Dagblaðið - 09.06.1979, Blaðsíða 17
17
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1979.
BEIRA SEINT EN AIDRB
—það tók Francis Coppola 4 ár að f ullgera Vfetnam mynd sína Apocalypse Now
sem verðurfrumsýnd íhaust
Atriði úr Apocalypse Now. Bandarískar þyrilvængjur gera árás á þorp i Vietnam.
Fáir atburðir hafa á undanfömum
áratugum markað dýpri spor í banda-
riskt þjóðlíf en Víetnam-stríðið. Það
er því furðulegt hve til skamms tíma
lítið hefur verið fjallað um þennan
kafla í sögu þjóðarinnar, t.d. í kvik-
myndum, sjónvarpi og bókarformi.
Það var ekki fyrr en með Óskars-
verðlaunamyndunum Coming Home
og síðar The Deerhunter að banda-
ríski kvikmyndaiðnaðurinn viður-
kenndi Víetnam-striðið sem kvik-
myndaefni en áður var það algert
bannefni. Að visu komu fram örfáar
myndir eins og The Green Berets og
The Boys in Company C, sem hurfu
fljótlega af sjónarsviðinu. Segja má
að Coming Home hafi rutt brautina
því í kjölfar hennar fylgdu sjónvarps-
myndir eins og Friendly Fire, leikrit
(Dispatches) og bækur sem reyndu að
kryfja Víetnam-stríðið. Coming
Home fjallar raunar um þá hlið
stríðsins sem hinn almenni borgari
varð mest var við, þ.e. þann fjölda
hermanna sem sneru til baka frá Víet-
nam líkamlega og andlega sjúkir. The
Deerhunter lýsir aftur á móti meira
atburðunum í Víetnam.
Hættuleg
sendiferð
Þegar þetta er haft í huga sést hve
gífurlegt átak þurfti til þegar Francis
Ford Coppola hóf fyrir fjórum árum
gerð myndar sem hann sagði að lýsti
stríðinu í Víetnam á raunhæfan
máta. Þessi fjögur ár hafa verið
viðburðar- og lærdómsrík fyrir
Coppola því flest hefur farið úr-
skeiðis sem áannað borð gat farið úr-
skeiðis. Apocalypse Now er lauslega
byggð ásögu Joseph Conrads „Heart
of Darkness”. Myndin fjallar um
Captain B.L. Williard sem fær það
verkefni að ráða af dögum með leynd
Col. Walter Krutz (Marlon Brando),
sem hefur sest að og komið sér upp
sínum eigin her, sem samanstendur af
innfæddum, dálítið fyrir innan
landamæri Kambodíu. Myndin
fjallar um þessa sendiför og svaðil-
farir sem Williard lendir í á leið sinni
upp fljótið til bækistöðva Krutz. Inn
í þessa mynd tengist síðan beint og
óbeint stríðsrekstur Bandaríkja-
manna í Víetnam.
Gömul hugmynd
Hugmyndin að Apocalypse Now
er raunar ættuð fráárinu 1967, þegar
John Milius hóf að skrifa handritiö
að myndinni en þá var Warner Bros.
framleiðandi og George Lucas átti að
leikstýra. En efnið þótti of viðkvæmt
og öllu drasUnu var stungið undir stól
þar sem það lá í nær sjö ár. Þá haði
Coppola stofnað nýtt fyrirtæki sem
bar nafnið Cinema-7 og átti
Apocalypse Now að vera fyrsta mynd
þess. Hann hóf undirbúning af fuU-
um krafti og leitaði samstarfs við
Kvik
myndir
Baldur Hjaltason
svo ákveðið var að kvikmynda
myndina utan Bandaríkjanna. Gerðir
voru samningar við stórstjörnur á
borð við Steve McQueen, Marlon
Brando og Gene Hackman. Sakir
þess hve lengi dróst að hefja mynda-
tökuna og hve áætlaður tími var
langur endaði Coppola aðeins með
eina stórstjörnu, sem var Marlon
Brando. Þess í stað ákvað hann að
ráða tiltölulega óþekkta leikara í flest
hlutverkin. Þegar kvikmyndatakan
hópurinn í miklum vandræðum, m.a.
eyðUagði hvirfUbylur nær allar
byggingar sem höfðu verið reistar
vegna myndarinnar. Kostnaðurinn
hlóðst upp enda myndin þegar orðin
rúmlega tveimur árum á eftir áætlun
og hafði farið þrefalt fram úr fjár-
hagsáætlun. F. Coppola hafði sjálfur
fjármagnað myndina að mestu leyti
en nú varð United Artist að hlaupa
undir bagga. Sjálfur segir Ford
Coppola um ástæðuna fyrir fjár-
festingu sinni: „Vegna þess að ég
lagði allt mitt undir þá gat ég verið
minn eigin herra.”
