Dagblaðið - 31.05.1979, Qupperneq 16
16
DAGBLAÐID. FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1979.
JAZZ
ÁESJU
P DUKE JORDAN (PIANO)
ásamt Richard Corn (bassi) og
Guðmundi,,Papajazz ”
Steingrímssyni (trommur)
HOTEL ESJU, 2. HÆÐ
föstudag og
laugardag 1. og
2.júníkl. 21.00.
Forsala í
Fálkanum,
Laugavegi 24.
JAZZVAKNING
HÚSK)
OPNAÐ
KL 19
Framkvæmdastjóri
Staða framkvæmdastjóra við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri er laus til umsóknar.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf berist til stjórnar Fjórðungssjúkrahússins
fyrir 30. júní nk.
Staðan verður veitt frá 1. ágúst nk. eða eftir
samkomulagi.
Umsækjendur með menntun í sjúkrahúss-
stjórnun, viðskiptafræði eða hliðstæðum
greinum sitja fyrir veitingu að öðru jöfnu.
Laun samkv. kjarasamningi starfsmanna
Akureyrarbæjar.
Allar nánari upplýsingar veitir stjórnarfor-
maður Stefán Stefánsson, sími 96-21000.
Stjóm FSA
Mikið úrvai
afsandölum
ogsumarskóm
Nr.1
Vmrð: 14JS0L
Utur: t/ós
Nr.2
Verð: 14.650.-
UtunBrúnt
4
Verð: 19.400.-
UturzDnpp
Póitxendum
Skósel
Laugavegi 60 — Sími 21270
Nr.5
Verð: 13.340.-
Utun Ijós og rúst
Nr.3
Verð: 19.000.
Utur: Drapp
Rikkatikkatikk:
SKÁTAR Á FARALDS-
FÆTIFYRIR AUSTAN
—á nýstáríegu skátamáti ísumar
Það verður nóg að gera hjá skátum
áaldrinum 11 —15 ára i lok júli — þá
verður haldið harla óvenjulegt
skátamót á nokkrum stöðum austan-
lands.
Mótið er endahnúturinn á skáta-
starfinu sl. vetur undir kjörorðinu
„Skátalíf er þjóðlíf” og er baeði
flokka- og farandmót.
Mótiö hefst á Egilsstöðum 24. júli,
en síðan liggur ieiðin til Seyðisfjarðar
og þaöan sjóleiðis til Neskaupstaðar,
þar sem áð verður við leiki og störf
daginn eftir. Um kvöldið bjóöa skát-
amir bæjarbúum til varðelds og
kynna þeim helgisiði varðeldanna:
Rikkatikkatikk!
Daginn eftir verður haldið til
Reyðarfjarðar og siðan fótgangandi
upp á Hérað og setzt að til loka móts-
ins í tjaldbúð. Þar verður dagskrá
mikil og fjölbreytt allan mótstimann,
ratleikir, hlóðaeldun, skyndihjálp,
heimsóknir á sveitabýli og fleira.
'Opið verður fyrir almenning á
laugardeginum en um kvöldið verður
aðalvarðeldur mótsins. Eftir helgi-
stund á sunnudag verður mótsstaöur-
inn yfirgefinn og dvalizt um stund í
Hallormsstaðaskógi áður en mótinu
verður slitið á Egilsstöðum.
Gert er ráð fyrir, að l—3 skáta-
flokkar frá hverju félagi á landinu
sæki mótið, en væntanlega verða
fjölmargir þátttakenda austfirzkir
skátar. Mótsstjórn skipa níu skátar
frá Egilsstöðum og Neskaupstað.
-ÓV.
I afgreiðslu Bjöllunnar, f.v. Herdis Sveinsdóttir, Kristin Unnsteinsdóttir, Ragnhildur Helgadóttir og Frfða Haraldsdóttir
með Þóru dóttur sina þriggja vikna i fanginu.
DB-mynd Hörður.
IL ^ í i mv / /ipx
T IBBi S' / ./7 m. / ÚU ÍJ lm~
Fyrsta íslenzka myndaorðabókin
—gefin út að frumkvæði foreldra heymardaufra bama
— krossgátur og myndagátur við móðurmálskennsluna
Fyrsta íslenzka myndaorðabókin
fyrir börn er í undirbúningi og kemur
út seinni partinn á þessu ári. f henni
verða um 2000 myndir.
Það voru foreldrar heymardaufra
barna, sem áttu htigmyndina að þessu
verki og söfnuðu fyrstu orðunum.
Seinna tók Ámi Böðvarsson cand.
mag. að sér að búa það til útgáfu.
