Dagblaðið - 31.05.1979, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1979.
8
og skímargjafir
íúrvafí
Magnús E. Baldvinsson SfLaugavegi 8 - Simi 22804.
Tilraunaveiðar
á hrygningarsíld nú í sumar
Sjávarútvegsráðuneytið áætlar nú í júní nk. að
veita tveim hringnótabátum heimild til veiða á
síld. Miðar þessi tilraun að því að kanna
möguleika á vinnslu og sölu á hrygningarsíld.
Heimildin til veiða miðast við seinni hluta
júnímánaðar og verða þessar tilraunir fram-
kvæmdar undir stjórn og eftirliti Hafrann-
sóknastofnunarinnar.
Sjávarútvegsráðuneytið mun ákveða veiði-
magn, ennfremur hvar síldin verður lögð upp
til vinnslu hverju sinni, en veiðar þessar verða
að öllu leyti á kostnað og ábyrgð útgerðar-
manna skipanna.
Umsóknir um leyfi skulu hafa borist ráðuneyt-
inu fyrir 6. júní nk. og skal í umsókn greina frá
útbúnaði skipsins.
Sjávarútvegsráðuneytið,
30. mai 1979.
Ódýrír -
Sandalar
Skóbúðin Suðurverí
Stígahfíð 45. Sími83225. Póstsendum.
SkinnfóOrmou
meðleðursóla.
Litur: natur
Stærðir: 36-41.
Verðkr: 11.800.-
*Jtur: vínrautt
og svart, rúskinn.'
Stærðir: 36-42.
Verðkr: 12.800,-
Skinnfóðraðir
með riffluðum sóla
Litur: beiqe
Stærðir: 36-41
Verðkr: 13.600,-
Til leigu
240 ferm verzlunar- eða iðnaðarhúsnæði við Smiðjuveg
í Kópavogi.
Þeir sem áhuga hafa fyrir þessu húsnæði leggi nafn og
simanúmer inn á auglýsingaþjónustu DB, sími 27022.
H-666
„Smygluð” mjólk að
noróan með flugi
„Það hefur mikið borið á þessu.
Stærsta pðntun sem ég veit um eru
100 lítrar frá Akureyri,” var svarið er
DB spurðist fyrir um það hjá vöru-
flutningadeild Flugleiða hvort miklir
flutningar væru á mjólk frá stöðum
úti á landi.
Þær fréttir bárust frá Húsavík að
þar væri mikið um að menn sendu
mjólk til Reykjavíkur, en eins og
kunnugt er er mjólk pakkað í hentug-
ar 10 lítra umbúðir þar nyrðra víða.
Eins hefur mikið verið sent af mjólk
frá Akureyri.
Flutningurinn á tíu lítrum kostar
1050 krónur en hætt er við að mönn-
um þyki sopinn dýr, sérstaklega ef
skömmtun verður aflétt.
Aðalreglan er sú að ekki má flytja
mjólk milli sölusvæða,” sagði
Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri
Mjólkursamsölunnar, í viðtali við
DB í gær. „Hins vegar ef um mjólk-
urskort er að ræða er heimilt að flytja
mjóljc á milli, eins og við t.d. gerðum
í rjómaskorti fyrir síðustu jól hér
sunnanlands. Trúlega er ekki tekið
hart á flutningum á tíu lítrum, án
þess þó ég vilji fullyrða það,” sagði
Guðlaugur ennfremur.
-HP.
Almenningur verður að sætta sig við skömmtun á mjólkurvörum öllum, a.m.k. hér á Keykjavlkursvæðinu, þótt af og til sé
dreift slöttum.
Byrjað að flytja
tóbak f lugleiðis
—ekki á f læðiskerí staddir með áfengið
„Við höfum brugðið á það ráð að
flytja inn ákveðnar tegundir tóbaks
flugleiðis,” sagði Ragnar Jónsson
skrifstofustjóri ÁTVR.
„Hér hefur þó aðeins verið um
sendingar í smáum skömmtum að
ræða, en vissar tegundir hafa gengið
til þurrðar. Fraktin með flugi er all-
miklu hærri, en ég vonast til þess að
verkfallið standi ekki lengi, þannig
að ekki komi til verðhækkana á
tóbaki vegna hærra fraktverðs.
Við stöndum nokkuð vel að vígi
hvað varðar áfengið. Þar erum við
ekki á flæðiskeri staddir,” sagði
Ragnar.
-JH.
Þrengist
ummeð
sykurog
Sykur og hveiti mun nú víðast
á þrotum hjá heildsölum og
kláraðist jafnvel snemma í verk-
fallinu. Enn er þó til sykur og
hveiti í smásöluverzlunum, en
illa horfir í þeim efnum ef ekki
verður breyting á.
-JH.
Sjórall 79:
Bandarískur fram-
leiðandi ætiaði að
reyna hér nýjan bát
—en farmannaverkfallið kemurí veg tyrirþaö
Bandarískur aðili, sem óskað hefur
eftir nafnleynd unz hann kæmi hing-
að hefur átt í bréfaskriftum við DB
með fyrirhugaða þátttöku í Sjóralli
’79í huga.
í fyrstu var aðeins um fyrirspumir
að ræða, en fyrir skömmu óskaði
hann eftir þátttöku. Þrátt fyrir fyrir-
spumir DB um tegund báts og vélar-
stærð, hafa engar upplýsingar fengizt
nema hvað báturinn er 23,5 fet og
a.m.k. 200 hestafla vél um borð, eins
og hann orðaði það. Af svarinu mátti
skilja að báturinn væri óþekktur á
markaði og því væri hér um tilrauna-
siglingu aðræða.
Það styður þá skoðun að hann
spurðist fyrir um hvort liðið sem færi
landleiðina gæti ekki fengið gistingu
og viðurværi allan hringinn. þar átti
hann við tæknimenn sem ætluðu að
fylgjast með bátnum allan hringinn
og vera til taks ef viðgerða væri þörf.
Fyrirhugað var að báturinn kæmi
hingað til lands með skipi eigi síðar
en viku af júní, svo svigrúm gæfist til
æfinga. En nú er ljóst að af þessu
verður ekki og getur ekki orðið jafn-
vel þótt verkfallið leystist í dag, því
allar skipaferðir eru svo úr skorðum
gengnar.
Er sigUngakappinn greindi frá
þessu gaf hann í skyn að hann kæmi
jafnvel sjálfur, þrátt fyrir allt, og
fylgdist með keppninni.
Upphaflega komst hann á snoðir
um keppnina í gegnum bandaríska
bátatímaritið Rudder, sem er lang-
stærsta tímarit á þessu sviði í Banda-
rikjunum.
-GS.
4€
Farandblkarinn fer ekld tll Banda-
ríkjanna I ár, eins og tveir Banda-
ríkjamenn fyrirhuguðu.