Dagblaðið - 01.06.1979, Qupperneq 11
t
DAGBLADID. FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1979._
Hver á að stjórna þessu landi?
„VERKALYÐSFOR-
INGJARNIR”
EÐA ALÞINGI?
Nú að loknum þinglausnum, eftir
að fyrsta löggjafarþingið er starfað
hefur í framhaldi af kosningunum sl.
sumar, er farið heim er ekki úr vegi
að líta yfir farinn veg og reyna að
gera sér grein fyrir hver staðan er.
Hefur náðst árangur? Hefur tekizt
að ná niður verðbólgu? Hefur tekizt
að halda frið á vinnumarkaðinum?
Hefur verið ráðizt gegn spillingunni?
Hefur hin mikla breyting á fulltrúum'
á Alþingi, er varð eftir síðustu
kosningar, orðið til góðs? Þannig
spyrja menn sjálfa sig þessa daga og
ræða um við náungann. Hefur yfir
höfuð nokkuð gerzt?
Ríkisstjórnin
hefur brugðizt
Það er akkúrat niðurstaðan eftir
fyrsta veturinn; það hefur ekkert
gerzt í átl til bata. Núverandi ríkis-
stjóm hefur gersamlega brugðizt. Og
umræðurnar í stjórnarflokkunum
snúast ekki lengur um hvað sé til
lausnar heldur hvemig hægt sé að
komast stóráfallalaust út úr þessari
ríkisstjóm. En niðurstaðan af þeim
umræðum er yfirleitt á þann veg að
svo illa sé komið að ekki sé hægt að
hlaupa því það þýði hmn stjómar-
flokkanna.
Það er grátlegt að þurfa að viður-
kenna að staðfest hefur verið einu
sinni enn að svokallaðar „vinstri”
stjórnir virðast ekki geta þrifizt á
íslandi. Staðreyndin er sú að svo
mikið hyldýpi er á milli Alþýðuflokks
og Alþýðubandalags að þessir
flokkar geta aldrei unnið saman
með nokkrum árangri.
Það eitt að kalla sig verkalýðs-
flokka og telja sig eiga samleið á
þeirri forsendu er hrein fávizka.
Gamla hatrið á milli þessara flokka
kemur alltaf upp á yfirborðið og
þegar til átaka kemur er baráttan
hvergi harðari en á milli þessara
flokka.
Þrátt fyrir að reynt sé að halda
friðinn í verkalýðshreyfingunni, eins
og sagt er, þ.e.a.s. að semja um
valdastöður innan hennar, er það
aðeins tryggingarstarfsemi milli fárra
einstaklinga, trygging þeirra eigin
valdastöðu. Það er staðreynd sem
ekki verður fram hjá gengið að svo-
kallaðir verkalýðsleiðtogar em valda-
mestu menn þessa þjóðfélags. Þeir
ákveða myndun ríkisstjórna og þeir
drepa ríkisstjómir.
Þannig er um þessa ríkistjórn:
aftur og aftur í vetur hefur líf hennar
hangið á bláþræði og aftur og aftur
er það stjórn Verkamannasambands-
ins sem rekur hana saman á ný.
Meira að segja mátti öll þjóðin bíða í
ofvæni eftir því í febrúar sl. hvort
formannafundur félaga innan Verka-
mannasambandsins teldi rétt að
stjómin lifði eða dæi.
Alþingi eða ASÍ
Til hvers að kjósa Alþingi ef full-
trúar þjóðarinnar sem þar sitja fara
ekki með völdin? Hvers eigum við að
gjalda sem höfum kosningaréttinn til
að hafa áhrif um val þessara fulltrúa
og þar með nokkum möguleika á þvi
að hafa áhrif á stjórn þessa lands?
Ekki afhentum við stjórn BSRB eða
ASÍ stjórnun þessa lands, það voru
þingmenn og rikisstjóm sem við
treystum fyrir stjómuninni.
Það er athyglisvert að jafnvel
innan verkalýðshreyfmgarinnar
sjálfrar gætir nú mikillar gagnrýni á
störf ASÍ-forustunnar, einmitt vegna
þess að hún sé meira á kafi i stjórn-
málum heldur en góðu hófi gegnir.
Stjórnarstaða í miðstjórn ASÍ eða
formannshlutverk í stóru verkalýðs-
félagi er yfirleitt notuð sem stökk-
pallur í þingmennsku, sem um leið er
tvöföldun á völdum þessara manna,
og er síðan beitt fyrir sig ýmist andliti
verkalýðsforingjans eða stjórnmála-
mannsins. Þetta hefur verið gagnrýnt
innan samtakanna og svo er komið
Sigurvegarar kosninganna 1978 standa
nú uppi ráðþrota.
að einstök verkalýðsfélög hafa rætt
það itarlega hvort þau ættu að halda
áfram þátttöku i ASÍ.
