Dagblaðið - 31.05.1979, Page 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1979.
Gleymið ekki messunum
—þeireru líkamenn
Vélamaður skrifar:
Ég er fyrrverandi sjómaður og tel
mig þekkja svolítið til starfa far-
manna á flutningaskipum. Mér er
fullkunnugt um að bæði undir- og
yfirmenn eru skammarlega lágt
launaðir og hafa verið það alla tíð.
Það er því kominn tími til að kjör
beggja verði leiðrétt því farmenn fara
aðeins fram á mannsæmandi lífskjör
og ekki annað. Sumir öfunda þessa
menn af þeim hlunnindum sem þeir
hafa. Þau hlunnindi eru 1 flaska af
sterku og 1 af léttu víni ásamt einu
kartoni af sígarettum. En vitanlega
getur farmaður keypt fyrir sinn gjald-
eyri erlendis eins og þúsundir annarra
íslendinga. Þegar ég sigldi í gamla
daga voru farmenn nærri ofsóttir ef
þeir komu upp með einhvern
varning. Ég vona að það hafi breytzt.
Gífurleg aukavinna hefur oft á
tíðum bjargað málunum en nú er mér
tjáð að hún sé lítil sem engin og að
farmenn, hvort sem þeir eru undir-
eða yfirmenn, að ég tali nú ekki um
messana, geti engan veginn lifað á
launum sínum. Farmenn eru mestan
hluta ævi sinnar fjarri vinum og
ættingjum og ber þeim því skilyrðis-
laust gott kaup. Sá tími getur komið
að menn fáist ekki til þess að fara á
skipin og hvað gerist þá? Gaman
væri ef forstjóri Vinnuveitendasam-
bandsins gæti svarað þeirri
spumingu.
Að lokum þetta: Ég vona að bæði
undir- og yfirmenn nái góðum
samningum. Og eitt enn: Gleymið
ekki messunum sem alltaf hafa verið
svívirðilega lágt launaðir. Þeir eru
líka menn.
»
„... bæði undirmenn og yfirmenn eru
skammarlega lágt launaðir og hafa
verið það alla tið.”
CORY KAFFIKONNUR
— þurfa milligróft kaffi
Hulda Kristjánsdóttir i Bolungarvík
skrifar:
Cory-kaffikönnur eru alveg prýðis-
kaffikönnur og á ég eina slíka. Þær
eru nokkuð auglýstar í blöðunum og
eru það O. Johnson og Kaaber sem
flytja þær inn og selja. í þessar kaffi-
könnur þarf sérmalað kaffi til þess að
ekki komi botnfall. Er þetta kaffi selt
í 5 kg pakknjngum hjá sama fyrir-
tæki. Ég held að mjög fáir viti að i
þessar könnur þarf sérmalað kaffi.
Mig langar því til þess að vita hvers
vegna það er ekki auglýst um leið og
könnurnar.
DB hafði samband við Ólaf Karls-
son, sölustjóra hjá O. Johnson og
Kaaber: „Það er rétt að í þessar
'könnur þarf svokallað milligróft
kaffi. Þetta kaffi höfum við hins
vegar ekki í neytendapakkningum
vegna þess að könnurnar eru svo
stórar að þær eru aðallega notaðar i
mötuneytum, á hótelum og sjúkra-
húsum, og seljum við þessum stofn-
unum kaffið í stærri pakkningum.
Þegar könnurnar eru seldar til þess-
ara stofnana er kaupandi látinn vita
af þessu milligrófa kaffi sem við
höfum til sölu fyrir þær. En eins og
fyrr segir er kannan ekki heimilis-
kanna og kaffið ekki selt í neytenda-
umbúðum og höfum við því ekki séð
ástæðu til þess að auglýsa það sér-
staklega.
JUNÍ
JUNI
JUNI
JUNI
JÚNÍ M ARKAÐURINN
auglýsir:
STÓRKOSTLEGUR
FATAMARKADUR
við aðalverzlunargötu borgarinnar, Laugaveginn
OPNAR KL 9
á morgun fostudag
Barnafatnaður — unglingafatnaður —
kvenfatnaður og karlmannafatnaður.
ALLT VERÐUR SELT Á SPRENG-
HLÆGILEGA LÁGU VERÐI.
MJÖG GÓÐAR VÖRUR.
Júnítilboð eftirharðan vetur.
Allir á völlinn. NEI, við meinum ALLIR Á
JÚIMÍMARKAÐIIMN
Laugavegi 66, 2. hœð (áður Gluggatjöld).
Spurning
Saknarðu
mjólkurinnar?
Hildur Baldursdóttir húsmóðir: Ekki
ég, en barnið mitt gerir það. Hún hefur
undanfarið drukkiö undanrennu en
ætli ég verði ekki að fara að fara út i
þurrmjólk.
Krístrún Krístjánsdóttir húsmóðir: Nei,
ég get nú ekki sagt það. Ég drekk
heldur ekki gosdrykki svo ég held mig
aðallega við kaffl og vatn.
Egill Arnarsson, 11 ára: Já, ég sakna
mjólkurinnar mikið, ég hef alltaf
drukkið mikið af gosdrykkjum og
mjólk.
Krístin Reynisdóttir húsmóðir: Já, ég
geri það, aðallega fyrir barnið mitt,
sem þarf á mjólkinni að halda. Er ég
jiúna farin að gefa þvi djús í staðinn.
Krístinn Kristvarðsson verzlunarmað-
ur: Nei, ekki ennþá, en hins vegar við-
skiptavinirnir talsvert. Þeir eru mikið
farnir að fara út í aðradrykkju.
Helgi Kristjánsson sjómaður: Nei, ég
sakna mjólkurinnar ekki mikið. Ég
held mig við drykkjuna á Gvendár-
brunnavatninu.