Dagblaðið - 31.05.1979, Síða 12

Dagblaðið - 31.05.1979, Síða 12
12 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. MAt 1979. Ti/sö/u: Renault 4 Van árg. 75 Renauh 5TL árg. 74 Renauh 12 station árg. 75 Renault 20 árg. 77 Renauh 4F6 árg. 78 Ford Cortina árg. 74 Opið laugardaga kl. 2-6. Kristinn Guðnason i Suðurlandsbraut 20 - Sími 86633. Siglufjörður Staða sparisjóðsstjóra við Sparisjóð Siglu- fjarðar er laus til umsóknar. Góð launakjör. Ráðning frá 1. október 1979. Umsóknir sendist til formanns stjórnar spari- sjóðsins fyrir 1. júlí nk. sem gefur allar nánari upplýsingar. Náttfata- ^ markaður Ingólfsstræti 6 Nýjar vörur daglega Peysur og barnafatnaður brjöstahaldarar, yfir- stærðir í undirfötum og margt margt fleira. Látið ekki happ úr hendi sleppa. Túlípaninn Ingólfsstræti 6. A RANK er stærsti framleiðandi íöllum búnaði og tækni f sambandi við sjónvarp og kvik- myndagerð — enda em sjónvarpstækin frá RANK frábær. kT T2 BL | \ J Hátalarar frá Wharfedale k A A Verðfrákr. 42.000 H Murphy WíT ‘ m ingstæki |P frá Rank Veið frá kr. 289 þús. WHARFEDALE RANK UMBOÐIÐ Á ÍSLANDI SJÓNVARP 8 RADIO HVERFISGÖTU 82 - SÍMI23611 Hraunbúar undirbúa mótshald f Krýsuvfk; súrraðar trönur, kveiktir eldar, gengið i fjöll. Hraunbúar halda 39. vormótið: „Svo verður náttúr- lega ausandi rigning allan tímann!” ímótsgjaldinu „Svo verður náttúrlega ausandi rign- ing allan tímann en hún er líka innifalin í mótsgjaldinu,” segir m.a. í dagskrá vormóts Hraunbúa í Krýsuvík um hvítasunnuna. Búizt er við að 500—600 skátar sæki mótið, fyrsta mót sumar^- ins, víðs vegar af landinu. Rammi mótsins er „Barnið” í tilefni . . . og verður dagskrá mótsins í senn fjölbreytt og barnaleg. Keppt verður í ýmsum skátaíþróttum, barnaleikjum, gengið verður um fjöll og firnindi, byggt úr trönum og baðað í köldum læk. Tjaldbúðin verður með því sniði að hinum ýmsu skátafélögum verður rað- að niður á 4—5 svæði sem hvert um sig heitir eftir heimsálfu. Félögin í hverri álfu munu siðan skreyta sínar tjald- búðir í samræmi við lifnaðarhætti, um- hverfi, siði, venjur og félagslega stöðu barnsins í því samfélagi. -ÓV. Skákmennirnir með sigurlaun sin. Fyrir miðju er Ingvar Ásmundsson skákmeistari íslands 1979. DB-mynd Ragnar Th Uppskeruhátíð skákmanna íslenzk unglingasveit á HM Fimmtudaginn 24. maí héldu skák- menn uppskeruhátíð og voru þá sigur- vegurum í hinum ýmsu flokkum ís- landsmótsins í skák afhentir veglegir verðlaunagripir. Við sama tækifæri var Halldóri Grétari Einarssyni, 13 ára Bolvíkingi, boðið að fara i skákbúðir til Svíþjóðar í viðurkenningarskyni fyrir frammistöðuna á skáksviðinu. Hann varð drengjameistari íslands í skák 1979 og einnig skólaskákmeistari íslands í yngra flokki. Mun hann dvelja i skákbúðunum í vikutíma, 22.—30. júní. Ungmennafélag Bolungarvíkur og Skáksamband Íslands kosta för hans. Mikil gróska er nú í skáklífi hér á landi og fjöldinn allur af mjög efni- legum ungum skákmönnum er að koma fram á sjónarsviðið. Um mán- aðamótin júlí-ágúst fer fram heims- meistarakeppni unglingaskáksveita í Danmörku. Miðað er við 16 ára aldur. Einar S. Einarsson, forseti Sí, sagði í samtali við DB að stefnt yrði að því að senda þangað íslenzka sveit. „Við ætt- um að geta teflt fram mjög sterkri sveit,” sagði Einar og benti á að þrir skákmenn, sem ekki hefði náð þessum aldursmörkum, hefðu teflt í landliðs- flokki með góðum árangri á nýaf- stöðnu skákþingi íslands. Það eru þeir Elvar Guðmundsson, Jóhannes Gísli "'og Jóhann Hjartarson. -GAJ- Fjoldi hrossa a Hrunamannaafrétti takmarkaður í sumar ,, Við erum fyrst og fremst að reyna að vernda fremsta hluta afréttarins svo allt verði ekki uppétið þegar féð kemur fram á haustin,” sagði Daniel Guðmundsson, oddviti Hruna- mannahrepps, er hann var inntur eftir því hvers vegna farið væri að tak- marka þann fjölda hrossa sem reka má á afrétt á hverju vori. Talið er að nú verði rekin um fimmtiu til sextíu hross á afrétt, ef farið verður að settum regluni hreppsncfndarinnar, en stefnt er að þvi að takmarka sem mest og helzt hætta alveg við afréttarrekstur hrossa á næsta ári. Mun afréttur Hruna- manna vera sá eini, a.m.k. sunnan- lands, þar sem hross ganga laus á af- réttinum. Vanalega munu þau vera höfð innan girðingar sem að sögn kunnugra nægir.þeim fullkomlega. . Er þessi takmörkun hrossa á afrétti Hrunamanna í fullu samráði við Landgræðslu ríkisins og tilgangurinn að stuðla að sem minnstum átroðn- ingi afréttarins og vernda gróður á þessum slóðum. -BH.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.