Foringjarnir
og félagarnir
Það er líka athyglisvert að það er
ekki vilji meirihlutans í verkalýðs-
hreyfingunni að nokkrir foringjar,
sem hampa því gjarnan að þeir séu
fulltrúar þúsunda, séu um leið póli-
tískir leiðtogar þjóðarinnar, til þess
hafa þeir ekki fengið umboð verka-
lýðshreyfingarinnar. Það hefur líka
komið á daginn aftur og aftur í
kosningum að meirihhtti þjóðarinnar
og þá um leið meirihluti félaga í
verkalýðshreyfingunni hefur ekki
verið sammála leiðtogum verkalýðs-
hreyfingarinnar í stjórnmálum, það
sannar fylgi þeirra stjómmálaflokka
sem ekki kenna sig eingöngu við
verkalýðshreyfingu. Enda sjá menn
fljótt í gegnum það að þeir eru ekki
beztu baráttumenn verkalýðs-
hreyfingarinnar sem míga utan í hana
á mannamótum en gleyma henni þess
á milU.
Það eitt að kenna sig við verkalýðs-
hreyfingu og vera foringjar í hálf-
dauðum vearkalýðsfélögum gerir
menn ekki að sjálfkjörnum foringj-
umþessararþjóðar.
Aðilar
vinnumarkaðarins
Það þykir góð latína hjá ríkisstjóm
sem tekur við völdum að hún láti
standa í stjórnarsáttmála að hún ætli
að stjórna í samráði við aðila vinnu-
markaðarins. Þannig var með
stjórnarsáttmála þessarar ríkis-
stjórnar. Og hvemig hefur svo til
tekizt? Ekki vantar það að rætt hefur
verið við fomstumenn ASÍ og BSRB,
sem em hluti vinnumarkaðarins, en
við hinn aðilann, atvinnurekendur,
hefur ekki verið haft samráð.
Hvernig er nú hægt að búast við að
friður haldist á vinnumarkaðinum ef
öðrum aðilanum er alltaf sýnd algjör
lítilsvirðing — ekki virtur viðlits?
Það er ljóst að einn flokkur i
þessari ríkisstjórn og hluti af hinum
njóta þess að atvinnurekendum sé
sýnd litilsvirðlng og kæra sig kollótta
um stöðu fyrirtækja í einkaeign,
enda verið þeirra stefna frá upphafi
að sverta þá aUa sem ekki tUheyra
Kjallarinn
Eyjólf ur Sigurðsson
hreyfingunni; ala á endalausu hatri á
hreyfingunni; ala á endalausu hatri á
þeim sem hafa lagt út á þá braut að
stofna til atvinnureksturs. Sjómaður-
inn, sem var góður sem slikur, varð
ihættulegur þegar hann fór að gera út
sjálfur. Múrarinn sem varð meistari
varð hættulegur þegar hann fór að;
byggja og selja. Verzlunarmaðurinn
sem var við skrifstofustörf varð
hættulegur þegar hann fór að flytja
inn, heildsali — guð minn almátt-
ugur.
Hér verður ekki haldið uppi frjálsúj
þjóðfélagi ef aðrir en til þess eru
kjörnir af þjóðinni allri taka sér völd
sem þeim ekki ber.
Þessi ríkisstjórn stjómar ekki, j
henni er stjórnað af öðrum, öðrum
sem hafa engan rétt til slíks. Ef svo
heldur fram sem horfir Jjá er
lýðræðið á Islahdi í hættu. Hér á,
! ekki ein stétt frekar en önnur að hafa1
júrslitavald. . 1
Því miður tekst ekki í stuttri blaða-;
grein að fara í smáatriði um störf nú-
verandi rikisstjórnar. En staðreynd
er að hún hefur brugðizt. Vafalaustr
situr hún áfram þrátt fyrir allt.
Ástæðan er vafalaust sú semj
Gvendur jaki, faðir að þessu fyrir-j
bæri, lét hafa eftir sér: j
,,. . . hræöslan við dauðann heldur
þeimsaman”. ^
Eyjólfur Sigurðsson
framkvæmdastjóri.
vamarliðsins umfram það sem varn-
arsamningurinn heimilar. í fram-
kvæmd hefur þessu verið þannig
háttað, að vamarliðsmenn hafa
fengið tollfrjálsar póstsendingar
bæði í gegnum pósthús vamarliðsins
og íslenska pósthúsið á Keflavíkur-
flugvelli. Svo virðist sem litlar eða
engar takmarkanir gildi um magn og
verðmæti, né hversu oft slíkar póst-
sendingar eigi sér stað hjá viðkom-
andi aðilum.
