Dagblaðið - 30.03.1979, Qupperneq 19
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1979.
Ingimar Erlendur Sigurðsson — Fjall I þúfu,
Letur, 119 bb.
Sumar bækur láta svo litið yfir sér
að þær beinlínis hverfa í hvitu
pappírsflóðinu — einkarlega ef þær
eru látlausar útlits. Slíkt held ég að
hafi komið fyrir ljóðabók Ingimars
Erlends Fjall i þúfu sem Letur læddi
á markaðinn fyrir jól, en fylgdi henni
ekki eftir með því brambolti sem
stærri útgefendur geta leyft sér. Þetta
er miður, því bókin er um margt eitt
heillegasta Ijóðasafn Ingimars
Erlends til þessa.
Höfundur hefur undanfarin ár
verið i miklum ljóðaham og sent frá
sér kveðskap næstum árlega frá 1973
og notað til þess samvinnufélagið
Letur í stað þess að vera upp á aðra
kominn. Atburðir líðandi stundar og
þjóðfélagsbreytingar hafa ekki haft
ýkja mikil áhrif á skáldskap Ingimars
Erlends.
Veldi til-
finninganna
Þeim bregður jú fyrir —
rauðsokkum, streituumræðum,
opnaljóðinu, stúdentaóróa, en eru
honum ekki tilefni mikilla hug-
leiðinga — reyndar virðast þjóð-
félagsmál vekja upp nöldursegg í
skáldinu. f staðinn ræktar Ingimar
Erlendur sinn eigin garð staðfastlega,
upp á gamla mátann, og yrkisefni
hans eru m.a. tjáning sjálfsins, gildi
og veldi tilfinninganna og tilgangur
lífsins. Hvað á skáld að gera í þessum
heimi? er sú grundvallarspurning sem
mikið af kveðskap Ingimars Erlends
byggist á. Um öll þessi hjartans mál
fjölyrðir skáldið ekki og fullyrðir
minna, heldur setur Ijóð sin fram í
formi stuttlegra skilaboða eða sam-
viskuspurninga, og siðan er lesanda
ætlað að íhuga þær og gera upp hug
sinn gagnvart þeim. I fyrri Ijóðabók-
um sínum var lngimar Erlendi jafnan
mikið niðri fyrir, Ijóðin ólguðu og
súrruðu, oft svo upp úr sauð og
skáldið skrifaði helst í bálkum eða
matarmiklum hendingum.
í átt að
kjarnanum
Smátt og smátt hefur Ingimar
Erlendur verið að sníða af og draga
saman í ljóðum sínum og feta sig í átt
að kjarnanum. í ,,Fjall í þúfu” er
hvert ljóð nánast eins og „afórismi”,
stutt og laggott en þó eins og
samanrekið, — mikill kraftur leysist
úr læðingi við nánari kynni. Á þessu
formi hefur Ingimar Erlendur náð
svo góðu tangarhaldi að surr Ijóðin
virðast yrkja sig sjálf eða næstum
því. Þegar höfundur er komir.náþað
stig má hann gæta þcss að verða ekki
Bók
menntir
1
AÐALSTEINN
INGÖLFSSON
1
eins og íþróttamaður í stökugerð sem
er reiðubúinn að kasta fram
hendingum við öll möguleg og
ómöguleg tækifæri — þar sem inntak
skiptir minna máli en rím og stuðla-
kúnstir. Ingimar Erlendi er nefnilega
dálitið hætt við að taka hið knappa
form alla leið fram á ystu nöf: Gamla
fólkið / gekk / til náða / og gleymdi
/ ekki / að slökkva / log / andi ljós
(Andakt)”.
Einfalt
orðfæri
Hér er á mörkunum að tilhlýðileg
spenna myndist i samspili forms og
inntaks, þannig að hægt sé að kalla
niðurstöðuna „Ijóð”. Hins vegar er
hið einfalda orðfæri skáldsins stórt
atriði í bestu ljóðum bókarinnar,
t.a.m. Farfuglar, Sköpun, Sláttur,
Grátur, Gríma, Augasteinn o. fl. Ef
grannt er skoðað, þá sýnast Ijóðin
ntynda ákveðnar heildir — sú fyrsta
l'jallar um orðið og sköpunina, önnur
um trúna, sú þriðja um sorgina, sú
fjórða um „fjallið og þúfuna” sú
fimmta um ást og afbrýði og sú sjötta
og síðasta virðist blönduð að efni.
Ekki verður nein þessara heilda
kölluð bálkur nema kannski sú sem
gefur bókinni heiti og þykir ntér sá
þáttur einna bestur. Fjallið og þúfan
eru ekki auðskiljanleg eða varanleg
tákn heldur síbreytileg eftir þörfum
skáldsins og það er nt.a. óræði þeirra
sem magna ljóðin. Kannski er fjallið
lákn mikilfengleikans eða
göfugleikans og þúfan boðberi hóg-
værðar og lítillætis. Eða þá að fjallið
er dramb og þúfan feimni.
Möguleikarnir eru óteljandi. Auk
þess bregður Ingimar Erlendur á leik,
hlær að sjálfúm sér og þessum tákn-
um sínum, þannig að lesandinn
verður að halda vöku sinni i lestrin-
um. Forsíðumynd Sigrid Valtingojer
hæfir bókinni prýðilcga.
Þeir sem ekki reykja hafa betra úthald og geta dansað lengur.
