Dagblaðið - 30.03.1979, Page 15
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1979.
Rektorsefni reifa sjónarmið sín:
'i
Rannsóknarstörfm á hakanum?
Guðmundur Magnússon prófessor.
Á fundi sem haldinn var í fyrradag í
Háskóla íslands um málefni skólans
kom fram í máli Sigurjóns Björnssonar
prófessors að hann hefur gert úttekt á
vísindalegri framleiðslu kennara við HÍ
og borið saman við meðaltalsfram-
leiðslu kennara í hundrað bandarískum
háskólum. Könnun þessi, sem náði til
áranna 1966—70, reyndist HÍ mjög i
óhag. Meðalfjöldi ritgerða á hvern
háskólakennara hér á landi reyndist
aðeins 0,65 eða rúmlega hálf ritgerð á
ári á hvern kennara en meðalfjöldinn
reyndist 1,04. Þetta hlutfall væri HÍ i
raun enn óhagstæðara þar sem 21%
islenzku ritgerðanna væru samdar af
mönnum sem ynnu við rannsóknar-
stofnanir Háskólans en væru ekki
kennarar. Sagðist Sigurjón einnig hafa
metið það mjög rúmt hvað teldust rit-
gerðir faglegs eðlis þannig að þessari
óhagstæðu útkomu væri ekki að kenna
ströngu mati hans á hvað teldist
vísindaleg framleiðsla. Taldi Sigurjón
að þetta segði mjög dapurlega sögu um
stöðu Háskólans, og markverðustu
rannsóknirnar í raunvisindum og heil-
brigðismálum kæmu ekki frá HÍ.
Kjallarinn
HilmarS. Karlsson
plcn'uhluta, án eftirspumar er fram
boð „næringarvana” og sjálfdauða.
Innri agi — Ytrl agi
Boð og bönn eru á þá leið að þau
koma til móts við skort á innri aga
með ytri aga. í stað þess að lög og
reglur samfélagsins geri þær kröfur
til fullorðins fólks að það taki á sig
ábyrgð fullorðinsáranna eru lögin
sum hver sniðin að því að í landinu
séu pelabörn á öllum aldri en full-
orðnir nánast engir. í húsbónda-
stólum heimilisins sitja svo fáeinir
„feður” eða „stórir bræður” sem
eiga að forða krógafjöldinni frá því
að brenna sig í puttana. Mönnum
finnst ef til vill öfgakennt að tala um
bönn á borð við bjórbann í sama orði
og alhliða mannréttindaleysi en ég fæ
ekki með nokkru móti séð að það sé
annað en aumur stigsmunur á milli
einnar mannréttindasviptingar og
annarrar. Eðlismunur er það ekki.
Öllum mörkum sem ekki byggja
á eðlismun heldur stigsmun svipar til
þeirra gulu markalína sem krakkar
Fjársvelti
Háskólans
Kenndi Sigurjón um aðstöðuleysi og
fjársvelti sem væri slíkt að engin tök
væru á að vinna að öðru en fljótunnum
verkefnum. Miklar umræður urðu á
fundinum. Bjami Guðnason prófessor
sagði að laun háskólakennara væru svo
léleg að menn yrðu að verða sér úti um
„utanskvettu” í formi aukakennslu og
það byði heim þeirri hættu að rann-
sóknarstörfin sem væru metin í launum
sem 40% af starfi kennarans yrðu
útundan. Hvatti Bjarni til að hafin yrði
barátta gegn þeirri útbreiddu skoðun
að Háskólinn væri afæta á þjóðfélag-
inu, því að meðan henni væri látið
ósvarað kæmist ríkisvaldið upp með að
hafa Háskólanní fjársvelti.
Sjálfstæðistákn
þjóðarinnar
Fundur þessi, sem bar yfirskriftina
„Háskóli íslands — hvernig er hann og
hvernig ætti hann að vera?”, var öðr-
Sigurjón Björnsson prófessor.
draga stundum út í loftið um áramót
með stjörnuljósum. Á andartaki eru
þau horfin og söm er tilhneiging
þeirra stigsmunamarka sem klaufskir
landsfeður draga. Ein mörkin gefa
sig, næsta bann litur dagsins ljós, þar
með er miðað við næstu mörk sem
síðan gefa sig og svo koll af kolli og
fyrir rest höfum við 1984. „Para-
noid”, ofsóknarbrjálaður? Vildi
óska að málið væri svo einfalt. Eða
getur einhver svarað mér því hvar
föst viðspyrna er fyrir gegn lögreglu-
ríki ef á annað borð er farið að banna
mönnum að fara sér að voða?