Meingallar
Ýmsar fleiri greinar varnarsamn-
ingsins mætti taka til umfjöllunar, en
þetta sýnishom verður látið nægja að
sinni. Augljóst er að varnarsamning-
urinn er meingallaður bæði er tekur
til framkvæmdar og gerðar hans.
Engum einum stjómmálaflokki
öðmm fremur er hér um að kenna,
enda hafa allir stjómmálaflokkar
farið með varnarmálin, að undan-
teknu Alþýðubandalaginu. Sú ein-
stæða hræðsla við aö endurskoða
varnarsamninginn í heild lýsir betur
en orð fá lýst framkvæmda- og getu-
leysi íslenskra stjórnmálamanna á
þessum vettvangi. Slíkt aðgerðaleysi
hefur stórskaðað þjóðina bæði er
lýtur að sjálfstæðis- og siðferðis-
kennd hennar, ennfremur fjárhags-
lega.
Fyrir síðustu alþingiskosningar
urðu almennari og víðtækari um-
ræður um varnarmálin en nokkru
sinni áður. Þær umræður beindust
öðru fremur að því, hvort taka ætti
aðstöðu- eða leigugjald fyrir vatnar-
svæðin. Talsmenn þeirra stefnumála
voru yfirleitt aðilar sem lúta þröng-
um hagsmuna- og peningasjónar-
miðum og eiga því mjög takmarkaða
samleið með almenningi I Iandinu.
Raunhæfar aðgerðir til vemdunar
mannslífum og eignum lslendinga
voru ekki skýrðar, enda ekkert aðal-
atriði slíkra „varnarmálasinna”.
Tæpast hefði nokkur trúað því fyrir-
fram, að til væru þúsundir íslend-
inga, eins og skoðanakönnun Sjálf-
stæðisflokksins leiddi í ljós, sem
væra tilbúnir, aðeins 35 árum eftir að
við urðurii fullvalda ríki, að sam-
þykkja að erlent herveldi greiddi
leigu- eða aðstöðugjald fyrir her-
stöðvar í landinu. í þessu sambandi
er einnig rétt að hafa í huga, að ís-
lendingar eru þegar orðnir alltof
háðir Bandaríkjunum viðskiptalega,
þannig að þeir hafa afgerandi áhrif í
.utanrikis- og efnahagsmálum okkar.
Hin hagstæðu viðskiptakjör okkar
við Bandaríkin geta auðveldlega
stefnt sjálfstæði okkar í hættu, enda
þótt samskipti þjóðanna hafi verið
vinsamleg.
60% f ækkun
Við endurskoðun á varnarsamn-
ingnum þarf að gera ýmsar veiga-
miklar breytingar svo að hægt sé að
auka hlutdeild og ábyrgð íslendinga í
rekstri stöðvarinnar. í því sambandi
vil ég tilgreinaeftirtalin atriði:
1. Allir verksamningar við varnar-
liðið, þ.e. nýframkvæmdir, við-
halds- og þjónustusamningar,
verði fyrst gerðir við íslenska
ríkið, sem síðan býður þá út á
frjálsum vinnumarkaði.
2. íslenska ríkið geri samning við
Bandaríkjastjórn um að íslenskir
starfsmenn annist rekstur eftirtal-
inna starfsdeilda á Keflavikurflug-
velli; Vérkleg framkvæmdadeild
(skrifstofuhald, eftirlit viðgerða,
verkfræðingadeild, húsnæðis-
máladeild, flutningstækjadeild,
rekstrardeild), Birgðastofnun
varaarliðsins; (skrifstof udeild,
birgðabókhaldsdeild, eldsneytis-
deild, birgðavörsludeild, mötu-
neyti). Bókhalds- og endurskoð-
unardeild, spítali varnarliðsins,
tómstundastofnun, verslunarmið-
stöð og rekstur skemmtistaða,
flugvélaviðgerðadeild og hluti af
flugrekstrardeild.
3. Varnarliðið greiði full aðflutn-
ingsgjöld af öllum vörum til sinna
afnota, nema af hernaðar-
tækjum.
4. Varnarliðið greiði bensín- og bif-
reiðaskatt og Iögboðin trygg-
ingargjöld.
5. VarnarUðið annist áfram rekstur
radar-fjarskiptastöðva, orustu-
flugsveitar, radarvéla og her-
gagnageymslna.
