Dagblaðið - 31.05.1979, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1979.
7
iran: ^ 7 7 mm
80FELLUIATOKUM UM
AÐALHÖFN LANDSINS
—fallhlífarhermenn stjórnarinnar tóku þátt í bardögunum en arabar sem krefjast meiri héraös
stjórnar saka þá um að hafa ráðizt á stjómmála- og menningarmiðstöð sína
Grimuklæddir menn, sem taldir
eru tilheyra ættflokkum araba, náðu
á sitt vald i gær aðalútflutningshöfn
írans í Khorramshahr. Börðust
sveitir þessar við herlið fransstjórnar
og urðu verulegar skemmdir bæði á
húsum, bifreiðum og verzlunum.
Að sögn íranska útvarpsins féll
tuttugu og einn maður í átökunum en
sjötíu og sex særðust. Heimildir i
borginni sjálfri segja aftur á móti að
áttatíu hafi fallið og tugir annarra
særzt. í gærkvöldi þutu sjúkrabif-
reiðij um götur borgarinar en skot-
hríð var ekki hætt.
Að sögn leiðtoga arabanna, sem
eru í meirihluta meðal íbúa í þessum
hluta írans, hófust bardagar með þvi
að fallbyssubátar íransstjómar skutu
af sjó á hafnarborgina. Síðan lentu
um það bil hundrað fallhlífarher-
menn á nærliggjandi flugvelli fall-
byssubátunum til aðstoðar.
Einkum er skotum sagt hafa verið
beint að höfuðstöðvum araba í borg-
inni. Er þar bæði trúar- og stjórn-
málalegt aðsetur leiðtoga þeirra. Þar
voru leiðtogar á fundi og ræddu
kröfur sinar um aukin völd héraðs-
stjórna. Leiðtogi arabanna sagði í
gær að ef ekki tækist einhvers konar
samkomulag við stjóm Khomeinis
mundi hann skipa stuðningsmönnum
sínum að leggja niður störf við olíu-
vinnsluna.
Nicaragua:
Miklir bar-
dagar í Rivas
Hersveitir Somoza forseta Nicaragua
börðust í gærkvöldi við sveitir
Sandinista nærri landamærum Costa
Rica. Var þetta tilkynnt í höfuðborg-
inni Managua í gær. Nicaragua undir-
býr nú ákæm sína á hendur Costa Rica
fyrir afskipti af innanríkismálum, sem
leggja á fyrir Samtök Ameríkuríkj-
anna.
Samkvæmt tilkynningu herstjómar-
innar þá stóðu töluverðir bardagar við
borgina Rivas sem er um það bil 170
kílómetra suðvestur af höfuðborginni.
Ein flugvél stjómarinnar varð fyrir
skotum. Flugmaðurinn féll en véla-
manninum tókst að lenda með aðstoð
flugumferðarstjóra.
Stjórn Nicaragua segir að um það bil
þrjú hundruð Saninistaskæruliðar hafi
ráðizt inn i landið frá Costa Rica í
fyrradag. Stjóm Costa Rica ber
harðlega á móti þessu.
El Salvador:
Sendimenn krefjast veradar
Erlendir sendimenn í E1 Salvador að komast undan þeim á flótta. Skæru-
hafa krafízt aukinnar vemdar eftir að liðar þar í landi halda enn nokkrum er-
svissneskur sendifulltrúi var myrtur þar lendum kaupsýslumönnum í gíslingu
i gær. Voru þar mannræningjar á ferð og krefjast mikils lausnargjalds og að
sem skutu Svisslendinginn, sem reyndi félögum þeirra verði sleppt úr fangelsi.
Washington:
Samþykkja aðstoð við ísrael
og Egyptaland
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings sam- ganga til að hjálpa ísraelum til að
þykkti í gær 4,8 milljarða fjárframlag byggja nýjar herstöðvar í stað þeirra
til stuðnings framkvæmd friðarsamn- sem þeir misstu við afhendingu Sinai
ings ísraela og Egypta. Er þetta í sam- skagans og einnig til efnahagsaðstoðar
ræmi við fyrri fyrirheit Bandaríkja- við Egypta.
stjórnar. Meðal annars á þetta að
Ofsarigning og þrumuveður
veldurflóði
Ofsarigning og þrumuveður gekk
yfir suðvesturhluta Englands í gær-
kvöldi og olli töluverðu flóði þar um
slóðir. Varð nokkur truflun á umferð
og járnbrautarferðum. Fjölskylda ein
barst á brott með flóðinu á húsvagni
sínum, þegar á ein brauzt yfir bakka
sína. Eftir að foreldrunum hafði tekizt
að bjarga fjórum ungum börnum
sínum úr vagninum klifu þau upp í tré
en urðu að hírast þar í tvær klukku-
stundir áður en þeim var komið til
bjargar.
DC-10 þotur aftur í áætlun
Talið er að um það bil helmingur gerð en allar DC-10 þotur í heiminum
þeirra DC-10 þotna, sem eru í eigu hafa nú verið skoðaðar eða eru í
bandarískra flugfélaga verði komnar skoðun i framhaldi af flugslysinu við
aftur í áætlunarflug um hádegi í dag. Chicago, er þota fórst þar og með
Ekki er vitað til þess að fundizt hafi henni 273 menn.
málmþreyta í fleiri þotum af þessari
Miklir eldar komu upp í Korrams-
hahr en slökkvilið gat lítið að gert þar
sem því gafst ekki færi á að berjast
við eldinn vegna skothríðar deiluað-
ila.
í gærkvöldi var vegurinn milli
borgarinnar og olíuborgarinnar Aba-
dan hlaðinn vígjum sem gerð voru af
braki bifreiða og bíldekkjum. Veru-
leg aukning hefur orðið á ósætti milli
kynþátta í íran á undanfömum
vikum. Mest hefur þó hingað til
borið á Kúrdum í vesturhluta lands-
ins. Þeir hafa um aldaraðir talið sig
eiga að vera frjálsa. í síðasta mánuði
er talið að í það minnsta hundrað
hafi fallið í bardögum Kúrda og her- '
liðs íransstjórnar.
Kynningarfyrirlestur
er haldinn á fimmtudögum kl. 20.30 á
Skúlagötu 61, III.hæö.
Umræöur — Kvikmyndir stofnandi:'
Séra
Sun
Samtök Heimsfriðar og Sameiningar Myung
Skúlagötu 61, pósthólf 7064, sími 28405. Moon
HVÍTASUNNUHÁTÍD
*, K0LVIÐARHÓU
1.-3. júnt1979 !»sl
DAG-
SKRÁ:
Föstudag 1. júní
Dansleikur fró kl. 9—2
Laugardagur 2. júní
Hljómleikar kl. 2
Meðal dagskrár:
Ólafur Þórarinsson flytur frumsamin lög ásamt 10 manna
hljómsveit. Tekið skal fram að flest þessara laga eru frum-
flutt.
Baldur Brjánsson
Grétar Hjaltason
Fallhlifarstökk
Hljómsveitin KAKTUS leikur frá kl. 9—2
Sunnudagur 3. júní
Árdegismessa
Baldur Brjánsson
Grétar Hjaltason
Lifandi skák
Sýndur verður DISKÓDANS
ÞRlFÓTAHLAUPI! (MEN ONLY?)
Diskótek Ara Páls
og Meatloaf Islands
skemmta alla dagana
Rumpufjör alla dagana
Mætum öll i þrumustuði!!
Knattspymudeild U.F.H.Ö.
bokhú/id