Raunhæf mynd
En nú virðist vera farið að sjá
fyrir endann á myndinni. Hin skyndi-
lega ákvörðun Coppóla að senda
myndina á kvikmyndahátíðina í
Cannes í mai sl. vakti mikla athygli,
ekki síst fyrir það að um vinnueintak
var að ræða, þ.e. þótt Coppola sé
búinn að eyða á annað ár í klippingu
er hann ekki búinn að gera upp hug
sinn um hvemig endirinn á að vera.
En Coppola kom, sá og sigraði í
Cannes. Hann fór þaðan með
helming gullpálmans, sem eru æðstu
verólaun hátíðarinnar. Dómar um
myndina hafa verið mjög lofsamlegir
eins og t.d. í Variety og London
Evening Standard þar sem myndinni
er lýst sem meistaraverki. En
tekur myndinni. Hér kemur margt til.
The Deerhunter er búin að ganga
mjög vel og spurning er hvort fólk
vilji sá fleiri myndir frá Víetnam
því margir virðast álita að ef þú sért
búinn að sjá eina, þá ertu búinn að
sjá þær allar. The Deerhunter hefur
fengið mikla gagnrýni fyrir að vera
einhæf, túlka aðeins aðra hlið
málanna og innihalda sterkan tón
kynþáttahatur’s. Apocalypse Now er
talin taka efnin frá annarri hlið og
gera raunhæfari mynd af ástandinu
en aðrar myndir sem gerðar hafa
verið um Víetnam-stríðið. Sjálfur
segir Coppola: „Apocalypse Now er
ekki kvikmynd um Víetnam. Hún er
Víetnam.”
Myndin er tekin á 70 mm
breiðfilmu og við kvikmyndatökuna
var beitt sérstakri tækni sem
tæknilið myndarinnar hannaði og
gefur myndinni aukna dýpt. Kvik-
myndatökumaðurinn er ekki af verri
endanum enda sótti Coppola hann til
ítaliu. Er það Vittorio Storaro, sem
m.a. hefur kvikmyndað flestar
myndir Fellinis.
Ætlunin er að setja myndina í
almenna dreifingu í haust ef allt
gengur samkvæmt áætlun. Raunar
kom fram tillaga um að breyta heiti
myndarinnar og kalla hana
Apocalypse at Last þar sem svo lang-
an tima tók að fullgera hana. Síðan á
Tónabíó næsta leik, þ.e. hvernær
hún kemur til landsins.
Þjónusta Þjónusta Þjónusta
Byggingaþjónusta
Alhliða neytendaþjónusta
NÝBYGGINGAR
BREYTINGAR OG VIÐGERÐIR
y/
REYNIRHF.
BYGGINGAFÉLAG
SMIÐJUVEG 18 - KÓP. - SlMI 71730
BÓLSTRUNIN MIÐSTRÆTI 5
ViðgerAir og klæðningar. Falleg og vönduð áklæði.
2 OG
Sími 21440,
heimasími 15507.
[SANDBL'ASTUR hfí
MELABRAUT 20 HVAUYRARHOITI HAFNARFIRÐI
Sandhlástur Malmhuðun
Sandhlásum skip. hús ug slærri maninirki
Færanleg sandhlástursta'ki hvcrt á lanil sem er
Stii’i'sta fyrirtæki landsins, scrhii-fw i
sandblæstri. Fljót ug guð þ jónusta.
[53917
LOFTPRESSUR
Leigjum Út: Loftpressur, JCB gröfur,
Hilti naglabyssur, hrærivélar, hitablásara,
slipirokka, höggborvélar og fl.
REYKJAVOGUR tœkja- og vélaleiga
Armúla 28, sfmar 81665, 82715, 44908 og 44887.
BIAÐIÐ