Dagblaðið - 29.08.1979, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 29.08.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1979. 9 Gæsarungar ófleygir í upphaf i veiðitímans og óvenju mikið um gæsadauða í vor vegna kuldanna „Geesaveiðitíminn er bundinn frá 20. ágúst í lögum og við gætum ekki fært hann aftur þó við vildum,” sagði Runólfur Þórarinsson, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu. Runólfur hefur á sínum snærum friðun villtra dýra á landinu og sat meðal annars í nefnd sem undirbjó frumvarp um breyttan veiðitíma anda og gæsa. í því frumvarpi sem fyrst var lagt fram 1978 og verður aftur lagt fram í haust er gert ráð fyrir að gæsaveiðitíminn hefjist 1. september í stað 20. ágúst eins og nú. Gæsaveiðimenn sem hafið hafa veiðar þessa dagana hafa orðið varir við mikið af ófleygum gæsarungum og telja jafnvel að svo sé um meirihluta unganna. Gæsin verpti óvenju seint í vor vegna kulda og eru ungarnir því óvenju smáir við upphaf veiðitímabils. „Það sagði mér fróður maður sem fór um Suður-Þingeyjarsýslu í vor að óvenju mikið hefði verið um dauða gæs þar þá. Gæsin hreinlega frýs föst við jörðina og drepst í stórum stíl þegar vorið er svona kalt. Því veitti ekki af að frumvarpið væri orðið að lögum núna til þess að vernda ófleyga unga, svo menn hreinlega gangi ekki að þeim og skjóti,” sagði Runólfur. - DS Nýsett lög um tryggingar erlendis valda deilum: Framkvæmd laganna ætti ekki að valda erfiðleikum — segir Oddur Ólafsson, alþingismaður Tryggingar tsienzkra aðila erlendis: < „ENGINN AÐIU HEFUR FENGH) SUKTIEYFI” —segir forstödumaöurTryggingaeftirlitsins og tdur ekki mögJegtaðframfylgjanýjumlöguniumþettaefni „Þaö liggur cngin umsókn fyrir og nema mcö leyfi ráöherra og hann á aö félög tryggja sig og það á samkva enginn aöili hefur fengið slikt leyfi. Ef leita umsagnar Tryggingaeftirlitsins,” þessum lögum aö hafa aögang aögö eitthvaö er um þetta þá er þaö á ská viö sagöi Erlcndur og bætti þvi viö aö um ftíaga og einstaklinga á svipai iögin,” sagöi Eriendur Lárusson, for- Tryggingaeftirlitiö heföi lagt til að hátt og um innlend vátryggingafélöi jtöðumaður Tryggingaeftirlitsins i þessu yröi breytt. að ræöa. Ég held, aö það sé ófn samtali viö DB. „Þetta var sett inn I lög á siöustu kvæmanlegt fyrir eftirlitiö aö fylg I Rcykjavíkurbréfi Morgunblaösins stundu með breytingartillögu frá með þessu. Ég hekl aö þetta sé fl. 19. ágúst sl. segir aö stórir aðilar hafi Albert Guðmundssyni,” sagöi heitaákvæöi og ég hef skrifaö rá sótt tryggingar sinar til útlanda vegna Erlendur. ,,Ég þekki ekki hliöstætt neytinu og farið fram á endurskoðu þess aö hinum innlendu aöilum væru ákvæöi í lögum annarra þjóöa, aö þvi. Ég geröi þaö raunar strax mei ekki búin sömu rekstrarskilyröi og þar Tryggingaeftirlitið skipti sér af þvi, þetta var til umfjöUunar í þinginu tiökast. DB spuröi Erlend um þetta. hvar einstaklingar tryggja sig. Sam- þaö var ekki hlustaö á það þá,” sa ,,Þaö er nýbúið að setja þaö i lög aö kvæmt þessu ákvæöi á »ft«riitiö Frlendnraftlnknm „Við fengum þetta sjónarmið fram í nefndinni. Ég hef hins vegar ekki trú á, að þarna séu þeir annmarkar á, að það ætti að valda erfiðleikum,” sagði Odd- ur Ólafsson, alþingismaður og nefnd- armaður í heilbrigðis- og tryggingar- nefnd, er Dagblaðið innti hann álits á þeim ummælum Erlendar Lárussonar, forstöðumanns Tryggingaeftirlitsins, í DB sl. laugardag, að ekki sé mögulegt fyrirTryggingaeftirlitið að fylgjast með