í 32 míló-
metra fjarlægð.
Bilunin varð á miðvikudag, þegar
kælikerfi bilaði og kjarnakljúfur of-
hitnaði með ofangreindum afleiðing-
um.
Ríkisstjórinn í Pennsylvaníu sagði
á blaðamannafundi i gær að hann
teldi enga ástæðu til neyðarráðstaf-
ana og fólk gæti allt haldið áfram
sinni daglegu iðju.
Ernest Stenlass prófessor við há-
skólann i Pittsburg, sem lengi hefur
verið mjög gagnrýninn á kjarnorku-
ver, sagði í yfirheyrslum hjá þing-
deild í Washington, að flytja ætti
allar þungaðar konur af svæðinu
nærri kjarnorkuverinu. Einnig gæti
geislavirknin haft skaðleg áhrif á ung
börn og einnig matarbirgðir. Prófess-
orinn sagði að samkvæmt mælingum
væri geislavirkni fimmtán sinnum
meiri en eðlilegt væri i Harrisburg.
SýpingarsaJur
Tegund Arg. Verð
Rat 132 GLS 78 3,900 þús.
Rat 132 GLS. 77 3.500 þús.
Rat 132 GLS 76 2.900 þús.
Rat 132 GLS 75 2.300 þús.
Rat 132 GLS 74 1.800 þús.
Bronco '66 1.550 þús.
Mazda 818 78 3.100 þús.
Nova 73 2.350 þús.
Mazda 818 73 2.500 þús.
Rat 131 Sp. 77 2.800 þús.
Rat 131 Sp. 76 2.300 þús.
Rat 131 Sp. station 77 3.400 þús.
Rat 128 Ce 77 2.350 þús.
Rat 128 Sp. 76 2.000 þús.
Rat 128 75 1.200 þús.
Rat 128 74 900 þús.
Wagoneer '66 1.500 þús.
Cortina 1300 74 1.700 þús.
Cortina 71 900 þús.
Toyota Corolla 77 3.100 þús.
Rat 127 CL 78 2.400 þús.
Rat 127 77 1.900 þús.
Fiat 127 Sp. 76 1.700 þús.
Rat 127 76 1.550 þús.'
Rat 127 74 900 þús.
Rat 125 P station 78 2.000 þús.
Rat 125 P station 77 1.850 þús.
fiat 125 P. 78 2.000þús.
Rat 125 P. 77 1.700 þús.
Rat 125 P. 76 1.550 þús.
( FlAT IIMKAUMSOO A llLAMOI
DAVkJ SIGURÐSSON hf.
SlOUMULA 3B. tlMI tMSI