Dagblaðið - 30.03.1979, Qupperneq 31
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1979.
a
Útvarp
35
Sjónvarp
I
r------------------------------------------------\
SEGÐU ÞEIM AF WILLIE, sjónvarp íkvöld kl. 22.00:
„ Vestri” með samúð-
ina indíána megin
Segðu þeim af Willie (Tell Them
Willie Boy Is Here) nefnist bíómynd
sjónvarpsins í kvöld Aðalhlutverkið
leikur hinn frægi kvikmynda,,sjarm-
ör” Robert Redford og í öðrum stórum
hlutverkum eru Robeart Blake og
Katarine Ross. í minni hlutverkum eru
Susan Clark og Barry Sullivan.
Sagan gerist í byrjun aldarinnar.
Hún greinir frá lögreglustjóra sem eltist
við Indíána af Paiute kynstofni upp um
öll fjöll. Það sem Indíáninn hefur til
saka unnið er að nema á brott unnustu
sína og hafa hana með sér i óbyggðirn-
ar.
Redford leikur lögreglustjórann og
Blake Indíánann. Báðir þykja sýna
mjög góðan leik og leikstjórn Abra-
hams Polonskys þykir mjög góð. Kvik-
myndahandbókin gefur myndinni þrjár
og hálfa stjörnu af fjórum mögulegum
og segir að svo sé góðu handriti og leik-
stjórn fyrir að þakka að myndin sé
óvenjugóður vestri!
Myndin er líka sérstök meðal banda-
rískra bíómynda að því leyti að hún
fjallar á óvenju samúðarfullan hátt um
meðferð hvíta mannsins á Indíánum.
Það er að segja, samúðin er með
Indiánum, aldrei slíku vant. -DS.
Indíáninn eltist við unnustu sína við erfiðar aðstæður. Blake og Ross í hlutverkum
sínum í myndinni Segðu þeim af Willie.
Föstudagur
30. marz
12.00 Dagskráin.Tónleikar.Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréítir. Tilkynningar.
Viö vinnunarTónleikar.
14.30 Miödegissagan: „Fyrir opnum tjöldum”
eftir Grétu Sigfusdöttur. Herdís Þorvaldsdótt
irles(13).
15.00 Miðdegistónleikan Ertska kammersveitin
leikur „Vatnslitamyndir”, tónverk eftir
Fredcrick Delius; Daniel Barenboim stj. /
Felicja Blumental leikur með Fílharmoniu-
sveitinni i Vin Pianókonsert í a-moll op. 17
eftir Ignac Paderewski.
15.40 Lesin dagskrá næstu viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.30 Popphorn: Dóra Jónsdóttir kynnir.
17.20 Otvarpssaga barnanna: „Leynlskjaliö”
eftir Indriða Úlfsson. Höfundur byrjar lestur-
inn.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.40 Hákariaveiöar I Húnaflóa um 1920. Ingi
Karl Jóhánnesson rasðir við Jóhannes Jónsson
frá Asparvik; — annar þáttur.
20.05 Kammertónlist. Bruxclles trióið leikur
Tríó í Es-dúr op. 70 nr. 1 eftir Ludwig van
Beethoven.
20.30 Um kvikmyndagerö á íslandi. Umsjónar
maður: Karl Jeppesen. Fjallaðum kvikmynda-
gcrðáhugamanna.
21.05 Frá tónlistarhátfðinnl 1 Berlin I september
sl. Félagar i Fílharmoníusveitinni í Berlín
leika: Cark) Maria Giulini stj. a. Sónata og
Cansóna fyrir blásara eftir Giovanni Gabrieli.
b. Concerto grosso nr. 5 eftir Francesco
Geminíani.
21.25 í kýrhausnum. Sigurður Einarsson sér um
þátt meðskringilegheitum og tónlist.
21.45 Kórsöngur: Uogverski útvarpskórinn
syngur fjögur sönglög eftir Robert Schumann.
Söngstjóri: Laszló Révesz.
j22.05 Kvöldsagan: „Hcimur á viö hálft kálf-
j skinn” eftir Jón Helgason. Svcinn Skorri
Höskuldsson les(lO).
22,30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
Lestur Passíusálma (40).
22.55 Bókraenntaþáttur. Umsjónarmaður:
Anna ÓJafsdóttir Bjömsson. Fjallað um stíl og
stílbrögð.
23.10 Kvöldstund meðSveini Einarssyni.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur
30. mars
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Skonrok(k). Þorgeir Ástvaldsson kynnir
ný dægurlög.
21.00 Kastljós. Þáttur um innlend málefní. Um-
sjónarmaður Helgi E. Helgason.