..Dansað i hreinu lofti
Nk. sunnudag 1. apríl mun
Samstarfsnefnd um teykingavarnir
gangast fyrir reyklausu diskóteki að
Hótel Borg, frá kl. 15.00—18.00,
fyrir unglinga fædda 1 %5 og eldri.
Þetta diskótek er haldið í samvinnu
við Hótel Borg, sem lánar húsið
endurgjaldslaust og Diskótekið Dísu,
sem sjá mun um tónlistina og halda
uppi fjörinu. Sýndar verða nýjustu
poppmyndirriar um leið og lögin
verða spiluð af plötum. Þá munu
unglingarnir, sem urðu í fyrsta og
öðru sæti i hópdiskódanskeppni
Klúbbsins og Útsýnar, sýna diskó-
dansa.
Aðgangur er ókeypis og heimill öll-
um þeim unglingum sem fæddir eru
1965 og fyrr og vilja skemmta sér og
dansa i hreinu lofti — án tóbaks-
reyks. Allir sem koma á diskótekið
nk. sunnudag, fá ókeypis barmmerki
sem á stendur: „Reykingar eru tóm
tjara ” og litprentað veggspjald með
þekktu frjálsíþróttafólki.
Kennarar
mótmæla
Kennarar við Kópavogsskóla, 24 að
tölu, hafa sent DB orðsendingu, þar
sem mótmælt er þeirri ákvörðun
stjórnvalda að lækka fjárframlög
rikisins til skólamála á fjárlögum þessa
árs. Erfiðlega gengur að framkvæma
nýju grunnskólalögin vegna fjárskorts.
Þá er og mótmælt þeirri hugmynd að
fjölga í bekkjardeildum. -JH
Bókaeign
Borgarbóka-
safnsins
Bókaeign Borgarbókasafns Reykja-
víkur var í árslok síðasta árs 274.329
eintök. Á árinu bættust í safnið 17.498
eintök af bókum, að meðaltali 9.55 ein-
tök af hverju bókarheiti. Þannig fjölg-
aði bókarheitum um 1831 á síðasta ári.
Vestfirðir:
Gjafir Lionsmanna
Lionsmenn á Vestfjörðum gáfu
nýlega Styrktarfélagi vangeftnna þar
rúmar þrjár milljónir og sjö hundruð
þúsund er þeir höfðu safnað. Ágúst
H. Pétursson oddviti lét Gunnar
Björnsson prest, formann félagsins,
fá féð, sem 7 Lionsmanna höfðu
aflað. Styrktarfélag vangefinna hefur
nú sótt um byggingarlóð á ísafirði en
ekki fengið svar ennþá þar sem beðið
er stefnumarkandi löggjafar um mál-
efni vangefinna.
-DS.
Skipulagsnefnd Akureyrar um staðsetningu
skemmtistaða:
Aðeins í miðbænum
Skipulagsnefnd Akureyrar hefur
markað þá stefnu að skemmtistaðir
bæjarins skuli aðeins vera á
miðbæjarsvæðinu og þar með ekki
langt hvor frá öðrum.
Þessi stefna var staðfest er
byggingaraðilar verzlunarmiðstöðv-
arinnar við Sunnuhlíð óskuðu eftir
leyfi til reksturs 250 til 300 manna
skemmtistáðar í verzlunarhúsinu en
meirihluti nefndarinnar synjaði
beiðninni fyrir sitt leyti.
Er það nú bæjarstjórnar að taka
ákvörðun um framhald málsins en
hún sendi skipulagsnefnd umsóknina
til umsagnar.
-GS.
fer nú um landsbyggðina og sýnir
barnaleikritið Vatnsberana eftir
Herdisi Egilsdóttur.
-GAJ
Alþýðuleikhúsið:
Nornin
Baba-
Jaga
flytur
íBre
holtið
Undanfarnar vikur hefur Alþýðu-
leikhúsið-sunnandeild — sýnt bama-
leikritið Nornin Baba-Jaga eftir J.
Schwartz I Lindarbæ og hefur verið
uppselt á allar sýningar. Hefur nú
verið ákveðið að sýna leikritið i
Breiðholtsskóla vikuna 2.—7. apríl
og gefa þannig börnum í Breiðholti
kost á leiksýningum í hverfinu. Miða-
sala fer fram i skólunum í hverfinu
og er auglýst í hverjum skóla fyrir
sig. Sýningar í Breiðholtsskóla verða
mánudag, þriöjudag, miðvikudag og
Nornin Baba-Jaga.
föstudagkl. 17 og laugardag kl. 14og
17. Foreldrar eru einnig velkomnir á
sýningarnar. Þá má geta þess, að
annar hópur frá Alþýðuleikhúsinu
Skoðið rúmin í rúmgóðri verzlun
INGVAR OG GYLFI
GRENSÁSVEGI 3108 REYKJAVÍK, SÍMI: 81144 OG 33530.
Sérverzlun með rúm
Glæsilegar blómstrandi pottaplöntur: Hortensia — gardinía —
seneraria, páskakaktus, st. Paulía — ástareldur — litlir og stórir
burknar.
Vor/aukaúrval
Begoníur, dahiíur, gloxiníur, anímónur, asíusóleyjar, glóðarliljá, íris,
bóndarós, gladiolur, amaryllis, fuglamjólk, fresiur, 10 liljutegundir.
Garðrósir í öllum litum.
Sendum um allt land.
Opið öllkvöld tilkl. 21 - Sími22822