Dagblaðið - 29.08.1979, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1979.
Slysadeild
Borgar-
spítalans:
Krístján Örn Frederiksen skrifar:
Mig langar að leita upplýsinga um
slysaþjónustu Borgarspítalans.
Hvaða aðstoð veita læknar og hjúkr-
unarfólk þar eftir kl. 8 e.h.?
Ég kom þangað seint á sunnudags-
kvöldið, eða kl. 22.40, og bað um að
láta líta á fótinn á mér, sem ég hafði
einhvern veginn laskað nokkrum
dögum áður. Ég hafði hummað
fram af mér að fara til læknis á þeim
forsendum að þetta lagaðist með tím-
anum. En þetta kvöld hafði ég tals-
verð óþægindi í fætinum svo ég
ákvað að fara. Er ég kom á Borgar-
spítalann var ég spurður nafns
o.s.frv. og hvað væri að mér. Síðan
var mér vísað inn. Gekk ég fram hjá
kaffistofu starfsfólks, þar sem hjúkr-
unarlið sat að spiium. Sennilega
hefur starfsfólkið ætlað að ljúka spil-
inu áður, því ég beið í a.m.k. 5 mín-
útur. Tekið skal fram, að enginn
sjúklingur var þar fyrir að því mér
sýndist.
Dónalega svarað
Hjúkrunarkona kom og spurði
hvað að mér væri. Þegar ég svaraði
henni, glotti hún og sagði að ég ætti
að koma á „skikkanlegri” tíma með
slík meiðsl. Ég brást reiður við og
spurði hverju þetta sætti. En hún
svaraði dónalega að ég skyldi koma
að degi til og beinlínis bað mig að
fara út. Ég sætti mig ekki við þessi
málalok, svo hún sótti mann sem ég
taldi vera lækni. Hann svaraði því
sama og hjúkrunarkonan, þ.e. að ég
skyldi koma daginn eftir, því að þeir
hefðu ekki neitt starfsfólk á röntgen-
deild ef slíks þyrfti með. Hann bætti
því við að ef slíkt tilfelli kæmi, þá
þyrfti að kalla viðkomandi menn út.
Hvaða reglur
gilda?
Ég sá að þarna gæti ég engu um
KJÓLA-
SAGA
R.S. skrifar:
Mig langar til að koma smá versl-
unarsögu á framfæri. Ég skrapp dag
einn í verslun sem heitir Kjallarinn.
Sé ég þar barnakjól sem ég kaupi á
2500 kr.
Ég varð hissa þegar ég fer á flóa-
markaðinn hjá Dýraverndunarfélag-
inu og sé þar nákvæmlega eins kjól á
400 kr. Segi ég stúlkunni frá mínum
kaupum og segir hún mér að maður
nokkur hafi keypt marga kjóla og
fengið sérstakan afslátt. Gæti það
verið eigandi Kjallarans. Mér finnst
það fullmikið að græða á kostnað fá-
tæks félags sem fjármagnar sína
starfsemi með þessum flóamarkaði.
Ég vil benda fólki á að fara fyrst á
flóamarkaðinn áður en það verslar
annars staðar. Það gæti séð sömu
vöruna margfalt ódýrari á flóamark-
aðinum.
Hringið
ísímá
HVERIIR NIÓTA
ÞAR ADSTODAR?
þokað og gekk út. Ákvað ég að >
spyrja einhvern kunnugan lögum og
reglum þessarar opinberu stofnunar i
hvaða ástandi sjúklingur þarf að vera
til að fá svokallaða þjónustu slysa-
deildarinnar á þessum tíma sólar-
hrings.
Mér er kunnugt um að slysadeildin
hefur látið fjölmargt gott af sér leiða
og þar hefur áður verið gert að sárum
mínum. En ég er ekki sáttur við þær
viðtökur sem ég fékk þetta kvöld.
Skiptir ef til vill máli hvaða starfsfólk
er á vakt þarna? Eða eru þetta ein-
hver lög sem mér er ekki kunnugt
um?
N
„Hjúkrunarkonan sagði mér að koma
á „skikkanlegri” tima með slík
meiðsl.”
Myndina tók Hörður á slysadeild
Borgarspítala.-
Gripið simann
geriðgóð
kaup
27022
milli kl. 13
og 15,
eða skriftð
Smáauglýsingar
B1AÐ5IN5
Þverholtitl sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld
Spurning
Hver verður íslands-
meistari í knatt-
spyrnu?
Þórarínn Stefánsson, vinnur i bOa-
leigu: Hver verður fslandsmeistarí?
Auðvitað Valur.
Ríkharður O. Rikharðsson nemi: Eg
veit það nú ekki, ætli það verði ekki
bara Valur.
Sigurður Jónsson sjomaour: Valurneid
ég, annars veit ég það ekki.
Jónína Þórðardóttir húsmóðir: Liklega
verður það Valur, annars fylgist ég
ekkert með þessu.
Öskar Sigurðsson nemi: Sennilega
Valur, þeir eru næstbeztir. Víkingur er
beztur.
Jónas Ingi Ketilsson nemi Ég er á móti
Völsurum en þeir eru nú samt líklegast-
ir til að vinna.