því, að framfylgt sé nýsettum lögum um, að óheimilt sé að tryggja erlendis nema með leyfi ráðherra. Ólafur sagði, að þetta sjónarmið Erlendar hafi verið kynnt i nefndinni. Það hafi hins vegar ekki þótt rökstutt nægjanlega og því hafi ekki verið á það fallizt. Hann sagðist fyrst og fremst álíta það hlutverk embættismanna kerfisins að framfylgja þeim lögum sem alþingi setti þó vissulega gætu ábendingar embættismanna verið gagnlegar. Eins og kom fram i Dagblaðinu sl. laugardag hefur Erlendur nú lagt til, að þessum nýsettu lögum verði breytt vegna þess, að hann telur ekki mögu- legtaðframfylgjaþeim. -GAJ Með slökkvitæki i Himnaríki — en þar var unnið að landhreinsun Á sjötta tímanum á laugardaginn leið enda um jeppaslóðeina að ræða. var slökkviliðinu tilkynnt frá Gufu- Var farið með slökkviliðsmenn á nesradíói að skíðaskáli í Bláfjöllum jeppa upp eftir. stæði í ljósum logum. Var fljótt Er þangað kom reyndist aðeins um brugðið við að vanda og haldið í Blá- landhreinsun að ræða. Skálinn er fjöll. í ljós kom að um var að ræða ónýtur orðinn sakir elli og átti að skála sem er ofar í fjöllunum en hreinsa til, en það láðist að láta vita. gamli skáli Ármenninga í Jósefsdal, Eldurinn sást líka úr flugvélum og og heitir því fallega nafni Himnaríki. þótti að vonum tíðindum sæta. ^EkkMtomsMlökkviliðsbíllinr^ll^^^^^^^^^^^^^^^^^^^ASt^ Grunnurinn að hinu nýja safnaðarheimili á Selfossi hefur þegar verið reistur. Hvert framhaldið verður ræðst af fjármagni. DB-mynd Ragnar Th. Safnaðarheimili ísmíðum við Selfosskirkju „Gefur ótal möguleika” — segir sr. Sigurður Sigurðarson, sóknarprestur ,, Við kirkjuna er starfandi kvenfélag. og æskulýðsfélag. AA-deildin, sem starfaði í kirkjukjallaranum, varð að fara þaðan vegna plássleysis,” sagði séra Sigurður Sigurðarson, sóknar- prestur á Selfossi, er Dagblaðið hafði samband við hann og spurði út í, hvaða not kirkjan mundi hafa af hinu nýja safnaðarheimili sem nú er hafin bygg- ing á við Selfosskirkju. Einnig er ráð- gert að lengja sjálfa kirkjubygginguna lítilsháttar en hún var vígð 1956. Þá er og fyrirhugað að reisa turn við kirkj- una. Grunnflötur jtessarar nýju bygg- ingar verður 340 fermetrar. Séra Sigurður benti á að kirkjan og söfnuðurinn hefðu átt erfitt með að taka á móti gestum, kórum og æsku- lýðshópum vegna þess að þessa að- stöðu hefði vantað. Þetta nýja húsnæði gæfi ótal möguleika fyrir unglinga- og æskulýðsstarf, veizlur og möguleika á umræðum eftir messur. Um fjármögnunina sagði séra Sigurður, að hún byggðist einkum á frjálsum framlögum fólks. Þá væri von um lán úr kirkjubyggingasjóði og félagsheimilasjóði. Selfossbær lagði fram 4 milljónir króna og önnur éins upphæð hefur borizt með frjálsum framlögum. Þá hefur talsvert starf verið unnið í sjálfboðavinnu við bygg- inguna. í safnaðarheimilinu nýja verður einn stór samkomusalur, skrifstofur, fund- arherbergi, snyrtingar og eldhús. Bjarni Pálsson arkitekt teiknaði húsið en byggingarframkvæmdir hefur með höndum Guðmundur Sveinsson bygg- ingameistari. -GAJ Okkur vantar aðstöðu í miðbæ Kópavogs Nýtt, frjálst og óháð, stálhresst bæjarblað í Kópavogi vantar nú þegar hóflega aðstöðu sem næst umferðinni í miðbæ Kópavogs; herbergi eða aðgang að skrifstofu. Fyrst um sinn til áramóta. Simi 26050, Heimir Jóhannsson. UTBORGUN 1/3 BENSiNVERÐ, EKKERT MÁL HJÁ F ' AT EIGENDUM, ÞVÍ EYÐSLAN ER LÍTIL K0MIÐ í SÝNINGARSAL 0KKAR AÐ SÍÐUMÚLA 35

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.