Auðmýkjandi
og því ögrandi
Hér hafa verið talin til nokkur aug-
ljósustu rökin gegn því að rénandi
sjálfsaga og skorti á innri siðstyrk sé
mætt með auknu ytra valdboði, en að
sjálfsögðu er fjöldi augljósra rök-
semda enn ótalinn, t.d. móralskar
röksemdir. Það þarf til að mynda vart
að deila um hve litið hvetjandi það er
fólki að efla með sér innri aga og
verða fullorðið þegar þjóðfélagsregl-
ur hafa eytt öllum „stimúlans” með
ofvernd. Þessi fjárans klaufalög öll
eru raunar lítt til þess fallin að ýta
undir löghlýðni! Til dæmis börn og
unglingar milli vita sem horfa upp á
þjóðfélagsreglur þeirra fúllorðnu, sem
meðal annars banna fólki að missa
sykur oní að bruggi loknu o.s.frv.,
missa eðlilega alla virðingu fyrir
lögum yfirleitt. Þegar þeir horfa upp
á hverja heimskulegu reglugerðina á
fætur annarri hættir þeim til að gefa
frat í allar þjóðfélagsreglur og mis-
virða þá einnig önnur og raunhæfari
bannlög svo sem bönn við gripdeild-
um og ofbeldi. Og svo mætti lengi
tína tilröksemdir.
Bannlögin, sem ætlað er að standa
vörð um siðgæðið í landinu, ögra í
reynd til siðleysis og eru í öllum skiln-
ingi afsiðandi. Við verðum að hætta
að krukka i sjúkdómseinkenni.
Hilmar S. Karlsson
háskólanemi.
um þræði framboðsfundur
rektorskandídatanna. Frummælendur
auk Sigurjóns voru Guðmundur
Magnússon prófessor viðskiptafræði-
deild og Sigmundur Guðbjarnason
prófessor í verkfræði- og raunvísinda-
deild en þeir þrír urðu sem kunnugt er
langefstir í nýafstöðnu prófkjöri. Á
fundinum ítrekaði Sigmundur þó að
hann gæfi ekki kost á sér í embættið.
Guðmundur ræddi um sjálfstæði
Háskólans og sagði meðal annars að
Háskólinn hefði goldið þess að heita
skóli og lagði áherzlu á að rannsóknir
og kennsla yrði að haldast í hendur.
Hann sagði að HÍ væri í reynd sjálf-
stæðistákn bióðarinnar og væri höfuð-
Fundurinn var vel sóltur og miklar umræður urðu. DB-myndir Bjarnleifur.
skylda yfirstjórnar hans að auka veg-
semd hans og virðingu. Sigmundur
fjallaði um rannsóknarstarfsemi
Háskólans og tengsl hennar við at-
vinnuvegina. Sagði hann að án rann-
sókna staðnaði kennarinn og að skól-
inn ætti í auknum mæli að taka þátt i
atvinnuþróun í landinu. Öfugt við það
sem Sigurjón sýndi fram á hélt hann
því fram að starfsmenn Háskólans
væru afkastameiri en menn gerðu sér
grein fyrir. Að loknum framsöguerind-
um urðu miklar umræður en einna
mesta athygli vakti tillaga Júlíusar
Sólness prófessors þess efnis að
Háskólaráð tæki að sér að sjá um
hátíðadagskrá 1. desember því að eins
og stúdentar hefðu staðið að þeirri
hátíð hefði hún átt sinn þátt i þvi að
draga úr tiltrú almennings á gildi
skólans.
-GAJ-
Frá fundinum í Háskóla íslands. Á
myndinni má m.a. sjá Bjarna Guöna-
son prófessor, hagfræðingana Ásmund
Stefánsson og Þráin Eggertsson.
Sigmundur Guðbjarnason prófcssor.
Við bjóðum
ekkiaðeins læqsta verðið
á litsjónvarpstækjum...
Með fjarstýringu
heldur einnig:
• INNLINE - MYNDLAMPA
• SNERTIRÁSASKIPTINGU
• SPENNUSKYNJARA
• KALT KERFI
• FRÁBÆRA MYND
• MIKIL TÓNGÆÐI
• SPÓNLAGÐAN VIÐARKASSA
• LÆGSTA VERÐIÐ
Á MARKAÐINUM
Sjónvarp & Radio
Hverfisgötu 82 — Sími 23611.
RANK - RANK - RANK - RANK - RANK - RANK - RANK
RANK - RANK -4 RANK - RANK - RANK - RANK - RANK - 0C