Myndimar teiknar Vilhjálmur Vfl-
hjálmsson auglýsingateiknari.
önnur nýjung i handbókum við
móðurmálskennslu er einnig á leiðinni
á markaðinn. Það em krossgátur og
myndagátur, sem VQborg Dagbjarts-
dóttir skáld og kennari hefur samið, en
Sigurbjörn Helgason myndskreytt.
Það er bókaútgáfan Bjallan, sem
gefur út báðar þessar óvenjulegu
bækur. En Bjallan er líka óvenjuleg út-
gáfa. Að henni standa ungar konur,
sem að aðalstarfi em kennarar eða
skólasafnverðir, en fást við útgáfuna
sem aukastarf og af hugsjón, og er slíkt
fremur fátítt nú á dögum, en þó ekki
óþekkt með öllu.
Útgáfan er til húsa í kjallara í gömlu
kaupmannshúsi i Grjótaþorpi, nánar
tiltekið Bröttugötu 3 A. Þær stöllur
hafa á sex ámm sent frá sér um 20
bækur, ýmist innlendar eöa þýddar.
Allar miðast bækurnar við að vera
handbækur fyrir skólaböm, en
kennsluhættir miðast nú æ meir við
það, að börn leiti sér sjálf fræðslu sem
víðast. En mikill skortur hefur verið á
hentugum bókakosti handa þeim til
slikra hluta.
Bjallan lét gera fyrstu fræðslubókina
um islenzkt atvinnulif, sem út hefur
komið. Er það Þorskurinn, samin af
Hjálmari Vilhjálmssyni og Kolbrúnu
Sigurðardóttur. Er þar fjallað um líf-
fræði þorsksins, Iandhelgisdeilurnar út
a f honum og allt þar á mQli.
Af öðm innlendu efni má nefna
Örvar-Odds sögu, sem Þorsteinn frá
Hamri bjó tQ prentunar en Guðrún
Svava myndskreytti. Þorsteinn bjó
einnig tQ prentunar bókina Berin á
lynginu, sem flytur sýnishom af mörgu
þvi helzta i barnabókmenntum frá
ýmsum löndum.
Það stendur íslenzkri bamabókaút-
gáfu mjög fyrir þrifum hvað litprentun
slikra bóka verður hlutfaUslega dýr
vegna fámennis okkar.
Bjallan hefur reynt að bæta úr þessu
með samningum við erlenda aðila um
að prenta bækur þeirra með íslenzkum
texta, svokaUað samprent.
Það em einkum tveir bókaflokkar,
sem vert er að geta í því sambandi.
Er annar brezkur og fjallar um
landafræði. Eru þegar komnar út
bækur um Stóra-Bretland og Sovétrik-
in, en á leiðinni er Spánn og fleiri lönd.
Þama er bmgðið upp mjög skemmti-
legum þjóðlifslýsingum og sérkenni
hvers lands dregin fram.
Hinn flokkurinn er danskur og segir
frá daglegu Ufi fjölfatlaðra barna.
Miðar hann aö þvi að auka skQning
heilbrigðra jafnaldra þeirra á vanda-
málunum, sem þau eiga við að striða.
Um sama efni er stutt saga, eftir norska
konu, Tordis örjasæter. Sonur hennar,
Dagur, er þroskaheftur, og lýsir hún
þeirri reynslu sem það er að reyna að
hjálpa sliku barni.
-IHH
Hvítu bif-
hjóli stolið
Á þriðjudagskvöld var bifhjóli stolið fyrir utan
billjardstofuna i Nóatúni. Hjólið var af gerðinni
Yamaha ’78 MR-50 og númerið R-561, hvitt.
Hjólinu hefur verið stolið fyrir kl. hálfellefu, er eig-
andi þess ætlaði að nota það. Þeir sem gætu
einhverjar upplýsingar veitt um hjólið eru beðnir að
hringja í síma 36325, i Rannsóknarlogregluna. eða
hingaðá ritstjórn DB.
HP.
Ekki grænn
liturátúnum
íSkagafirði
S.S., Steintúni, fréttaritari DB, síman
Nú í sjöttu viku sumars sést ekki grænn litur á
túnum hér í Fram-Skagafirði. Sauðburði er sums
staðar lokið og alls staðar langt kominn. Hefur gengið
sæmilega miðað við aðstæður. Veðurguðirnir hafa
verið bændum erfiðir á þessu vori, og landsfeðurnir
ekki síður. Fremur verður þeim kannski fyrirgefið af
einhverjum vegna þess að þeir virðast ekki vita hvað
þeir gjöra, en ekki er ég einn af þeim.