6. Framangreind breyting hefði það
í för með sér að hægt væri aö
fækka í áföngum i varnarUðinu á
Keflavíkurflugvelli um 60% á
næstu 2—3 árum.
7. Sendir verði 5—10 íslendingar tU
sérþjálfunar hjá NATO ríkjum
tU að kynna sér sérstaklega þá
þætti hemaðarmála, sem varða
umsvif varnarliðsins hér á landi
og jafnframt stöðu íslands gagn-
vart öðrum aðUdarríkjum banda-
lagsins á þieim vettvangi. Þessir
menn væru síðan ráðgjafar ríkis-
stjórnarinnar og viðkomandi
ráðuneyta í öryggis- og varn-
armálum.
8. Umræddum ráðgjöfum ríkis-
stjórnarinnar í varnar- og örygg-
Kjallarinn
Kristján Pétursson
ismálum verði falið að fylgjast
náið með starfsemi bandariska
hersins á varnarsvæðunum
(einnig vopnabúnaði). Þá verði
þessum ráðgjöfum látnar í té af
viðkomandi yfirmönnum varnar-
liðsins hernaðarlegar upplýsingar
um umsvif sjó- og flughers Var-
sjárbandalagsríkja og NATO-
ríkja á N-Adantshafi.
9. Stofnuð verði sérstök varnar- og
öryggismáladeild, sem hafi að-
setur á Keflavíkurflugvelli, en
samtímis verði várnarmáladeUd
utanríkismálaráðuneytísins lögð
niður og ríkisstofnanir á Kefla-
víkurflugveUi komi undir við-
komandi ráðuneyti frá sama
tíma.
Þekkingarskortur
Það er sannarlega niðurlægjandi
og alls ekki sæmandi fullvalda ríki að
geta ekkl að eigin frumkvæði vegna
þekkingarskorts staðreynt um hvaða
herbúnaður sé staðsettur hér á landi á
hverjum tima, né heldur fengið af
sömu ástæðum nauðsynlega vitn-
eskju um hemaðarumsvif á hafinu
umhverfis landið.
Eitt veigamesta atriðið við um-
rædda breytíngu á rekstri samnings-
svæðanna væri að íslendingar fengju
i sínar hendur aukna ábyrgð og
stjórnunaraðstöðu gagnvart Banda-
ríkjastjórn. Samgangur vamarliðs-
manna við Islendinga myndi stór-
|minnka, tolla- og skattfríðindi þeirra1
jyröu úr sögunni, tolllagabrot ogí
gjaldeyrislagabrot ættu að hverfa að
mestu leyti.
Mikill meirihluti þjóðarinnar er
sammála því að við eigum að losna
við varnarliðið í áföngum. Raun-
ihæfasta leiðin til aö ná því markmiðþ
>er að gera heiðarlega og raunhæfa
terksamninga viö Bandarikin um
ekstur vanrarsvæöanna sem miðar
að því að styrkja áhrif og valda-
aðstöðu íslendinga í rekstri þeirra.
Þá eigum við ennfremur að gera
verksamning við Bandaríkjastjórn
varðandi framkvæmd 5. gr. varnar-
samningsins um að þeir stuðli svo
sem frekast má verða að öryggi is-
lensku þjóðarinnar. Ríkisstjórn Is-|
lands og Bandaríkjastjóm láti sér-
fræðinga sína gera nákvæma skýrslu
um hvernig verndun mannslífa og
eigna fslendinga verði best borgið, ef
til styrjaldar kæmi. íslendingar
annist framkvæmd slíkra verksamn-
inga, sem hafi forgang í verkefna-
niðurröðun næsta áratug.
\
Um fjáröflun til slíkra fram-
kvæmda er ekki hægt að ákvarðaf
fyrr en skýrsla um kostnaðaráætíun
lægi til grundvallar.
fslenska ríkisstjórnin ætti nú þegar.
að fara fram á heildarendurskoðun á
varnarsamningnum, en sú málaleitunj
tekur allt að 6 mánuðum. Hér er um
að ræða umfangsmikið og marg-j
slungið mál, sem íslenska þjóðin)
verður að standa einarðlega aðj
Þjóðin væntir þess, að núverandt
utanríkisráðherra Benedikt Gröndal
hafi kjark og dug til þess að komaj
þessum málum á það stig að íslend-
ingar geti litið stoltir til framtiðarinn-j
ar.
Kristján Pétursson
deildarstjóri.
A „Augljóst er, aö varnarsamningurinn er
meingallaður bæöi er tekur til fram-
kvæmdar og geröar hans.”
^ „tslenska ríkisstjórnin ætti nú þegar að
fara fram á heildarendurskoðun á varnar-
samningnum.”