22.00 Segió þeim af Willie. (Tell Them Willie
Boy Is Here). Bandarisk blómynd frá árinu
1969. Aðalhlutverk Robert Redford, Robert
Blake og Katarine Ross. Sagan gerist i byrjun
aldarinnar og hefst með þvi að indíáninn
Willie Boy nemur unnustu sina á brott og
heldur með hana út í óbyggöir. Þýðandi Krist-
mann Eiðsson.
23.35 Dagskrárlok.
t-----------------------------v
LEYNISKJALIЗútvarp í dag kl. 17.20:
Dularfullir
í-------;---------------------------------------------\
KASTUÓS — sjónvarp íkvöld kl. 21.00:
Inngangan og veran í
NATO
„Fjallað verður um inngöngu
íslands í Atlantshafsbandalagið fyrir
þrjátiu árum og veruna í því núna í
máli og myndum,” sagði Helgi Helga-
son umsjónarmaður Kastljóssins í
kvöld.
„Rætt verður um ákvörðunina að
aðildinni og atburðina við Alþingis-
húsið 30. marz 1949. Talað verður við
menn sem sátu á þingi á þessum tíma
og menn sem tóku þátt í atburðunum
utan húss.
í þáttinn koma svo fulltrúi samtaka
hernámsandstæðinga og frá Varðbergi
— félagi vestrænnar samvinnu og
skiptast á skoðunum um vcruna i
bandalaginu í dag,” sagðí Helgi. -I)S.
Mynd frá látunum á Austurvelli 1949. Myndin er úr Öldinni okkar,
V____________________ J
t------------------------------------------N
UM KVIKMYNDAGERÐ AISLANDI - útvarp í kvSld kl. 20.30:
Trésmiðurinn sem
liggur yf ir fugla-
myndum öll sumur
,,í þessum síðasta þætti mínum um
kvikmyndagerð verður fjallað um þá
sem taka kvikmyndir án þess að hafa
það að atvinnu sinni,” sagði Karl
V.
Jeppesen sem er með kvikmyndaþátt í
útvarpinu í kvöld.
„Ingibjörg Haraldsdóttir sem
skrifar um kvikmyndir í Þjóðviljanum
byrjar þáttinn með því að tala um það
gagn sem er að myndlistarkennslu í
skólum fyrir fólk almennt og þörfina á
listsköpun hjá mannfólkinu.
Rætt verður við Kristberg Óskars-
son sem fékk gullverðlaun á kvik-
myndahátíð í Tjarnarbíói í febrúar
fyrir mynd sína Listaverk.
Þá verður rætt um æskulýð og
kvikmyndagerð. Farið verður í Álfta-
mýrarskóla þar sem er mjög öflug
starfsemi í kvikmyndagerð og talað við
krakkana, sem eru duglegust við þessa
starfsemi. Kennari þeirra, Marteinn
Karl Jeppesen.
Sigurðsson, flytur einnig smápistil um
þetta mál.
Rætt verður við Magnús Magnús-
son sem er trésmiður að atvinnu en
liggur við það öll sumur að kvikmynda
fugla og skordýr við Mývatn. Magnús
hefur náð miklu af hljóðum fugla á
segulband og fáum við að heyra brot af
þessu og segir hann mönnum hvað er
hvað,” sagði Karl.
-DS.
t
Indriði Úlfsson skólastjóri á
Akureyri byrjar í dag að lesa sögu sina
Leyniskjalið sem útvarpssögu
barnanna. Indriði var spurður um
söguþráðog aldur Leyniskjaldsins.
„Þetta er saga fyrir krakka svona
8 til 14 ára gamla. Söguþráðurinn snýst
um dreng, sem þýr í kaupstað einum,
þar sem hann verður fyrir þvi að vera
þjófkenndur þegar peningaveski hverf-
ur. Um sumarið fer drengurinn i vega-
vinnu til afa síns sem er verkstjóri og
kemur þar upp annað þjófnaðarmál og
bendir ýmislegt til, að það sé tengt hinu
fyrra. Bókin fjallar siðan um uppljóstr-
un þessara mála.
Leyniskjalið kom út 1967 og er
fyrsta bókin min. Hun er jnfnframt sú
fyrsta af þrem, þar sem II oddi Braga-
son er aðalpersónan," sagði Indriði.
■ -l)S.
Indriði Úlfsson skólastjóri.
Smurbrauðstofqn
BJORNINN
Njálsgötu 49 - Sími 15105
Fermingargjöfín í ár
SIGMAR Ó. MARÍUSSON
Hverfisgötu 16A - Sfmi 21355.